Morgunblaðið - 25.06.2022, Síða 28
Skúli Einarsson
fv. formaður Mat-
sveinafélags Íslands
hefði orðið 96 ára 23. júní síðastlið-
inn. Skúli var kjörinn formaður
Matsveinafélags Íslands árið 2004,
78 ára gamall. Hann sigldi félagi
sínu í örugga höfn með sameiningu
við Sjómannafélag Reykjavíkur og
til varð Sjómannafélag Íslands.
Skúli sigldi um heimsins höf og lifði
ævintýri sjómennsku á mesta
breytingaskeiði Íslandssögunnar.
Sjómannslíf, sjómannslíf,
draumur hins djarfa manns,
blikandi bárufans,
býður í trylltan dans.
Sjómannslíf, sjómannslíf,
ástir og ævintýr
fögnuð í faðmi býr,
brimhljóð og veðragnýr.
Ship-o-hoj, ship-o-hoj.
(Loftur Guðmundsson)
Skúli var pikkaló hjá frænda
sínum, Jóhannesi Jósefssyni á
Hótel Borg, og horfði á Winston
Churchill halda ræða á svölum Al-
þingishússins í ágúst 1941. Guttinn
opnaði dyr Hótels Borgar fyrir
Marlene Dietrich þegar hún kom
til að syngja fyrir ameríska her-
menn. Síðari heimsstyrjöldin hafði
brotist út í september 1939 og Ís-
land var hernumið af Bretum 10.
maí 1940. Bandaríkjamenn höfðu
tekið að sér hervernd Íslands.
Stríð var fyrir ströndum. Orrustan
um Atlantshafið stóð sem hæst.
Þó stríð væri fyrir ströndum,
munstraði sextán ára guttinn sig
sem messagutta á norskan ryð-
kláf, Tordenskjøld. Hann skildi
eftir miða til forelda sinna: „Far-
inn á sjóinn. Kveðja Skúli.“ Útlitið
var dökkt, þýskir kafbátar grönd-
uðu kaupskipum Bandamanna á
Atlantshafinu sem enginn væri
morgundagurinn. Átján mánuð-
um síðar fór Skúli yfir á Dettifoss
í siglingum yfir hafið til Banda-
ríkjanna. Tilviljun réð að Skúli
var ekki um borð þegar þýskur
kafbátur sökkti Dettifossi á Ír-
landshafi í febrúar 1945, fimmtán
manns fórust.
Stríðinu lauk vorið 1945. Skúli
var í Ameríkusiglingum og dokk-
Skúli Einarsson
✝
Skúli Ein-
arsson fv. for-
maður Matsveina-
félags Íslands,
fæddist á Rauf-
arhöfn 23. júní
1926.
Hann lést 4.
mars 2017.
aði við Bryggju 37 í
New York. Stórborg-
in heillaði unga
manninn. Manhattan
var ævintýri líkust,
Broadway, Empire
State, Time Square.
Skemmtistaðurinn
Iceland var á 42.
stræti þar sem dans-
að var öll kvöld,
Russian Inn, Latin
Quarter og Storkur-
inn þar sem íslensku sjómennirnir
hittu kvikmyndadísina Ritu Hay-
worth sem var forvitin um hagi
þeirra. Eftir stríð kom leikarinn
heimsfrægi, Tyrone Power, til Ís-
lands.
Skúli var kokkur á fjölmörgum
skipum og bátum. Hann upplifði
skútuöld, var munstraður á flutn-
ingaskútuna Ebbu Soffíu sem
sigldi seglum þöndum milli Ís-
lands og Evrópu, skírð í höfuðið á
eiginkonu Óskars Íslandsbersa
Halldórssonar, Ebbu Soffíu
Kruuse. Skúli var á kolakyntum
gufutogurum, nýsköpunartogur-
um og loks skuttogurum. Hann
var á gömlu Súðinni, Heklu og
Herðubreið í eigu Ríkisskipa, á
hvalbátum feðganna í Hval. Skúli
sigldi á vegum Skipadeildar SÍS
Mælifelli, Arnarfelli, Stapafelli og
Hvassafelli. Hann fór 100 daga
skreiðartúr í skálmöldina í Níger-
íu. Þá svaf Skúli með öxi undir
kodda við öllu búinn enda skreiðin
eftirsótt af glæpagengjum. Til
skotbardaga kom þegar glæpa-
gengi reyndi að komast um borð í
Arnarfellið. Skipverjar gripu til
vopna og hermenn skutu á eftir
flýjandi ræningjum.
Skúli var liðlega hálfa öld til
sjós og fór í land 1994. Hann var
heiðraður á sjómannadaginn
1997. Skúli seldi ilúks-pylsur í
miðbænum, sem auðvitað voru
pylsur-skúli afturábak. Hann kór-
ónaði lífsstarf sitt með því að
koma Matsveinafélaginu í skjól.
