Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 ✝ Guðný Jóna Jónsdóttir fæddist á Skála- nesi í Gufudals- sveit 13. desember 1939. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 27. maí 2022. Foreldrar Guð- nýjar voru Jón Einar Jónsson, ættaður úr Gufudalssveit, f. 9.11. 1900, d. 31.1. 1997, og Ingibjörg Jónsdóttir, ættuð af Barðaströnd og úr Arnarfirði, f. 9.1. 1902, d. 2.3. 1989, bænd- ur á Skálanesi. Systkini Guðnýjar eru: Jón- ína Sigurlína, f. 1925, d. 2012, Hallgrímur Valgeir, f. 1927, d. 2012, Aðalheiður Gyða, f. 1933, d. 2011, Kristjana Guðmunda, f. 1934, d. 2020, Erlingur, f. 1936, d. 1937, Jón Erlingur, f. 1938, Svanhildur, f. 1942, Hjör- dís, f. 1945, Sverrir Finnbogi, f. 1947. Auk þess átti Guðný þrjá uppeldisbræður: Víglund Ólafs- Margret, f. 2006 og Ian Arthur, f. 2009. 3) Jón Einar Reynisson, f. 1974. Hans sambýliskona er Birna Jónsdóttir, f. 1973. Börn Jóns eru: 3.1) Karen Birta, f. 2001, 3.2) Dagur Smári, f. 2008. 4) Óskar Leifur Arn- arsson, f. 1981, hans sambýlis- kona er Inga Hlín Valdimars- dóttir, f. 1982, dætur þeirra eru: 4.1) Jóna Guðrún, f. 2017 og 4.2) Helga Margrét, f. 2021. 5) Guðmundur Ingiberg Arn- arsson, f. 1983, hans sambýlis- kona er Katla Sólborg Frið- riksdóttir, f. 1996. Synir Guðmundar eru: 5.1) Arnar Levý, f. 2011 og 5.2) Elmar Benvý, f. 2013. Guðný ólst upp á Skálanesi við hefðbundin landbún- aðarstörf. Ung fór hún að að- stoða systkini sín við heim- ilishald og barnapössun. Hún starfaði í fiskvinnslu á Patreks- firði og Akranesi. Veturinn 1958-59 fór hún í húsmæðra- skólann á Staðarfelli á Fells- strönd. Guðný starfaði meðal annars sem ráðskona hjá Vegagerðinni, ráðskona í Reykhólaskóla og við ræst- ingar. Útför Guðnýjar fer fram frá Reykhólakirkju, Reykhólum, á morgun, sunnudaginn 26. júní 2022, og hefst athöfnin kl. 13. son, f. 1921, d. 1950, Gunnar Ingva Hrólfsson, f. 1944 og Jón Inga Kristjánsson, f. 1953. Börn Guðnýjar eru: 1) Snædís Gíslín Heið- arsdóttir, (uppeldisdóttir) f. 1962, gift Ragnari Ólafi Guðmunds- syni, f. 1959, börn þeirra eru: 1.1) Guðný Ösp, f. 1983, gift Fannari Hjálmarssyni, f. 1983, börn þeirra eru 1.1.1) Þiðrik, f. 2009 og 1.1.2) Iðunn, f. 2012. 1.2) Elín Björg, f. 1989, hennar sambýlismaður er Jón Ævar Tómasson, f. 1986. Börn þeirra: 1.2.1) Íris Edda, f. 2015, 1.2.2) Kári Snær, f. 2016, 1.2.3) Gauti Hrafn, f. 2020. 1.3) Guð- mundur, f. 1995, hans sambýlis- kona er Sigríður Margrét Ágústsdóttir, f. 1996. 2) Ásta Valdís Borgfjörð Aðalsteins, f. 1971, maki Jóhann Jóhannsson, f. 1969. Börn Ástu eru 2.1) Ella Hér kveð ég hinstu kveðju elsku mömmu mína. Ekki átti ég von á þessu þeg- ar þú komst með okkur vestur á Patreksfjörð, á milli jóla og ný- árs, að svona stutt væri eftir. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Það er samt svo dýrmætt að hugsa til þess tíma sem þú áttir með okkur og sérstaklega ömmustelpunum þínum. Ömmu- börnin voru þér svo dýrmæt og eins og þú sagðir svo oft að það væri ekki hægt að láta sér leið- ast í kringum börn. Börnin sem fengu að alast upp í kringum þig fengu dýrmætt veganesti inn í lífið, en önnur fóru á mis við svo margt. Eftir smá hálku- byltu í byrjun febrúar og innlit á sjúkrahúsið á Patreksfirði sagðir þú starfsfólkinu að þú ætlaðir bara að vera hér í sum- ar að passa ömmustelpurnar. Það er svo skrítið að geta ekki tekið upp símann og slegið á þráðinn til þín. Sagt fréttir af lífinu hér fyrir vestan, leyfa þér að heyra í Jónu Guðrúnu og Helgu Margréti og spjalla um gamla tíma. Að geta ekki lengur hringt og beðið um ráð í allri matseld, verkunaraðferðir og geymslutíma, eldunartíma, jafn- ings- og sósugerð. Allar sög- urnar af stórfjölskyldunni, for- mæðrum og forfeðrum, ástum og ævi. Af æsku þinni og upp- eldi og kynnum af