Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 8
Paxlovid-töflur gegn Covid væntanlegar Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Paxlovid, nýtt lyf sem gæti fækkað innlögnum og dauðsföllum af völd- um Covid-sýkingar um 85-90%, er væntanlegt hingað til lands í haust eða síðsumars. Lyfið var nýver- ið samþykkt af Evrópsku lyfja- stofnuninni. Heilbrigðisráðu- neytið mun kaupa lyfið fyrir á annað hundrað milljónir króna. Magnús Gott- freðsson, pró- fessor í smitsjúk- dómum, segir það mikinn kost að lyfið sé tekið um munn. „Það þýðir að við þurfum ekki að fá fólk inn á spítala eða setja upp æðalegg, láta blanda lyfið og láta það renna inn, sem er mjög takmarkandi,“ segir hann. Lyfið er gefið tvisvar á dag. „Og það hefur sýnt sig í rann- sóknum sem hafa verið birtar að það getur dregið úr innlögnum og dauðsföllum um 85 til 90%,“ segir hann. Ávinningur sést hjá þeim sem eru settir á meðferð innan fimm daga frá upphafi einkenna. „Ávinn- ingurinn virðist vera mestur ef sýkingin er greind snemma og meðferð hafin án mikillar tafar.“ Lyfið verður helst gefið þeim sem eru í aukinni hættu á að fá slæma sýkingu, til dæmis eldra fólki og fólki með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma. „En þá er forsendan sú að okkur takist að greina það í tæka tíð,“ segir hann. Milliverkanir við önnur lyf eru helst annmarki lyfsins og verður að skoða slíkt í hverju tilviki fyrir sig að sögn Magnúsar. Ekki er ljóst hvort sjúklingar muni geta sótt sér lyfið sjálfir eða þurfi að neyta þess á spítala. „Það er nú kannski ekki alveg búið að ákveða hvernig verður staðið að því. Ég reikna með því að við verð- um með sambærilegar leiðbeining- ar og þær sem verið er að skrifa á Norðurlöndunum um hvernig við nýtum þessi lyf best. Þetta er aug- ljóslega sjúkdómslyf því það er gef- ið í töfluformi og tilgangurinn er að afstýra alvarlegum veikindum. Við reynum að búa þannig um hnútana að fólk geti fengið þessa meðferð ef við teljum að hún eigi við, án mik- illa tafa,“ segir Magnús að lokum. - Kaupverð á annað hundrað milljónir Magnús Gottfreðsson 8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 Talið er að um 350 milljónir manna séu í töluverðri og vax- andi hættu vegna matarskorts sem stafar af stríðinu í Úkraínu. Rússland og Úkraína framleiða um fimmtung af maís heimsins og meirihluta sól- blómaolíunnar en lítið berst nú af matvælum frá þessum löndum. - - - Áhugavert er að setja þetta í samhengi við það að í Banda- ríkjunum fer meira en þriðjungur af maís og sojabaunaolíu í að knýja vélar, ekki síst bíla. - - - Ekki síður að samanlagður hita- einingafjöldi, sem brennt er sem lífeldsneyti, myndi nægja til að fæða 1,9 milljarða manna, sem sagt margfalt fleiri en nú eru við hung- urmörkin. - - - Í umfjöllun Financial Times á dögunum kom fram að hægt væri að fylla í skarðið fyrir allt sem tapast hefur af kornmeti frá Úkra- ínu, með því að minnka um helming það sem fer í lífeldsneyti í Evrópu- sambandinu og Bandaríkjunum. - - - Í Evrópusambandinu er talið að ígildi 15 milljóna brauða sé brennt daglega sem etanóli í bíl- vélum. - - - Framleiðendur lífeldsneytis telja að málið sé ekki svona einfalt. Þeir fallast ekki á að maturinn sem brennt er gæti nýst í hungruðum heimi. Það er ekki mjög trúverðugt en þá verður líka að hafa í huga að þeir eiga hagsmuna að gæta. - - - En það eru stjórnmálamennirnir sem setja reglurnar. Þeir ættu að láta sig hungursneyð í heiminum varða. Og það ætti að gera áður en hún skellur á af fullum þunga. Er lífeldsneyti öfugmæli? STAKSTEINAR Landsmót UMFÍ 50+, sem eins og tölurnar gefa til kynna er fyrir fólk eldra en fimmtugt, hófst í Borgar- nesi í gær og stendur um helgina. Líkt og áður hófst mótið á keppni í boccia, sem jafnan er fjöl- mennasta greinin. Spilað var í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi fram eftir degi í gær. Að því loknu tók við ringó og götuhlaup. Landsmótið var síðan sett form- lega í gærkvöldi, að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Í dag verður keppt í brids, sundi, pútti og frjálsum, sem jafnframt er vel sótt grein. Í kvöld verður svo kótelettukvöld og skemmtun. Landsmótinu verður haldið áfram á morgun, sunnudag, og m.a. keppt í fótbolta og fleiri grein- um. Landsmót UMFÍ 50+ í Borgarnesi Ljósmynd/UMFÍ Landsmót Einbeittur keppandi í boccia í Borgarnesi í gær. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.