Morgunblaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022 ✝ Daníel Jónas- son fæddist í Vestmannaeyjum 17. júní 1938. Hann lést í Noregi 16. júlí 2022. Foreldrar hans voru Jónas S. Jak- obsson, mynd- höggvari, f. 5.11. 1909, d. 29.4. 1984 og Guðbjörg Guð- jónsdóttir, sjúkra- liði, f. 26.12. 1916, d. 14.9. 2007. Systkini Daníels eru: 1) Jakob Naftalí, f. 24.11. 1936, d. 26.10. 1963. 2) Dóra Mirjam, f. 26.12. 1939, 3) Guðjón, f. 1.8. 1941, 4) Ríkarður Bergstað, f. 1.1. 1944, 5) Rebekka, f. 15.1. 1946 og 6) Guðný Ragnhildur, f. 5.9. 1948. Daníel kvæntist þann 18. jan- úar 1964 Åse Johanne Jónasson (áður Gundersen), f. 18.9. 1926, d. 13.9. 2016. Börn þeirra eru: Ólafía Daníelsdóttir, f. 30.11. Sunniva Ariel, f. 8.11. 2007 og Luna Noor, f. 22.2. 2010. Daníel ólst að mestu upp á Sauðárkróki og á Akureyri. Hann fór 18 ára til Reykjavíkur í tónlistarnám og bjó þar æ síð- an. Lauk tónmenntakennara- prófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Stundaði einnig orgelnám hjá ýmsum kennur- um. Hann lauk stúdentsprófi 1978 og BA prófi í sagnfræði 1988. Daníel starfaði sem tón- menntakennari í Melaskóla og Laugarnesskóla og síðan í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Tók einnig nemendur í einka- tíma á orgel og fleiri hljóðfæri. Daníel var organisti í yfir 30 ár, lengst af í Breiðholtskirkju. Hann átti frumkvæði að stofnun Foreldrafélags blindra og sjón- skertra barna, sem síðan kom á fót sambýli fyrir blinda og sjón- skerta. Útför Daníels fer fram frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, í dag, 27. júlí 2022, og hefst kl. 13. Streymi: https://streyma.is/ 1964, í sambúð með Ara Tryggvasyni, f. 4.6. 1954 og Guð- björg Daníels- dóttir, f. 30.11. 1964. Eftirlifandi kona Daníels er Ingunn Lilja Leifs- dottir Risbakk, f. 6.1. 1948. Börn Ing- unnar og fyrri maka eru: 1)Sidsel Helen Kjerstad, f. 28.10. 1971, gift Ove Kjerstad, f. 1.3. 1969. Börn þeirra eru: Jan Roar, f. 15.8. 1996, Isadora Mat- hea, f. 14.10. 1997, Ivan Nico- laus, f. 1.11. 1998, Nora Helen, f. 13.6. 2002 og Leif Vilmer, f. 3.3. 2006. 2) Leif Roar Kjerstad, f. 26.8. 1973. Börn hans eru: Leo Arthur, f. 13.6. 2006 og Luca Christine, f. 19.7. 2009. 3) Aida Irene Urkedal, f. 24.6. 1975. Börn hennar eru: Aron, f. 4.5. 2001, Seth Isak, f. 26.6. 2005, Þau voru óþægileg símtölin sem ég fékk um að pabbi væri á leið á spítala meðvitundarlaus, með stóra heilablæðingu sem leiddi hann til dauða á fimm tím- um. Hann sem ætlaði að koma heim með Ingunni sinni daginn eftir, eftir þriggja mánaða dvöl í Noregi og Svíþjóð. Hann hlakkaði til að koma heim til að hitta fjöl- skyldu og vini og fara austur í sveitina sína. Elsku pabbi minn. Ég á erfitt með að trúa því að þú hafir kvatt okkur. Þú varst svo sprækur þrátt fyrir aldur og fyrri sjúkdóma. Ég minnist þín með þakklæti og hlýju. Ég var alltaf pabbastelpa. Þú hjálpaðir mér og studdir í gegnum nám og í gegn- um lífið. Ég ætlaði að sleppa því að taka stúdentspróf í sögu en þú keyrðir mig niður eftir. Prófið skyldi ég taka og ég rétt náði og gat útskrifast. Þú studdir við bak- ið á mér á erfiðum tímum og varð- ir mig fyrir ágengni annarra. Við vorum samferða í skóla því þú tókst stúdentinn fertugur. Bú- staðinn byggðir þú þegar ég var 16 ára. Mér þótti nú ekki alltaf gaman að vera þarna niðri á slétt- unni sem unglingur. Vildi frekar vera með krökkunum í Kotinu. Þú fékkst hjá mér gallaðar greni- plöntur þegar ég vann á gróðrar- stöðinni Tumastöðum, sem nú eru orðnar margra metra háar. Eftir að ég fullorðnaðist nýt ég þess að koma í sveitina mína í ró og næði með fuglasöng en þú þekktir nöfn- in á þeim öllum. Þú varst líka svo góður við Guðbjörgu og gast alltaf náð til hennar. Þú varst útsjónar- samur og hugsaðir um hag hennar og framtíð. Stofnaðir Foreldra- félag blindra og sjónskertra barna sem stóð að stofun sambýlis með það fyrir augum að framtíð Guðbjargar systur væri tryggð þegar ykkar mömmu nyti ekki lengur við. Mér fannst oft nóg um sparsemi þína og nægjusemi og gerði óspart grín að þér. En þetta skilur eftir skemmtilegar minn- ingar. Við vorum ætíð náin þó þú hringdir yfirleitt ekki í mig nema vegna praktískra hluta. Viku áður en þú kvaddir hringdir þú þó, því þú vildir heyra í mér, en það var óvenjulegt. Enda virtistu vera að kveðja vini og kunningja, kannski ómeðvitað. Þú varst fastur klettur í tilver- unni og bjóst í Vesturberginu í næstum 50 ár. Minningarnar eru óteljandi. Þegar þú spilaðir á pí- anóið eða orgelið niðri í kirkju eða vannst í bústaðnum oft í grútskí- tugum og götóttum vinnufötum. Nokkrum sinnum héldum við að við værum að kveðja þig í veik- indum en ekki nú. Þú hafðir þekkt seinni konu þína hana Ingunni í tæp þrjú ár og ég hafði aldrei séð þig svona glaðan og hamingju- saman. Það var því gæfa að hafa fengið að heimsækja ykkur á eyj- una hennar Ingunnar í sumar ásamt Guðbjörgu systur. Áttum við þar góðar stundir. Við fórum líka í ógleymanlegar ferðir saman, til Ísrael og Perú. Þú skilur eftir þig dýrmætan arf, orgelspil, kóra- söng og mikið verk um sögu Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi. Það verður ótrúlega tómlegt án þín. Að geta ekki skroppið yfir í Vesturbergið með hundinn minn Samson. Við höfum öll misst mikið en Ingunn mest. Guð styrki hana og okkur í sorginni. Takk fyrir allt, pabbi minn, og ég bíð eftir að sjá þig aftur. Ég elska þig. Þín dóttir, Ólafía. Elsku pabbi minn. Mikið er sorglegt að þú sért ekki lengur hjá mér. Þú varst alltaf svo góður við mig. Þú keyptir handa mér stóran vefstól og hjálpaðir mér með uppistöðuna. Þú smíðaðir prjónastokk og raðgrind. Þú og Ninni smíðuðuð stólinn fyrir vef- stólinn. Svo keyptir þú líka handa mér tvöfalt hjól og við hjóluðum saman. Þú kenndir mér á flautu og píanó. Það var svo gott að koma til Harøya í sumar með Ólafíu og Ara. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Þín Guðbjörg. Daníel var í rauninni minn fyrsti og eini tengdafaðir. Ég fékk bara að hafa hann í þrjú ár. Kynni okkar Ólafíu, dóttur hans, náðu þó lengra aftur, þegar við hófum störf samtímis á geðdeild LSH, fyrir tæpum 16 árum. Tengdaföð- ur velur maður ekki og þar var ég einstaklega heppinn. Það fyrsta sem ég tók eftir var hið stórglæsi- lega kónganef, nokkuð sem mér hefur ætíð þótt frekar heillandi og hefði viljað að Ólafía hefði haft greiðari aðgang að erfamengi nefsins. Hins vegar er ég ekki viss um að Daníel hefði verið sammála mér, því hann leið fyrir hið stór- glæsilega nef, var strítt, kallaður Nefið eða Nebbi. Auðvitað voru það persónu- töfrar Daníels sem hrifu mig. Fljótlega eftir að við Ólafía byrj- uðum saman dvaldi ég, ásamt þeim feðginum, í bústað hans, Bóli, austur í Fljótshlíð, m.a. til að þekja hann með viðarolíu. Daníel hannaði og byggði bústaðinn að eigin frumkvæði, af getu, innsæi og útsjónarsemi. Að sjálfsögðu fékk hann hjálp við sumt. Nú er þar kominn gróskumikill trjá- gróður á þessum rúmum 40 árum. Fyrir mér var algerlega nýtt að detta inn í svo rótgróna Hvíta- sunnufjölskyldu. Ég er frekar íhaldssamur varðandi messuhald og mér skilst að Daníel hafi einnig verið það, organistinn sjálfur. Orgelið í Fíladelfíu hefur mátt víkja fyrir poppaðri trúartónlist. Það hefur verið í dvala í rúma þrjá áratugi. En nú er tími kominn til að draga tjaldið frá til að heiðra minningu hans, organistans og tónmenntakennarans. Við sátum báðir á skólabekk í sagnfræði. Daníel lauk sínu BA- námi með merkri ritgerð um sögu Hvítasunnusafnaðarins hér á landi. Við höfðum að sumu leyti ólíkar skoðanir á einstaka þátt- um veraldarsögunnar sem von er, enda léttur leikur að villast í því völundarhúsi. Daníel var hæglátur og hógvær og skoðun- um sínum kom hann á framfæri þannig, þó honum hafi verið ein- staka sinnum mikið niðri fyrir, enda næg tilefni til nú um stund- ir. Þvílík gæfa, sá tími sem við áttum saman í Noregi, við Ólafía og Guðbjörg Daníelsdætur, ásamt Ingunni, dagarnir í Har- öya, þaðan sem Ingunn kemur. Skyndiferðin með hraðbátnum til Álasunds og engin bátsferð til baka um kvöldið. Þá var ekkert annað að gera en að fara með leigubíl til næsta ferjustaðar. Enginn æsingur, því mistök og fljótfærni búa stundum til skemmtilegar og hjartnæmar minningar. Ég kveð þig, kæri vinur og tengdafaðir. Það er svo hryggi- legt hversu lítinn tíma við feng- um saman en stundirnar sem við áttum öll saman í Noregi geym- um við í hjarta okkar. Ari Tryggvason. Hljóður og hæglátur vinur hefur kvatt og verður sárt sakn- að um ókominn tíma. Þetta var drengur góður. Við Daníel kynntumst á rölti á grænmáluðum gangi hjarta- deildar 12E á Landspítalanum við Hringbraut á vormánuðum 2014. Þetta var óttalegur hæga- gangur hjá okkur félögunum til að byrja með, rétt farið fetið, enda við báðir að ná okkur eftir stórar hjartaaðgerðir, en þá gafst einmitt ráðrúm til að kynn- ast ögn, jafnvel frekar heldur en þegar erill dagsins ræður ferð því þarna var jú lítið við að vera annað en að hreyfa sig og reyna að ná bærilegri heilsu aftur. Það var einkum tónlistin sem tengdi okkur Daníel, en sömuleiðis æskuslóðir fyrir norðan og þrátt fyrir að hann væri töluvert eldri en ég gengum við í takt gegnum minningar fyrri tíma og áttum margt sameiginlegt. Seinna fylgdumst við að á Reykjalundi þar sem áfram gafst tóm til að spjalla um þá Händel og Bach og/eða kynnast leyndardómum kontrapunktsins meðfram stífri æfingadagskrá þar sem göngu- hraðinn var aukinn og kominn upp í moderato, nálgaðist jafnvel allegretto … áfram til að koma okkur félögum á bataveg, koma okkur aftur til manns. Þegar sjúkrahúslegan og þjálfunin þar á eftir voru á enda og okkur sagt að inngripið hefði lukkast það vel að nokk víst væri að þarna hefði tekist að lengja líf okkar um ein tíu ár, fórum við hvor í sína áttina, en tókum hins vegar upp bréfasamband okkar á milli, sem varði allt til dagsins í dag, báðum til mikillar gleði og töluverðrar skemmtunar. Þá heimsóttum við líka hvor annan og nutum saman margra gleði- stunda, nú síðast við opnun myndlistarsýningar minnar um páskana, þegar þangað voru mætt prúðbúin þau Daníel og Ingunn til að njóta þess sem þar var boðið upp á. Mikið hefði ég viljað vita þá að þetta væri í síð- asta sinn sem okkur gafst tæki- færi að fagna hvor öðrum og skiptast á hlýjum, uppbyggjandi kveðjum. Faðmlagið hefði sann- arlega orðið lengra og enn inni- legra. Í dag ertu hins vegar horfinn af sjónarsviðinu, minn góði vin, en hlýtt handtak þitt er og verð- ur ávallt greypt í hendi mér sem staðfesting á sannri vináttu tveggja stráka að norðan. Farðu í friði. Egill Eðvarðsson. Daníel Jónasson Elskulegur faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, KJARTAN JÓNSSON innanhússarkitekt, lést á krabbameinsdeild Landspítalans miðvikudaginn 20. júlí í faðmi dætra sinna. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 28. júlí klukkan 13. Helga Sjöfn Kjartansdóttir G. Magni Ágústsson Margrét Una Kjartansdóttir Kristinn Jóhannes Magnússon Helgi Birgisson Margrét Agnarsdóttir og barnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HÓLMSTEINN ÞÓRARINSSON loftskeytamaður, lést á HSN Siglufirði 16. júlí. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 29. júlí klukkan 13. Jóninna Hólmsteinsdóttir Grímur Laxdal Sigurður Hólmsteinsson Sigurlaug Þórhallsdóttir Díana Hólmsteinsdóttir Viðar Konráðsson Oddný Hólmsteinsdóttir Markús Ingason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn ✝ Sigríður Helga Axelsdóttir fæddist að Látrum á Látraströnd 8. júlí 1934. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjólgarði á Hornafirði 18. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru Axel Jó- hannesson bóndi og Sigurbjörg Stein- grímsdóttir húsfreyja. Sigríður var næstelst í röð sjö systkina, þar af fæddist eitt andvana, en eftirlifandi systkini hennar eru: Steinunn Halla, Anna Lísbet og Sigurlína Hólmfríður. Sigríður giftist Jóni Sveins- syni útgerðarmanni 10. sept- ember 1956. Börn þeirra eru: 1) Ragnhildur, f. 1956, gift Grétari Vilbergssyni og eiga þau dæt- urnar Emblu Sigríði, sem er í sambúð með Arnari Má Krist- jánssyni og eiga þau dæturnar Millu Mist og Bellu Björt og Mist, sem er í sambúð með Erni Rúnari Magnússyni. 2) Axel, fæddur 1959, í sambúð með Fanneyju Þórhallsdóttur og eiga þau börn- in Þórhall, sem er giftur Vigdísi Líndal og eiga þau synina Björn Hilmi og Axel Regin, Sig- ríði Helgu, sem er í sambúð með Sig- urði Hirti Ólafssyni, þau eiga börnin Fanneyju Svövu, Skarphéðin Úlf og Þórkötlu Kristínu, og Jón Frey sem er í sambúð með Dóru Hrund Gunn- arsdóttur og eiga þau dótturina Stormeyju Sól. Axel á svo dótt- urina Kristínu, sem er í sambúð með Bjartmari Frey Hjaltasyni og eiga þau dótturina Hafrúnu Leu. 3) Sveinbjörg, fædd 1964, gift Ómari Frans Franssyni og dætur þeirra eru Hildur Ýr, í sambúð með Hlyni Pálmasyni og börn þeirra eru Ída Mekkín, Grímur, Þorgils og Sóley Ágústa, sem er í sambúð með Guðmundi Bjarkasyni og eiga þau dæturnar Sóllilju Björgu og stúlku sem fæddist 7. júlí sl. Útför Sigríðar Helgu fer fram frá Hafnarkirkju í dag, 27. júlí 2022, klukkan 14. Streymi: https://tinyurl.com/3p3tt7rw Elsku besta mamma mín. Hér er ég staddur við Panamaskurð- inn og bíð þess að verða hleypt í gegnum hann, til að skila af mér skipinu Janus, sem ég tók að mér að fara með til Mexíkó. Það tekur Sigríður Helga Axelsdóttir ✝ Gunnar Þór Einarsson fæddist á fæðing- arheimilinu í Reykjavík 14. jan- úar 1985. Hann lést af völdum hjarta- áfalls í Barcelona á Spáni 5. júlí 2022. Foreldrar hans eru Kristín Þóra Gunnarsdóttir, f. 12. desember 1962, og Einar Þór Jónsson, f. 13. júlí 1963, d. 24. júní 2019. Stjúpfaðir hans er Einar Ögmundsson, f. 19. desember 1967. Gunnar Þór var elstur fjög- urra systkina. Systkini hans eru Kolbrún Þóra, f. 11. mars 1986, eiginmaður hennar er Kristinn Már Gíslason, Guðbjörg Heiða, f. 11. ágúst 1999, og Baldur Heið- ar, f. 9. ágúst 2002. Að loknu námi í Seljaskóla prófaði Gunnar Þór ýmsa framhaldsskóla, m.a. MR, Hrað- braut, FB, Keili og Kvikmyndaskólann. Hann kom víða við á vinnuferli sínum, m.a. í Byko, Penn- anum og IKEA. Áhugamál hans voru fjölbreytt, þ. á m. skáta- starf, flugbjörgunarsveitin og leiklist þar sem hann fór meðal annars með hlutverk í Stúdenta- leikhúsinu og kvikmyndum. Jafnframt stundaði hann dans af öllum toga.Gunnar Þór verður jarðsunginn frá Fella- og Hóla- kirkju í dag, 27. júlí 2022, og hefst athöfnin kl. 13. Sofðu unga ástin mín, úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Það er margt, sem myrkrið veit, minn er hugur þungur. Oft ég svarta sandinn leit svíða grænan engireit. Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson) Mamma og Einar. Ég var stoltur afi þegar mamma þín lagði þig í minn faðm og sagði að þú skyldir heita Gunnar Þór í höfuðið á mér. Þú ólst upp og þér var margt til lista lagt. Þú varst alltaf hlýr og opinn og áttir þess vegna auð- velt með að kynnast og umgang- ast fólk. Það sást best á því hve vinmargur þú varst. Þú lagðir áherslu á enskukunnáttuna enda nýttist hún þér vel. Þú varst ung- ur þegar Aðalsteinn móðurbróðir þinn kom þér að sem þátttak- anda í barna- og unglingamótum IOGT, en þar fékkst þú þína fyrstu reynslu af alþjóðlegu starfi. Snemma beindist hugur þinn að dansi og dansíþróttinni. Þar eignaðist þú marga vini og nokkrum sinnum varðst þú við þeirri bón minni að sýna dans í dagskrá hátíðlegra tækifæra. Ekkert mál, afi minn, var jafnan þitt svar. Sérstakt áhugamál þitt var Lindyhopp-dansinn, en færni þín var góð í fjölda annarra dansa. Þú varst með fyrstu ungmenn- um sem á námskeiði hjá Komið og dansið, lærðir að dansa við tvær dömur í einu, og í sjón- varpsþætti sem þau samtök létu gera árið 1999 varst þú kynntur sem 14 ára að dansa við mömmu þína og ömmu í sama dansi. Við amma þín þökkum þér fyrir þína ræktarsemi við okkur og þín heimsókn til okkar í mars sl. verður okkur ávallt minnisstæð. Þú varst þá áhyggjufullur vegna míns heilsufars og lokaorðin þín þegar þú kvaddir voru þau að hann væri tilbúinn til að gefa mér líffæri úr sér ef það hentaði og Gunnar Þór Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.