Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 26

Morgunblaðið - 24.06.2022, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Besta deild karla Breiðablik – KR........................................ 4:0 _ Leikurinn tilheyrir 12. umferð en var flýtt vegna Evrópuleikja liðanna í júlí. Staðan: Breiðablik 11 10 0 1 35:12 30 Stjarnan 10 5 4 1 20:13 19 Víkingur R. 10 6 1 3 22:16 19 Valur 10 6 1 3 19:14 19 KA 10 5 2 3 15:12 17 KR 11 4 4 3 16:16 16 Keflavík 10 3 2 5 16:19 11 Fram 10 2 4 4 19:26 10 FH 10 2 3 5 15:18 9 ÍA 10 1 5 4 11:21 8 Leiknir R. 10 0 4 6 7:17 4 ÍBV 10 0 4 6 9:20 4 Lengjudeild karla HK – Kórdrengir...................................... 3:1 Grótta – Fylkir ......................................... 2:5 Staðan: HK 7 5 0 2 14:8 15 Fylkir 8 4 2 2 21:10 14 Selfoss 7 4 2 1 17:10 14 Grótta 7 4 1 2 18:10 13 Grindavík 7 3 4 0 11:6 13 Fjölnir 7 3 2 2 16:12 11 Kórdrengir 8 2 4 2 12:12 10 Vestri 7 2 3 2 10:17 9 Afturelding 7 1 3 3 6:10 6 Þór 7 1 2 4 7:14 5 KV 8 1 1 6 8:20 4 Þróttur V. 6 0 2 4 2:13 2 Lengjudeild kvenna Tindastóll – Augnablik............................. 3:0 Haukar – Fjölnir ...................................... 1:2 Staðan: FH 7 6 1 0 23:4 19 Tindastóll 8 6 1 1 13:4 19 HK 8 6 0 2 16:8 18 Víkingur R. 7 5 0 2 17:9 15 Fjarð/Hött/Leikn. 7 4 2 1 16:7 14 Grindavík 8 2 1 5 6:17 7 Fylkir 7 2 0 5 6:13 6 Augnablik 8 2 0 6 8:18 6 Fjölnir 8 1 1 6 6:19 4 Haukar 8 1 0 7 6:18 3 Undankeppni HM kvenna H-riðill: Búlgaría – Ísrael....................................... 0:2 _ Þýskaland 21, Serbía 18, Portúgal 16, Tyrkland 10, Ísrael 6, Búlgaría 0. Vináttulandsleikir kvenna Belgía – Norður-Írland............................ 4:1 Bosnía – Filippseyjar............................... 0:3 Kanada Meistarakeppnin, undanúrslit: Toronto – CF Montréal ........................... 4:0 - Róbert Orri Þorkelsson lék allan leikinn með Montréal en í keppninni er leikið um sæti Kanada í Meistaradeild Norður- og Mið-Ameríku. Svíþjóð B-deild: Bergdalen – Gamla Uppsala .................. 1:4 - Elva Friðjónsdóttir lék fyrstu 76 mín- úturnar með Gamla Uppsala. Noregur Bikarkeppnin, 2. umferð: Bjarg – Sogndal ....................................... 1:4 - Hörður Ingi Gunnarsson lék allan leik- inn með Sogndal og þeir Valdimar Þór Ingimundarson og Jónatan Ingi Jónsson komu inn á sem varamenn á 58. mínútu. >;(//24)3;( Ísland fór upp um eitt sæti innan Evrópu á nýjum heimslista FIFA fyrir karlalandsliðin í fótbolta sem var birtur í gær. Ísland fór úr 32. sæti af 55 Evrópuþjóðum upp í 31. sæti og fór upp fyrir Norður- Makedóníu. Á heimslistanum er Ís- land hins vegar áfram í 63. sæti af 211 þjóðum. Brasilía og Belgía eru áfram í tveimur efstu sætum listans og Argentína fór upp fyrir Frakkland og í þriðja sætið. Þar á eftir koma England, Spánn, Ítalía, Holland, Portúgal og Danmörk. Upp um sæti innan Evrópu KNATTSPYRNA Forkeppni Meistaradeildar karla: Víkin: Víkingur – Inter d’Escaldes..... 19.30 1. deild karla, Lengjudeildin: Selfoss: Selfoss – Fjölnir ..................... 19.15 Varmá: Afturelding – Þór.................... 19.15 2. deild karla: Egilsstaðir: Höttur/Huginn – Völsungur 18 3. deild karla: Skessan: ÍH – Vængir Júpíters........... 19.15 Akraneshöll: Kári – KH....................... 19.15 2. deild kvenna: Álftanes: Álftanes – Hamar................. 