Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
Það verður ansi spennandi að
fylgjast með Söru Björk Gunn-
arsdóttur í nýju ævintýri hjá
ítalska stórveldinu Juventus.
Ekki þarf að koma neinum á
óvart að Sara Björk hafi verið
eftirsótt af Juventus og fleiri
stórliðum, þar á meðal Chelsea
og Manchester United, enda hef-
ur hún þegar leikið fyrir tvö af
stærstu félögum Evrópu, Lyon og
Wolfsburg, á ferli sínum.
Reynsla Söru Bjarkar yfir höf-
uð, og þá ekki síst í Meistara-
deild Evrópu, sem hún vann með
Lyon á síðasta tímabili og einnig
árið 2020, hefur eflaust átt stór-
an þátt í áhuga Juventus á henni.
Juventus er, eins og rakið er
hér við hliðina, á stöðugri upp-
leið og náði sínum besta árangri
í Meistaradeildinni í stuttri sögu
félagsins á síðasta tímabili, er
það féll naumlega úr leik gegn
Söru Björk og stöllum í Lyon í
fjórðungsúrslitum.
Eðlilega vill Juventus fara
enn lengra í keppninni á næstu
árum og ekki yrði ég hissa ef
Sara Björk hjálpar liðinu í þeim
efnum.
Sara Björk er sem kunnugt
er í sambandi með Árna Vil-
hjálmssyni. Hann er einnig at-
vinnumaður í knattspyrnu hjá
franska B-deildarliðinu Rodez,
þar sem hann er samningsbund-
inn til tveggja ára til viðbótar.
Þar sem þau eru í sambúð og
eiga barn saman, leiðir Árni
væntanlega hugann að því að
finna sér nýtt félag, og það þá
helst á Norður-Ítalíu.
Nóg er af félögum í ítölsku B
og C-deildunum sem eru stað-
sett á Norður-Ítalíu og því ættu
möguleikar að vera fyrir hendi
hjá Árna. Hvernig sem það allt
saman æxlast, vonar maður auð-
vitað að þeim verði gert kleift að
búa saman sem fjölskylda.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Fimmtán nýliðar léku fyrir Íslands
hönd í Pärnu í Eistlandi í gær þegar
ungt íslenskt landslið, eingöngu
skipað leikmönnum yngri en 23 ára,
sigraði A-landslið Eistlands 2:0 í vin-
áttulandsleik.
Tveir af nýliðunum skoruðu mörk-
in en Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
úr Aftureldingu kom Íslandi yfir á
27. mínútu þegar hún fylgdi eftir
skoti sem var varið og Dagný Rún
Pétursdóttir úr Víkingi gulltryggði
sigurinn á 81. mínútu þegar hún
skoraði af stuttu færi eftir horn-
spyrnu Ásdísar Karenar Halldórs-
dóttur úr Val.
Ásdís Karen var mjög aðgangs-
hörð við mark Eista og var óheppin
að skora ekki eitt eða fleiri mörk í
leiknum. Auður Scheving markvörð-
ur kom í veg fyrir að Eistar jöfnuðu
á 69. mínútu þegar hún varði vel
skalla af stuttu færi.
Hlín Eiríksdóttir var fyrirliði og
lék sinn 20. landsleik og þær Ída
Marín Hermannsdóttir og Barbára
Sól Gísladóttir léku sinn þriðja
landsleik.
Auk þeirra fjögurra sem áður
voru nefndar léku fyrsta landsleik-
inn þær Karen María Sigurgeirs-
dóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörns-
dóttir, Arna Eiríksdóttir, Katla
María Þórðardóttir, Diljá Ýr Zo-
mers, Tinna Brá Magnúsdóttir,
Birta Georgsdóttir, Unnur Dóra
Bergsdóttir, Sóley María Stein-
arsdóttir, Gyða Kristín Gunnars-
dóttir og Andrea Rut Bjarnadóttir.
vs@mbl.is
Fimmtán nýliðar
í íslenskum sigri
- Sólveig og Dagný skoruðu í Pärnu
Morgunblaðið/Eggert
Skoraði Sólveig Jóhannesdóttir Larsen úr Aftureldingu skoraði fyrra mark
Íslands í sigrinum gegn Eistlandi í gær, í sínum fyrsta A-landsleik.
