Morgunblaðið - 25.06.2022, Page 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
✝
Guðný Jóna
Jónsdóttir
fæddist á Skála-
nesi í Gufudals-
sveit 13. desember
1939. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á
Akranesi 27. maí
2022.
Foreldrar Guð-
nýjar voru Jón
Einar Jónsson,
ættaður úr Gufudalssveit, f.
9.11. 1900, d. 31.1. 1997, og
Ingibjörg Jónsdóttir, ættuð af
Barðaströnd og úr Arnarfirði,
f. 9.1. 1902, d. 2.3. 1989, bænd-
ur á Skálanesi.
Systkini Guðnýjar eru: Jón-
ína Sigurlína, f. 1925, d. 2012,
Hallgrímur Valgeir, f. 1927, d.
2012, Aðalheiður Gyða, f. 1933,
d. 2011, Kristjana Guðmunda,
f. 1934, d. 2020, Erlingur, f.
1936, d. 1937, Jón Erlingur, f.
1938, Svanhildur, f. 1942, Hjör-
dís, f. 1945, Sverrir Finnbogi, f.
1947. Auk þess átti Guðný þrjá
uppeldisbræður: Víglund Ólafs-
Margret, f. 2006 og Ian Arthur,
f. 2009. 3) Jón Einar Reynisson,
f. 1974. Hans sambýliskona er
Birna Jónsdóttir, f. 1973. Börn
Jóns eru: 3.1) Karen Birta, f.
2001, 3.2) Dagur Smári, f.
2008. 4) Óskar Leifur Arn-
arsson, f. 1981, hans sambýlis-
kona er Inga Hlín Valdimars-
dóttir, f. 1982, dætur þeirra
eru: 4.1) Jóna Guðrún, f. 2017
og 4.2) Helga Margrét, f. 2021.
5) Guðmundur Ingiberg Arn-
arsson, f. 1983, hans sambýlis-
kona er Katla Sólborg Frið-
riksdóttir, f. 1996. Synir
Guðmundar eru: 5.1) Arnar
Levý, f. 2011 og 5.2) Elmar
Benvý, f. 2013.
Guðný ólst upp á Skálanesi
við hefðbundin landbún-
aðarstörf. Ung fór hún að að-
stoða systkini sín við heim-
ilishald og barnapössun. Hún
starfaði í fiskvinnslu á Patreks-
firði og Akranesi. Veturinn
1958-59 fór hún í húsmæðra-
skólann á Staðarfelli á Fells-
strönd. Guðný starfaði meðal
annars sem ráðskona hjá
Vegagerðinni, ráðskona í
Reykhólaskóla og við ræst-
ingar.
Útför Guðnýjar fer fram frá
Reykhólakirkju, Reykhólum, á
morgun, sunnudaginn 26. júní
2022, og hefst athöfnin kl. 13.
son, f. 1921, d.
1950, Gunnar
Ingva Hrólfsson, f.
1944 og Jón Inga
Kristjánsson, f.
1953.
Börn Guðnýjar
eru: 1) Snædís
Gíslín Heið-
arsdóttir,
(uppeldisdóttir) f.
1962, gift Ragnari
Ólafi Guðmunds-
syni, f. 1959, börn þeirra eru:
1.1) Guðný Ösp, f. 1983, gift
Fannari Hjálmarssyni, f. 1983,
börn þeirra eru 1.1.1) Þiðrik, f.
2009 og 1.1.2) Iðunn, f. 2012.
1.2) Elín Björg, f. 1989, hennar
sambýlismaður er Jón Ævar
Tómasson, f. 1986. Börn þeirra:
1.2.1) Íris Edda, f. 2015, 1.2.2)
Kári Snær, f. 2016, 1.2.3) Gauti
Hrafn, f. 2020. 1.3) Guð-
mundur, f. 1995, hans sambýlis-
kona er Sigríður Margrét
Ágústsdóttir, f. 1996. 2) Ásta
Valdís Borgfjörð Aðalsteins, f.
1971, maki Jóhann Jóhannsson,
f. 1969. Börn Ástu eru 2.1) Ella
Hér kveð ég hinstu kveðju
elsku mömmu mína.
Ekki átti ég von á þessu þeg-
ar þú komst með okkur vestur á
Patreksfjörð, á milli jóla og ný-
árs, að svona stutt væri eftir.
Enginn veit sína ævi fyrr en öll
er. Það er samt svo dýrmætt að
hugsa til þess tíma sem þú áttir
með okkur og sérstaklega
ömmustelpunum þínum. Ömmu-
börnin voru þér svo dýrmæt og
eins og þú sagðir svo oft að það
væri ekki hægt að láta sér leið-
ast í kringum börn. Börnin sem
fengu að alast upp í kringum
þig fengu dýrmætt veganesti
inn í lífið, en önnur fóru á mis
við svo margt. Eftir smá hálku-
byltu í byrjun febrúar og innlit
á sjúkrahúsið á Patreksfirði
sagðir þú starfsfólkinu að þú
ætlaðir bara að vera hér í sum-
ar að passa ömmustelpurnar.
