Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
ÁRBÆJARKIRKJA | Djass-sumar-
helgistund sunnudag kl. 11. Sr. Þór
Hauksson flytur hugleiðingu. Kriztina
K. Szklenár er organisti. Kirkjukórinn
syngur. Djasstríó leikur nokkur lög.
Tríóið skipa eftirtaldir tónlistarmenn:
Sigmar Þór Matthíasson kontrabassi,
Ingi Bjarni Skúlason píanó, Tumi Torfa-
son trompet/flügelhorn.
ÁSKIRKJA | Sumarmessa Laugar-
dalsprestakalls í Áskirkju kl. 11. Séra
Bolli Pétur Bollason þjónar. Organisti
er Bjartur Logi Guðnason. Sjá nánar
um sumarmessur og prestsþjónustu í
prestakallinu á askirkja.is.
ÁSTJARNARKIRKJA | Árleg hjól-
reiðamessa safnaðanna í Hafnarfirði
og Garðabæ verður haldin í Garða-
kirkju kl. 11. Fyrir messu verður hjólað
á milli kirknanna í Hafnarfirði og endað
í Garðakirkju. Sr. Henning Emil Magn-
ússon leiðir stundina. Kirkjukaffi á eft-
ir í Króki. Þar mun Snorri Beck Magn-
ússon kynna kristalhörpu sem hann er
að þróa. Lagt verður af stað frá
Ástjarnarkirkju kl. 9.30. Sunnudaga-
skóli er kl. 10.
BESSASTAÐASÓKN | Sumarmess-
ur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11.
Bessastaðasókn tekur þátt í Sumar-
messunum. Sjá Garðakirkju hér á síð-
unni.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Gönguguðs-
þjónusta Breiðholtssafnaðanna
sunnudag. Safnast verður saman við
Seljakirkju kl. 10 og gengið yfir í Fella-
og Hólakirkju þar sem guðsþjónusta
hefst kl. 11. Ath. Ekki verður messað í
Breiðholtskirkju þennan dag en helgi-
stund er alla miðvikudaga kl. 12.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldsamvera
kl. 20. Sr. María G. Ágústsdóttir leiðir
stundina ásamt Jónasi Þór og messu-
hópi. Ef veður leyfir, verður hluti helgi-
stundarinnar í lundinum við kirkjuna.
Heitur drykkur og sætur biti í safnaðar-
heimilinu á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Sr. Karen Lind Ólafs-
dóttir. Organisti er Sólveig Sigríður Ein-
arsdóttir. Veitingar að messu lokinni.
DÓMKIRKJAN | Prestsvígsla kl. 11.
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðar-
dóttir, vígir Bryndísi Böðvarsdóttur og
Hjördísi Perlu Rafnsdóttur. Sr. Sveinn
Valgeirsson þjónar fyrir altari. Dómkór-
inn og Kári Þormar.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Göngu-
messa kl. 11 Gengið verður frá Selja-
kirkju til Fella- og Hólakirkju. Sr. Jón
Ómar Gunnarsson þjónar og prédikar.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista.
Messukaffi eftir stundina.
GARÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli í
Garðakirkju kl. 10. Sumarmessa í
Garðakirkju kl. 11 – Hjólreiðamessa.
Hjólað kl. 9.30 frá Vídalíns- og Ástjarn-
arkirkju, Hafnarfjarðarkirkju kl. 10, Frí-
kirkjunni kl. 10.20 og Víðistaðakirkju
kl. 10.40. Sr. Sveinbjörn R. Einarsson
þjónar ásamt sr. Henning E. Magnús-
syni, sem prédikar. Barn verður fært til
skírnar. Snorri Beck Magnússon leikur
á kristalhörpu sem hann smíðaði. Jó-
hann Baldvinsson organisti og félagar
úr Kór Vídalínskirkju leiða sönginn.
Kirkjukaffi í Króki.
GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsa-
messa kl. 11 sunnudag. Sr. Magnús
Erlingsson þjónar. Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng. Organisti er Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Kaffi og með-
læti.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt
Ástu Haraldsdóttur kantor, kirkjukór
Grensáskirkju og messuþjónum. Efni:
Að þiggja og gefa. Kaffisopi eftir
messu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa 26.
júní kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Messu-
þjónar aðstoða. Félagar í Kór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti er Stein-
ar Logi Helgason. Laugardaginn 25.
júní kl. 12.30. Tónleikar. 150 raddir
flytja fjölbreytt úrval af þjóðlegri og vin-
sælli popptónlist. Miðaverð 2000 kr.
HÁTEIGSKIRKJA | Sumarmessa kl.
11. Prestur er Eiríkur Jóhannsson.
Organisti er Arngerður María Árnadótt-
ir. Félagar úr Kordíu, kór Háteigskirkju,
leiða messusöng.
HVALSNESKIRKJA | Sumarmessur
á Suðurnesjum. Sjá Útskálakirkju.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Service. Translation
into English. Samkoma á ensku kl.
14. English speaking service. Sam-
koma á spænsku kl. 16. Reuniónes
en español.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma kl. 20. Friðrik Schram pré-
dikar. Kaffi að samverustund lokinni.
Athugið að þetta er síðasta samkoma
fyrri hluta sumars. Skrifstofa kirkjunn-
ar verður lokuð í júlí og ekki samkomu-
hald þann mánuð vegna sumarleyfa.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sumar-
messa í Útskálakirkju sunnudag kl.
20. Keflavíkurkirkja tekur þátt í sum-
armessunum. Sjá Útskálakirkju hér á
síðunni.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum |
Yndismessa í Útskálakirkju sunnudag-
inn kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur
þátt í Sumarmessunum. Sjá Útskála-
kirkju hér í síðunni.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Lenka Má-
téová, kantor kirkjunnar, leikur á org-
elið.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11 í
Áskirkju sem er sumarkirkjan í sumar.
Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Jó-
hanna Ósk Valsdóttir leiðir söng. Sr.
Bolli Pétur Bollason þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Sumarmessa
kl. 11. Sr. Bryndís Svavarsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Organisti og
forsöngvari er Þórður Sigurðarson.
Meðhjálpari er Hanna Margrét Gísla-
dóttir.
NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Skúli S. Ólafsson. Félagar
úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
Kaffisopi á Torginu að lokinni guðs-
þjónustu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð-
vík | Yndismessa í Útskálakirkju
sunnudag kl. 20. Njarðvíkurkirkja tek-
ur þátt í Sumarmessunum.
Sjá Útskálakirkju hér í síðunni.
SANDGERÐISKIRKJA | Sumar-
messur á Suðurnesjum. Sjá Útskála-
kirkju.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund á Lyfjafræðisafninu, Safnatröð
3, við Nesstofu kl. 11. Hljómsveitin
Sóló leikur og syngur. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar. Veitingar eftir at-
höfn.
STRANDARKIRKJA | ,,Englar hæst-
ir“ er yfirskrift tónlistarmessu sem
verður í Strandarkirkju á tónlistarhátíð-
inni Englar og menn, nk. sunnudag kl.
14. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar
og tónlistarflutning annast Björg Þór-
hallsdóttir sópransöngkona, Matthías
Nardeau óbóleikari og við orgelið verð-
ur Hilmar Örn Agnarsson organisti.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Yndismessa kl.
20. Keith Reed annast tónlistina
ásamt félögum úr Kór Útskála- og
Hvalsnessókna. Sigurður Grétar Sig-
urðsson sóknarprestur leiðir stundina
og flytur hugvekju.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í
Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Ví-
dalínskirkja tekur þátt í Sumarmess-
unum. Hjólreiðamessa 2022 á sunnu-
daginn. Munið sunnudagaskólann í
Garðakirkju kl. 10. Sjá nánar undir
Garðakirkja hér á síðunni.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Sumarmessur í Garðakirkju alla
sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja tek-
ur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garða-
kirkja hér á síðunni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Yndis-
messa í Útskálakirkju sunnudag kl.
