Morgunblaðið - 24.06.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Glærir ruslapoka
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
1.995
Strákústar
mikið úrval
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16
Garðslöngur
í miklu úrvali
Hrífur
Greinaklippur
frá 585
Burstar framan
á borvél 3 stk.
Mikið úrval af
garðstömpum
Fötur í
miklu úrvali
frá1.495
Laufhrífur
„HELDURÐU AÐ ÞEIR SEMJI OG GREIÐI
MÉR HUNDRAÐ ÞÚSUND EF ÉG FER FRAM Á
FIMM MILLJÓNIR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að hlusta frekar á
leiðbeiningarnar frá
henni en á gps-tækið.
ÉG ER EKKI JAFNMINNUGUR
OG ÉG VAR. STUNDUM GLEYMI
ÉG HLUTUM…
EN Á MÓTI
KEMUR…
AÐ STUNDUM ER ÉG EKKI
JAFNMINNUGUROG ÉG VAR.
STUNDUM GLEYMI ÉG HLUTUM…
SJÁÐU! SNATI ER KLESSTUR VIÐ
MIG. ÞETTA ER SVONA „BESTI
VINUR MANNSINS“ HLUTUR!
ÞETTA ER SVONA
„SNARLAÐ Á MATARSÓÐA“
HLUTUR!
KYRRALÍFSTÍÐARMYND
BEINT AF AUGUM…
KOSS… KOSS… SVO TIL
HÆGRI… KISSIKISS
Hulda flutti norður á Akureyri
1991 og býr þar í dag ásamt eig-
inmanni sínum. Hún vann í Lands-
bankanum í 27 ár, fyrst á Reyðar-
firði og síðar á Akureyri. Þá vann
hún einnig hjá Íslandspósti í
nokkur ár, síðast á Akureyri.
Hulda sótti námskeið í Myndlist-
arskólanum á Akureyri og lauk
þriggja ára námi frá Myndlist-
arskóla Arnar Inga. Hún gaf út
ljóðabókina Það sem ég get og vil
á útskriftarsýningu sinni, þar sem
hverju ljóði fylgdi mynd. Hulda
vinnur að myndlist í frítíma sínum
og málar aðallega með olíulitum
en hefur einnig lært vatnslita-
tækni og pastelmálun. Hún hefur
haldið nokkrar myndlistarsýn-
ingar á Siglufirði, Reyðarfirði og
Akureyri, auk tveggja sýninga í
Portúgal. Hún hefur líka tekið
þátt í nokkrum samsýningum á
Skagaströnd, Akureyri og Dalvík.
Í lok árs 2008 opnaði hún mark-
aðinn Norðurport fyrir notað og
nýtt að Dalsbraut 1 á Akureyri og
var hann starfræktur í tvö ár.
Fjölskylda
Eiginmaður Huldu er José Mo-
reira, f. 25.5 1963, bifreiðarstjóri.
Þau eru búsett á Akureyri. Dætur
Huldu eru Hulda Valdís, f. 1971,
og Stella Mjöll, f. 1976. Hún á
fjögur barnabörn. Systkini Huldu
eru Bragi Breiðfjörð Kristinsson,
f. 5.10. 1946, Sólveig Traustadótt-
ir, f. 16.6. 1951, d. 30.11. 2009,
Magnús Hannibal Breiðfjörð
Traustason, f. 7.5. 1954, Vilborg
Traustadóttir, f. 11.1. 1957 og Jón
Trausti Breiðfjörð Traustason, f.
27.1. 1965. Foreldrar Huldu voru
Trausti Breiðfjörð Magnússon, f.
13.8. 1918, d. 7.3. 2019, vitavörður
og fyrrum sjómaður, og Hulda
Jónsdóttir, f. 10.3. 1921, d. 24.5.
2020, fyrrum vitavörður og hús-
freyja.
Hulda Margrét
Breiðfjörð
Traustadóttir
Sólveig Daníelsdóttir
húsmóðir á Krossnesi
Benjamín Jóhannesson
bóndi á Krossnesi
Sólveig Stefanía Benjamínsdóttir
húsmóðir á Seljanesi
Jón Guðmundsson
bóndi á Seljanesi við Ingólfsfjörð
Hulda Jónsdóttir
húsfreyja og síðar
vitavörður á Sauðanesi
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir á Eyri
Guðmundur Arngrímsson
bóndi á Eyri
Vilborg Ólafsdóttir
húsmóðir í Felli
Guðmundur Þorkelsson
bóndi í Felli
Guðfinna Guðmundsdóttir
húsmóðir á Djúpavík
Magnús Hannibalsson
skipstjóri á Djúpavík
Guðrún Jónsdóttir
húsmóðir í Múlaseli
Hannibal Sveinbjörnsson
bóndi í Múlaseli
Ætt Huldu Margrétar Breiðfjörð Traustadóttur
Trausti Breiðfjörð Magnússon
vitavörður á Sauðanesi við
Siglufjörð
Jón Gissurarson yrkir undir hag-
kveðlingahætti á Boðnarmiði:
Vísur slyngar víða finn
við þær glingra nú um sinn.
Hagkveðlingahátturinn
hugann þvingar lítið minn.
Sigurlín Hermannsdóttir bætti
við:
Hagkveðlingaháttur er
harla slyngur, þykir mér.
Rúma hringi rímið sker
reyndu’ að syngja þetta hér.
Gunnar J. Straumland skrifar
„málfarspistil úr íslenskum veru-
leika – undir afdráttarhætti“ þ.e.
seinni parturinn verður til með því
að taka fremsta stafinn af hverju
orði í fyrri hluta:
Skarfar garga, gaula fljóð,
gelta flúnar hræður.
Karfar arga aula ljóð,
elta lúnar ræður.
Hér skrifar Guðmundur „Ekki
alltaf sól“:
Nú er ekki lífið létt,
lakur sálarhagur,
grúfir yfir þokan þétt,
það er mánudagur.
Hvergi sér á bláan blett,
blýgrár loftsins hjúpur,
híma blóm við blauta stétt,
brönugrös og stjúpur.
„Afdrifarík athyglissýki“ eftir
Hjálmar Freysteinsson:
Þegar Friðþjófur féll í skuggann
var fátt sem náði að hugg’ann,
frá kerlingarrolunni
úr kjallaraholunni
kastaði’ann sér út um gluggann.
Í Vísnasafni Jóhanns Sveins-
sonar segir frá því að Helga digra
Guðmundsdóttir hafi komið inn til
Jakobs Havsteen kaupmanns á
Akureyri og vildi fá úttekt í búð-
inni en Havsteen tók því ekki
greiðlega. Á Helga þá að hafa
kveðið vísuna. Helga þótti vergjörn
í meira lagi og Havsteen talinn
nokkuð vífinn og er sagt að hann
hafi átt vingott við hana. Brá hon-
um svo við vísuna að hann skipaði
þjónum sínum að láta Helgu hafa
það er hún beiddist en gekk sjálfur
burt.
Jakob minn ég þekki þig;
þú hefur margt á prjónum.
Í lautinni, það minnir mig,
að mér yrði hált á skónum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hagkveðlingaháttur
og afdráttur