Það er svo skrítið að geta
ekki tekið upp símann og slegið
á þráðinn til þín. Sagt fréttir af
lífinu hér fyrir vestan, leyfa þér
að heyra í Jónu Guðrúnu og
Helgu Margréti og spjalla um
gamla tíma. Að geta ekki lengur
hringt og beðið um ráð í allri
matseld, verkunaraðferðir og
geymslutíma, eldunartíma, jafn-
ings- og sósugerð. Allar sög-
urnar af stórfjölskyldunni, for-
mæðrum og forfeðrum, ástum
og ævi. Af æsku þinni og upp-
eldi og kynnum af fólki. Minn-
ingarnar af fyrstu árunum í
gamla torfbænum á Skálanesi
með ömmurnar í kringum þig
og þegar þið stóra fjölskyldan
svo fluttuð í nýja steinsteypta
húsið þegar þú varst 5 ára göm-
ul. Hús sem í dag teldist minna
en sumarhús. Það að vera fædd
um það leyti þegar landið komst
á á heimskortið og tæknibylt-
ingin ruddist inn á ógnarhraða
með öllum sínum breytingum.
Þegar maður var yngri gat
maður stundum orðið svolítið
þreyttur í eyrunum að heyra
allar þessar sögur en seinna
urðu þær algjör fjarsjóður,
veganesti og hluti af fræðum og
grúski. Ég man þær ekki allar.
Oft hef ég hugsað, og sérstak-
lega núna, að á akstri um
Barðastrandarsýslur hefði ég
átt að láta upptökutæki ganga.
Einhvern veginn tókst þér að
láta hlutina ganga upp og koma
fimm börnum út í heiminn þó
stundum hafi á móti blásið. Þú
varst alltaf svo hraust. Stund-
irnar út í náttúrunni hafa þar
haft mikið að segja. Síðustu ár-
in fór, eins og gengur með
hækkandi aldri, að bera á ýms-
um kvillum. En aldrei var
kvartað. Í upphafi heimsfarald-
ursins, með öllum þeim töfum í
heilbrigðisþjónustu og meðferð
sem fylgdi, greindist þú með ill-
kynja mein. Meðferðin virtist
samt hafa gengið vel en í vor
kom í ljós að meinið hafði tekið
sig upp aftur.
Þessa vísu raulaði ég oft með
þér þegar ég var lítill. Hvort
þetta varð til hjá okkur eða
hver höfundurinn er, veit ég
ekki.
Bjart er yfir Breiðafjörð,
bæirnir í ljóma.
Skálanes og Reykhólar,
skarta þar með sóma.
Allt veganestið og stuðning-
urinn sem ég bý að er ég svo
óendalega þakklátur fyrir.
Þekkingin og minningarnar
munu alltaf fylgja mér. Takk
fyrir allt elsku mamma. Hvíl í
Guðs friði.
Óskar Leifur.
„Ég skal mála allan heiminn
elsku mamma, svo alltaf skíni
sól í húsið þitt.“ Hversu oft ég
söng þetta fyrir mömmu þegar
ég var lítil stúlka og alltaf fékk
ég bros og knús að launum,
þetta lag áttum við saman.
Móðir mín var alltaf fínust
allra, hún var gædd þeirri náð-
argáfu að vera einstaklega
smekkleg og velja útlit sitt vel,
hárið fallega lagt og fatnaður-
inn elegant. Hún bar af á
mannamótum enda lagði hún
sig fram við að vera vel tilhöfð,
eftir því var tekið og um það
rætt.
Listamaðurinn móðir mín;
man ég eftir öllum stundunum
við eldhúsborðið heima þegar
hún tók hvíta pappírinn utan af
Tímanum og teiknaði heilu æv-
intýrin um hesta og kindur,
krumma, hundana og önnur dýr
í sveitinni, allt sem hún svo
gæddi lífi með sinni einstöku
sagnagáfu. Sagnagáfa hennar
kom einnig mjög sterkt fram í
riti, minnist ég sendibréfa
hennar sem ég fékk send til
Bandaríkjanna þar sem ég var
skiptinemi, þau voru eins og
spennandi framhaldssaga, ég
gat ekki beðið eftir að finna ró
og næði til að lesa þau, og engin
leið var að leggja þau frá sér
fyrr en lestri var lokið. Í sendi-
bréfunum sagði hún ekki bara
sögur af því sem drifið hafði á
daga þeirra heima, heldur líka
hvað væri í gangi á Íslandinu
ylhýra, man ég er ég opnaði eitt
bréfið og las upphafssetn-
inguna: „Ríkisstjórn Íslands er
fallin!“ og ég saup hveljur. Hún
gerði svona einhvern veginn
alla hluti skemmtilega og
spennandi í frásögn sinni, meira
að segja stjórnarkrísu á Íslandi
fyrir 17 ára ungling í útlandinu.
