Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
Edinborg er ein fegursta borg Skotlands og vagga skoskrar menningar. Það
er mikil upplifun að heimsækja borgina og skoða sig um í „Old Town“ sem og
nýrri borgarhlutanum. Gist er á hinu glæsilega Kimpton Charlotte Square Hotel
við George Street, sem margir hafa kallað „Champs-Élýsée“ Edinborgar þar
sem kaffihús, veitingastaðir og glæsilegar verslanir skarta sínu fegursta. Farið
verður í skoðunarferðir um borgina og utan hennar og heimsóknir í Edinborgar-
og Stirling kastala ásamt siglingu á Loch Katrine og heimsókn til
Whisky-framleiðanda auk kvöldskemmtunar „Spirit of Scotland Show“.
Innifalið í verði: Flug með Icelandair til Glasgow báðar leiðir, skattar og bókunargjald. 4ra nátta gisting á
Kimpton Square Hotel ásamt morgunverði og kvöldverði. Allur akstur ásamt skoðunarferðum og aðgangi
að þeim stöðum sem heimsóttir verða. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson.
• Aukagjald fyrir einbýli er kr. 85.000
Edinborg – fegursta borg Skotlands
Aukaferð vegna mikillar eftirspurnar – aðeins 24 sæti laus
Sérferð fyrir eldri borgara 23. – 27. október
Verð 249.500 á mann m.v. gistingu í tvíbýli*
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
William Kristiansson, sænskur
gróðursetningarverktaki sem starf-
ar fyrir fyrirtækið Gone West, setti
í síðustu viku nýtt Íslandsmet í
gróðursetningu trjáplantna þegar
hann setti niður 17.732 birkiplöntur
í Hekluskóga á einum sólarhring.
Hann er þó ekki eini afreksmað-
urinn á vegum Gone West, en aðrir
starfsmenn hafa ekki látið sitt eftir
liggja og einn daginn gróðursettu
til dæmis tveir ónefndir starfsmenn
þeirra yfir 10 þúsund plöntur hvor.
Verktakar frá fyrirtækinu hafa
síðustu vikur unnið að gróðursetn-
ingu á nokkrum svæðum, þar á
meðal í Hekluskógum, en nú þegar
hafa þeir gróðursett þar um
300.000 birkiplöntur. Þessi fram-
úrskarandi gróðursetning mun
stórauka líkurnar á að plöntur lifi
og nái að vaxa upp og mynda skóg.
Einnig hafa starfsmenn Skógrækt-
arinnar og Landgræðslunnar haft í
nógu að snúast, en undanfarnar
vikur hafa afköst gróðursetningar-
fólksins verið mikil og komist næst-
um því upp í 50 þúsund plöntur á
dag.
Þetta kemur fram á vef Skóg-
ræktarfélags Íslands þar sem félag-
ið einnig óskar William til hamingju
með Íslandsmetið. gsa@mbl.is
Ljósmynd/Hreinn Óskarsson-Skógræktin
Nýtt met í gróðursetningu
- Setti niður nærri 18 þúsund birkiplöntur í Hekluskógum
Guðrún Sigríður Arnalds
gsa@mbl.is
Fjöldi þess fólks frá Úkraínu sem
sækir um dvöl hér á landi hefur
skyndilega aukist, en síðastliðna
daga hafði þeim
hægt og þétt
fækkað.
Gylfi Þór Þor-
steinsson, að-
gerðastjóri vegna
komu flótta-
manna frá Úkra-
ínu til Íslands,
greinir frá þessu
í samtali við
Morgunblaðið.
Hann segir enga
sérstaka skýringu á þessari fjölg-
un.
Frá áramótum hafa 1.932 flótta-
menn komið hingað og þar af eru
1.232 þeirra frá Úkraínu, en 64%
þeirra eru konur og 36% karlar.
„Þetta eru töluvert fleiri flótta-
menn en við höfum tekið við árin
áður, en stærsta árið hingað til
komu um 1.100 flóttamenn og þeg-
ar líður á árið munu þeir líklegast
vera um 4.000 talsins,“ segir Gylfi
og bætir við:
„Við búum okkar undir það að
fleiri flóttamenn muni leita hingað í
haust. Flugfarið er dýrara á sumr-
in og því kemur á óvart þessi fjölg-
un á komum flóttafólks núna.“
Gylfi segir vel ganga að útvega
fólkinu vinnu, en um 300 eru nú
þegar komin með atvinnuleyfi í
gegnum Vinnumálastofnun og ein-
hverjir hafa fundið vinnu sjálfir.
Aðra sögu er þó að segja af hús-
næðismálum þar sem mikill skortur
er á húsnæði um allt land. „Þetta
er ástand sem við þurfum að
bregðast hratt við, því þetta bætist
ofan á þá húsnæðiskrísu sem er í
landinu,“ segir Gylfi.
Um 50 manns hafa snúið aftur til
Úkraínu eftir að hafa fengið dvalar-
leyfi hér á landi. Gylfi telur líklegt
að einhverjir þeirra komi aftur til
Íslands, þar sem þeim sé frjálst að
ferðast eins og þeim sýnist eftir að
þeim hafi verið veitt leyfi hér.
Hann telur stærstu áskorunina
núna felast í því að koma fólkinu
betur inn í samfélagið og veita því
húsnæði, þar sem mikill skortur er
á leiguhúsnæði í öllum landshlutum
og leiguverð sé tiltölulega hátt.
Húsnæðisskortur
er áskorunin
- 300 manns hafa fengið atvinnuleyfi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flóttamenn Komum flóttafólks hef-
ur fjölgað skyndilega síðustu daga.
Gylfi Þór
Þorsteinsson