Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
Wayne Rooney hefur sagt starfi
sínu sem knattspyrnustjóri enska
C-deildarliðsins Derby County
lausu. Rooney átti eitt ár eftir af
samningi sínum en hefur ákveðið
að yfirgefa félagið tafarlaust.
Derby hefur verið í greiðslu-
stöðvun frá því í september á síð-
asta ári og hefur átt í miklum erf-
iðleikum með að finna nýja
eigendur. Vegna greiðslustöðv-
unarinnar var 21 stig tekið af liðinu
í ensku B-deildinni, sem varð að
lokum til þess að það féll niður í C-
deild.
Rooney hættur
með Derby
AFP/Daniel Leal
Derby Wayne Rooney hefur ákveðið
að láta staðar numið hjá Derby.
Körfuknattleiksmaðurinn Kristinn
Pálsson er genginn í raðir hol-
lenska félagsins Aris Leeuwarden
sem leikur í BNXT-deildinni, sam-
eiginlegri úrvalsdeild Hollands og
Belgíu.
Kristinn, sem er 24 ára gamall
framherji, kemur frá Grindavík þar
sem hann hefur leikið undanfarin
tvö tímabil í efstu deildinni hér á
landi. Hann er uppalinn í Njarðvík
en hefur einnig búið á Ítalíu, þar
sem hann lék í yngri flokkum, auk
þess sem hann lék fyrir háskólaliðið
Marist Red Foxes í Bandaríkjunum.
Kristinn heldur
til Hollands
Ljósmynd/FIBA
Holland Kristinn í leik með íslenska
karlalandsliðinu síðastliðið haust.
EVRÓPUKEPPNI
Gunnar Egill Daníelsson
Víðir Sigurðsson
Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings
úr Reykjavík unnu nauman 1:0-sigur
á Inter d’Escaldes, meisturunum frá
Andorra, í úrslitaleik forkeppni
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu karla á Víkingsvelli í gær-
kvöldi, og tryggðu sér þar með sæti í
undankeppni keppninnar.
Víkingur sýndi ekki sínar bestu
hliðar í leiknum í gærkvöldi og þá
sér í lagi ekki í fyrri hálfleik þegar
gestirnir frá Andorra fengu tvö
dauðafæri og langsamlega bestu
færi hálfleiksins. Þau fóru þó sem
betur fer forgörðum og staðan því
markalaus í leikhléi.
Undir lok fyrri hálfleiks og í upp-
hafi síðari hálfleiks voru Víkingar
búnir að ná betri stjórn á leiknum en
tókst þó ekki að skapa sér færi. Það
var ekki fyrr en Arnar Gunnlaugs-
son þjálfari hóf að gera skiptingar
eftir tæplega klukkutíma leik að
heimamenn sköpuðu sér loks færi að
einhverju ráði.
Nikolaj Hansen komst nálægt því
að koma Víkingum yfir á 65. mínútu
þegar hann fékk góða sendingu frá
varamanninum Karli Friðleifi Gunn-
arssyni en skaut rétt framhjá.
Skömmu síðar, á 68. mínútu, kom
svo sigurmarkið. Það skoraði Krist-
all Máni Ingason með góðum skalla
eftir frábæra fyrirgjöf frá Karli
Friðleifi.
Víkingar voru komnir á bragðið
og fengu tvö góð færi til viðbótar
nokkrum mínútum eftir markið.
Þeim fór hins vegar fækkandi undir
lokin er heimamenn ákváðu að
freista þess að halda fengnum hlut
og sigldu þeir að lokum naumum
sigri í höfn.
Mæta Malmö og Milos næst
Sigur Víkinga þýðir að þeir mæta
Svíþjóðarmeisturum Malmö í fyrstu
umferð undankeppninnar en fyrri
leikurinn fer fram í Malmö 5. júlí og
sá seinni á Víkingsvellinum 12. eða
13. júlí.
Þjálfari Malmö er Milos Milojevic,
þjálfari Víkinga á árunum 2015 til
2017 og áður leikmaður og aðstoð-
arþjálfari þeirra.
