Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 139.000 kr. Loksins fáanlegir aftur, í mörgum litum Samsýningin Hnoð/ Knead verður opnuð í Listasafni Einars Jónssonar í dag kl. 15. Hún er hluti af fimm landa Evrópu- verkefni sem kallast Up- Create. Í því er áhersla lögð á mat og ólíkar list- greinar, að því er fram kemur í til- kynningu. „Í tilviki Listasafns Ein- ars Jónssonar sá Sindri Leifsson myndlistarmaður um skúlptúr- smiðju í garðskála og höggmynda- garði með níu þátttakendum og er sýningin afrakstur af þeirri vinnu,“ segir í tilkynningu. Bent er á að safnið sé fyrsta byggingin sem hafi verið reist við Skólavörðuholtið, ár- ið 1923, og þar haldnar áhugaverð- ar útisýningar 1967–1972, þar sem brauð kom eftirminilega við sögu. „Einar nefnir í endurminningum sínum að hann hafi fengið haglda- brauð (eins konar kringlu) í nesti sem krakki en tímdi ekki að borða það, af því honum fannst það svo fallegt í laginu. Í þessu samhengi og í samvinnu við Brauð & Co. var ungu listafólki boðið að taka þátt í verkefninu,“ segir í tilkynningu. Fimm manna dómnefnd velur einn vinningshafa sem ferðast með safn- inu til Ítalíu í haust og tekur þátt í smiðju á hinum alþjóðlega Fen- eyjatvíæringi. Þátttakendur í verkefninu eru Benedikt Ingi, Gabríel Backman, Guðný Sara Birgisdóttir, Hlökk Þrastardóttir, Maria Sideleva, Oli- ver Wellmann, Saga Líf Sigþórs- dóttir, Sigurlinn María Sigurðar- dóttir og Victoria Björk Ferrell. Hnoðast með skúlptúr og brauð Sindri Leifsson S valamyndina mætti helst flokka sem tilraunakennda heimildarmynd. Titill mynd- arinnar gefur áhorfendum ágæta hugmynd um hvað myndin fjallar um. Pólski leikstjórinn Paweł Łoziñski kvikmyndar fólk ofan af svölunum sínum í Warsaw. Łoziñski ávarpar vegfarendur og segir op- inskátt frá ásetningi sínum sem er gera kvikmynd frá svölunum og að hann vanti hetju en myndin segir hann vera eins konar myndlíkingu fyrir lífið sjálft. Þegar honum hefur tekist að ná athygli vegfarenda og lokkað inn í rammann biður hann fólk ýmist um að segja frá sjálfu sér eða hvaða þýðingu það telur að lífið hafi. Svörin eru jafn ólík og vegfarend- urnir, sumir eru kaldhæðnir, aðrir skipta um umræðuefni og margir eru drífa sig á annan stað og hafa ekki tíma til að spjalla. Hver er tilgangur lífsins? Markmið Łoziñski virðist ekki vera að komast að tilgangi lífsins heldur opna vegfarendur, komast framhjá grímunni og tilgerðarleikanum. Það reynist miserfitt en auðveldast er að ná til barnanna vegna þess að þau reyna ekki að þykjast vera einhver annar en þau eru. Eftirminnilegt er þegar lítið barn stoppar og horfir upp til Łoziñski glottandi og hleypur svo áfram til þess að ná móður sinni sem hafði ekki tekið eftir skrítna karlinum á svölunum. Łoziñski reynir síðan að fá aðeins eldra barn til að segja eitt- hvað þýðingarmikið en barnið er of upptekið af ísnum sínum til að svara þessum kjánlegu spurningum hans. Margir einstaklingar opna sig fyrir framan myndavélina og segja frá erf- iðum degi sem þeir eru að upplifa eins og kona sem er vonsvikin yfir af- mælisdeginum sínum. Aðrir eru í verri stöðu eins og karlmaður sem hefur misst konuna sína til annars sem samkvæmt