20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í
Sumarmessunum. Sjá Útskálakirkju
hér á síðunni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kirkjan á Sólheimum í Grímsnesi.
✝
Ásvaldur
Magnússon
fæddist 8. júlí 1954
að Ökrum í Reykja-
dal. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu í Tröð,
Önundarfirði þann
14. júní 2022.
Ásvaldur var son-
ur hjónanna Ástu
Ásvaldsdóttur, f.
12.10. 1930 á
Breiðumýri S-Þing, d. 29.10.
2016, og Magnúsar K. Guð-
mundssonar, f. 24.10. 1924 í
Hjarðardal í Önf., d. 29.7. 2006.
Þau voru bændur í Tröð.
Systkini Ásvaldar eru: Sigríð-
ur Magnúsdóttir, f. 1955, Guð-
mundur Helgi Magnússon, f.
1958, Sólveig Bessa Magn-
úsdóttir, f. 1962, og Guðný Hild-
ur Magnúsdóttir, f. 1969.
Ásvaldur kvæntist Helgu Dóru
Kristjánsdóttur frá Brekku á
Ingjaldssandi 2.7. 1983. Foreldrar
hennar voru Kristján Guðmunds-
son, f. 1918, d. 1988, og Árilia Jó-
hannesdóttir, f. 1923, d. 2014.
Börn þeirra eru 1) Ásta Ás-
ýmsum félagsmálum. Fyrst sem
félagi og stjórnarmaður í Ung-
mennafélaginu Önundi og hann
var í stjórn Héraðssambands V-
Ís. Hann var frumkvöðull og leið-
togi í félagsmálum bænda. Var
stofnandi og formaður Loðdýra-
ræktunarfélags á svæðinu á með-
an það starfaði og í stjórn Lands-
sambands loðdýraeigenda. Hann
var stofnandi og formaður Fé-
lags skógareigenda á Vest-
fjörðum í 12 ár og sat þann tíma í
Landssambandi skógareigenda
og eins í stjórn Skjólskóga á
Vestfjörðum. Gegndi hann ýms-
um öðrum trúnaðarstörfum fyrir
bændur, búnaðarfélög og Bún-
aðarsamband á svæðinu. Ásvald-
ur var virkur í pólitísku starfi,
átti sæti í stjórnum og nefndum á
vegum Mosvallahrepps og Ísa-
fjarðarbæjar. Hann sat í stjórn
Ingastofu og var meðhjálpari í
Holtskirkju. Þá var hann fjall-
skila- og réttarstjóri til margra
ára í Önundarfirði
Ásvaldur tók að sér húsvörslu
og rekstur Holts - Friðarseturs
2003 í gamla Holtsskóla og rak
þar gistiheimili og félagsmiðstöð
sveitarinnar. Frá 2018 stofnaði
hann og rak Holt Inn sveitahótel
ásamt konu sinni, Kristjáni syni
sínum og Hólmfríði, tengdadótt-
ur. Útförin fer fram frá Ísafjarð-
arkirkju í dag, 25. júní 2022, kl.
14.
valdsdóttir, f. 1985.
2) Kristján Óskar
Ásvaldsson, f. 1986,
giftur Hólmfríði
Bóasdóttur. Þeirra
börn eru Helga
Dóra, Auður og
Bóas Ásvaldur. 3)
Eyvindur Atli Ás-
valdsson, f. 1990,
giftur Sæbjörgu
Freyju Gísladóttur.
Þeirra börn eru Ív-
ar Hrafn Ágústsson, Andri Pétur
Zakarías Ágústsson, Sólveig Erla
Eyvindardóttir og Sæmundur
Búi Eyvindarson.
Ásvaldur bjó í foreldrahúsum á
Flateyri en þegar hann var á
fjórða ári, flutti fjölskyldan að
Tröð og átti hann þar heimili síð-
an. Hann stundaði sjómennsku í 7
ár en vann á sumrum við bústörf-
in. Hann lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri og að því loknu hóf
hann búskap með kindur og kýr
ásamt foreldrum sínum í Tröð og
1983 kom Helga Dóra inn í bú-
skapinn. Þau keyptu síðar jörðina
og tóku alfarið við rekstri hennar.
Ásvaldur tók virkan þátt í
Ég átti besta tengdapabbann.
Hann var eins og þéttvaxinn
skógur. Hvert og eitt tré var hug-
mynd og hver og ein grein nánari
útfærsla hennar. Því Ási var alltaf
búinn að pæla í hlutunum alveg
frá rótum og út í hæsta laufblað.
Sumar hugmyndirnar misgáfu-
legar og sumar misskemmtilegar
en allar áhugaverðar. Ég held
hann hafi verið með nýja hug-
mynd í hvert skipti sem ég hitti
hann. Sem var nokkuð oft. Ég er
svo heppin að hafa fengið að vera
hluti af allavega einni af þessum
mögnuðu hugmyndum og það
verkefni varð heldur betur að
veruleika. Það gaf okkur ótal
margar stundir og minningar
saman sem ég er ævinlega þakklát
fyrir. Þetta verkefni minnir okkur
á þennan duglega, þrjóska og
góða mann á hverjum degi og mun
gera um ókomna tíð. Hann bjó
einnig yfir ótrúlegri þrautseigju
sem ég dáist alltaf að og ég mun
eftir bestu getu kenna börnunum
mínum þrautseigju afa þeirra.
Hann kom mér alltaf á óvart
með ótal fjölbreytilegra hug-
mynda. Að þessum bónda og
bóndasyni úr Önundarfirði gæti
dottið þetta í hug. En svona var
Ási. Framsýnn, frumkvöðull,
hörkuduglegur, ákveðinn, sann-
gjarn, stríðinn og skemmtilegur.
Mikill jafnréttissinni og hvatti
kvenpeninginn í fjölskyldunni
óspart áfram að fara óvenjulegar
og/eða óhefðbundnar leiðir.
Ég fékk að eiga hann að í tæp 15
ár, rákum fyrirtæki saman, bjó hjá
honum og Helgu í samtals fjögur
ár ásamt óteljandi helgum sem við
fjölskyldan eyddum saman með
þeim í sveitinni. Við erum þakklát
fyrir þessar samverustundir.
Á þessum 15 árum voru aldrei
árekstrar eða ósætti. Við vorum
oft ósammála, en aldrei ósátt. Við
vorum góðir vinir og náðum vel
saman. Það var alltaf gott að vera í
kringum Ása og vinna með honum
og tala við hann. Því alltaf var
hægt að tala við hann og spjalla
um hvað sem er. Maður var aldrei
að trufla hann. Hann átti alltaf
tíma. Hann kenndi manni svo
margt og gaf svo mikið af sér.
Ási gat allt. Eftir nokkrar ár-
angurslausar tilraunir við að fá
múrara til að hjálpa mér við tvær
tröppur heima þá var Ási mættur
daginn eftir og græjaði þetta.
Svona var hann. Ekkert að mikla
hlutina of mikið fyrir sér. Bara
byrja á þessu. Enda komst hann
yfir alveg ótrúlega mikið af verk-
efnum. Skaut svo stundum á mig
þegar hann var að klára eitthvað:
„Jæja Hófí, ertu búin að lesa leið-
beiningarnar?“ og glotti svo
stríðnislega.
Þegar Kristján var öll kvöld að
vinna í húsinu okkar þá var Ási
með mér öll kvöld að ganga um
gólf með nafna sinn og prófa nýjar
aðferðir til að róa hann. Ási vildi
finna lausn á öllu og laga. Þannig
var hann. Svo lausnamiðaður og
bjó yfir svo miklu þolgæði og
þrautseigju að ég hef sjaldan
kynnst öðru eins.
