Morgunblaðið - 25.06.2022, Side 40
BESTA SKIPAFÉLAGIÐ Í EVRÓPU
10 ÁR Í RÖÐ OG 5 ÁR Í KARÍBAHAFI
KARÍBAHAF
17.-29. NÓVEMBER
Verð frá kr.
495.000
á mann í 2ja manna
inniklefa með
PREMIUM ALLT
INNIFALIÐ
- ORLANDO
- COZUMEL
- COSTA MAYA
- ROATÁN
- HARVEST CAYE
ALLT INNIFALIÐ Í ÖLLUM SIGLINGUM
EKKI BORGA MEIRA EN ÞÚ ÞARFT
Sími 587 1717
www.sulatravel.is
Stangarhyl 1
110 Reykjavík
GERUM TILBOÐ FYRIR HÓPA OG EINSTAKLINGA
OPNUNARTÍMAR MÁNUDAGA-FIMMTUDAGA 10-14
NÁNAR Á WWW.SULATRAVEL.IS
YFIR ATLANDSHAF FRÁ NEW
YORK 19. apríl til 9. maí 2023
Azoreyjar, Madeira, Cadiz (Sevilla),
Malaga, Mallorka, Marseille og Barcelona
Verð frá kr. 600.000 á mann
KARÍBAHAF 16.-28. febrúar 2023
Orlando, Cozumel, Costa Maya,
Roatán, Harvest Caye
Verð frá kr. 460.000 á mann
MIÐJARÐARHAF 14.-26. maí 2023
Cannes, Liveorno, Róm, Napoli, Cagliari,
Mallorca, Ibiza og Barcelona
Verð frá kr. 490.000 á mann
Free at Sea
Hljómsveitin Brek heldur tónleika víða um land dagana
26. júní til 9. júlí, alls 12 opinbera tónleika auk þess að
leika fyrir aldraða á dvalarheimilum. Hljómsveitin leik-
ur einkum frumsamda, alþýðuskotna tónlist með áhrif-
um úr ýmsum áttum en meðlimir leggja mikla áherslu á
að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóð-
færaleik sínum og einnig er lögð áhersla á fjölskrúðuga
notkun íslenskrar tungu í textagerð. Brek hefur ferðina
í Norræna húsinu á morgun, heldur þaðan til Víkur í
Mýrdal, Seyðisfjarðar, Eskifjarðar, Borgarfjarðar eystri,
Neskaupstaðar, Egilsstaða, Kópaskers, Siglufjarðar,
Akureyrar, Dalvíkur og endar í Ólafsfirði.
Brek heldur í 12 tónleika ferðalag
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings úr Reykjavík unnu
nauman 1:0-sigur á Inter d’Escaldes, meisturunum frá
Andorra, í úrslitaleik forkeppni Meistaradeildar Evrópu
í knattspyrnu karla á Víkingsvelli í gærkvöldi og
tryggðu sér þannig sæti í 1. umferð undankeppni
keppninnar. Kristall Máni Ingason skoraði sigurmark
Víkings um miðjan síðari hálfleikinn.
Víkingur mætir Svíþjóðarmeisturum Malmö í 1. um-
ferðinni. Þjálfari Malmö er Serbinn Milos Milojevic,
fyrrverandi þjálfari og leikmaður Víkings. »32
Víkingur vann úrslitaleikinn og
mætir lærisveinum Milos í Malmö
ÍÞRÓTTIR MENNING
stórtónleika um kvöldið, þar sem
fram koma Jón Jónsson, Jógvan
Hansen, Unnur Birna, Guðrún Árný
og Stebbi Jak. Að þeim loknum
verður stórdansleikur í tjaldinu.
Hljómsveitin Góss slær síðan botn-
inn í hátíðina í Reykjadalsskálanum
á sunnudaginn.“ Hann leggur
áherslu á að allir dagskrárliðir hátíð-
arinnar séu ókeypis nema viðburð-
irnir í tjaldinu. „Fyrirtæki í bænum
hafa gert okkur kleift að hafa ókeyp-
is aðgang að dagskránni í garðinum
en selt verður á viðburði í tjaldinu.“
Þrennt vekur sérstaka athygli í
Hveragerði í sumar. Utanvega-
hlaupið Hengill Ultra var fyrstu
helgina í júní, síðan er það Allt í
blóma um komandi mánaðamót og
svo Blómstrandi dagar í ágúst.
„Tilgangurinn með hátíðinni er að
vekja athygli á möguleikunum sem
Hveragerði hefur upp á að bjóða og
bæta við annars öflugt mannlíf í
bænum,“ segir Sigurgeir. „Hér býr
margt tónlistarfólk og annað list-
hneigt fólk, menning er í hávegum
höfð og fjölbreytt flóra.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fjölskyldu-, skemmti- og tónlistar-
hátíðin Allt í blóma í Hveragerði var
fyrst haldin í Lystigarðinum í bæn-
um í fyrrasumar, heppnaðist vel og
leikurinn verður endurtekinn um
næstu helgi. „Lystigarðurinn er sér-
staklega flottur, en óþekktur hjá
mörgum. Svæðið er lítið notað og því
tilvalið að vekja athygli á því með
svona skemmtun,“ segir Sigurgeir
Skafti Flosason, framkvæmdastjóri
og skipuleggjandi hátíðarinnar.
Hjónin og tónlistarfólkið Sigur-
geir og Unnur Birna Bassadóttir
hafa búið í Hveragerði í fimm ár.
Hann hefur spilað á bassa í ýmsum
hljómsveitum, rekur hljóðkerfaleigu
og skipuleggur viðburði á Suður-
landi, höfuðborgarsvæðinu og víðar.
„Því var ekkert eðlilegra en að kýla
á skemmtun í fyrra, enda allt til alls í
Lystigarðinum og þetta er eðlileg
þróun á starfi mínu,“ segir hann.
„Svæðið er í skjóli, skammt frá
Varmá, og ég sá fyrir mér að þarna
væri gaman að halda skemmtun á
góðu sumarkvöldi.“
Fjölbreytt dagskrá
Hátíðin verður frá fimmtudegi til
sunnudags. Haldnir verða viðburðir
víðs vegar í Hveragerði með áherslu
á dagskrá í Lystigarðinum. „Lang-
tímaspáin er einstaklega góð í Ár-
nessýslu, en við setjum upp tjald
fyrir ákveðna viðburði,“ segir Sig-
urgeir og bætir við að mikilvægt sé
að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá
svo allir finni eitthvað við sitt hæfi:
„Á föstudaginn verða fjölskyldu-
tónleikar með Reykjavíkurdætrum
klukkan fimm og stórtónleikar með
Magnúsi og Jóhanni hefjast í tjald-
inu klukkan átta um kvöldið.
„Á laugardaginn byrjum við með
barnaskemmtun í hádeginu, verðum
með Suðurlandsdjass með Kristni
Svavarssyni klukkan þrjú og fría
Allt í blóma í Hvera-
gerði annað árið í röð
- Fjölskyldu-,
skemmti- og tónlist-
arhátíð fyrir
alla aldurshópa
Ljósmynd/Dagný Dögg Steinþórsdóttir.
Í Lystigarðinum Sigurgeir Skafti Flosason og Unnur Birna Bassadóttir
með dóttur sína, Náttsól Viktoríu Sigurgeirsdóttur.