Sennilega eiga Víkingar ekki
mikla möguleika á að slá Malmö út
en sigurinn í gærkvöld gefur þeim
eftir sem áður mjög góða möguleika
fyrir framhaldið. Tapi þeir fyrir
Malmö flytjast Víkingar yfir í 2. um-
ferð Sambandsdeildarinnar þar sem
þeir mæta tapliðinu úr viðureign
The New Saints frá Wales og Lin-
field frá Norður-Írlandi. Þar ættu
Víkingar að eiga virkilega möguleika
á að sigra og komast enn lengra í
keppninni.
Komi Víkingar hinsvegar á óvart
með því að slá Malmö út fara þeir í 2.
umferð Meistaradeildarinnar og
mæta þar Ballkani frá Kósóvó eða
Zalgiris frá Litháen. Þar ættu einnig
að liggja talsverðir möguleikar á að
komast lengra.
Andorramennirnir í Inter fara
hinsvegar strax yfir í 2. umferð Sam-
bandsdeildarinnar og mæta annað-
hvort Pyunik Jerevan frá Armeníu
eða CFR Cluj frá Rúmeníu. Tvö öfl-
ug lið þar á ferð og þrautreynd í
Evrópumótum.
Víkingur hafði sigur
gegn Inter með herkjum
- Kristall skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik - Malmö næsti andstæðingur
Morgunblaðið/Hákon Pálsson
Sigurmark Kristall Máni Ingason skoraði sigurmark Víkings í sigrinum nauma á Inter d’Escaldes í gærkvöldi með
góðum skalla um miðjan síðari hálfleikinn. Um annað Evrópumark Kristals var að ræða í öðrum Evrópuleik hans.
Meistaradeild karla
Forkeppni, úrslitaleikur:
Víkingur – Inter d’Escaldes .................... 1:0
_ Víkingur mætir Malmö í 1. umferð Meist-
aradeildar en Inter mætir Pyunik Jerevan
eða CFR Cluj í 2. umferð Sambandsdeild-
ar.
Undankeppni HM kvenna
C-riðill:
Hvíta-Rússland – Tékkland .................... 2:1
Staðan:
Ísland 6 5 0 1 19:2 15
Holland 6 4 2 0 27:3 14
Hvíta-Rússland 5 2 1 2 7:10 7
Tékkland 6 1 2 3 12:10 5
Kýpur 7 0 1 6 2:42 1
B-riðill:
Úkraína – Skotland .................................. 0:4
_ Spánn 18, Skotland 13, Ungverjaland 9,
Úkraína 4, Færeyjar 0.
D-riðill:
Lettland – Lúxemborg ............................ 1:0
_ England 24, Austurríki 19, Norður-Ír-
land 13, Lúxemborg 9, Norður-Makedónía
3, Lettland 3.
G-riðill:
Moldóva – Rúmenía ................................. 0:4
_ Ítalía 21, Sviss 19, Rúmenía 16, Króatía
7, Litháen 4, Moldóva 0.
