Morgunblaðið - 27.07.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Margar samverkandi ástæður, sem
flestar eiga sér á einhvern hátt rót í
þeim lokunum sem giltu í heimsfar-
aldri, ráða því að framboð á notuðum
bílum er takmarkað um þessar
mundir en salan jafnframt mikil.
Þetta segja bílasalar í samtali við
Morgunblaðið. Víðtækar lokanir sem
grípa þurfti til vegna sóttvarna á Co-
vid-tímanum réðu því að mjög hægði
á framleiðslu nýrra ökutækja – og
hér heima héldu bílaleigurnar að sér
höndum í innkaupum sínum.
Kaupa notaða bíla
og greiða út í hönd
Á ári hverju hafa bílaleigur keypt
þúsundir nýrra bíla sem eftir notkun
í að jafnaði tvö sumur eru seldir aft-
ur. Slíkt hefur í raun verið undirstað-
an í framboði notaðra bíla á Íslandi.
Nú eru færri slíkir falir en oft áður,
einmitt þegar sóttvörnum hefur ver-
ið aflétt og margir eru á faraldsfæti.
Niðurstaðan á bílamarkaði er því um
margt óvenjuleg, eins og raunar á
fleiri sviðum í viðskiptum um þessar
mundir.
„Eftirspurnin er mikil og allir bílar
sem við fáum á söluskrá fara fljótt.
Gildir þá einu hvort við erum með
smábíl sem fer á kannski 500 þúsund
krónur eða jeppa sem leggur sig á 10
til 12 milljónir kr.,“ segir Gunnar
Haraldsson sem er sölustjóri notaðra
bíla hjá Öskju. Þar kemur alltaf inn
talsvert af uppítökubílum vegna
kaupa á nýjum bílum, og æ fleiri vilja
nú færa sig yfir í rafknúin ökutæki.
Talsverð bið er hins vegar eftir slík-
um sem veldur hægagangi á mark-
aði. „Við erum líka gjarnan að kaupa
notaða bíla sem fólk vill losna við
strax. Greiðum þá slíka út í hönd og
reynum þá að selja strax aftur. Þarna
gildir þó sú regla að taka aðeins vel
með farna bíla sem komist hafa í
gegnum ástandsskoðun.“
Oft hefur júlímánuður verið lífleg-
ur í bílaviðskiptum og þá ekki síst
vikan fyrir verslunarmannahelgi. Þá
hafa gjarnan jeppar runnið út eða þá
stærri bílar sem geta dregið hjólhýsi
eða slík tæki. Í dag segir Gunnar
Haraldsson hins vegar takmarkað
framboð á slíkum bílum, svo salan
verði þá jafnari þvert á tegundir og
gerðir.
Fækkar á bílaplaninu
hjá Rögnvaldi
Rögnvaldur Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri á Bílasölu Selfoss, seg-
ir að verulega sé farið að fækka á
planinu hjá sér. Notaða bíla vanti á
söluskrá svo eðlilegur gangur verði í
viðskiptum. Allir bílasalar glími við
þetta sama vandamál, sem helgast
aftur af hægagangi í framleiðslu á
nýjum ökutækjum.
„Flæðið á markaði hefur riðlast.
Fyrst vegna kórónuveirunnar en svo
hefur Úkraínustríðið líka haft áhrif.
Einstaka hlutir í bíla sem settir eru
saman í stóru verksmiðjunum í Evr-
ópu koma alltaf í nokkrum mæli frá
fyrirtækjum í Úkraínu. Öll fram-
leiðsla þar í landi er nú löskuð og
sömuleiðis flutningsleiðir frá þeim,“
segir Rögnvaldur. Bætir hann við að
áður hafi hjá íslensku bílaumboðun-
um mátt ganga út frá því að af-
greiðslufrestur á nýjum bílum væri
8-12 vikur. Nú þurfi að doka talsvert
lengur, sérstaklega eftir rafmagns-
bílum. Þegar óskað sé eftir slíkum í
dag geti biðin verið 6 til 9 mánuðir, en
sé stundum skemmri.
„Vegna þess hve notaða bíla skort-
ir mjög hefur myndast seljenda-
markaður. Bílarnir seljast oft mjög
nærri ásettu verði og tilboðum undir
því er ekki tekið. Prúttið sem margir
þekkja gengur ekki lengur,“ segir
Rögnvaldur sem hefur starfað við
bílasölu í meira en tuttugu ár og
þekkir því vel til aðstæðna.
Seljendamarkaður hefur myndast
- Mikil sala á notuðum bílum - Framboð er takmarkað - Söluskrárnar að tæmast - Samverkandi
ástæður - Ekki er lengur prúttað um verðið - Löng bið eftir nýjum bílum frá framleiðendum ytra
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílasala Raðirnar eru farnar að þynnast og kaupendur eru fljótir að grípa
þá bíla sem koma í sölu. Bílarnir seljast þá yfirleitt nærri skráðu gangverði.
