Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 ✝ Brynjar Vatns- dal Dagbjarts- son (Billi) fæddist 23. nóvember 1947 í Hafnarfirði. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands 14. júní 2022. Foreldrar Brynj- ars voru Dagbjart- ur Guðmundsson og Dagbjört Brynj- ólfsdóttir. Brynjar ólst upp í Hafnarfirði ásamt systkinum sínum þeim Reyni Vatnsdal, f. 1932, d. 1999, Birgi Vatnsdal, f. 1941 og Fjólu Vatnsdal, f. 1945, d. 1945. Sam- feðra áttu þau systur, Berg- þóru, f. 1938, d. 2015. Brynjar hóf snemma störf á sjó og í byggingarvinnu um land allt. 1967 kynnist hann eft- irlifandi konu sinni, Guðrúnu beinsson, og Guðrúnu Ísafold, f. 2000. Þorleifur Jón er giftur Villimey Elfudóttur og á hann tvo syni, Salvar Aron, f. 2001, maki hans er Sólbjört Lilja Há- konardóttir, og Ísak Máni, f. 2003. Árið 1980 flytja þau Brynjar og Guðrún með börnin til Sví- þjóðar þar sem þau búa næstu 9 árin. 1989 flytja þau svo aftur heim til Íslands og búa fyrst í Reykjavík og svo aftur í Hafn- arfirði. Þau hjónin byggðu svo sumarhús í Reykjaskógi í Bisk- upstungum sem þau svo fluttu alfarið í árið 2002. Brynjar gerðist snemma skáti í Skátafélaginu Hraunbú- um og í beinu framhaldi gekk hann til liðs við Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði. Á meðan búskapur þeirra varði í Svíþjóð fylgdi hann börnunum í skáta- starfið þar og eftir að flutt var heim aftur tók hann upp þráð- inn á ný með skátum og hjálp- arsveit. Útför hans fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 24. júní 2022, kl. 13. Kristinsdóttur, og giftist henni 16. ágúst 1969. Þau hófu búskap í Fög- rukinn 20 í Hafn- arfirði. 7. október 1971 eignuðust þau sitt fyrsta barn, Dag- bjart Kristin, og tveim árum seinna, 7. desember 1973, Dagbjörtu. Þau flytja á Jófríðarstaðarveg 8a og þar bætist þriðja barnið við, hann Þorleifur Jón, 5. júní 1978. Dagbjartur Kristinn er giftur Elsí Rós Helgadóttur og eiga þau tvö börn, Emmu Vilborgu, f. 2019 og Elías Valtý, f. 2021. Dagbjört er gift Páli Sigurði Magnússyni og eiga þau tvær dætur, Andreu Dagbjörtu, f. 1998, maki hennar er Sölvi Kol- Elsku pabbi minn. Nú ertu farinn heim og verk- efni þínu er lokið. Fáir geta verið jafn stoltir af pabba sínum og ég, því ég átti besta og hjálpsamasta pabba í heimi. Þú gafst mér meira en nokkurn grunar: óstöðvandi hjálpsemi, endalausa ofvirkni, hjartafylli af kærleika og um- hyggju fyrir öllum og öllu. Við systkinin fengum þetta allt í vöggugjöf frá þér og þið mamma komuð okkur þremur til manns, þótt eflaust hafi vonin um það verið lítil þegar við vorum villing- ar í skóginum heima í Svíþjóð. Barnabörnin eru núna orðin sex og muna eftir afa Billa sem sólbrúnum og sætum, alltaf með bros á vör og kærleika og hlýju í hjarta. Afi Billi var einfaldlega bestur. Ég fékk að vera með þegar þú fékkst Gilwell-einkennin eftir langa bið. Þú varst stoltur og hreykinn, því þér tókst þetta. Þú lést þig ekki vanta þegar Andrea Dagbjört fékk sín einkenni og þegar Biggi fékk sín eftir langa bið stóðstu hreykinn við hlið hans. Ég var samt stoltust allra, held ég, á öllum þessum stundum. Nú ert þú farinn heim með ein- kennin þín með þér. Ég treysti því að Gilwellskátar hafi tekið á móti þér með kröftugu Isaka. Endalaus hjálpsemi þín kenndi okkur að hjálpsemin fyllir hjörtu af vellíðan og hamingju. Það má með sanni segja að við sem um- gengumst þig mest höfum fyllt okkar hjörtu á þann hátt sem þú kenndir okkur. Skátamótin þar sem þú rigg- aðir upp pop-up verslunum fyrir mig áður en pop-up verslanir urðu til. Heilgrillaðir grísir, Sjón- arhóll, sixpensarar, jólamatur- inn, kærleikurinn … Allt eru þetta minningar sem lifa áfram í hjarta mínu. Það eru ekki til orð sem lýsa þeim söknuði sem fyllir hjarta mitt núna, en sársaukinn mun venjast því ég veit að þú passar upp á okkur áfram. Takk fyrir allt sem þú gafst mér og mínum. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. (Kvöldsöngur kvenskáta) Þín Dagbjört (Dagga). Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Billi minn. Gamli góði tryggi vinur. Þú kvaddir snöggt og hélst á braut, enda varstu alltaf röskur í verkefnum þínum, alla daga eitt- hvað að brasa og koma á óvart. Verkefnin virtust elta þig uppi enda ljúft að biðja þig um greiða. Ég var svo lánsöm að kynnast mágkonu þinni í Bernhöft í denn og í kjölfarið kynnast fjölskyldu hennar allri og ekki síst ykkur hjónum. Frá fyrstu stundu varð mikill vinskapur og virðing á báða bóga sem hélst fram á sein- asta dag. Ég er þakklát fyrir allar stundir með ykkur Dúnu, þið vor- uð dásamlegt teymi. Þú varst lífs- glaður Gaflari og fylginn þér, vin- margur enda glettinn og góð sál. Þú fannst fjölina þína þegar þér var úthlutað lóð í Reykja- skógi, þar undir þú lengi einn í frístundum við að byggja ykkur hreiður og varst stoltur af, enda máttir þú vera það. Ég man hvað hún Dúna þín var spennt að flytja austur því hún var ein af þeim sem gátu flutt vinnuna með sér. Þú vannst af getu verkefnin sem þér buðust og bárust á milli þess sem þú hugsaðir vel um Dúnu þína eftir að heilsa hennar fór að bila. Af börnum þínum varstu stoltur og þú fékkst að njóta barnabarnanna sem þú naust að umgangast í sveitinni. Þú varst stoltur skáti og sáðir fræjum í kringum þig sem vaxa enn og blómgast ár frá ári. Far í friði, gamli vin, hafðu þökk fyrir allt í þessu jarðlífi. Elsku Dúna, Bjartur, Dagga, Bóbó og fjölskyldur ykkar. Ég sendi ykkur kærleiksljós og stórt faðmlag ásamt innilegri samúðarkveðju. Sigríður (Sigga Svavars). Það er með döprum hug sem við skógarbúar í Reykjaskógi Biskupstungum kveðjum góðan félaga og vin. Alltaf verðum við óviðbúin þrátt fyrir að ljóst hafi verið að veikindi voru fyrir hendi en af dugnaði hélt Brynjar áfram með líf sitt af þeirri glaðværð og hjálpsemi sem einkenndi hann. Brynjar var einn af mörgum frumkvöðlum skógarins, kom að flestum framkvæmdum, lét sig aldrei vanta. Margt sem gert var á svæðinu varð til fyrir atbeina hans. Er rétt að minnast brúarinnar yfir Vallará. Þar var hann fremst- ur í flokki ásamt öðrum sumar- húsaeigendum og landeiganda, Gunnari Ingvarssyni. Á leiksvæðinu, sem var gert fyrir börnin á svæðinu, var hann óþreytandi við að leggja sitt af mörkum. Með öðrum félögum voru smíðaðar níu mínígolfbraut- ir á einni helgi. Hann tók alltaf þátt í vinnu- helgi skógarins sem haldin var einu sinni á ári og lagði sitt sann- arlega af mörkum. Mætti við grillið í lokin og sá um að allir fengju nóg í mat og drykk. Það var svo margt sem hann kom að, sem yrði of langt upp að telja, sem gera þurfti og fram- kvæma eins og viðhald, umsjón hliðsins ásamt svo mörgu sem varðaði sameign skógarins. Brynjar hafði gott lag á því að hrista fólk saman og stofnaði grúppu sem hét Kótilettukvöld. Þá lét hann boð út ganga að við færum út að borða saman og auðvitað fékk hann fólk til að koma. Kótilettukvöldið var vel sótt og mæltist vel fyrir, fólk kynntist og átti skemmtilegt kvöld saman. Lengi vel voru haldnar stórar sumarhátíðir í