Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Milljónir bandarískra kvenna munu glata lögbundnum rétti sínum til fóstureyðingar í kjölfar dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna í gær sem sneri eldri dómi réttarins í máli Roe gegn Wade frá 1973. Nýi dómurinn, sem sex íhaldssam- ari dómarar réttarins kváðu upp gegn sératkvæði hinna þriggja frjálslyndari, hefur þau réttaráhrif að einstökum ríkjum Bandaríkjanna er nú í lófa lagið að setja lög sem banna fóstureyðingar. Er því spáð að helmingur 50 ríkja muni nú lögfesta annaðhvort bann eða takmarkanir á fóstureyðingum. Ný lög sett áður en dómur gekk Hafa þrettán ríki þegar sett lög sem unnt verður að framfylgja eftir dóm Hæstaréttar í gær, svokölluð „trigger laws“ sem eru þeirrar nátt- úru að lagaframkvæmdin sjálf er á bið þar til lagaumhverfi eða aðrar kringumstæður breytast. Skýring þess að slík lög voru afgreidd áður en dómur Hæstaréttar féll í gær er það fáheyrða atvik að 2. maí í vor var skjali með drögum að dómsorði meirihlutans lekið úr þessum æðsta dómstól Bandaríkjanna. Vefmiðillinn Politico birti leka- skjalið og þar með hófu einstök ríki þegar undirbúning lagasetningar gegn fóstureyðingum auk þess sem fylgjendur fóstureyðinga hófu mót- mæli sem náðu hámarki fyrir utan Hæstarétt á fimmtudaginn. Fljótt á litið er talið að 36 milljónir bandarískra kvenna á barneigna- aldri glati rétti sínum til fóstureyð- ingar í kjölfar dóms gærdagsins, sé mark takandi á tölfræði sem sam- tökin Planned Parenthood hafa gefið út, en þau reka stofur vítt og breitt um Bandaríkin þar sem konur geta gengist undir fóstureyðingu auk þess að fá getnaðarvarnir og al- menna ráðgjöf. Í máli Roe gegn Wade forðum taldi Hæstiréttur rétt kvenna til að gangast undir fóstureyðingu stjórn- arskrárvarinn. Varð niðurstaða sjö dómara gegn tveimur að rétturinn til fóstureyðingar fyrstu þrjá mánuði meðgöngu væri óskoraður, næstu þrjá leyfilegur með nokkrum tak- mörkunum en slík aðgerð bönnuð með öllu síðustu þrjá mánuðina. Lagasetning nokkurra ríkja áratug- ina á eftir dró þó töluvert úr þessum réttindum. Hvarf Hæstiréttur því með dómi gærdagsins frá því að um stjórnar- skrárvarinn rétt væri að ræða með svofelldu dómsorði: „Við sláum því þar með föstu að stjórnarskráin feli ekki í sér réttindi til fóstureyðingar […] og valdið til að setja reglur um fóstureyðingu beri að veita fólkinu og kjörnum fulltrúum þess.“ Hatrammar lögfræðideilur Ákaflega sjaldgæft er að banda- rískir hæstaréttardómar gangi al- gjörlega í berhögg við fyrri dóma réttarins og segja stjórnmálaskýr- endur vestra pólitískt moldviðri nú í aðsigi sem skipta muni þjóðinni í tvær fylkingar. Í ríkjum á borð við Michigan, Pennsylvania og Wisconsin, þar sem mjótt er á munum milli fylgjenda og andstæðinga fóstureyðinga, er jafn- vel gert ráð fyrir því að lögmæti fóst- ureyðinga muni sveiflast með ein- stökum kosningum. Annars staðar gætu hatrammar lögfræðideilur staðið fyrir dyrum sem snerust með- al annars um hvort leyfilegt yrði að heimsækja önnur ríki til að fara í fóstureyðingu eða panta þungunar- rofslyf í pósti. Getty Images/AFP/Nathan Howard Viðsnúningur Fréttamaður klórar sér í höfðinu við Hæstarétt í gær en fylgjendur fóstureyðinga mótmæla ákaft. Sneru rótgrónum dómi frá 1973 - Milljónir kvenna munu glata rétti til fóstureyðinga - Skjali með drögum að dómsorði lekið í maí - Rétturinn ekki lengur stjórnarskrárvarinn - Lögmæti gæti sveiflast með einstökum kosningum Verð hlutabréfa skotvopnaframleið- andans Smith & Wesson Brands Inc. tók sveiflu upp á við í gær í kjöl- far dóms Hæstaréttar Bandaríkj- anna í fyrradag, þar sem því var slegið föstu að hver maður nyti stjórnarskrárvarins réttar til að bera skotvopn á almannafæri til að verja hendur sínar. Þurfi ekki að biðja um leyfi Hækkuðu bréfin um 14,6 prósent í síðdegisviðskiptum í gær eftir 9,6 prósenta hækkun strax í kjölfar dómsins á fimmtudag. Skjótt skipast veður í lofti því við lokun markaða á miðvikudag enduðu bréfin í lægsta verði sínu síðan í júní 2020. Svipaða sögu er að segja af skot- vopnaframleiðandanum Sturm, Ru- ger & Co sem hækkaði samtals um 7,5 prósent í gær og fyrradag eftir að hafa endað miðvikudaginn í lægsta verði síðustu 18 mánaða. „Þessi dómur snýst í stuttu máli um að ábyrgir og löghlýðnir borg- arar þurfa ekki að biðja stjórnvöld um leyfi til að nýta sér réttindi sem þeim eru tryggð í stjórnarskrá landsins,“ sagði Mark Smith, stjórn- arformaður Smith & Wesson, á fundi eftir lokun markaða í gær og bætti því við að enn væri of snemmt að segja til um hver áhrif dómsins á afkomu skotvopnaframleiðenda yrðu til lengri tíma litið. Löghlýðnir borgarar „Þar sem dómurinn snýst um rétt- in til að bera hulið vopn (e. concealed carry), og vopn sem henta til slíks burðar eru stór hluti framleiðslu okkar, má ætla að bætt aðgengi lög- hlýðinna borgara að framleiðslunni hafi jákvæð áhrif á okkur,“ sagði stjórnarformaðurinn enn fremur. Vatn á myllu byssusmiða - Hlutabréf Smith & Wesson og fleiri framleiðenda vestra í hæstu hæðum eftir lægstu lokun síðan 2020 á miðvikudag AFP/Angela Weiss Dómur Ekki deildu allir gleði S&W. Úkraínuher tilkynnti í gær að hann hygðist hörfa með herlið sitt frá borginni Severodonetsk í Lúhansk- héraði, en harðir götubardagar hafa verið í borginni síðustu daga og vik- ur. Enn var barist þar í gær, en það mun taka nokkra daga fyrir Úkra- ínumenn að ljúka brottför sinni það- an. Serhí Haídaí, héraðsstjóri Lúh- ansk, sagði að það þjónaði engum til- gangi að verja áfram stöður sem hefðu fengið að kenna á stórskota- hríð Rússa svo mánuðum skipti, en hann áætlaði að um 90% borgarinnar hefðu skemmst í árásum Rússa. Talsmenn bandaríska varnar- málaráðuneytisins gerðu lítið úr tíð- indunum um flóttann, og lögðu áherslu á að Rússar hefðu þurft að gjalda þess dýru verði í bæði her- gögnum og mannafla að ná Seve- rodonetsk á sitt vald. Ekki væri von á að fall borgarinnar myndi leiða til stórsóknar Rússa í gegnum varnir Úkraínumanna. ÚKRAÍNA Hörfa með lið sitt frá Severodonetsk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.