honum er djassaðri og yngri útgáfa af honum sjálfum. Allir eru að takst á við sínar áskor- anir sem er róandi að fylgjast með. Kvikmyndin einkennist þó ekki af súr og depurð heldur tjá margir hversu glaðir þeir séu eins og karlinn sem sér lífið allt í einu miklu skýrar eftir að hann hætti að drekka og konan sem hefur nýlega fundið hamingjuna eftir að eiginmaður hennar lést. Óvænt skemmtun Umfjöllunarefni myndarinnar virðist ekki vera spennandi en það kemur manni á óvart hvað venjulegt fólk getur verið áhugavert og hvað hvers- dagsleikinn getur hlotið mikla þýð- ingu ef maður gefur sér tíma til að fylgjast með honum. Nægar eru sög- urnar af ofurhetjum, það er kominn tími til að segja sögur af venjulegu fólki eins og okkur. Þetta fólk er hetjur í sínu eigin lífi og það er nóg. Myndin er líkust því að sitja á kaffi- húsi og fylgjast með fólkinu í kring- um sig, hlusta á samræður þess og reyna glotta ekki og koma upp um sig þegar einhver segir eitthvað fyndið. Svalamyndin minnir að mörgu leyti á Bergmál (2019) eftir Rúnar Rún- arsson þar sem hann fangar daglegt líf á Íslandi um jólin en myndin er samsett af 56 atriðum af mismunandi fólki við allskonar aðstæður. Ólíkt Svalamyndinni er Bergmál frásagn- armynd og sögurnar sagðar af leik- urum en ekki alvöru persónum. Báð- ar myndirnar hafa sinn sjarma og felst sjarmi Svalamyndarinnar í því að um er að ræða alvöru einstaklinga og suma hverja nágranna leikstjór- ans. Áhorfendum fer að þykja vænt um persónurnar alveg eins og um sé að ræða sögupersónu í frásagn- armynd. Það eru nokkrir einstaklingar sem koma fyrir oftar en einu sinni í mynd- inni en meðal þeirra er Robert, fyrr- um sakamaður á fertugsaldri sem er að reyna að lifa heiðarlegu og mann- sæmandi lífi. Hann kemur sér fyrir framan svalirnar og er að betla þar. Í gegnum myndina fá áhorfendur að fylgjast með leit hans að sæmilegri vinnu og svefnstað. Tvær nágrannakonur hans koma einnig ítrekað fyrir í myndinni, kjaftaskjóð- an Jadwiga sem syrgir enn eigin- mann sinn Andrzej sem lést fyrir 13 árum. Łoziñski og áhorfendur um leið fá í hennar tilfelli hlutverk sálfræð- ings. Hún segir oft eitthvað djúpt og hjartnæmt eins og að hún sjái eftir því að hafa ekki sýnt manni sínum nægilega ást en er rokin út áður en hægt er að segja eitthvað á móti: „À bientôt!“. Oft sést önnur gömul kona sópa eða slá grasið en það er hin dug- lega Zosia sem aldrei virðist kvarta. Hún er eins konar húsvörður eða um- sjónarkona byggingarinnar sem Ło- ziñski býr í en samkvæmt honum sér hún um tíu aðrar byggingar og sér ekki fram á að hætta þrátt fyrir að vera orðin 74 ára. Það er engin aug- ljós hetja í myndinni og þótt þessum þremur fyrrnefndu manneskjum sé gefinn meiri skjátími þá tekst sumum sem staldra stutt við ekki síður að sigra hjarta þitt. Háður ókunnugum Svalamyndin var sýnd á heimildar- myndahátíðinni IceDocs á Akranesi á fimmtudag, 23. júní, og eftir sýningu svaraði Paweł Łoziñski spurningum áhorfenda. Łoziñski segir að á tveim- ur og hálfu ári hafi hann spjallað við um tvö þúsund manns en aðeins 80 hafi endað í kvikmyndinni. Þegar myndin var að hefjast í Bíóhöllinni tók ég eftir því að Łoziñski