skóginum og var hann þar fremstur manna til að leggja hönd á plóginn. Ekkert af þessu gerðist fyrirhafnarlaust en alltaf var hann glaður og kátur með grínið meðferðis við slíkar samkomur. Brynjar var bóngóður með af- brigðum. Það eru eflaust ekki margir bústaðir í skóginum sem hann kom ekki að. Hann aðstoð- aði eigendur þeirra, hvort sem það var við smíðar, pípulögn, raf- magn og fleira og fleira. Hann var mjög fjölhæfur maður og útsjón- arsamur. Allt samfélagið hér í Reykja- skógi syrgir þennan einstaka mann sem kunni ekki að neita bón. Verður hans sárt saknað og margir eiga eftir að hugsa til hans með hlýhug, vináttu og þakklæti. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur, kæra Dúna og fjöl- skylda. Fyrir hönd sumarhúsaeig- enda, Hjördís Bára og Stefán Hans. Það er erfitt að kveðja kæran vin sem kvaddi þetta líf svo skyndilega, alltaf verðum við óviðbúin þrátt fyrir að ljóst hafi verið að veikindi hafi verið tölu- verð og Brynjar, sem við kölluð- um alltaf Billa, hafi í raun ekki borið það með sér, heldur haldið áfram með líf sitt af ótrúlegum dugnaði, glaðværð og hjálpsemi sem einkenndi hann. Vinátta, væntumþykja og þakklæti er okkur efst í huga, það var sannarlega það sem ein- kenndi Brynjar, í honum birtist orðatiltækið „eitt sinn skáti, ávallt skáti,“ alltaf viðbúinn að hjálpa. Billi var einstakur maður. Það var fyrir rúmlega tuttugu árum sem við hittum þennan glaða og kvika mann og með okk- ur tókst vinátta, hann var alltaf var tilbúinn að hjálpa, það var honum svo eðlislægt enda lék nánast allt í höndunum á honum og hann var með afbrigðum ráða- góður og lausnamiðaður. Það voru ófáar gleðistundirnar sem við áttum saman í sumarhúsi okk- ar og víðar. Hugurinn leitar til allra gleði- stundanna sem við áttum saman og brölluðum eitthvað sniðugt, oft var mikið hlegið. Til varð orðatiltæki á heim- ilinu: „Ég er með hugmynd,“ það var oftar en ekki sem Billi kom til okkar og sagði þessa setningu, þá hlógum við, vissum að nú væri hann að bralla eitthvað sem hon- um datt í hug enda með eindæm- Brynjar Vatnsdal Dagbjartsson ✝ Ragna Þor- gerður Stef- ánsdóttir fæddist í Pétursborg á Reyð- arfirði 18. október 1924. Hún lést á Hrafnistu Sléttu- vegi í Reykjavík 19. júní 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Stefán Bjarna- son frá Fossi á Síðu og Sigríður Jónsdóttir frá Ein- holti á Mýrum. Ragna var sjötta í röð tíu al- systkina, hin eru: Blómey, Geir, Guðríður, Bjarni Jón, Pálína Anna, Gunnar Auðunn, Helga Valborg, Kristín Stefanía og Guðný, en þau eru öll látin. Að auki átti hún fjögur hálf- systkin, eldri, börn Stefáns af fyrra hjónabandi; Matthildi, Skarphéðin, Gunnar og Njál, sem öll eru látin. Ragna giftist 22. október 1949 Vigfúsi Sigurðssyni frá Húsavík, f. 18. janúar 1924, d. 13. nóvember 1998. Barn þeirra er Hanna Rúna, f. 1956, hennar dóttir er Ragna, f. 1977, sambýlismaður David Schlecht- riemen, f. 1979, dætur þeirra eru Ronja, f. 2008, og Rúna Karlotta, f. 2013. Fyrir átti Vigfús soninn Inga, f. 1951, kvæntur Hrefnu Eyjólfsdóttur f. 1954, eiga þau þrjá syni. Ragna ólst upp á Reyðarfirði en fluttist ung til Reykjavíkur, þar sem hún bjó allar götur síð- an. Hún vann ýmis störf á sinni starfsævi. Starfaði við aðhlynn- ingu á Kleppsspítalanum og síð- an hjá Samvinnutryggingum og VÍS í 28 ár sem matráður til starfsloka. Útför Rögnu fer fram í dag, 24. júní 2022, frá Bústaðakirkju og hefst athöfnin kl. 10. Meira á www.mbl.is/andlat Við, litla fjölskyldan, ég, pabbi og þú mamma mín, áttum góðar stundir í sumarbústaðnum okkar í Mosfellsdalnum. Þið að rækta tré og ég að reyna að smíða kofa við ána. Seinna, þegar þið fluttuð á Sogaveginn, tók garðvinna aft- ur við og rólegri tími. Alltaf var farið í berjamó og reynt að finna ber í Kjósinni, á Þingvöllum eða í Heiðmörk. Þú varst alltaf til í að skutlast hvert sem var. Í janúar ár hvert var farið til Kanarí á meðan við Ragna dóttir mín pöss- uðum húsið og köttinn og mok- uðum snjó. Ófáar voru gleðistundirnar í eldhúsinu, þar sem drukkið var kaffi, spáð í kaffibolla, eldað og bakað, settar rúllur í hárið og augnhár og augabrúnir litaðar þegar Ragna yngri kom í frí frá sínu námi í Bretlandi. Skemmtilegast þótti þér að ferðast. Þú fórst t.d. til Köben, Grænlands, Spánar, Bretlands, Krítar, Hawaii og Ameríku. Við þrjár, Rögnurnar og ég, fórum til Parísar og héldum upp á áttræð- isafmælið í Eiffelturninum. Alla leið skyldum við fara, þótt þú þyrftir að ganga upp erfiðar tröppur efst í turninum. Þú varst litrík og það er gaman að hugsa til þess þegar þú varst að skerpa rauða litinn í hárinu með hennalitum og hárið varð bleikt. Þá kallaði Gunnar í næsta húsi þig Pink lady. Þið Gunnar fóruð saman til Köben og leigður var bíll. Þú að nálgast áttrætt, keyrðir frá flugvellinum í mið- borgina og síðan út á land. Þú reyndir alltaf þitt besta og allt var hægt. Um áttrætt ferðað- ist þú líka ein og heimsóttir Rögnu, ömmustelpuna þína, til Bretlands og ferðaðist þar og skemmtir þér með unga fólkinu. Þú þurftir að hafa mikið fyrir lífinu alveg frá fæðingu, dugleg, baráttu- og kjarnakona. Þín Hanna Rúna Vigfúsdóttir. Elsku besta amma í heimi er farin, sú sem hefur fylgt mér allt mitt líf og mótað mig á svo ótal marga vegu. Ég veit að hennar tími var kominn en sorg mín og söknuður eru hyldjúp. Ég gæti skrifað heila bók um ömmu, enda var hún litríkur kar- akter og algjör kjarnorkukona. Það á vel við að hún skyldi hafa kvatt okkur á kvenréttindadag- inn. Hún sýndi ávallt að maður gerir hlutina sjálfur og það þarf að hafa fyrir hlutunum. Hún sagði mér gjarnan stolt frá því hvernig hún keypti sína fyrstu íbúð og sinn fyrsta bíl, Bjölluna. Amma hefði getað orðið heimsfræg kvikmyndastjarna eða listakona, hún var að minnsta kosti heimsfræg í mínum augum. Alltaf vel til höfð og fór ekki út úr húsi án þess að setja upp andlitið, eins og hún sagði alltaf. Hún fór sínar eigin leiðir og sagði stund- um í gríni að hún hefði örugglega verið fyrsti pönkari landsins þeg- ar hún litaði svartan lokk í fag- urrauða hárið sitt ung að árum. Síðar meir, á níunda áratugnum, var hún flotta amma mín með blá- an eða grænan maskara, var al- veg sama hvað öðrum fannst og lá sjaldnast á skoðunum sínum. Ég fékk þann heiður að heita í höfuðið á henni og áttum við það sameiginlegt að vera báðar freknóttir rauðhausar, sem ég var glöð með, því ég var eins og amma og amma var best. Minningarnar hrannast nú upp. Það var svo ótal margt sem amma kenndi mér, enda var henni margt til lista lagt. Hún málaði og saumaði listaverk, stundaði glerskurð og postulíns- málun, saumaði sína eigin kjóla og bútasaumsteppi. Hún var með eindæmum frændrækin og gest- risin, eldaði og bakaði best af öll- um, pönnukökur og kleinur og ekki komu jólin nema við fengj- um rjúpur, kæsta skötu (sem var aldrei nógu bragðsterk fyrir ömmu) og skorið væri út laufa- brauð. Amma var líka algjört náttúrubarn og kenndi mér að virða og elska náttúruna. Hún ræktaði grænmeti, sultaði og