fólki. Minn- ingarnar af fyrstu árunum í gamla torfbænum á Skálanesi með ömmurnar í kringum þig og þegar þið stóra fjölskyldan svo fluttuð í nýja steinsteypta húsið þegar þú varst 5 ára göm- ul. Hús sem í dag teldist minna en sumarhús. Það að vera fædd um það leyti þegar landið komst á á heimskortið og tæknibylt- ingin ruddist inn á ógnarhraða með öllum sínum breytingum. Þegar maður var yngri gat maður stundum orðið svolítið þreyttur í eyrunum að heyra allar þessar sögur en seinna urðu þær algjör fjarsjóður, veganesti og hluti af fræðum og grúski. Ég man þær ekki allar. Oft hef ég hugsað, og sérstak- lega núna, að á akstri um Barðastrandarsýslur hefði ég átt að láta upptökutæki ganga. Einhvern veginn tókst þér að láta hlutina ganga upp og koma fimm börnum út í heiminn þó stundum hafi á móti blásið. Þú varst alltaf svo hraust. Stund- irnar út í náttúrunni hafa þar haft mikið að segja. Síðustu ár- in fór, eins og gengur með hækkandi aldri, að bera á ýms- um kvillum. En aldrei var kvartað. Í upphafi heimsfarald- ursins, með öllum þeim töfum í heilbrigðisþjónustu og meðferð sem fylgdi, greindist þú með ill- kynja mein. Meðferðin virtist samt hafa gengið vel en í vor kom í ljós að meinið hafði tekið sig upp aftur. Þessa vísu raulaði ég oft með þér þegar ég var lítill. Hvort þetta varð til hjá okkur eða hver höfundurinn er, veit ég ekki. Bjart er yfir Breiðafjörð, bæirnir í ljóma. Skálanes og Reykhólar, skarta þar með sóma. Allt veganestið og stuðning- urinn sem ég bý að er ég svo óendalega þakklátur fyrir. Þekkingin og minningarnar munu alltaf fylgja mér. Takk fyrir allt elsku mamma. Hvíl í Guðs friði. Óskar Leifur. „Ég skal mála allan heiminn elsku mamma, svo alltaf skíni sól í húsið þitt.“ Hversu oft ég söng þetta fyrir mömmu þegar ég var lítil stúlka og alltaf fékk ég bros og knús að launum, þetta lag áttum við saman. Móðir mín var alltaf fínust allra, hún var gædd þeirri náð- argáfu að vera einstaklega smekkleg og velja útlit sitt vel, hárið fallega lagt og fatnaður- inn elegant. Hún bar af á mannamótum enda lagði hún sig fram við að vera vel tilhöfð, eftir því var tekið og um það rætt. Listamaðurinn móðir mín; man ég eftir öllum stundunum við eldhúsborðið heima þegar hún tók hvíta pappírinn utan af Tímanum og teiknaði heilu æv- intýrin um hesta og kindur, krumma, hundana og önnur dýr í sveitinni, allt sem hún svo gæddi lífi með sinni einstöku sagnagáfu. Sagnagáfa hennar kom einnig mjög sterkt fram í riti, minnist ég sendibréfa hennar sem ég fékk send til Bandaríkjanna þar sem ég var skiptinemi, þau voru eins og spennandi framhaldssaga, ég gat ekki beðið eftir að finna ró og næði til að lesa þau, og engin leið var að leggja þau frá sér fyrr en lestri var lokið. Í sendi- bréfunum sagði hún ekki bara sögur af því sem drifið hafði á daga þeirra heima, heldur líka hvað væri í gangi á Íslandinu ylhýra, man ég er ég opnaði eitt bréfið og las upphafssetn- inguna: „Ríkisstjórn Íslands er fallin!“ og ég saup hveljur. Hún gerði svona einhvern veginn alla hluti skemmtilega og spennandi í frásögn sinni, meira að segja stjórnarkrísu á Íslandi fyrir 17 ára ungling í útlandinu. Mamma var ljúf og góð, hlý og brosmild. Bjó hún yfir mikl- um húmor og gat fundið það spaugilega í hversdagslegum hlutum, skellihlegið að allskon- ar vitleysu í gestum og gang- andi. Hún var ræðin og átti ein- staklega auðvelt með að spjalla við alla um hvað sem var, alveg sama hvort hún var kunnug við- komandi eður ei, hún var opin og hreif fólk með sér í sannri gleði um umræðuefnið hverju sinni. Mér er minnisstætt að einu sinni hringdi hún óvart í vitlaust númer og talaði í korter við ókunnuga manneskju, þetta var á meðan það kostaði skild- inginn að nota símann, sagði ég við hana með brosi í röddinni: „Bara þú, mamma mín.