Þegar Ási fór af stað út í fjár-
hús að vinna þá lét hann aldrei
vita. Maður heyrði bara hurðina
lokast og þá vissi maður að hann
væri farinn út eitthvað að brasa.
Þú lést okkur heldur ekki vita í
þetta skipti að þú ætlaðir að fara
en ég er viss um að þú ert að brasa
eitthvað með eina af hugmyndum
þínum.
Elsku Ási, þú varst mér svo
góður. Þú varst eins og pabbi
númer tvö. Við munum hugsa vel
um skóginn þinn.
Hólmfríður Bóasdóttir.
Líkt og þegar þú leist dagsins
ljós í fyrsta sinn kveður þú þessa
jarðvist á björtum sumardegi.
Sumarbarnið, náttúrubarnið, við
erum svolítið þannig Traðarsystk-
inin. Og nú er stórt skarð komið í
okkar hóp sem við vitum ekki al-
veg hvernig við fyllum, við erum
þó nú þegar farin að svara fyrir
þig, leggja þér orð í munn og
þannig muntu lifa með okkur.
Takk, kæri bróðir, fyrir sam-
ferðina, það er svo ótal margs að
minnast og þakka.
Veit það eru aðrir sem munu tí-
unda ævistarf þitt og mannkosti en
ég læt hér fylgja eitt af fallegum
náttúruljóðum Guðmundar Inga.
Vorblærinn hlýr þegar vaknar af dvala
veturinn þokar sér fjær.
Fæðist þá lífið til fjalla og dala,
faðmar og brosir og grær.
Lífið á allt, – það á bununa bláa,
brekku með nýgræðingslit,
sjálfala búfé og söngfugla smáa,
sólskin og vorgoluþyt.
Jafn fyrir öllum er vorlífsins vegur,
vöxtur og gróður og ást.
Allt sem að heiman oss endranær dregur
eyðist og fær ekki að sjást.
Engjarnar, túnin og hagarnir heima
heilla með ilmandi þrá.
Hrífandi fjarlægð er geðþekkt að gleyma
gróðursins blómfaðmi hjá.
Guð geymi þig, elsku Ási minn,
þar til við finnumst síðar, megi all-
ar góðar vættir styrkja og styðja
fallegu fjölskylduna þína til að
halda áfram án þín.
Þín systir,
Bessa.
Elsku hjartans Ási stóri bróðir
minn er farinn, alltof, alltof
snemma. Hann hafði svo margt að
lifa fyrir og við svo mörg sem elsk-
uðum hann.
Ási var meistari í því sem kallað
er góðlátleg stríðni. Með sinni
góðlátlegu stríðni sýndi hann fólki
ást, umhyggju og áhuga og skap-
aði andrúmsloft léttleika og hlýju.
Í návist Ása leið öllum vel.
Ási hafði alltaf mörg járn í eld-
inum. Á fyrri hluta ævinnar var
hann sjómaður, loðdýrabóndi og
kúabóndi. Síðustu áratugina var
hann fjárbóndi, skógarbóndi og
hótelstjóri. En stærsta hlutverk
hans var að sinna fjölskyldunni.
Og fjölskyldan hans var risastór.
Helga hans, börnin, tengdadæt-
urnar og barnabarnahópurinn,
sem stækkaði með hverju árinu.
Við systkinin og fjölskyldur.
Tengdafjölskyldan. Og allt frænd-
fólk og vinir. Við vorum öll alltaf
velkomin í Tröð og nutum gest-
risni hans og nærveru. Ási var
fjölskyldumaður í bestu merkingu
þess orðs, traustur, hlýr og um-
hyggjusamur. Og skemmtilegur,
alltaf skemmtilegur.