Knattspyrnudeild Vals hefur samið
við markvörðinn Frederik Schram
um að leika með liðinu næstu tvö
árin. Hann kemur til Vals frá
Lyngby í Danmörku þar sem hann
hefur verið varamarkvörður und-
anfarin þrjú ár. Frederik, sem hef-
ur leikið fimm A-landsleiki fyrir Ís-
lands hönd, er 27 ára og lék áður
með dönsku liðunum Roskilde,
SönderjyskE, Vestsjælland og OB.
Hann lék 12 leiki fyrir yngri lands-
lið Íslands og var í leikmannahópi
íslenska landsliðsins í lokakeppni
HM í Rússlandi sumarið 2018.
Frederik er
kominn til Vals
Morgunblaðið/Eggert
Valsmaður Frederik Schram hefur
leikið allan sinn feril í Danmörku.
Valskonur eiga góða möguleika á
að komast í 2. umferð Meistara-
deildar kvenna í fótbolta. Þær
drógust í gær gegn Hayasa frá
Armeníu í undanúrslitum 1. um-
ferðar og sigurvegarinn í leiknum
mætir annaðhvort Pomurje frá
Slóveníu eða Shelbourne frá Írlandi
í úrslitaleik. Breiðablik dróst hins-
vegar gegn Rosenborg frá Noregi,
sem Selma Sól Magnúsdóttir, fyrr-
verandi Bliki, leikur með. Sigur-
vegarinn í þeim leik mætir Minsk
frá Hvíta-Rússlandi eða Slovácko
frá Tékklandi í úrslitaleik.
Hagstæðara hjá
Val en Blikum
Morgunblaðið/Eggert
Meistaradeildin Valur og Breiða-
blik spila 18. og 21. ágúst.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þó Sara Björk Gunnarsdóttir kom-
ist hreinlega ekki hærra í fótbolt-
anum en að spila með besta fé-
lagsliði heims, Frakklands- og
Evrópumeisturum Lyon, er óhætt
að segja að hún sé á leið þaðan í
mun stærra félag.
Sara hefur samið við Ítalíumeist-
arana Juventus um að leika með
þeim næstu tvö árin, frá og með 1.
júlí.
Sara lék einmitt með Lyon gegn
Juventus í 8-liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar í mars, þar sem Ju-
ventus sýndi styrk sinn með því að
vinna fyrri leikinn í Tórínó, 2:1, en
Lyon náði að komast naumlega
áfram með 3:1 sigri í seinni leiknum
í Frakklandi.
Juventus varð Ítalíumeistari
fimmta árið í röð í vor en liðið vann
19 af 22 leikjum sínum á tímabilinu
og fékk fimm stigum meira en
næsta lið, Roma, og þrettán stigum
meira en Guðný Árnadóttir og sam-
herjar í AC Milan sem urðu í þriðja
sæti.
Meistarar öll fimm árin
Aðeins fimm ár eru síðan
kvennalið Juventus var stofnað, 1.
júlí 2017. Félagið keypti keppnis-
leyfið í A-deildinni af litlu ná-
grannafélagi, Cueno, og í framhaldi
af því hefur Juventus orðið ítalskur
meistari öll fimm árin sem það hef-
ur verið starfrækt.
Með Juventus leikur kjarninn úr
ítalska landsliðinu sem Sara mætir
einmitt með því íslenska í loka-
keppni EM á Englandi í næsta mán-
uði. Níu leikmenn liðsins hafa spil-
að fyrir hönd Ítalíu á undanförnum
mánuðum, m.a. tvær leikjahæstu
konur landsliðsins í dag, varnar-
maðurinn Sara Gama og marka-
skorarinn Cristiana Girelli. Þar
leika einnig m.a. sænsku landsliðs-
konurnar Lina Hurtig, Amanda Nil-
dén og Linda Sembrant, hollenska
landsliðskonan Lineth Beeren-
steyn, franski landsliðsmarkvörð-
urinn Pauline Peyraud-Magnin og
dönsku landsliðskonurnar Matilde
Lundorf og Sofie Junge. Þessar eru
nær allar á leið á EM þannig að þar
verður nokkurn veginn allt lið Ju-
ventus samankomið.
