Morgunblaðið - 24.06.2022, Side 16

Morgunblaðið - 24.06.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 VINNINGASKRÁ 160 8046 16143 28538 39493 49460 59638 70783 397 8243 16604 28915 39685 49986 59687 70844 905 8578 17151 29929 40245 50384 60129 70878 1017 8783 17342 30028 40538 50438 61527 70988 1035 8922 17348 31648 40671 50662 61590 71069 1379 8956 17533 32000 40686 50676 61669 71156 1654 8963 19120 32096 41549 50799 61718 71887 1733 9150 19144 32099 41754 50964 61933 72279 1761 9216 19234 32348 42217 51179 62049 72424 1875 9268 19704 32382 42552 51301 62172 73125 1900 9875 19716 32469 42715 51302 62431 73355 1941 10122 19867 32731 42735 51595 62523 74031 2317 10305 20295 33030 42802 52277 62547 74287 2714 10381 20609 33172 42878 52372 63144 75283 2898 10738 21158 33299 43042 52407 63279 75380 3016 11013 22155 33394 43144 53177 63291 75649 3190 11200 22599 33596 43234 53377 63405 75932 3203 11562 22990 33639 43289 53700 63600 76701 3316 11804 23409 33993 43367 53762 63645 77041 3357 11838 23731 34365 44086 53787 63653 77108 3758 12440 23966 35067 44300 53931 63734 77132 3774 12889 24013 35386 44669 54196 63809 77183 3869 13081 24402 35616 45002 54705 63906 77696 3910 14011 24932 35738 45055 55334 64335 77699 3931 14243 25588 36140 45085 55421 65913 77862 4661 14501 25629 36635 45531 55454 66366 77994 4745 14595 25956 36852 45598 55460 66537 78379 4877 14866 26009 37156 46113 55500 66602 78433 4898 15249 26304 37215 46529 55507 67122 78611 4908 15303 26362 37285 46610 57084 67252 79001 5535 15342 26502 37599 46680 57125 67287 79727 5637 15348 27509 37600 47689 57550 67496 6011 15465 27575 37711 47993 58114 67603 6778 15650 27756 37782 48438 58163 68388 6880 15776 27785 38223 48664 58934 68790 6888 15989 28034 38355 48855 59106 69429 7251 16012 28204 39070 49218 59325 70170 31 10516 19098 30729 40025 49204 57520 69291 1076 10574 20907 31739 40698 50090 58285 69967 1859 10717 21539 32444 40842 51336 58724 70132 4667 12275 22554 34788 42416 51338 58998 70781 4988 12290 22847 35101 45699 52097 59586 72884 6482 12361 23628 35958 45880 52359 63450 73934 6828 12790 24304 36395 46025 52730 63465 74473 7516 14365 26313 36682 46249 53756 64304 77176 7747 14387 26503 37292 47003 54880 65746 79526 7866 14986 26741 37882 47129 55809 66926 7869 15523 27056 38311 47769 56209 67959 8096 15810 27601 39256 48399 56367 68415 9202 18646 30652 39536 48897 56860 69186 Næst útdráttur fer fram 30. júní 2022 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 2287 19617 39365 57824 61735 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 4066 16968 23165 25898 47319 73133 13518 18556 23676 34177 48840 74382 13868 19379 24526 35286 49519 74559 16429 23049 24549 39396 57872 77299 Aðalv inningur Kr. 20.000.000 Kr. 40.000.000 (tvöfaldur) 5 2 0 1 1 8. útdráttur 23. júní 2022 Að ljúga að öðrum er vondur vani en að ljúga að sjálfum sér er hvers manns bani. Hið mælanlega Á árunum 1930- 1990 var meðalfylgi Sjálfstæðisflokksins 52% í bæjar- og borg- arstjórnarkosningum. Verstu úrslit flokksins á tímabilinu voru 47,4% árið 1978 og þau bestu 60,4% árið 1990 undir forystu Davíðs Oddssonar þáver- andi borgarstjóra, þess sigursæla leiðtoga. Í alþingiskosningum á ár- unum 1959-1999 var meðalfylgi Sjálfstæðisflokksins 44% í Reykja- víkurkjördæmi. Tvisvar á tíma- bilinu náði flokkurinn yfir 50%. Annars vegar undir forystu Bjarna Benediktssonar árið 1963 (50,7%) og svo undir forystu Geirs Hall- grímssonar 1974 (50,1%). Í síðustu alþingiskosningum fékk flokkurinn 21,9% í Reykjavík- urkjördæmum. Flokkurinn hefur aldrei fengið eins slæmt kjörfylgi í Reykjavík í alþingiskosningum. Í nýafstöðnum kosningum til sveit- arstjórna fékk hann 24,5% í borg- inni. Flokkurinn hefur aldrei fengið eins slæmt kjörfylgi í Reykjavík á