hafði áhuga á náttúrulækningum og garðyrkju. Hún kenndi mér að búa til blóðbergste, að nota fífl- amjólk á freknurnar, að kúahland væri gott fyrir hárið, kenndi mér að blása í ýlustrá og flétta blóma- kransa. Á Jónsmessunótt laum- uðumst við út á miðnætti fliss- andi til að velta okkur naktar upp úr dögginni, að gömlum sið, til heilsubótar. Hún kenndi mér ut- anbókar ljóð, vísur og þjóðsögur og ég lærði að spila og leggja kapal. Á meðan við biðum eftir að spákaffið þornaði í bollunum, spiluðum við með ættingjum og vinum sem komu gjarnan og oft í heimsókn. Lífið var alltaf ævin- týri með ömmu, virðing var borin fyrir því yfirnáttúrulega og við trúðum saman á drauga, tröll og álfa og fundum fyrir þeim þegar við ferðuðumst um landið á besta bíl í heimi, Skodanum! Lífið verður tómlegt án ömmu en ég veit að hún bíður eftir því að taka á móti okkur síðar meir með sinn hlýja faðm og bros á vör og á meðan vakir hún yfir okkur og gætir. Ég er full þakklætis, þakklát fyrir árin sem ég fékk með ömmu og þakklát fyrir það að David og Ronja og Rúna Kar- lotta dætur okkar fengu líka að kynnast henni vel og tengjast órjúfanlegum böndum. Takk fyrir allt elsku amma. Þín ömmustelpa, Ragna Skinner. Elsku langa mín, þú ert mik- ilvægasti hluti lífs míns og besta vinkona mín. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og ég veit að þú verður alltaf hjá mér. Ég man þegar þú hjálpaðir mér að læra að lesa sögubækur, kenndir mér að baka vöfflur og pönnukökur og prjóna. Ég man þegar þú varst alltaf að keyra mig út um allt, sitjandi á göngugrindinni þinni og greipst mig þegar ég datt. Ég man allar góðu stundirnar í garð- inum þínum, þegar ég hjálpaði þér að reyta arfa og hugsa um blómin. Þú ert besti knúsari í heimi, alltaf brosandi og við grín- uðumst mikið saman. Ég mun sakna þín svo mikið. Er í lagi að ég gráti stundum? Ég elska þig alltaf og geymi þig í hjartanu mínu. Þín langömmustelpa, Rúna Karlotta Davidsdóttir (9 ára). Elsku besta langan mín var af- ar brosmild og náði alltaf að koma mér í gott skap. Hún kenndi mér svo ótal margt, meðal annars að prjóna, sauma og baka. Það var alltaf gaman að koma að heimsækja hana og við spiluðum mikið Ólsen ólsen. Hún vann í nánast hvert skipti. Hún var besti kokkur í heimi og bjó til besta laxinn, pönnukökurnar og vöfflurnar. Við hlógum mikið saman og hún var alltaf að grínast og gretta sig. Ég hjálpaði henni oft að tína rifsberin og rabarbarann úr garðinum á Sogaveginum og við bjuggum til sultu úr þeim. Þú munt alltaf lifa í hjarta mínu og ég mun sakna þín mjög mikið. Þín langömmustelpa, Ronja Davidsdóttir (13 ára). Ragna var stórkostleg per- sóna sem ég mun aldrei gleyma og lifir áfram í okkar hjörtum. Hún var tengdaamma mín og langaamma dætra minna. Við elskuðum hana öll, dýrkuðum og dáðum og munum halda upp heiðri hennar í húsinu á Soga- veginum, sem er nú okkar heim- ili, ég er nú þegar byrjaður að sökkva mér í garðyrkjuna í garð- inum hennar sem fyllir mig ró og lífsgleði. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég kom fyrst í heimsókn til Íslands sem kærasti Rögnu yngri fyrir um 14 árum og hún bauð mig strax hjartanlega vel- kominn í fjölskylduna, með op- inn faðminn og gaf alltaf besta faðmlagið sem minnti mig oft á mína eigin ömmu. Síðar þegar ég svo loksins flutti til Íslands sagði hún „loksins ertu kominn“. Hún tók líka alltaf vel á móti foreldr- um mínum, gestrisin með bros á Ragna Þ. Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.