19.15 Í KVÖLD! HK og Fylkir, liðin sem féllu úr úr- valsdeild karla í fótbolta síðasta haust, komust í gærkvöld í tvö efstu sætin í 1. deildinni. HK vann Kór- drengi 3:1 í Kórnum þar sem Stefán Ingi Sigurðarson skoraði tvö mörk og Ásgeir Marteinsson eitt. Fylkir vann Gróttu 5:2 á Seltjarn- arnesi. Nikulás Val Gunnarsson, Mathias Laursen, Benedikt Daríus Garðarsson, Þórður Gunnar Haf- þórsson og Ómar Björn Stefánsson skoruðu fyrir Fylki en Kjartan Kári Halldórsson og Luke Rae fyrir Gróttu. HK og Fylkir í toppsætunum Morgunblaðið/Eggert Tvenna Stefán Ingi Sigurðarson skoraði tvö marka HK í gær. Tindastóll komst að hlið FH á toppi 1. deildar kvenna í knattspyrnu, Lengjudeildarinnar, með sigri á Augnabliki í gærkvöld. Tindastóll vann 3:0 í leik liðanna á Sauðár- króki og er með 19 stig eins og FH en með lakari markatölu. HK er með 18 stig og Víkingur R. með 15 í næstu sætum. Fjölnir sótti Hauka heim á Ás- velli og vann 2:1 þannig að liðin höfðu sætaskipti á botninum. Þetta var fyrsti sigur Fjölnis sem hafði aðeins fengið eitt stig í fyrstu sex leikjunum. Ljósmynd/Jóhann Helgi Tindastóll Bryndís Rut Haralds- dóttir og samherjar unnu 3:0. Tindastóll í annað sætið Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðabliki) Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki) Mikkel Qvist (Breiðabliki) Kennie Chopart (KR) Atli Sigurjónsson (KR) Dómari: Erlendur Eiríksson – 7. Áhorfendur: 1.679. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og grein um leikinn – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. BREIÐABLIK – KR 4:0 1:0 Viktor Karl Einarsson 24. 2:0 Höskuldur Gunnlaugsson 39. (v) 3:0 Ísak Snær Þorvaldsson 55. 4:0 Jason Daði Svanþórsson 59. M Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki) Dagur Dan Þórhallsson (Breiðabliki) BESTA DEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Breiðablik skráði sig á spjöld ís- lensku fótboltasögunnar í gærkvöld með stórsigrinum gegn KR á Kópa- vogsvellinum, 4:0. Þetta var sextándi heimasigur Breiðabliks í röð í efstu deild, allt frá því liðið tapaði fyrir KR í fyrstu um- ferð Íslandsmótsins 2021, og þar með sló Kópavogsfélagið met sem ÍBV hafði átt í 23 ár. Eyjamenn unnu fimmtán heima- leiki í röð á Hásteinsvelli á árunum 1997 til 1999, þar af alla leikina tíma- bilið 1998, og hafa átt metið síðan, eða þar til Blikar jöfnuðu það í sig- urleiknum gegn KA síðasta mánu- dag. Minnir á Skagamenn 1993 Breiðablik er með þessum sigri komið með ógnvænlega ellefu stiga forystu í deildinni. Liðið skoraði í fimmta sinn á tímabilinu fjögur mörk eða meira í leik og er komið með 35 mörk í fyrstu ellefu leikj- unum. Staða Blika minnir um margt á stöðu ÍA á Íslandsmótinu 1993 en eftir ellefu leiki það tímabil (af 18) voru Skagamenn líka með 30 stig og höfðu skorað 37 mörk, og voru komnir með yfirburðastöðu sem þeir létu ekki af hendi. En þá áttu Skagamenn eftir sjö leiki, nú eiga Blikar enn eftir sextán leiki á þessu Íslandsmóti. Það er því alltof snemmt að krýna þá meistara en með þessu áframhaldi verður vandséð hverjir geti fylgt þeim eftir. _ Ísak Snær Þorvaldsson skoraði sitt 11. mark fyrir Breiðablik í deild- inni í ár og er átta mörkum frá markameti deildarinnar þegar sex- tán leikir eru eftir. Hann átti auk