Eiginkona Skúla var Inga Guð-
rún Ingimarsdóttir, sem lést í júlí
2001 eftir erfið veikindi, 72 ára að
aldri. Þau höfðu þá kvatt dóttur
sína, Jórunni Ingu, í september
1991, aðeins þrítuga eftir hetju-
lega baráttu við krabbamein. Að-
eins ári áður hafði hún fylgt
manni sínum, Gunnari Eggerti
Júlíussyni. Anna Linda tók að sér
Gunnar Eggert, tveggja ára syst-
urson sinn ásamt eiginmanni sín-
um, Pétri Kristjánssyni rokkara
sem lést í september 2004.
Jónas Garðarsson.
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
✝
Einar Karls-
son fæddist
25. september
1937 og ólst upp í
húsi foreldra
sinna við Hafn-
argötuna í Stykk-
ishólmi. Hann lést
á Heilbrigðis-
stofnun Vestur-
lands 18. júní
2022.
Foreldrar: Finn-
ur Karl Jónsson verkamaður,
f. 16. febrúar 1898, d. 29. jan-
úar 1979 og Hómfríður Ein-
arsdóttir húsfreyja, f. 27.
október 1903, d. 1. janúar
1992.
Systkini: Ólöf Karlsdóttir, f.
10. júlí 1935, d. 23. desember
2000 og samfeðra Jón Magnús
Finnsson, f. 30. ágúst 1927, d.
7. júní 2001.
Eiginkona Einars til sextíu
ára er Pálína Guðný Þorvarð-
ardóttir frá Flatey á Breiða-
firði.
Börn þeirra: 1) Olga Sædís,
f. 14. febrúar 1960, gift Þor-
keli Gunnari Þorkelssyni, f.
14. mars 1956, börn þeirra eru
tvö: a) Selma Rut, gift Guð-
brandi Gunnari Garðarssyni
og b) Þorkell Máni, kvæntur
Þuríði Gíu Jóhannesdóttur.
2) Þorvarður
Karl, f. 11. apríl
1966, sonur hans
og fyrrverandi
sambýliskonu, Do-
rotu Filipek, er
Dawid Einar, kær-
asta Dawids er
Snjólaug Þor-
steinsdóttir.
Langafabörn
Einars eru: Gunn-
ar Jökull, Einir
Hugi, Ölnir Þorri, Emilý
Dögg, Aþena Hall, Kristófer
Elí og Viktoría Þöll.
Einar gekk í barnaskólann í
Stykkishólmi og tók mót-
ornámskeið í Reykjavík 1956.
Hann byrjaði ungur að vinna á
sjó, fyrst um 15 ára gamall
með Karli föður sínum og var
í framhaldi á nokkrum bátum
þar til hann fór að vinna í
landi sem vélstjóri í frysti-
húsum, síðar í Vélsmiðju
Kristjáns Rögnvaldssonar og
svo í Skipavík. Í 30 ár var
hann formaður Verkalýðsfé-
lags Stykkishólms þar til hann
lét af störfum vegna aldurs.
Útförin fer fram frá Stykk-
ishólmskirkju í dag, 25. júní
2022, kl. 14, útförinni verður
streymt á youtube-síðu Stykk-
ishólmskirkju.
Í dag kveðjum við elsku pabba
minn, sem hefur verið mín stoð
alla tíð.
Á svona stundum streyma
minningarnar fram. Heima á
Höfðagötunni þegar kom gott lag
í útvarpinu dönsuðu pabbi og
mamma á eldhúsgólfinu, kannski
bara í hádegismatarhléi. Þegar
við drifum okkur út í Heppinn til
að ná flæðinni og fara að leita í
eyjunum. Skreppa í bíltúr inn í
Dali. Tjaldútilega með tjald sem
pabbi og mamma bjuggu til,
minningar um ferðir erlendis,
sérstaklega til Kanarí, þar sem
pabbi naut sín vel í sól og hita.
Það er ekki hægt að tæma
minningabankann.
Eftir að ég flutti í Grundar-
fjörð hafði pabbi alltaf áhuga á
því hvað við værum að gera, sér-
staklega eftir að barnabörnin og
barnabarnabörnin voru komin.
Þau mamma komu alltaf þegar
eitthvað var um að vera hjá okk-
ur fjölskyldunni, sérstaklega
fannst þeim gaman að koma Á
góða stund í Grundarfirði og vera
með í öllum atburðum sem voru í
boði.
