Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 12
Ljósmynd/Ingvar H. Sveinsson
Krútt Alveg hvítar kýr eru sjald-
gæfar. Þessir hafa rautt í eyrum.
Morgunblaðið/Eggert
Kýr Þessar tvær voru á beit í Hítardal fyrir fjórum árum. Bröndóttar kýr og rauðar eru nú algengastar hér á landi.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
F
jölbreytileiki lita í íslenska
kúakyninu er meiri en
allra annarra kúakynja í
Evrópu. Evrópsk kúakyn
eru öll meira og minna eins á litinn.
Dæmi má taka af Jersey-kúm, sem
eru rauðar með koluðu ívafi og NRF
sem eru brúnskjöldóttar. Ég held að
bröndótti liturinn sé séríslenskt fyr-
irbæri. Mikill breytileiki er í brönd-
óttum og rauðum kúm, til eru mjög
ólíkar útgáfur af þeim,“ segir Guð-
ríður Magnúsdóttir, kúabóndi í Við-
vík í Skagafirði. Hún stofnaði
fésbókarsíðuna Litir nautgripa, þar
sem fólk póstar myndum af kúm og
kálfum í hinum ólíkustu litbrigðum.
Stundum spyr fólk hvað liturinn
heiti, en fólk setur líka myndir á síð-
una af sínum uppáhaldskúm eða
bara fallegar myndir af kúm, kálfum
og nautum. Skemmtilegt spjall verð-
ur oft til við myndirnar.
Langar í sægráa mjólkurkú
„Ég held að kúabændur hug-
leiði liti ekki mikið í sinni ræktun,
þótt auðvitað finnist einn og einn
sérvitringur í þessu, eins og öðru. Ég
veit að á bænum Laxamýri í Þingeyj-
arsýslu eru margar gráar kýr. Gráu
litirnir eru sjaldgæfir, sægrár og
steingrár, og þeir eru alls óskyldir.
Ég held að Sigga á Laxamýri sé sá
bóndi á landinu sem á flestar gráar
kýr,“ segir Guðríður og bætir við að
hún viti líka um bæi þar sem finna
má margar grönóttar kýr.
„Þá eru kýrnar hvítar, nema í
kringum granir og innan í eyrum, en
þar geta þær verið með alla grunn-
liti. Stundum eru líka doppur út frá
andlitinu á grönóttum kúm. Á nokkr-
um bæjum eru töluvert margar
hryggjóttar kýr. Þá er kýrin með
hvítan hrygg. Mér skilst að fá naut
séu til núna með þann lit í rækt-
unarstarfinu. Grönóttur litur og
hryggjóttur koma ekki fram nema
annað foreldrið beri litinn og það eru
fimmtíu prósent líkur á að afkvæmið
beri hann.“ Afbrigði litanna geta
verið skemmtileg. T.d. eru rauðar og
kolóttar kýr stundum með munstur
sem minnir á frostrósir. Sumir kalla
slíkan lit rósóttan en frostrósa-
munstrið kemur ekki fram fyrr en
eftir að kýrin hefur borið tveimur
eða þremur kálfum. Kolóttar kýr
eru dökkbrúnar með rauðbrúna
rönd niður eftir hryggnum, í kring-
um nasir og inni í eyrum.
„Ef kolótt kýr er mjög ljós á
búknum, þá kalla sumir það dumb-
rautt, en nöfn lita á dýrum geta ver-
ið misjöfn eftir því hvar á landinu er.
Til dæmis kallast golsótt kind
annarsstaðar mögótt,“ segir Guð-
ríður sem er með sjötíu mjólkandi
kýr sem flestar eru bröndóttar og
rauðar.
„Ég á nokkrar svartar kýr en
bara eina alveg svarta, en ekki er
mikið af hundrað prósent einlitum
gripum. Að fá einlitt er svolítið erf-
itt, því það vill slæðast hvít sletta
einhversstaðar með, innan á læri, á
júgurstæði eða bringu. Alveg hvítar
kýr, sem eru ekki albinóar, eru
sjaldgæfar,“ segir Guðríður sem
finnst grái liturinn fallegastur á
kúm.
„Nýlega hef ég fengið þrjá
grákolótta kálfa. Þeir eru kolóttir
með gráa slikju á sér við burð. Ég á
einn sægráan nautkálf sem mér var
gefinn. Ég ætla að nota hann til kyn-
bóta og sjá hvort hann gefi mér
sægráan kvígukálf svo ég geti eign-
ast sægráa mjólkurkú.“
Aldursdrottningin í fjósinu hjá
Guðríði er 14 ára. Hún heitir Agla,
borin 24.5. 2008 og er nýhætt að
mjólka, enda slitin og gömul. Guð-
ríður segir að kýr geti vel orðið fjór-
tán til fimmtán ára, þó þær fái
sjaldnast að verða svo gamlar.
Þær langaði aftur í sjóinn
Guðmundur Jóhannesson, ráðu-
nautur í nautgriparækt, segir að
rauðir og bröndóttir litir séu orðnir
ríkjandi hjá íslenska kúastofninum.