þess stoðsendingu og krækti í víta- spyrnu. _ Mikkel Qvist var í fyrsta sinn í byrjunarliði Blika í deildinni. Hann kom í stað Damirs Muminovic sem var í banni. _ Tapið hjá KR-ingum er það stærsta í deildinni í fjögur ár, eða síðan þeir töpuðu 4:0 fyrir FH árið 2018. Blikar slógu 23 ára met ÍBV Morgunblaðið/Hákon Kópavogur Jason Daði Svanþórsson lék varnarmenn KR oft grátt í gær- kvöld og hann skoraði sitt sjöunda mark í deildinni á þessu tímabili. - Ellefu stiga forysta eftir 4:0 gegn KR SUND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sjötta sætið sem Anton Sveinn McKee náði í 200 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Búdapest í gær er þriðji besti árangur Íslendings á HM frá upp- hafi. Aðeins Örn Arnarson hefur gert betur, þegar hann fékk silfur og brons í 100 og 200 metra baksundi á HM í Furuoka árið 2001, og Hrafn- hildur Lúthersdóttir náði sama ár- angri og Anton þegar hún varð sjötta í 100 m bringusundi á HM í Kazan árið 2015. Auk þeirra hafa bara Eðvarð Þór Eðvarðsson (áttundi í 200 m bak- sundi 1986) og Eygló Ósk Gúst- afsdóttir (áttunda í 200 m baksundi 2015) komist í úrslitasund á HM. Anton kom í mark á 2:09,37 mín- útum, rúmum tveimur sekúndum á eftir heimsmethafanum og ólympíu- meistaranum Zac Stubblety-Cook frá Ástralíu sem sigraði á 2:07,07 mínútum og sekúndu á eftir Yu Ha- nagurama frá Japan og Erik Pers- son frá Svíþjóð sem deildu silfur- verðlaunum en þeir komu jafnir í mark á 2:08,38 mínútum. Anton synti því þrisvar á mótinu undir fyrra Íslandsmeti sínu sem hann setti í mars, 2:10,02 mínútur og eftir stendur Íslandsmetið hans frá því í undanúrslitunum, 2:08,74 mín- útur, en það hefði fært honum fjórða sætið í úrslitasundinu. Anton tók forystu í sundinu þegar 50 metrar voru eftir og var lengi vel í baráttunni um verðlaunasætin en náði ekki að halda út á endasprett- inum. Stoltur af sjálfum mér „Þetta var bara frábært, ég er stoltur af sjálfum mér yfir því að hafa gefið mér tækifæri til að berj- ast til verðlauna og að öll þau mark- mið sem voru sett fyrir þetta mót skyldu nást,“ sagði Anton við Morg- unblaðið eftir sundið. Hann kom hins vegar á þetta með mót með það að markmiði að það væri liður í undirbúningi hans fyrir Evrópumeistaramótið sem fer fram í Róm 11. til 17. ágúst. „Já, algjörlega, og ég vil líka horfa á frammistöðuna hérna í stærra samhengi til að sjá hvert ég er kom- inn núna frá því í desember. Þá var ég algjörlega á botninum, hafði keyrt mig gjörsamlega niður í holu eftir erfiða Ólympíuleika og tímabil- ið í 25 metra laug sem tók við eftir það. Ég var ekki á góðum stað, lík- amlega eða andlega, en ég náði að ýta á endurræsingartakkann í des- ember, tókst að byggja mig upp hægt og örugglega og náði hér þess- ari draumaniðurstöðu, þessu stóra skrefi sem þetta mót er fyrir mig,“ sagði Anton sem staðfesti jafnframt að langtímamarkmið sitt væri Ól- ympíuleikarnir í París sumarið 2024, en lengra viðtal við hann er á mbl.is/ sport. Aðeins Örn hefur gert betur - Anton í baráttu um verðlaunasæti á HM í Búdapest og endaði í sjötta sæti Ljósmynd/Szilvia Micheller Kraftur Anton Sveinn McKee á fullri ferð í úrslitasundinu í Búdapest í gær þar sem hann var fyrstur um tíma og barðist um verðlaunasætin á HM.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.