“ Alltaf var hún tilbúin að Guðný Jóna Jónsdóttir Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BRANDUR JÓNSSON frá Grafardal, sem lést föstudaginn 17. júní á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju mánudaginn 27. júní klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Höfða fyrir góða umönnun. Hægt verður að nálgast streymi frá útförinni á vef Akraneskirkju. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat Salvör Lilja Brandsdóttir Björn Þorri Viktorsson Sveinn Brandsson Olga Grevtsova Jón Brandsson Bergný Dögg Sophusdóttir Heiðdís Björk Brandsdóttir og afabörn Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR SIGJÓNSDÓTTUR, Höfn, Hornafirði, sem lést 25. maí. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Skjólgarði fyrir alúð og nærgætni. Börn og fjölskyldur Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma, ÞÓRDÍS FILIPPUSDÓTTIR verslunarmær, lést á heimili sínu 20. júní. Að ósk hinnar látnu fer útförin fram í kyrrþey. Filip Woolford Frank Woolford Hólmar Þór Filipsson Þórdís Filipsdóttir Erika Sykes Stefan Sykes Vivienne Vigdís Hólmarsdóttir Joe Sykes Vigdís Grace Ólafsdóttir Filip Janis Pálsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SELMA JÓHANNESDÓTTIR, Aðalgötu 5 , Reykjanesbæ, lést á Hrafnistu Reykjanesbæ miðvikudaginn 22. júní. Útförin verður auglýst síðar. Jóhannes Sigurðsson Indiana Steingrímsdóttir Jón Sigurðsson Karólína Sigurðardóttir Sigurður Kr. Sigurðsson Guðrún Arnarsdóttir Guðmunda Sigurðardóttir Ólafur Þór Gylfason barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar hjartkæra EINARS OTTÓS EINARSSONAR, Akurprýði 3, Akranesi. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki lyflækningadeildar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi fyrir hlýhug og góða umönnun. Anna G. Barðadóttir Berglind Hrönn Einarsdóttir Daníel Freyr Jónsson Katrín Eva Einarsdóttir Veigar Orri Daníelsson og aðrir ástvinir Elsku móðir mín, amma, langamma, tengdamóðir og systir, SIGRÍÐUR S. JÓNSDÓTTIR, Skógarvegi 16, Reykjavík, lést 18. apríl á líknardeild Landspítalans. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Rannveig Kramer Hermann G. Jónsson Thelma Rut Hermannsdóttir Magnús Ingi Ingason Tanja Dögg Hermannsdóttir Guðjón Már Atlason Magnús S. Jónsson Ágústa Gísladóttir börn og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS A. KJERÚLF, Stillholti 19, Akranesi, lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða miðvikudaginn 22. júní. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 30. júní klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Brynja Kolbrún Kjerúlf Jóna María S. Kjerúlf Pétur Hafsteinn Ingólfsson Edda Elísabet Kjerúlf Einar Þorsteinsson Kristbjörg Kjerúlf Marcelo Doti Kolbrún Kjerúlf Guðlaugur Gunnarsson Andrés Ólafur Kjerúlf Þórunn Káradóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, BALDVIN ÁRSÆLSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Grund 22. júní. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ása Baldvinsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSBJÖRG M. EMANÚELSDÓTTIR lést á heilbrigðisstofnun Ísafjarðar sunnudaginn 19. júní. Jarðaför fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elvar Þór Þorleifsson Hermann Þ. Þorleifsson Emanúel Þorleifsson Þórunn Þorleifsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS GUNNAR PÁLSSON, flugvirki, Bjarkavöllum 1A, Hafnarfirði, lést á Spáni laugardaginn 4. júní. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 27. júní klukkan 13. Karl Óskar Magnússon Guðný Bjarnarsdóttir Þóra Margrét Karlsdóttir Patrekur Örn Gestsson Magnús Gunnar Karlsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.