Morgunblaðið - 25.06.2022, Page 14

Morgunblaðið - 25.06.2022, Page 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 í lax við Dönugrjót en sá losaði sig. Betur gekk í hinum þekkta veiðistað Kristnipolli en þar náði Stefán að landa fyrsta 100 cm laxinum sem hann veiðir á Íslandi, 20-pundara, sem var jafnframt fyrsti veiddi lax sumarsins í ánni. Í samtali við Sporðaköst á Mbl.is sagðist Stefán hafa kastað litlum rauðum kón í hefðbundinn stórlaxa- stað í hylnum og þar tók „þessi líka svakalega fallegi lax“. „Nú er maður kominn í hundrað- kallaklúbbinn. Loksins og svakalega er það gaman. Ég hef veitt ábyggi- lega einhverja fimm hundruð laxa sem eru á bilinu 95 til 99 sentímetrar en þetta er fyrsti lax á Íslandi sem ég veiði sem nær hundrað sentímetr- um,“ sagði Stefán æði lukkulegur. Laxveiði hófst líka í Vopnafirði í gær og í Hofsá var tveimur landað á fyrstu vakt og fleiri misstust en kalt var í norðanáttinni, fjórar gráður. „Það var stuð á mönnum þrátt fyrir kuldann,“ sagði Ívar Kristjánsson í hádeginu en hann náði öðrum lax- inum, 80 cm hæng sem tók rauðan kón í Þvottalækjarstreng. Hinn sem náðist var smálax. Ívar og félagi hans hafa mikla veiðireynslu í Hofsá og spáðu góðri opnun og betri en í fyrra en þá veiddust átta laxar. Fyr- ir tveimur árum veiddust hins vegar 33 í opnuninni. Fyrsta vakt í Hafralónsá í gær var góð en sex löxum var landað. Loksins kominn í hundraðkallaklúbb - Fyrsti í Dölum 20-pundari - 15 ára veiddi 102 cm lax Ljósmynd/Harpa Hlín Þórðardóttir Sá fyrsti Stefán Sigurðsson kampakátur með 20 punda laxinn sem hann veiddi í Kristnipolli Laxár í Dölum í gær, fyrsta lax sumarsins þar. Ljósmynd/Ari Þórðarson Byrjunin Ívar Kristjánsson með 80 cm hænginn sem hann veiddi í Þvottalækjarstreng Hofsár í gær. STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þessa dagana hefjast veiðar í síðustu laxveiðiánum, hverri á fætur ann- arri, og óhætt er að segja að byrj- unin hafi verið upp og ofan. Þannig var gæðunum misskipt í húnvetnsku ánum síðustu daga; í opnun Laxár á Ásum veiddist aðeins einn lax, tveir í Vatnsdalsá við erfiðar aðstæður, áin í miklum vöxtum, en í Víðidalsá og Fitjá, rétt þar fyrir vestan, komu hins vegar 16 á land í opnun og veiði- menn kampakátir. Rólegt hefur síð- an verið yfir Blönduveiðum en á fyrstu tveimur vikunum hafa aðeins veiðst níu laxar. Dagur Ólafsson, 15 ára veiðimað- ur, var með föður sínum við veiðar í Laxá í Aðaldal og setti í gærmorgun í og landaði 102 cm laxi í Sandeyrar- polli á Nesveiðum. Tók nýgenginn og sterkur hængurinn Sunray Bismo og tók viðureignin um 40 mín- útur áður en laxinum var landað nokkru neðar í ánni, í Dýjaveitum. Af ánum á Vesturlandi sýna viku- legar veiðitölur Landssambands veiðifélaga á vefnum angling.is að fyrstu fimm dagana veiddust 27 lax- ar í Haffjarðará, sem er fyrirtaks byrjun. Í vikunni veiddust 47 laxar í Norðurá, þar sem smálaxar byrjuðu að tínast inn í auknum mæli, og í Þverá-Kjarrá veiddust á sama tíma 35. Blaðamaður var við efri hluta ár- innar í vikunni, þar var mikið vatn og ferð á fiskinum sem er strax orðinn vel dreifður og var að veiðast frá efstu hyljum, við Rauðaberg, niður í þá neðstu, Selsstrengi. Opnaði með sínum stærsta Veiði hófst í Laxá í Dölum í gær- morgun og þrátt fyrir að lofthitinn væri einungis þrjár gráður þá byrj- aði morgunninn heldur betur vel hjá einum veiðimannanna, Stefáni Sig- urðssyni. Hann byrjaði á því að setja Húsbukkur (Hylobates bajulus) er tegund trjábukka sem berst af og til hingað til lands. Það gerðist einmitt nýlega, þegar einn slíkur fannst í Reykjavík. Honum var komið til Náttúrufræðistofnunar Íslands, þar sem honum er til haga