„Það kemur ekki til af því að kýr
með þeim litum mjólki betur en kýr
af öðrum lit, heldur er það tilviljun
og fer eftir því hvað bestu nautin
gefa af litum. Gráar kýr eru sjald-
gæfastar, bæði sægráar og gráar.
Gamli steingrái liturinn er allra
sjaldgæfastur. Svarti grunnliturinn
hefur líka verið á undanhaldi.“
Þegar Guðmundur er spurður
að því hvort gætt sé að því að naut í
sjaldgæfum litum séu notuð til
undaneldis, segir hann að fyrst og
fremst sé í ræktun litið til fram-
leiðslugetu og byggingar.
„Við sveigjum okkur þó aðeins
til ef við fáum spennandi liti. Til
dæmis er langt síðan við höfum haft
gott naut sem gefur eitthvað af þess-
um gamla íslenska steingráa lit, en
það eru naut í notkun núna sem gefa
sægrátt. Allra síðustu ár hefur svört-
um kolóttum kúm fækkað en brönd-
óttum og rauðum fjölgað, í öllum sín-
um fjölbreyttu undirflokkum. Gerst
hefur að fæðst hafi alhvítir kálfar, en
mögulega kann það að vera stór hvít-
ur flekkur en ekki hreinn hvítur.“
Að lokum skal þess getið að ís-
lenskar þjóðsögur geyma sagnir um
sækýr: „Þær áttu að lifa í sjónum en
villast stundum á land, í sögunum
voru þessar sækýr eins og venjuleg-
ar kýr nema með blöðru yfir grön-
unum. Ef tókst að sprengja blöðr-
una, urðu kýrnar alveg eins og
landkýr, með þeirri undantekningu
að þær voru alltaf gráar að lit. Því er
sá litur enn kallaður sægrár. Einnig
mjólkuðu þær betur en langaði alltaf
í sjóinn aftur.“ (af Wikipediu)
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Sægrá Þessi kýr er frá Ytrafjalli í Aðaldal, en gráu litirnir eru sjaldgæfir.
Grunnlitir íslenska kúastofnsins eru sex en lita-
mynstur eru fjölmörg. Mikill breytileiki er í brönd-
óttum og rauðum kúm, algengustu litunum. „Ég held
að Sigga á Laxamýri sé sá bóndi á landinu sem á
flestar gráar kýr,“ segir Guðríður kúabóndi í Viðvík
en gráu litirnir eru sjaldgæfastir hjá íslenskum kúm.
Hryggjótt, kviðótt, síðótt, leistótt
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Hvítur, svartur að innan.
Stór sóllúga, bakkmyndavél,
Bang & Olufsen hátalarakerfi,
Apple Carplay, hiti í öllum
sætum, hiti í stýri, fjarstart,
lane-keeping system,
heithúðaður pallur o. fl. o.fl.
3,5 L V6 Ecoboost
10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-
ft of torque, 20” álfelgur
2021 Ford F-150 Platinum
Litur: Hvítur/ Svartur að innan
(nappa leather)
Æðislegur fjölskyldubíll,
hlaðinn búnaði.
7 manna bíll,Hybrid Bensín,
Sjálfskiptur, 360° mynda-
vélar, Collision alert system,
Harman/Kardon hljómkerfi,
Tölvuskjáir í aftursæti
VERÐ aðeins
10.390.000 m.vsk
2022 Chrysler Pacifica Hybrid Limited
VERÐ frá
18.500.000 m.vsk
Litur: Svartur/ svartur að
innan.
10 gíra skipting,
auto track millikassi, sóllúga,
heithúðaður pallur, rafmagns
opnun og lokun á pallhlera,
flottasta myndavélakerfið á
markaðnum ásamt mörgu
fleirra.
High Country Deluxe pakki.
2022 Chevrolet High Country
VERÐ
15.890.000 m.vsk
Grunnlitir íslenska kúastofnsins eru sex: Rauður, bröndóttur, kolóttur,
svartur, grár og sægrár. Grunnlitunum má síðan skipta í nokkur litbrigði.
Litamynstur heita eftir því hvar hvíti liturinn er: Hryggjótt, skjöldótt,
huppótt, síðótt, kviðótt, sokkótt/leistótt, nema þegar talað er um grön-
ótta litinn, t.d. rauðgrönótt.
Höfuðmynstur heita eftir því hvar hvíti liturinn er á hausnum: Hjálmótt,
baugótt, dröfnótt, krossótt, krímótt, húfótt, blesótt, stjörnótt, laufótt.
Í BS-ritgerð Söru Maríu Davíðsdóttur, frá Landbúnaðarháskóla Íslands,
kemur fram að 2011 var tíðni grunnlita skv. sumarrannsókn: Rautt 42,8%,
bröndótt 28,8%, kolótt 16,3%, svart 8,9 %, grátt 1,8% og sægrátt 1,4 %
Sex grunnlitir, mörg litbrigði
ÍSLENSKI KÚASTOFNINN
Falleg
Íslenskar kýr
geta verið
þrílitar líkt
og þessi.