Lengjudeild karla
Afturelding – Þór ..................................... 4:1
Selfoss – Fjölnir ....................................... 2:0
Staðan:
Selfoss 8 5 2 1 19:10 17
HK 7 5 0 2 14:8 15
Fylkir 8 4 2 2 21:10 14
Grótta 7 4 1 2 18:10 13
Grindavík 7 3 4 0 11:6 13
Fjölnir 8 3 2 3 16:14 11
Kórdrengir 8 2 4 2 12:12 10
Afturelding 8 2 3 3 10:11 9
Vestri 7 2 3 2 10:17 9
Þór 8 1 2 5 8:18 5
KV 8 1 1 6 8:20 4
Þróttur V. 6 0 2 4 2:13 2
2. deild karla
Höttur/Huginn – Völsungur.................... 1:1
Staðan:
Njarðvík 8 7 1 0 29:7 22
Ægir 8 6 1 1 14:10 19
Þróttur R. 7 5 1 1 13:6 16
Völsungur 8 4 2 2 17:12 14
Haukar 8 4 2 2 11:8 14
ÍR 8 3 2 3 12:12 11
KF 7 1 4 2 14:13 7
KFA 7 1 3 3 11:15 6
Höttur/Huginn 8 1 3 4 9:15 6
Víkingur Ó. 7 1 2 4 8:12 5
Magni 7 1 1 5 5:22 4
Reynir S. 7 0 0 7 5:16 0
3. deild karla
ÍH – Vængir Júpíters............................... 5:3
Kári – KH.................................................. 2:3
Staðan:
Víðir 8 5 1 2 19:10 16
Dalvík/Reynir 8 5 0 3 18:12 15
KFG 7 5 0 2 14:9 15
Sindri 7 4 1 2 15:11 13
Elliði 7 4 1 2 11:7 13
Kári 8 3 1 4 12:13 10
Vængir Júpiters 8 3 1 4 13:15 10
Augnablik 7 3 1 3 10:14 10
ÍH 8 3 0 5 22:21 9
KFS 7 3 0 4 10:16 9
Kormákur/Hvöt 7 2 0 5 12:17 6
KH 8 2 0 6 8:19 6
2. deild kvenna
Álftanes – Hamar ..................................... 5:2
Staðan:
Fram 4 4 0 0 12:2 12
Grótta 5 3 2 0 21:3 11
ÍR 4 3 1 0 11:6 10
Völsungur 3 2 1 0 9:3 7
KH 4 2 1 1 13:8 7
Álftanes 6 2 1 3 14:14 7
ÍA 3 2 0 1 10:4 6
Sindri 5 2 0 3 8:18 6
ÍH 5 1 1 3 11:20 4
Einherji 4 1 0 3 4:10 3
Hamar 5 0 1 4 6:15 1
KÁ 4 0 0 4 4:20 0
Vináttulandsleikir kvenna
Þýskaland – Sviss..................................... 7:0
Norður-Makedónía – Kósóvó.................. 3:1
Danmörk – Brasilía .................................. 2:1
Serbía – Japan .......................................... 0:5
England – Holland ................................... 5:1
Vináttuleikur U18 kvenna
Finnland – Ísland..................................... 2:2
Írena Héðinsdóttir og Þóra Björg Stefáns-
dóttir skoruðu mörk Íslands.
4.$--3795.$
Englandsmeistarar Manchester
City hafa náð samkomulagi við
Leeds United um kaup á enska
landsliðsmanninum Kalvin Phillips,
sem er 26 ára gamall miðjumaður.
Sky Sports greindi frá í gær og
þar sagði að kaupverðið væri á
bilinu 45 til 50 milljónir punda.
Leeds sam-
þykkti tilboð
Selfoss hafði betur gegn Fjölni, 2:0,
þegar liðin mættust í 1. deild karla í
knattspyrnu, Lengjudeildinni, á
Selfossi í gærkvöldi. Með sigrinum
endurheimtu Selfyssingar toppsæti
deildarinnar, þar sem liðið er nú
með tveggja stiga forskot á HK í
öðru sætinu.
Spánverjinn Gonzalo Zamorano
kom Selfossi yfir með glæsilegu
skoti skömmu fyrir leikhlé. Zamor-
ano hefur nú skorað sjö mörk í
deildinni og er jafnmarkahæstur í
henni. Undir lok leiks varð Guð-
mundur Þór Júlíusson, varnar-
maður Fjölnis, svo fyrir því óláni að
setja boltann í eigið net.
Afturelding fékk þá Þór frá Ak-
ureyri í heimsókn og vann öruggan
4:1-sigur. Leiknum seinkaði um 75
mínútur vegna bilunar í flugvél sem
flutti Akureyringa til Reykjavíkur.
Aron Elí Sævarsson skoraði tví-
vegis fyrir Mosfellinga og Georg
Bjarnason eitt mark, auk þess sem
Þórsarinn Orri Sigurjónsson skor-
aði sjálfsmark. Elvar Baldvinsson
skoraði mark Þórs.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Markahæstur Gonzalo Zamorano fagnar glæsimarki sínu fyrir Selfoss í 2:0-
sigri liðsins á Fjölni í gærkvöldi. Hann er nú jafnmarkahæstur í deildinni.
Selfyssingar komu
sér aftur á toppinn