Úr besta liðinu í
enn stærra félag
Morgunblaðið/Hallur Már
Ítalía Sara Björk Gunnarsdóttir er
gengin til liðs við Juventus.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Flest besta frjálsíþróttafólk lands-
ins verður með á Meistaramóti Ís-
lands í Kaplakrika í dag og á
morgun.
Meðal keppenda verða millivega-
lengdahlaupararnir öflugu Hlynur
Andrésson og Baldvin Þór Magn-
ússon sem hafa sett hvert Íslands-
metið á fætur öðru síðustu árin og
oft tekið metin hvor af öðrum. Þeir
eru báðir búsettir erlendis, Hlynur
á Ítalíu og Baldvin í Bandaríkj-
unum þar sem hann hefur gert það
gott á háskólamótum undanfarin
ár. Þá komst Baldvin í úr-
slitahlaupið í 3.000 metra hlaupi á
heimsmeistaramótinu innanhúss í
vetur.
Baldvin og Hlynur mætast þó
ekki því Baldvin keppir í 1.500 m
hlaupi og Hlynur í 5.000 m hlaupi.
Kastararnir öflugu Elísabet Rut
Rúnarsdóttir og Hilmar Örn Jóns-
son í sleggjukastinu, Guðni Valur
Guðnason í kringlukastinu, Erna
Sóley Gunnarsdóttir í kúluvarpinu
og Dagbjartur Daði Jónsson í
spjótkastinu verða öll með í Kapla-
krika og ekki þyrfti að koma á
óvart þó einhver þeirra myndu slá
Íslandsmet á mótinu.
Tiana Ósk Whitworth og Kol-
beinn Höður Gunnarsson verða að
vanda áberandi í spretthlaupunum.
Ekki verður þó einvígi milli Tiönu
og Guðbjargar Jónu Bjarnadóttur
að þessu sinni því Guðbjörg missir
af mótinu vegna meiðsla. Há-
stökkvarinn ungi Kristján Viggó
Sigfinnsson og hlauparinn Aníta
Hinriksdóttir mæta líka til leiks.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Frjálsar Hlauparinn öflugi Baldvin Þór Magnússon kemur á Meistaramótið
annað árið í röð og keppir sem fyrr fyrir Akureyrarfélagið UFA.
Hlynur og Baldvin
mæta í Krikann
- Meistaramótið í frjálsum um helgina
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 16-liða úrslit:
Kórinn: HK – Dalvík/Reynir.................. S14
KA-völlur: KA – Fram............................ S16
Kaplakriki: FH – ÍR .......................... S19.15
Þorlákshöfn: Ægir – Fylkir .............. S19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Ísafjörður: Vestri – Grindavík............... L14
2. deild karla:
Grenivík: Magni – Reynir S................... L13
Þróttarvöllur: Þróttur R. – KFA .......... L14
Ólafsfjörður: KF – Víkingur Ó.............. L16
3. deild karla:
Blönduós: Kormákur/Hvöt – Elliði....... L14
Höfn: Sindri – Augnablik....................... L14
Vestmannaeyjar: KFS – KFG............... L18
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Víkin: Víkingur R. – FHL ...................... S14
2. deild kvenna:
Skessan: ÍH – Fram ............................... L14
ÍR-völlur: ÍR – Völsungur ..................... L16
Höfn: Sindri – KÁ.............................. L16.30
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fer
fram í Kaplakrika í dag og á morgun.
Í dag er keppt frá kl. 13 til 17.15 í stangar-
stökki kvenna, sleggjukasti karla og
kvenna, 110 og 100 m grindahlaupi karla og
kvenna, hástökki karla, þrístökki kvenna
og karla, 3.000 m hindrunarhlaupi karla og
kvenna, 100 m hlaupi karla og kvenna,
spjótkasti kvenna og karla, 1.500 m hlaupi
karla og kvenna, 400 m hlaupi karla og
kvenna og 4x100 m boðhlaupi karla og
kvenna.
Á morgun er keppt frá 14 til 16.50 í stang-
arstökki karla, 400 m grindahlaupi karla og
kvenna, kringlukasti karla og kvenna, kúlu-
varpi kvenna og karla, 5.000 m hlaupi karla
og kvenna, langstökki kvenna og karla, 800
m hlaupi karla og kvenna, hástökki kvenna,
200 m hlaupi karla og kvenna og 4x400 m
boðhlaupi karla og kvenna.
UM HELGINA!