sveitarstjórnarstigi. Hinn blákaldi veruleiki Einhverjir hafa haft orð á því að sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka hafi orsakað fylgistapið í borginni og að líta megi á niðurstöðuna sem varnarsigur. Það stenst hins vegar ekki skoðun. Flokkurinn mældist með 21,9% fylgi í skoðanakönnun sem var birt 11. febrúar. Söluferli Íslandsbanka var ekki sett af stað fyrr en 22. mars eða yfir mánuði síðar. Það er því eitthvað annað en bankasalan sem um er að kenna. Þá var það heldur ekki vinsæld- um meirihlutans að kenna. Augljós vanþóknun og megn óánægja var með verk og stefnu síðasta meiri- hluta í borginni enda var hann kol- felldur í kosningunum. Fólkið vildi ekki þennan meirihluta. Samfylk- ingin missti tvo borgarfulltrúa og síamstvíburi hennar einn. Hafa ber í huga að þetta eru þeir tveir flokkar sem hafa verið fánaberar þéttingar, borgarlínu og bílahat- urs. Stefna sem hefur alið af sér tilgangs- lausasta umferðaröng- þveiti norðan Alpa- fjalla. Kjósendur höfnuðu þessu! Slíkt árferði ætti að vera kjörið fyrir stór- sigra. Einnig fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þrátt fyrir það endaði ekki eitt einasta óánægjuat- kvæði (og þau voru mörg) hjá Sjálf- stæðisflokknum. Ekki eitt! Ekki bara það heldur tapaði flokkurinn miklu fylgi frá síðustu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn missti tvo borgarfulltrúa rétt eins og Sam- fylkingin, sem er ófullnægjandi ár- angur. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að flokkurinn tapaði fimmtungi af fylgi sínu frá síðustu borgarstjórnarkosningum og hefur glatað hátt í helmingi kjósenda sé horft til meðalfylgis á árunum 1930-1990. Sjálfstæðisflokkurinn er vissu- lega enn stærsti flokkurinn. Slík skilyrði væri þó hægt að uppfylla í nánast öllum tilfellum svo lengi sem stjórnmálaflokkar eru nægi- lega margir og nægilega smáir. Stjórnarfar í slíku smáflokkaum- hverfi elur hins vegar á áhrifaleysi kjörinna fulltrúa og byrgir mönn- um sýn á þeirra ríku ábyrgð. Þá þarf ekki marga slíka „varn- arsigra“ til að gera flokkinn áhrifa- lausan með útilokun eða neyða hann til uppgjafar í aðalstefnu- málum. Ný nálgun Á gullaldarskeiði sínu átti Sjálf- stæðisflokkurinn frumkvæði að mörgum grundvallarmálum; svo sem að orkuveitur væru í eigu hins opinbera, að jarðnæði og aðrar fasteignir væru í íslenskri eigu og auðvitað að þjóðin byggi við stjórn- skipulegt frelsi. Þá var Sjálfstæð- isflokkurinn sjálfstæðisflokkur og sem slíkur voru fulltrúar hans óhræddir að verja það sem máli skiptir; svo sem þjóðareinkennin, þjóðmenninguna, þjóðkirkjuna, sjálfstæðið og ásókn erlendra hags- muna í þjóðarauðlindir okkar og eignir. Flokkurinn var breiðfylking sem vildi varðveita hið mikilvæga líkt og er einkenni stórra íhalds- flokka í Evrópu. Hér má halda því til haga að aðalstefnumál flokksins voru og eru meðal annars að „Ís- land taki að fullu og öllu sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina“. Upp á síðkastið hafa fulltrúar flokksins hins vegar vikið frá því að sýna nokkurt einasta frumkvæði í slíkum málum og þess í stað elt hismi samfélagsmiðla og fylkt sér á bak við hin og þessi mál sem ekki eiga við á Íslandi og geta jafnvel verið þjóðinni skaðleg um ókomna tíð. Það verður ekki litið fram hjá því að þetta daður við umrótið hef- ur skaðað flokkinn og traust til hans. Þá verður heldur ekki litið fram hjá því að kjörnir fulltrúar flokksins hafa fjarlægst sjálfstæð- isstefnuna og þau mikilvægu að- alstefnumál flokksins sem þó voru lögð til grundvallar við stofnun hans. Þetta má sjá á talsmáta þeirra sem vilja selja Landsvirkjun eða landið okkar til útlendinga. Slík stefna hefur óhjákvæmilega skaðað flokkinn og fært ásýnd hans til vinstri. Það hefur verið nefnt og verður aldrei of oft kveðið að sjálfstæð- isstefnan er sál flokksins