læddist út úr bíósal. Hann sagði það vegna þess að hann fengi alltaf aðrar hugmyndir að klippingu en hann hafði nú þegar gert 54 drög að myndinni. Łoziñski segir hafa verið erfitt að hætta, hann hafi orðið háður þessari félagslegu nánd en það er nákvæmlega það sem áhorfendur upplifa. Við bíðum spennt eftir því að sjá hver kemur næst. Er það einhver sem við þekkjum? Það kemur okkur svo sífellt á óvart að okkur leiðist ekki heldur eru sam- ræður við ókunnuga næg skemmtun á fimmtudagskvöldi. Vegfarendur Gagnrýnandi segir Svalamyndina líkasta því að sitja á kaffihúsi og fylgjast með fólkinu í kringum sig. Skrítni karlinn á svölunum Bíóhöllin á Akranesi (IceDocs) The Balcony Movie / Svalamyndin bbbbm Leikstjórn: Paweł Łoziñski. Handrit: Paweł Łoziñski. Pólland, 2021. 100 mín. JÓNA GRÉTA HILMARSDÓTTIR KVIKMYNDIR Rangt nafn söngkonu Í myndasyrpu sem birtist í blað- inu 23. júní frá uppskeruhátíð Hita- kassans í Iðnó, þar sem fram komu hljómsveitir og tónlistarmenn sem komust í úrslit Músíktilrauna í ár, stóð að söngkona með hljómsveit- inni Bí Bí og Joð héti Svanhildur Guðný Hjördísardóttir. Hið rétta er að með sveitinni söng Lára Ruth Clausen og einnig Fannar Árni Ágústsson. LEIÐRÉTT Sirens of Poland, eða Sírenur Pól- lands, nefnist sýning pólska mynd- listarmannsins Mateusz Hajman sem opnuð verður í dag kl. 14 í Café Pysju, Hverafold 1-3 í Grafarvogi. „Pólska sumrið; einhvers staðar milli íbúðarblokkanna, við árfar- veginn, inni í skóginum, úti við strandlengjuna. Þessa letilegu daga er erfitt að greina hvern frá öðrum. Sæluríkur tíminn smýgur milli fingranna,“ segir m.a. í tilkynningu um sýninguna en á henni má sjá ljósmyndir af konum að sumarlagi úti í náttúrunni. Hajman myndar hinar ungu kon- ur og einnig karla þar sem þau eru í makindum sínum og „minnir okkur á að áhorfandinn sjálfur mun nema erótíkina“, eins og því er lýst í til- kynningu. Sýningin er haldin í tengslum við Reykjavík Fringe Festival og stend- ur til 21. ágúst. Hajman er þekktur meðal sinnar kynslóðar í heima- landi sínu og víðar, að því er fram kemur í tilkynningu og þá einkum fyrir ljósmyndir af konum. Café Pysja er nýstofnað sýningarrými fyrir myndlist og er að hluta til listamannarekið. Það er einnig kaffihús, eins og nafnið gefur til kynna. Sýning Hajman er sú þriðja sem haldin er í Café Pysju. Sírenur Póllands í Café Pysju Náttúra Ein af myndum Hajmans sem voru teknar í sumarsælu við vatn í Póllandi. Magnea Tómasdóttir, Kjartan Guðnason og Kjartan Valdemarsson flytja sönglög á stofutónleikum Gljúfra- steins á morgun, 26. júní, kl. 16. Á efnisskrá verða söng- lög eftir Atla Heimi Sveinsson og Jón Ásgeirsson við texta Halldórs Laxness og Jónasar Hallgrímssonar. Að- gangseyrir er kr. 3.500 og fer miðasala fram í móttöku safnsins fyrir tónleika. Stofutónleikar verða haldnir á Gljúfrasteini alla sunnudaga kl. 16 í sumar. Þeir hafa verið fastur liður í safninu allt frá árinu 2006. Í tíð Halldórs og eiginkonu hans, Auðar, voru reglulega haldnir tónleikar í stofunni þar sem innlent og erlent tónlistarfólk kom fram. Sönglög með nýjum blæ á Gljúfrasteini Magnea Tómasdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.