Mamma var ljúf og góð, hlý
og brosmild. Bjó hún yfir mikl-
um húmor og gat fundið það
spaugilega í hversdagslegum
hlutum, skellihlegið að allskon-
ar vitleysu í gestum og gang-
andi. Hún var ræðin og átti ein-
staklega auðvelt með að spjalla
við alla um hvað sem var, alveg
sama hvort hún var kunnug við-
komandi eður ei, hún var opin
og hreif fólk með sér í sannri
gleði um umræðuefnið hverju
sinni. Mér er minnisstætt að
einu sinni hringdi hún óvart í
vitlaust númer og talaði í korter
við ókunnuga manneskju, þetta
var á meðan það kostaði skild-
inginn að nota símann, sagði ég
við hana með brosi í röddinni:
„Bara þú, mamma mín.“
Alltaf var hún tilbúin að
Guðný Jóna
Jónsdóttir
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
BRANDUR JÓNSSON
frá Grafardal,
sem lést föstudaginn 17. júní á
Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, verður
jarðsunginn frá Akraneskirkju mánudaginn
27. júní klukkan 13.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Höfða
fyrir góða umönnun.
Hægt verður að nálgast streymi frá útförinni á vef Akraneskirkju.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat
Salvör Lilja Brandsdóttir Björn Þorri Viktorsson
Sveinn Brandsson Olga Grevtsova
Jón Brandsson Bergný Dögg Sophusdóttir
Heiðdís Björk Brandsdóttir
og afabörn
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, systur,
ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR SIGJÓNSDÓTTUR,
Höfn, Hornafirði,
sem lést 25. maí.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Skjólgarði fyrir alúð
og nærgætni.
Börn og fjölskyldur
Ástkær móðir mín, amma okkar
og langamma,
ÞÓRDÍS FILIPPUSDÓTTIR
verslunarmær,
lést á heimili sínu 20. júní.
Að ósk hinnar látnu fer útförin fram
í kyrrþey.
Filip Woolford
Frank Woolford Hólmar Þór Filipsson
Þórdís Filipsdóttir Erika Sykes
Stefan Sykes Vivienne Vigdís Hólmarsdóttir
Joe Sykes
Vigdís Grace Ólafsdóttir Filip Janis Pálsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SELMA JÓHANNESDÓTTIR,
Aðalgötu 5 , Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu Reykjanesbæ
miðvikudaginn 22. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóhannes Sigurðsson Indiana Steingrímsdóttir
Jón Sigurðsson Karólína Sigurðardóttir
Sigurður Kr. Sigurðsson Guðrún Arnarsdóttir
Guðmunda Sigurðardóttir Ólafur Þór Gylfason
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar
hjartkæra
EINARS OTTÓS EINARSSONAR,
Akurprýði 3, Akranesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á
Akranesi fyrir hlýhug og góða umönnun.
Anna G. Barðadóttir
Berglind Hrönn Einarsdóttir Daníel Freyr Jónsson
Katrín Eva Einarsdóttir
Veigar Orri Daníelsson
og aðrir ástvinir
Elsku móðir mín, amma, langamma,
tengdamóðir og systir,
SIGRÍÐUR S. JÓNSDÓTTIR,
Skógarvegi 16, Reykjavík,
lést 18. apríl á líknardeild Landspítalans.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Rannveig Kramer Hermann G. Jónsson
Thelma Rut Hermannsdóttir Magnús Ingi Ingason
Tanja Dögg Hermannsdóttir Guðjón Már Atlason
Magnús S. Jónsson Ágústa Gísladóttir
börn og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS A. KJERÚLF,
Stillholti 19, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða
miðvikudaginn 22. júní.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 30. júní
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is.
Brynja Kolbrún Kjerúlf
Jóna María S. Kjerúlf Pétur Hafsteinn Ingólfsson
Edda Elísabet Kjerúlf Einar Þorsteinsson
Kristbjörg Kjerúlf Marcelo Doti
Kolbrún Kjerúlf Guðlaugur Gunnarsson
Andrés Ólafur Kjerúlf Þórunn Káradóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
BALDVIN ÁRSÆLSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund 22. júní.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ása Baldvinsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSBJÖRG M. EMANÚELSDÓTTIR
lést á heilbrigðisstofnun Ísafjarðar
sunnudaginn 19. júní.
Jarðaför fer fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Elvar Þór Þorleifsson
Hermann Þ. Þorleifsson
Emanúel Þorleifsson
Þórunn Þorleifsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS GUNNAR PÁLSSON,
flugvirki,
Bjarkavöllum 1A, Hafnarfirði,
lést á Spáni laugardaginn 4. júní.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 27. júní klukkan 13.
Karl Óskar Magnússon Guðný Bjarnarsdóttir
Þóra Margrét Karlsdóttir Patrekur Örn Gestsson
Magnús Gunnar Karlsson