haldið. Lík- legt er að hann hafi komið með pakkningum erlendis frá. Frá þessu greinir Erling Ólafsson skordýra- fræðingur á fésbókarsíðu sinni, Heimur smádýranna. Þar kemur fram að trjábukkar finnist ekki í náttúru Íslands en ein tegund þeirra gæti þó mögulega þrifist hér á landi, fyrrnefndir húsbukkar. Þeir lifa í trjáviðum gamalla húsa og getavald- ið á þeim skemmdum. „Lirfurnar vaxa upp inni í gömlum viðum húsa, einkum stoðum og bitum í burð- arvirkinu. Það tekur þær mörg ár að ná fullum þroska og skila sér út úr viðunum sem fullþroska bjöllur. Tegundin er hitakær og þarf helst um og yfir 25°C hita í viðnum til að nærast og dafna,“ segir Erling. Hann tekur fram að vegna þessa hafi hann litla trú á að trjábukkur- inn geti sest að í húsum hér á landi, fest sig í sessi og orðið til vandræða. Húsbukkur kom til landsins nú í júní Ljósmynd/Erling Ólafsson Húsbukkur Sú tegund bukka er nokkuð auðþekkt og er 14 mm löng. SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS HOBBY 560 KMFE DE LUXE • Truma Combi 6 miðstöð • 150L ísskápur 15L frystir • 50L Vatnstankur • Álfelgur • 2000 kg öxull (Meiri burður) • Lúga hjá kojum • Vatnstengi + rafmagnstengi + sjónvarpstengi • Tvöfalt USB + barnaljós í kojum með USB tengi • Festing fyrir sjónvarp • Reykskynjari • 2 kojur með fallvörn • Hobby Connect • Hleðslustöð • Rafgeymir AGM • Aflestur rafgeymis • LCD skjár • Umhverfislýsing Raðnúmer 280968 Nýskráður 03/2022 (ónotað) Næsta skoðun 2026 Verð kr. 6.290.000 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki eru fyrirhugaðar neinar stór- ar lagfæringar á Snæfellsnesvegi í sumar, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Pálmi Þór Sæv- arsson, svæðisstjóri vestursvæðis, segir þó að ástandið verði vaktað og ef svigrúm skapist, verði reynt að lagfæra verstu staðina. Snæfellingar hafa vakið athygli á að ástand vegarins frá Borg- arnesi og um Mýrar og Snæfells- nes sé slæmt og hættulegt á köfl- um. Vegagerðin hefur ekki fjármagn til neinna stóraðgerða en bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar sendi í vor áskorun til innviða- ráðherra og Alþingis um að leggja meira fé í viðhaldið. Þurfa að komast veginn Jón Eggertsson, fyrrverandi vörubílstjóri í Ólafsvík, setur ástandið í samhengi við umræðu um framtíð ferjusiglinga á Breiða- firði. „Það eru miklir fiskflutn- ingar á Snæfellsnesinu og þegar flutningur á laxi frá Vestfjörðum bætist við, er ekki von á að vel fari,“ segir Jón og bendir á að til þess að hægt sé að nota ferju á Breiðafjörðinn, þurfi flutningabíl- arnir að geta komist til og frá Stykkishólmi. Það sé lágmarkið. Jón man tímana tvenna í vega- málum, enda byrjaði hann að keyra bíl 1962 og vann meðal ann- ars við vegagerð. Hann segir að þá hafi vegurinn um Mýrarnar verið eitt aursvað og tóm slörk, veg- urinn ósléttur og holóttur. Yfir þetta hafi síðar verið lagt slitlag. Þungaflutningar og mikil um- ferð ferðafólks hefur ekki farið vel með veginn, sérstaklega frá Borg- arnesi og vestur að Vegamótum, en slæmir kaflar eru víðar á Snæ- fellsnesi. Jón ekur sínum einkabíl ennþá, þótt hann sé hættur með vörubílinn og hafi farið suður í vor. „Vegurinn var hrikalegur, ekkert nema glompur. Ég myndi ekki láta keyra mig í sjúkrabíl suður, ég myndi hristast alla leið- ina og yrði að einni beinahrúgu,“ segir hann. Morgunblaðið/Valli Snæfellsjökull Margt ferðafólk leggur leið sína um Snæfellsnes á sumrin. Það eykur að sjálfsögðu álag á vegina sem ekki eru beysnir fyrir. „Myndi ekki vilja láta keyra mig í sjúkrabíl suður“ - Engar lagfæringar á Snæfellsnesvegi - Bílstjóri segir veginn hrikalegan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.