Ási var mikill sögumaður, hafði
ótrúlegt minni, var vel lesinn og
fjölfróður. Hann hafði gaman af
því að ögra viðteknum skoðunum,
oft með kímnina í augunum og
hann var þrjóskur, sem er fjöl-
skyldueinkenni. Ási var alltaf að
fá hugmyndir, gera áætlanir,
hanna og framkvæma. Hann var
skorpumaður, réðst oft í stórar
framkvæmdir og kom mörgu í
verk. En hann kunni líka að hvíla
sig og leggjast í híði þegar hann
þurfti þess. Ási var í essinu sínu í
góðum félagsskap. Eldhúsið, bæði
í Tröð og í Holti, var hans ríki,
hann var frábær kokkur og naut
þess að gefa fólki gott að borða.
Ási var elstur af okkur fimm
systkinum. Við vorum náin og
urðum eiginlega enn nánari með
aldrinum. Við vorum öll stjórnsöm
og athafnamikill, þó bræðurnir
tveir vildu meina að það væru
bara við systurnar sem værum
stjórnsamar. Við höfum ráðist í
svo margt saman, skrifað ættar-
bók saman og skipulagt óteljandi
veislur, viðburði og ferðir. Við vor-
um mjög leikin í því sem við köll-
uðum að rökræða, en fyrir utanað-
komandi gat litið út fyrir að við
værum að rífast. En við nutum
þess að rökræða og stjórnast
hvert í öðru og það var alltaf í
góðu. Traustið og kærleikurinn
var kjarninn sem við þurftum
aldrei að efast um.
Ási var gæfumaður. Hann
kynnist ástinni sinni þegar hann
hitti Helgu og átti með henni
sterkt og fallegt hjónaband í fjóra
áratugi. Hann eignaðist börnin sín
þrjú sem hann var svo stoltur af
og svo blómstraði hann í afahlut-
verkinu þegar að því kom. Hann
naut sterkra og góðra tengsla við
stórfjölskyldu og vini. Ási fékk
líka að starfa sjálfstætt og koma í
framkvæmd hugðarefnum sínum
og hugmyndum og hafa áhrif á
samfélagið sitt. Líf Ása var gæfa
fyrir alla í kringum hann, hann gaf
svo mikið af sér, bæði í persónu-
legum samskiptum og í sam-
félagslegum málefnum. Fyrir
okkur sem syrgjum hann er gott
að hugsa um allt þetta.
Elsku besti Ási minn, við þurf-
um að læra að lifa án þín. En andi
þinn og allar minningarnar verða
alltaf með okkur og lifa áfram.
Farðu í friði elsku elsku bróðir.
Takk fyrir allt.
Guðný Hildur
Magnúsdóttir.
Ásvaldur
Magnússon
- Fleiri minningargreinar
um Ásvald Magnússon bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
AÐALSTEINN ÍSFJÖRÐ
SIGURPÁLSSON,
múrarameistari og harmonikuleikari,
Forsæti 10b, Sauðárkróki,
áður til heimilis á Húsavík,
lést á HSN Sauðárkróki mánudaginn 20. júní. Útför fer fram frá
Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 28. júní kl. 14. Útförinni verður
einnig streymt á facebooksíðu Sauðárkrókskirkju.
https://www.youtube.com/watch?v=4vau1CVau1Q
Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat
Unnur Sigfúsdóttir
Sigurpáll Þór Aðalsteinsson Kristín Elfa Magnúsdóttir
Linda Rós Aðalsteinsdóttir
Ása Birna Aðalsteinsdóttir Bjarni Gunnarsson
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRNI STEFÁN NORÐFJÖRÐ,
áður til heimilis í Álandi 11, Reykjavík,
andaðist 21. júní á Hjúkrunarheimili DAS á
Sléttuvegi. Útförin fer fram frá
Bústaðakirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 11.
Anna Hulda Ólafsen Norðfjörð
Unnur Dóra Norðfjörð Runólfur Þór Andrésson
Sigrún Birna Norðfjörð Oddgeir Arnarson
Árni Valur Skarphéðinsson Iðunn Ólafsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og þeirra makar