Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 1

Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 1
Áhyggjurnar skína úr svip úkraínsks drengs í flóttamannabúðum í Palanca á landamærum Moldóvu og Úkraínu á meðan stúlkan við hlið hans leikur sér að því er virðist áhyggjulaus. Rúmlega hálf milljón flóttamanna frá Úkraínu hefur nú leitað hælis í Moldóvu. Moldóva er eitt fátækasta land Evrópu og þar búa 2,6 milljónir manna. Ekkert land hefur tekið á móti jafnmörgum flóttamönnum frá Úkraínu miðað við höfðatölu. Moldóva fékk á fimmtudag stöðu umsóknarríkis að Evrópusam- bandinu ásamt Úkraínu. „Framundan er erfið leið, sem mun krefj- ast mikillar vinnu og framtaks,“ sagði Maia Sandu, forseti Moldóvu, og gaf um leið til kynna að þessum tíðindum myndu fylgja aukin velferð, tækifæri og regla fyrir þjóð sína. Í Moldóvu var í fyrra kosin stjórn sem er hlynnt inngöngu í ESB. Hún hefur reynt að efla tengslin vestur á bóginn og óttast ásælni Rússa. Páll Stefánsson ljósmyndari var á ferð í Moldóvu og kynnti sér stöðuna í landi sem á nóg með sjálft sig, en lætur sig ekki muna um að taka á móti flóttamönnum frá grannríkinu opnum örmum. Frá- sögn hans og myndir eru í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Ljósmynd/Páll Stefánsson Hálf milljón flúið Úkraínu til Moldóvu Straumur flóttamanna til eins fátækasta lands Evrópu Mótar nýtt lið hjáÞjóðverjum Norrænnleikhópur „Þýska deildin er svo krefjandi, að erfitt getur verið að fá menn til að halda áfram með landsliðinu eftir þrítugt, sem er súrt því þá eru menn að komast á þann aldur þar sem þeir eru bestir í íþróttinni,“ segir Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands í handknattleik. 8 26. JÚNÍ 2022SUNNUDAGUR Flóttamenn velkomnir Hópur kvennaá heiðurinn aðnýju verkisem sýnter í Iðnó. 2 Vill láta gott af sér leiða Guðrún Aspelund erhvergi bangin að taka viðstarfi sóttvarnalæknis. 18 Flóttamönnum frá Úkraínu er tekið opnum örmum í Moldóvu.12 L A U G A R D A G U R 2 5. J Ú N Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 147. tölublað . 110. árgangur . Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is/skodasalur Škoda Kodiaq Vinsæli ferðafélaginn! Verð frá 7.590.000 kr. Eigum nokkra lausa bíla á lager! Fjórhjóladrifinn, mjög vel útbúinn með 2.5 tonna dráttargetu KOMIN Í EITT STÆRSTA FÉLAGSLIÐ HEIMS UMDEILDUR DÓMUR RÉTTUR TIL ÞUNGUNARROFS 19SARA BJÖRK 33 Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Ísland er líklegur gestgjafi þegar sögulegur leiðtoga- fundur Evrópuráðsins fer fram á næsta ári í fjórða skipti frá upphafi. Slíkur fundur hefur ekki farið fram í 25 ár og er því um stórviðburð að ræða, mögu- lega einn þann stærsta sem haldinn hefur verið á Ís- landi ef af því verður, segir Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins. Hann er staddur í Strassborg þar sem sumarþingi Evrópuráðsþingsins lauk í gær. Alls eiga 46 ríki aðild að Evrópuráðinu og fer hvert þeirra með formennsku í ráðinu sex mánuði í senn. Munu Íslendingar taka við því embætti af Írum í nóv- ember á þessu ári. Á fundinum verður framtíð Evrópuráðsins til um- ræðu í ljósi breyttrar stöðu alþjóðamála, auk þess sem farið verður yfir hvert framtíð Evrópu stefnir og hvernig hægt sé að þétta raðirnar um sameiginleg gildi Evrópuríkjanna. Undirbúningur leiðtogafundarins er nú kominn á fullt skrið og mun fundurinn að öllum líkindum fara fram í maí á næsta ári. Ísland hefur boðist til að vera gestgjafi og er mikill áhugi á því innan Evrópuráðs- ins og Evrópuráðsþingsins, að sögn Bjarna. „Þá ekki síst í sögulegu ljósi. Ísland hefur góða ímynd á alþjóðavettvangi. Stigin voru mikilvæg skref til að ljúka kalda stríðinu með leiðtogafundi á Íslandi á sínum tíma. Við höfum sterka lýðræðishefð og höf- um talað fyrir friðsamlegum úrlausnum á alþjóða- vettvangi og þeim grunngildum sem Evrópuráðið byggir á.“ Þá var einnig stofnuð sérnefnd á fundi fram- kvæmdastjórnar Evrópuráðsþingsins í gærmorgun sem á að endurskoða starfsemi Evrópuráðsins og skila tillögum um framtíð þess. Mun Bjarni skipa sæti í nefndinni. Sögulegur viðburður - Ísland líklegur gestgjafi leiðtogafundar Evrópuráðs Ekki er útlit fyrir að þýsku lög- reglunni takist að hafa uppi á þeim sem sendu Alfreð Gíslasyni hótunarbréf í Þýskalandi í fyrra nema nýjar upplýsingar komi fram í málinu. Alfreð er í viðtali í Sunnudags- blaðinu sem dreift er í dag. Segist hann hafa orðið var við mikil við- brögð eftir að hann greindi frá hótununum í mars í fyrra. Ýmsir hafi boðið fram aðstoð við að vakta heimilið auk lögreglunnar. Mikil viðbrögð vegna hótana Alfreð Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.