Vorin hafa alltaf verið anna-
söm hjá pabba, þá byrjaði hann
að dytta að bátnum Heppinn, um
leið og veður leyfði, svo hægt
væri að setja á flot fyrir 1. maí
því sá dagur var mjög annasamur
hjá formanni Verkalýðsfélags
Stykkishólms. Þá var hægt að
fara á sjó og upp í eyjar þegar
viðraði. Bátinn Heppinn létu
pabbi og mamma smíða fyrir 39
árum og er hann alltaf eins og
nýr, pabbi hefur haldið honum
svo vel við, alltaf nýmálaður.
Pabbi og mamma eru búin að
leiðast í gegnum lífið í 65 ár, allt-
af jafn ástfangin. Það er mikill
missir hjá mömmu, þegar stoðin
hennar er fallin frá. En gott er að
minnast góðra stunda.
Elsku pabbi, ég mun sakna
þín, að heyra þig segja sögur úr
bókum sem þú hefur verið að
lesa, eða bara um gamla tíma.
Takk fyrir allt. Þín dóttir,
Olga Sædís.
Á kveðjustundu langar mig að
minnast Einars Karlssonar, fyrr-
verandi formanns Verkalýðs-
félags Stykkishólms og bæjar-
fulltrúa í Stykkishólmi. Mín
fyrstu kynni af Einari voru er
hann tók sæti í bæjarstjórn
Stykkishólms en hann var vara-
maður eftir kosningarnar 1974
en tók síðan sæti aðalfulltrúa árið
1975 og var kjörinn í sveitar-
stjórn 1978. Allt frá þeim degi er
hann hóf að starfa fyrir sveitarfé-
lagið áttum við einstaklega gott
samstarf sem aldrei brá skugga á
þrátt fyrir mismunandi stjórn-
málaskoðanir okkar. Einar var
mikill Breiðfirðingur sem dýrk-
aði eyjarnar og Stykkishólm og
hann lagði sig fram við að vinna í
þágu samfélagsins á vettvangi
verkalýðsbaráttunnar og bæjar-
mála. Hann var einstaklega já-
kvæður maður og viljugur til fé-
lagsstarfa. Einar kom til starfa í
félagsmálum á miklum upp-
gangstímum í Stykkishólmi.
Skelveiðar í Breiðafirði byggðu
upp öflugan sjávarútveg bæði í
útgerð og vinnslu. Opinberum
starfsmönnum fjölgaði við efl-
ingu stofnana svo sem sjúkra-
hússins. Skipasmíða- og bygging-
ariðnaðurinn voru að eflast og
verða burðarásar í samfélaginu
sem og ferðaþjónustan eftir að
Hótel Stykkishólmur var byggt
og hóf rekstur. Það fór ekki á
milli mála að Einar naut trausts
bæði félaga í verkalýðsfélaginu
sem og þeirra sem hann þurfti að
semja við um hagsmuni verka-
fólksins á uppgangstímum. Til
marks um hve verkalýðsfélagið
var öflugt á hans tíma kom félag-
ið sér upp húsnæði á besta stað
við Aðalgötuna þar sem var að-
staða fyrir skrifstofu félagsins
ásamt með fundaraðstöðu sem
nýttist til funda- og samkomu-
halds. Þegar Einar var í bæjar-
stjórn voru mikil umsvif á vegum
bæjarins og því í mörg horn að
líta hjá bæjarfulltrúum. Hann
naut þess, svo áhugasamur sem
hann var um velferð og uppbygg-
ingu bæjarins. Auk samstarfs
okkar í bæjarstjórn áttum við
langt og gott samstarf í bygging-
arnefnd sjúkrahúss St. Fransis-
kussystra þar sem við unnum
með systrunum og þá einkum
Reene Lonton príorinnu þegar
unnið var við að byggja heilsu-
gæslustöð við sjúkrahúsið. Jafn-
framt voru legudeildirnar stækk-
aðar í þessu merkilega
sjúkrahúsi sem sinnti Snæfell-
ingum og Breiðfirðingum og síð-
ar fólki úr öllum landshlutum eft-
ir að bakdeildin hóf starfsemi í
stækkuðu sjúkrahúsi. Einar rifj-
aði oft upp og minntist þessa ein-
staka samstarfs við systurnar.
Við Hallgerður minnumst Einars
með þakklæti fyrir liðnar sam-
verustundir og vottum Pálínu og
fjölskyldunni samúð. Blessuð sé
minning Einars Karlssonar.
Sturla Böðvarsson.
