Morgunblaðið - 24.06.2022, Síða 24

Morgunblaðið - 24.06.2022, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 40 ÁRA Sigríður er fædd og uppalin á Patreksfirði en flutti til Grindavíkur árið 2011 og býr þar í dag. Hún er deildar- stjóri hjá Hæfingarstöðinni í Reykja- nesbæ. Hún er kennari að mennt og með MA-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands. Sigríði finnst gaman að ferðast og er nýfarin að stunda golf. „Ég er alltaf á leiðinni til Ítalíu og fer vonandi á þessu ári.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Sigríðar er Gunnar Daníel Ingþórsson, f. 1979. Þau eiga soninn Unnstein Óla, f. 2014. Dóttir Sigríðar úr fyrra sambandi er Melkorka Mist Einarsdóttir, f. 2003. Sigríður á stjúpbörnin Sóldísi Huldu, f. 2009 og Al- mar Orra, f. 2010. Foreldrar Sigríðar eru Gunnar Ragnarsson, f. 1949, og Ásthild- ur Ágústsdóttir, f. 1955. Sigríður Gunnarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Fjörugt félagslíf gæti leitt til óvar- kárni í fjármálum. Breytt umhverfi mun auka við þekkingu þína á heiminum. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er þér daglegt brauð að bjóða fram ást þína, en hún verður ekki ómerki- legri fyrir vikið. Skilaboðin eru af andlegum toga, ekki vísa þeim sjálfkrafa á bug. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Rómantíkin ræður ríkjum og þú ert í sjöunda himni því allt virðist ætla að ganga upp. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú gefur frá þér magnaða orku. Fólk vill það ekki. Eða kannski fannstu ein- hvern til að fjárfesta í hugmyndum þínum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ert með hugmynd sem þú vilt koma á framfæri. Ef það gerist hefur þú til- hneigingu til að vilja hjálpa. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Hvernig þú bregst við streitu og álagi sýnir hinn sanna persónuleika þinn. Njóttu þess að vera í sviðsljósinu um tíma. Komdu hugmyndum þínum á framfæri. 23. sept. - 22. okt. k Vog Gerðu það sem þú þarft til þess að gera þig sýnilegri. Taktu aðeins með þér peninga fyrir lífsnauðsynjum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Notaðu innsæið til þess að ákveða hvort þú eigir að láta eitthvað verða að veruleika eða ekki. Varastu því aula- fyndni og ódýr loforð. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Taktu sjálfan þig ekki of alvar- lega og reyndu að sjá broslegu hliðarnar á lífinu. Hafirðu eftirsjá geturðu aðeins kennt sjálfum þér um svo það er ekki eftir neinu að bíða. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert of auðmjúkur í sam- skiptum við þína nánustu og þyrftir að vera fastari fyrir. Tunglið er í merkinu þínu en hinn þrjóski Satúrnus hefur þó enn meiri áhrif á þig. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Ef þú hefur þín takmörk á hreinu mætirðu skilningi og annarra á leið þinni. Vertu hvergi smeykur því áætlanir þínar ganga í augun á yfirboðurunum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Láttu ekki sögusagnir ná þeim tök- um á þér að þú hlaupir upp til handa og fóta áður en þú kannar hvað í þeim felst. Hættan við of mörg verkefni er að einhver þeirra sitji á hakanum. H ulda Margrét Breið- fjörð Traustadóttir er fædd 24. júní 1952 í Djúpavík á Ströndum. Hún ólst upp á Sauðanesi við Siglufjörð ásamt foreldrum sínum og fimm systkinum. Faðir hennar, Trausti Breiðfjörð Magnússon, gerðist vitavörður þar og flutti fjölskyld- una með sér frá Djúpavík þegar síldin hvarf. „Þetta var rosalega afskekkt, þarna á Sauðanesi. Við komum þarna 1959 með vitaskipi og þurftum að fara á litlum bátum í land og ganga upp háan bakka. Það kom ekki vegur fyrr en síðar, þegar göngin komu. Fram að því þurftum við að ganga annað hvort yfir fjallið til Siglufjarðar eða fara með bát ef viðraði vel. Vitinn var ekki sjálfvirkur og honum þurfti að sinna á þriggja eða fjögurra tíma fresti, allan sólarhringinn.“ Faðir Huldu var vitavörður á Sauðanesi í yfir 40 ár en fluttist til Reykjavíkur á tíunda áratugnum, þegar hann var kominn á háan aldur. Sauðanes er enn í ættinni, því bróðir Huldu tók við keflinu af föður sínum og býr nú þar ásamt fjölskyldu sinni. Heimildarmynd var gerð um síðustu æviár for- eldra Huldu og hvernig þau tókust á við ellina. Kvikmyndin heitir Hálfur Álfur. Jón Bjarki Magn- ússon leikstýrði, skrifaði og fram- leiddi myndina. Hún var sýnd víðs vegar um Evrópu við góðar und- irtektir. Hún var einnig tilnefnd til verðlauna og hlaut meðal ann- ars dómnefndarverðlaun Skjald- borgarhátíðarinnar. Hulda var snemma send í fjar- kennslu á milli Sauðaness, Siglu- ness og Reyðarár, hinum megin við fjörðinn. Þá var siglt með hana og systkini hennar á milli staða, þar sem þau lærðu í sex vikur á hverjum stað í senn. Seinna meir fóru þau annað hvort inn í Fljót eða til Siglufjarðar í skóla. Þrátt fyrir að búa mjög afskekkt á Sauðanesi fann fjölskyldan upp á ýmsu til að stytta sér stundir. „Ég las hverja bókina á fætur annarri. Við hlustuðum mikið á Rás 1, öll leikrit, alla þætti og framhalds- sögur eins og þetta var í gamla daga. Svo var pabbi duglegur að smíða stangir og brautir, svo við gátum farið í leiki; langstökk, há- stökk og hlaup var mikið stundað. Við fengum frændsystkinin í sveit til okkar á sumrin og þau minnast alltaf á þessar íþróttakeppnir á Sauðanesi.“ Áhugi Huldu á sögum og leik- ritum kviknaði á Sauðanesi, þar sem hún og Sólveig, systir hennar, léku sér mikið með dúkkur, klipptu út hallir, sömdu sögur og bjuggu til heima. Sólveig gaf út tvær barnabækur áður en hún féll frá árið 2009. Hulda fékk vinnu á hóteli í Borgarfirði 18 ára gömul og var þá byrjuð að fikta við skrif. Síðar starfaði hún hjá Pósti og síma á Brú í Hrútafirði í nokkur ár áður en hún flutti austur á land, fyrst á Egilsstaði og síðar á Reyðarfjörð. Þar vann hún í leik- list og skrifaði og setti upp sýn- ingar. Leikfélagið á Reyðarfirði sýndi Sjóleiðina til Bagdad eftir Jökul Jakobsson og Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. „Við vorum að reyna að vera með ís- lenska höfunda, okkur fannst það svo skemmtilegt. Þegar við vorum í vandræðum, settist ég niður og skrifaði leikrit í fyrsta sinn. Ég skrifaði nokkur leikrit og setti meðal annars upp með nemendum í Grunnskóla Reyðarfjarðar.“ Hulda Margrét Breiðfjörð Traustadóttir - 70 ára Hjónin Hulda Margrét kynntist eiginmanni sínum, José, þegar hún var með systur sinni í Portúgal árið 1991 og voru þær þá að vinna að því að skrifa leikrit. José fór með Huldu til Íslands og settust þau að Akureyri þar sem þau búa í dag. Skáldaður heimur á Sauðanesi Listakona Hulda er áhugakona um leiklist og myndlist og hefur skrifað leikrit og sett upp á Reyðarfirði. Bjuggu afskekkt Hulda bjó afskekkt á Sauðanesi með fjölskyldu sinni þar sem faðir hennar var vita- vörður. Þau styttu sér meðal annars stundir með því að stunda íþróttir, lesa og hlusta á sögur í útvarpinu. Til hamingju með daginn Erla María Ríkharðsdóttir, Katla Guðmundsdóttir, Rakel Brynja Guðmunds- dóttir, Santía Líf Rúnars- dóttir og Jóhanna Bryndís Arnardóttir héldu tombólu við Nettó á Salavegi í Kópavogi til styrktar Rauða krossinum. Þær seldu úkraínuarmbönd og límonaði og söfnuðu alls 35.225 krónum. Hlutavelta –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is Sérblað Morgunblaðsins kemur út 19. júlí Allt sem þú þarft að vita um rafbíla Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.