Gunnar
Haraldsson
Rögnvaldur
Jóhannesson
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Framkvæmdir við annan áfanga
breikkunar Suðurlandsvegar, milli
Hveragerðis og Selfoss, ganga fram-
ar vonum. Umferð verður hleypt á
helming kaflans strax í ágúst og
verkið verður að mestu tilbúið fyrir
áramót. Þetta upplýsir Ágúst Jakob
Ólafsson, yfirverkstjóri hjá verktak-
anum ÍAV, í viðtali á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
Samkvæmt verksamningi ættu
lok verksins að vera í lok september
2023 en starfsmenn ÍAV stefna að
því að ljúka stærstum hluta verksins
fyrir áramótin næstu. Hugsanlega
verði þó einhver frágangur eftir.
Ágúst segir að helstu vafaatriðin
snúi að brúarsmíði á vegarkaflanum
en vegagerðinni sjálfri verði örugg-
lega lokið.
Byggja þarf fimm brýr í þessu
verki og er framkvæmdum lokið við
þrjár þeirra. Það eru tvær brýr yfir
Gljúfurholtsá og undirgöng við
Þórustaði, við námuna í Ingólfsfjalli.
„Við erum líka búnir að reisa tvenn
reiðgöng og búnir að steypa upp
undirgöngin við Kotströnd en erum
að slá upp fyrir brúarplötunni núna.
Svo erum við búnir að steypa einn
vegg af fjórum í brú yfir Bakkár-
holtsá,“ segir Ágúst.
Hann segir að vegfarendur geti
farið að hlakka til, því í ágúst verði
umferð hleypt á stóran hluta nýja
vegarins frá Kirkjuferjuvegi að nýja
hringtorginu við Selfoss. „Við opn-
um þennan hluta vegarins vonandi
seinni hlutann í ágúst.“
Á kaflanum frá Kotströnd og að
Kirkjuferjuvegi hefur verið byggður
nýr vegur frá grunni, sem er ekki í
sama vegstæði og gamli Hringveg-
urinn.
„Þar erum við búnir að ljúka við
undirbyggingu og fyllingar. Á þeim
kafla eru þessar tvær brýr, sem eru
ekki enn fullreistar. Vonandi náum
við að hleypa umferð á þann kafla í
lok árs,“ segir Ágúst.
Um þessar mundir eru um 55
manns að vinna við breikkun Suður-
landsvegar, Hringvegar 1. Til verks-
ins eru notuð um 30 tæki, allt frá
vörubílum, ýtum og völturum til
malbikunarvéla, grafa og hefla.
Breikkun vegar á undan áætlun
- Í ágúst verður umferð hleypt á stóran
hluta vegarins frá hringtorgi við Selfoss
Ljósmynd/Vegagerðin
Suðurlandsvegur Nýja hringtorgið við Selfoss er að verða tilbúið. Hér er
horft í vesturátt að Hveragerði. Umferð verður brátt hleypt á þennan kafla.
Náttúruminjasafn Íslands bauð upp á spennandi
steinagreiningu í gær. Voru margs konar ís-
úrunni. Í júlí verður safnið með viðburði alla
þriðjudaga kl. 14 á sýningu sinni í Perlunni.
lenskir steinar skoðaðir og gestum kennt að
þekkja og greina steina sem finnast úti í nátt-
Gestum kennt að þekkja og greina náttúrusteina
Morgunblaðið/Hákon
Grunur er um að Brucella canis-
bakteríusýking hafi komið upp í
hundi hér á landi í fyrsta sinn.
Matvælastofnun tilkynnti þetta í
gær. Brucella canis veldur súnu,
sem er sjúkdómur sem getur smit-
ast á milli dýra og manna, en smit í
fólk af völdum Brucella canis eru
sjaldgæf. Samband hefur verið haft
við þá sem eru taldir líklegastir til að
hafa verið útsettir fyrir smiti.
Helstu einkenni sjúkdómsins hjá
hundum eru fósturlát seint á með-
göngutíma, andvana eða veikburða
hvolpar sem oft drepast fljótlega og
bólgur í eistnalyppum hjá rökkum.
Helsta smitleiðin milli dýra er pörun
en náið samneyti milli hunda getur
einnig valdið smiti.
Fáum tilfellum af Brunella canis-
sýkingu í fólki hefur verið lýst.
Helsta hættan á smiti í fólki er frá
vessum og vefjum við fæðingarhjálp
á sýktum tíma. Sjúkdómurinn smit-
ast almennt ekki á milli fólks.
Menn smit-
ast en þó
sjaldan
- Útlit fyrir Brucella
canis-bakteríusýkingu