sem gegn- ir hlutverki vitans í hinu sí- breytilega veðurfari stjórnmálanna. Flokksforystan mætti huga að afleiðingum þess þegar skipstjórar og stýrimenn, týndir í þoku hismis og hégóma, villast frá og hirða ekki um eða meðvitað neita að nota ljósmerki vitans. Það endar ekki vel ef menn segja skilið við sálina. Þegar þagnar í eimreiðinni Eftir Viðar Guðjohnsen » Það verður ekki litið fram hjá því að þetta daður við umrótið hefur skaðað flokkinn og traust til hans. Viðar Guðjohnsen Höfundur er lyfjafræðingur og sjálfstæðismaður. Ársæll Guðmunds- son skólameistari Borgarholtsskóla hef- ur ítrekað tjáð sig um það að sveinspróf séu tímaskekkja og úrelt fyrirbæri sem beri að afleggja. Ekki átta ég mig á því hvað það er við þau færnipróf sem sveinsprófin sannar- lega eru sem truflar skólameistarann. Ekki þá annað en að framkvæmd prófsins fer fram á forsendum at- vinnulífsins en ekki skólans. Engu að síður telur skólameistarinn að samstarf atvinnulífsins og skóla sé mikilvægt og nauðsynlegt. Að lyk- illinn að farsælu námi séu góð tengsl kennara og nemenda. Sem eflaust má til sanns vegar færa. Líkt og nemendur eru kennarar misjafnir og ekki alltaf sem þeir ná þessum tengslum sem Ársæll telur svo mikilvæg og nauðsynleg. Núverandi kerfi Nú er það svo að ætli nemandi að læra iðn þarf hann að stunda verk- legan hluta þess á vinnuplássi í þeirri grein sem numið er í. Þar fer fram verkleg kennsla undir stjórn meistara og neminn fær að kljást við flóknari verkefni eftir því sem færni hans eykst. Á vinnuplássinu fer fram raunveruleg framleiðsla á vörum og þjónustu sem viðskiptavinir greiða fyrir. Til þess er leikurinn gerður; að læra þá færni sem til þarf og markaðurinn kallar eftir á hverjum tíma. Að ætla sér að kenna handverk ein- göngu í skóla er hæpið og varla mögulegt í öllum greinum. Sveinsprófið er hið endanlega mat á færni nemandans eftir fjög- urra ára nám. Und- irritaður hefur í allmörg ár komið að sveinsprófum í bakstri sem prófdómari og að semja prófaefni. Sveinsprófsnefndir eru skipaðar af menntamálaráðherra og í þær velst fólk annars vegar frá atvinnurek- endum og hins vegar viðkomandi fagfélagi. Raunar skiptir litlu hvað- an nefndarmenn koma hafi þeir þá þekkingu og færni sem til þarf til að meta verklega færni og fag- þekkingu nemenda. Hver er reynslan? Afar misjafnt er hvernig nem- endur í sveinsprófi standa sig, eðli- lega. Sumir eru taugatrekktir, kvíðnir og enn aðrir eru óskipu- lagðir og metnaðarlausir. Bara eins og gengur með nemendur í öllum fögum, býst ég við. Sumir nem- endur hafa haft þá grillu að sveins- prófið væri léttara en lokapróf í verklegum áföngum í skóla, þó án þess að ná að sýna það með eigin frammistöðu. Aðrir nemendur töldu sig það færa að þeir voru farnir að kenna öðru fólki fagið í gegnum samfélagsmiðla og bók- arskrif áður en að útskrift kom. Sem greinilega tafði þá frá raun- verulegu námi því árangurinn á sveinsprófi var síðan nær falli en fararheill. Þetta segi ég bara til að ítreka að það sé varla neinum hollt að hlaupa áður en hann lærir að ganga og vænlegra til árangurs er að hafa grunnatriðin á hreinu áður en haldið er út í atvinnulífið. Síðan má taka undir orð Ársæls skóla- meistara um það að að námi loknu hefjist fyrst námið, sem er sann- arlega rétt, en til að ná að tileinka sér nýja færni þarf að kunna skil á þeirri gömlu því oftast er sú nýja byggð á hinni gömlu. Það má ekki gleymast í nútímavæðingu skóla- meistarans. Skólameistari með skoðun Eftir Steinþór Jónsson » Ársæll Guðmunds- son skólameistari Borgarholtsskóla hefur ítrekað tjáð sig um það að sveinspróf séu tíma- skekkja og úrelt fyrir- bæri sem beri að af- leggja. Steinþór Jónsson Höfundur situr í sveinsprófsnefnd og stjórn Menntaskólans í Kópavogi. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.