Á kveðjustundu vinar míns
Einars Kalla koma í hugann
margar góðar samverustundir í
Hólminum okkar. Við vorum, í
mörg ár, saman í stjórn bæjarins
á miklum framkvæmdatímum
þar sem mikið þurfti að gera á
skömmum tíma. Þá var oft teflt
djarft og sumt orkaði tvímælis,
eins og gengur, en órofa sam-
staða í bæjarstjórn gerði gæfu-
muninn. Einar var þar vissulega
betri en enginn, traustur og
gegnheill og ávallt bjartsýnn
enda trú hans á framtíð Stykk-
ishólms án takmarka. Þetta voru
góðir tímar fyrir Hólminn og ein-
drægni og vinátta ríkjandi í
sveitarstjórn, þrátt fyrir ólíkar
stjórnmálaskoðanir manna. Þá
minnist ég líka góðra samskipta
við Einar sem formann Verka-
lýðsfélagsins og varð oft vitni að
árangri hans fyrir fólkið sitt þar
sem kröfur náðu fram að ganga
án stóryrða og sleggjudóma. Á
sjómannadaginn 2010 var Einar
heiðraður fyrir störf sín, þar
sagði ég meðal annarra orða: „Að
Einari standa rótgrónar sjó-
mannaættir og í foreldrahúsum
hans voru störf sjómanna og
verkamanna mikils metin, enda
sá Karl, faðir Einars, lengi um
samningamál sjómanna. Í þessu
umhverfi mótaðist Einar og lengi
býr að fyrstu gerð. Einar átti
trillu frá fermingaraldri og var
stoltur yfir að hafa svo lengi get-
að kallað sig trillukarl. Í bland
við hagnýt not af trillu er eitt-
hvað sem erfitt er að útskýra,
eitthvað er svo seiðandi við þessa
litlu báta, ekki síst á okkar slóð-
um. Þeirrar fallegu náttúrusmíð-
ar sem við Hólmarar eigum í rík-
um mæli verður hvergi eins vel
notið og af þeim sem komast á sjó
þegar þeir vilja, geta skotist
eyjasund, lagt lóðastubb og skak-
að eða einfaldlega hlýtt á náttúr-
una, ótruflaða, flytja symfóníu
sína. Þessum verðmætum nær
mölur, ryð og bankahrun ekki að
granda. Einar Karlsson á mörg
hlutabréf í þessu breiðfirska
fyrirtæki.“ Og síðar í ávarpinu
sagði: „Þó eru það sérstaklega
óeigingjörn félagsmálastörf Ein-
ars í þágu sjómanna og verka-
manna í Stykkishólmi sem sjó-
menn vilja þakka í dag. Í full
þrjátíu ár stóð Einar vaktina í
Verkalýðsfélagi Stykkishólms og
naut þar mikilla vinsælda, bón-
góður og hjálplegur en fylginn
sér og fastur fyrir ef þess þurfti
með. Ljóst má vera að félagsmál
er tengjast stéttabaráttu og bein-
um hagsmunum fólks eru ekki af
léttari sortinni. Vinnutíminn vill
verða ófyrirséður, verkefnin
margvísleg, stundarhiti í mönn-
um og jafnvel heift sem lempa
þarf. Góður forustumaður deilir
líka með félögum sínum persónu-
legum erfiðleikum þeirra og and-
streymi. Eðlislag Einars féll vel
að þessu verkefni.“
Og nú kveðjum við í dag Einar
Karlsson, einn af bestu sonum
þessa bæjar. Hann var alla tíð
stoltur af byggðinni sinni, var
einkar fróður og áhugasamur um
fyrri tíð Hólmara og sat raunar í
ritnefnd um sögu Stykkishólms
en fyrstu tvö bindin eru komin
út. Einar átti því láni að fagna að
eiga að lífsförunaut heiðurskon-
una Pálínu, sem studdi hann
ávallt dyggilega í öllu félagsmála-
vafstrinu enda voru þau einstak-
lega samrýnd og náin. Við Jó-
hanna sendum elsku Pálu og
fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur á sorgarstundu.
Minningin um góðan dreng
mun lifa.
Ellert Kristinsson.
Einar Karlsson
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra
RÓBERTS RAFNS ÓÐINSSONAR.
Sérstakar þakkir til vina Róberts sem veittu
okkur ómetanlega aðstoð við útförina.
Ólöf Arna Gunnlaugsdóttir
Óðinn Már Jónsson
Svava Rut Óðinsdóttir
Óttar Kolbeinsson Proppé
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
hluttekningu og hlýhug við andlát
VILMUNDAR ÞÓRS GÍSLASONAR
hljóðmeistara.
Kirkjugestum, presti, tónlistarfólki,
útfaraþjónustu og öðrum þeim sem komu
að athöfninni, allar kveðjur og ásamt þeim sem styrktu
SOS-barnaþorpin, færum við hugheilar þakkir. 14-EG
hjartadeild Landspítalans sem annaðist Vilmund af miklu
kærleiksþeli og Sunnu Snædal nýrnalækni er þakkað
sérstaklega.
Hrafnhildur K. Óladóttir
Laufey Vilmundardóttir Hermann Hinriksson
Óli Kristinn Vilmundarson Pálína Björg Snorradóttir
Sævar Þór Vilmundarson Anna Dögg Hermannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn