Morgunblaðið - 27.07.2022, Síða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
✝
Ólafur D. Guð-
mundsson
fæddist 19. mars
1949 að Sólvangi,
Krosseyrarvegi 7 í
Hafnarfirði. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Brákar-
hlíð í faðmi fjöl-
skyldunnar, 17. júlí
2022, eftir stutta en
hetjulega baráttu
við krabbamein.
Foreldrar Ólafs voru Elín
Louise Cathinca Ólafsdóttir
Davíðsson, f. 1920, d. 1971, Guð-
mundur Marteinn Þórðarson, f.
1914, d. 1997 og stúpfaðir hans
var Björgvin Helgi Magnússon, f.
1911, d. 1984. Systkini hans:
Ólafur Pétursson, f. 1942, d.
1946, Gunnar Jóhann Guðbjörns-
son, f. 1944, Hulda Cathinca Guð-
mundsdóttir, f. 1948, Hilmar
Guðmundsson, f. 1953, Þórunn
Guðmundsdóttir, f. 1955 og Guð-
björg Elsa Guðmundsdóttir, f.
1960.
Þann 30. nóvember árið 1974
giftist Ólafur eftirlifandi eigin-
konu sinni, Valgerði Jónasdóttur
frá Signýjarstöðum í Hálsasveit,
f. 11. júlí 1950. Börn þeirra eru:
Ragnheiður Steina Ólafsdóttir, f.
1972, Jónas Björgvin Ólafsson, f.
1974 og Elín Erna Ólafsdóttir, f.
1976. Tengdabörn eru María Júl-
ía Jónsdóttir og Finnur Einars-
son. Barnabörn Ólafs eru níu
talsins: Sigríður Vala, Arna Rún,
Þórunn Birta, Harpa Rut, Ólafur
Freyr, Dagbjört Rós, Þorsteinn
Logi, Þóra Sóldís og Jónas Darri.
Ólafur ólst upp að Sólvangi í
Hafnarfirði en frá sex ára aldri
varði hann öllum sumrum að Kal-
manstungu í Hvítársíðu. Hann
gekk í Lækjarskóla í Hafnarfirði
til 12 ára aldurs, vann svo í Íshúsi
Hafnarfjarðar til 14 ára aldurs
og réð sig þá sem vinnumann að
Gilsbakka í Hvítársíðu, þar sem
hann starfaði næstu tíu árin.
Haustið 1973 starfaði hann
sem fjármaður á tilraunabúinu á
Hesti í Borgarfirði. Ári seinna
flutti fjölskyldan að
Vilmundarstöðum í
Reykholtsdal þar
sem þau gerðust
bændur og þá vann
Ólafur í sláturhús-
inu í Borgarnesi á
haustin.
Haustið 1977
fluttu þau að
Kleppjárnsreykjum
og vann Ólafur upp
frá því við ýmis
störf, svo sem múrverk, garð-
yrkju og síðar sjómennsku, sem
var hans aðalstarf í yfir 30 ár. Í
síðasta túrnum sínum hélt hann
upp á 70 ára afmælisdaginn
sinn.
Hjónin byggðu húsið Litla-
Berg árið 1982, þar sem þau
voru búsett til ársins 2003, árið
sem þau fluttu í Álfaskjól í Hvít-
ársíðu.
Ein helsta ástríða Ólafs var
hestamennska og hrossaræktun
sem hann stundaði frá tvítugs-
aldri. Hann var mjög vinnu-
samur, einstaklega einbeittur og
duglegur við allt það sem hann
tók sér fyrir hendur. Hann var
með eindæmum ástríkur og lífs-
glaður maður, gaf mikið af sér
með kátínu, kímni og húmor og
veitti fólki í kringum sig mikla
athygli. Hann elskaði að vera
með fjölskyldu og vinum, liggja í
heita pottinum og njóta lífsins.
Hann þreyttist ekki á því að
hrósa og sýna barnabörnunum
ást og elsku. Seinni árin naut
hann þess líka að horfa á bolt-
ann og Liverpool var hans lið í
enska boltanum. Óli elskaði
Gerðu sína ofurheitt og naut
samvista með henni. Þau nutu
þess að ferðast saman með hjól-
hýsið, skoða landið og fara í
veiðiferðir.
Útför Ólafs fer fram frá
Reykholtskirkju í dag, 27. júlí
2022, klukkan 14.
Jarðsett verður í Gilsbakka-
kirkjugarði í Hvítársíðu.
Streymi:
https://tinyurl.com/5bfxvn4x
Í dag kveðjum við öðlinginn
hann Ólaf Guðmundsson, eða Óla
eins og hann var kallaður, eftir
stutta og erfiða baráttu við
krabbamein sem hann tókst á við
af miklu æðruleysi. Óla kynnt-
umst við hjónin fyrir um níu árum
er hún Júlía okkar hóf samband
við Jónas son þeirra eðalhjóna Óla
og Gerðu. Betri tengdaforeldra og
afa og ömmu fyrir börnin hennar
er vart hægt að hugsa sér. Marg-
ar góðar stundir höfum við hjónin
átt með Óla, Gerðu og fjölskyldu.
Óli var alltaf kátur og mikill
prakkari sem gaman var að vera
með. Verður hans sárt saknað.
Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku
vinur.
Hver minning dýrmæt perla er að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku Gerða, Agga, Jónas, Júl-
ía og börn Ella, Finnur og börn,
við hjónin biðjum algóðan Guð að
vaka yfir ykkur og gefa ykkur
styrk á erfiðum tímum.
Minningin um yndislegan
mann lifir.
Hvíl þú í friði, elsku Óli.
Þóra og Jón.
Jæja Óli minn, vinur minn, þá
ert þú búinn að kveðja þessa jarð-
vist. Örlögin ákváðu það en við
eigum eftir að sakna þín mikið.
Það var aðdáunarvert hvað þú
varst ákveðinn að ná heilsu og
fara í útilegu, allavega einu sinni
enn, en það fór sem fór. Það var
sko ekki til í dæminu að gefast
upp. Gerða og Steinhildur voru
saman í Kennó og fóru svo að
vinna norður í landi og tókst með
þeim mjög góð vinátta sem leiddi
svo til þess að ég kynntist Óla vini
mínum fyrir rúmlega 50 árum. Óli
var úr sveitinni en ég af mölinni en
þrátt fyrir það tókst mjög góð vin-
átta á milli okkar. Óli var glaðlynd-
ur og hress strákur sem var mikið
í hestastússi, ræktun og eignaðist
marga góða gæðinga sem gerðu
garðinn frægan bæði heima og er-
lendis. Fljótlega eftir að við kynnt-
umst gaf Óli mér minn fyrsta hest,
Feng, sem reyndist svo verða
ljómandi reiðhestur sem allir gátu
riðið. Og alltaf sá Óli um mína
hesta, nema síðustu árin áður en
ég hætti hestamennsku, sem stóð
yfir í rúmlega 40 ár. Við hjónin og
Óli og Gerða vorum vön að fara til
Kanarí mörg síðustu árin og var
einstaklega gaman að ferðast með
þeim. Þá var gaman að sjá hvað
Óli var feiminn að fara í stuttbux-
ur en þá sögðu frúrnar að það væri
enginn að horfa á svona gamla
karla eins og okkur en þær sögð-
ust vera orðnar vanar þessum
spóaleggjum okkar. Í ferðalögum
okkar innanlands var alltaf farið af
stað um morguninn í síðasta lagi
kl. 10, Óli sá alltaf til þess. Óli
sagði mér oft að hann kynni ekki
neitt, gæti ekki neitt en flestir vita
að hann var mjög fjárglöggur,
bráðlaginn við hross og smíðar eða
hvað sem hann tók sér fyrir hend-
ur. Eftir að Óli hætti á sjó komst
sá skemmtilegi siður á að við borð-
uðum saman oft um helgar þegar
þannig stóð á og spiluðum rúllu.
Við hjónin sendum okkur innileg-
ustu samúðarkveðjur til ykkar
allra.
Kristján og Steinhildur.
Ólafur D.
Guðmundsson
virkilega á að geta ekki verið
heima og verið viðstaddur útför
þína. Þú, sem varst mér alltaf svo
góð og ert hjartahlýjasti einstak-
lingur sem ég hef kynnst á minni
lífsleið. Þú máttir aldrei heyra
eða sjá að einhver hefði það bágt,
því þá varst þú sú fyrsta sem
bauðst fram aðstoð – hvort sem
það nú var að prjóna á viðkom-
andi peysu, húfu, vettlinga eða
gera eitthvað annað.
Þú varst líka eina manneskjan
sem aldrei misstir trúna á mér,
þrátt fyrir alla þá erfiðleika sem
ég átti við að stríða á minni skóla-
göngu vegna meðfæddrar les-
blindu minnar. Þú barðist eins og
særð ljónynja til að hjálpa mér
við þessa erfiðu skólagöngu. Þeg-
ar ég kom heim með einkunnir
mínar; lestur 1,2, skrift 0,8 og
reikningur 1,3, þá varst það þú,
elsku besta mamma mín, sem
stappaðir í mig stálinu og sýndir
mér ljósið framundan. Þú gafst
aldrei upp þrátt fyrir að kenn-
ararnir tönnluðust á því, hvað
eftir annað, hvað ég væri heimsk-
ur og vitlaus. Þú gafst aldrei upp
og án þessa stuðnings veit ég
ekki hvað hefði orðið um mig.
Fyrir þetta og svo ótal ótal margt
fleira verð ég þér ævinlega þakk-
látur. Meira að segja þegar ég lá
fótbrotinn heima, þá greiddir þú
kennurum aukalega fyrir að
koma heim og reyna að troða ein-
hverri visku í kollinn á mér. Ég
man að ég heyrði einu sinni til
þín og Péturs kennara þegar þið
vorið að fá ykkur kaffisopa eftir
eina kennslustundina og hann
var að reyna að skýra út fyrir þér
að þetta væri vitavonlaust, því
drengurinn væri bara fæddur
sauður. Ég man vel hversu reið
þú varðst við þessi ummæli.
En nú ferð þú inn í sumar-
landið og hittir vonandi pabba
og þið takið upp þráðinn þar
sem frá var horfið á sínum tíma
við að spila á spil. Þá verður
ekkert gefið eftir frekar en fyrri
daginn. Ég man svo vel að þú
rúllaðir karlinum upp trekk í
trekk og þá fékkstu nú aldeilis
að heyra það frá honum og það
alveg óþvegið. Þín verður svo
sannarlega sárt saknað – ekkert
kaffi lengur, engar kleinur, eng-
in brúnterta eða kókoskaka að
ekki sé nú minnst á að taka í
spil.
Það tekur mig svo sannarlega
sárar en tárum taki að geta ekki
fylgt þér síðasta spölinn, elsku,
elsku mamma mín, en ég vil
kveðja þig með þessu ljóði:
Við kveðjum þig kæra mamma
með kinnar votar af tárum
á ást þinni enginn vafi
til okkar við gæfu þá bárum
Horfin er hönd þín sem leiddi
á hamingju og gleðifundum
Ástúð er sorgum eyddi
athvarf á reynslustundum
Margt er í minninga heimi
mun þar ljósið þitt skína
Englar hjá Guði þig geymi
við geymum svo minningu þína.
(Höf. ókunnur)
Þinn einkasonur, staddur á
06°57 N og 80°19W við Panama-
skurð.
Axel Jónsson,
stórskipstjóri.
„Hún er svo dugnaðarleg og
rösk þessi unga kona, konan
hans Jóns Sveinssonar á Fisk-
hól,“ segir mamma, þar sem hún
Sigga rennir upp að Kaupfélag-
inu á Landróvernum á fallegum
haustdegi.
Við vorum nýflutt hingað aft-
ur og vorum að byrja okkar ný-
byggingu á Fiskhólnum. Sigga
og Jón bjuggu þá í „gamla“
Fiskhólshúsinu, því merkilega
húsi, þar sem margir byrjuðu
sinn búskap. Þau byggðu síðan
nýja húsið sitt við Fiskhólinn
neðar við götuna og bjuggu þar
lengst af.
Góður granni er gulli betri.
Litla samfélagið á Fiskhólnum
var gott samfélag, nokkrar ung-
ar barnafjölskyldur. Krakka-
skarinn lék sér í frelsinu dag út
og dag inn, aðalleikvangurinn
hóllinn og fjaran þar sem sjórinn
flæddi upp að á góðum dögum.
Fljótt varð góður samgangur á
milli heimila okkar Siggu og
Jóns. Axel litli kom og fékk
mótatimbur í flekasmíðina og
undi mörgum stundum við sigl-
ingar ýmiss konar á sjónum
austan við Fiskhólinn. Hefur sú
undirstaða nýst honum vel í
ferðalögum hans um heimsins
höf. Ragga, unglingurinn, kom
oft og fékk að kíkja í bókaskáp-
inn, bókaormurinn. Svo var það
hún Sveinbjörg, jafn gömul
Elvari Erni okkar – þau urðu al-
gjörar samlokur í krakkahópn-
um á Hólnum og kölluðu ekki
allt ömmu sína. Þau eignuðust
svo sína vini og vinkonur litlu
skötuhjúin, en hann Elvar hélt
áfram reglulegum heimsóknum
til vina sinna, Siggu og Jóns, og
tóku þau nokkra slagi af kasínu
saman. „Hann Elli minn“ sagði
Sigga og Jón kallaði hann
„dýrðardindilinn“, nartaði
kannski líka aðeins í eyrað á
honum þegar hann kom. Þeir
horfðu saman á fótboltaleiki og
skemmtu sér konunglega og
Sigga ætíð til staðar líka. Dóra
litla sá fljótt hvað þessar heim-
sóknir voru eftirsóknarverðar
og fór að smokra sér með bróð-
ur sínum í eina og eina kvöld-
heimsókn. Vandaðist aðeins
málið þegar halda skyldi heim,
það bjó víst fjörulalli í hlöðunni,
við gamla húsið og svart bagga-
gatið var ógnandi í rökkrinu.
Sigga og Jón sáu við því, Jón
fylgdi henni heim og kvaddi
hana alltaf með orðunum: „Þú
ert yndisleg“ . Hvað er til betra?
Selma, litla systirin, mætti að-
eins of seint til að upplifa þessi
ævintýri.
Árin liðu, fjölskyldurnar
stækkuðu, þá komu tengda-
börnin og barnabörnunum fjölg-
aði. Alltaf gott að hitta þessa
vini þegar tækifæri gafst. Með
fjölskyldunni sinni ræktuðu
Sigga og Jón alla tíð allt það fal-
legasta og besta sem hægt er að
gefa. Það er dýrmæti sem aldrei
verður frá neinum tekið.
Minnumst með virðingu og
þökk þeirra elskulegu hjóna,
Siggu og Jóns á Fiskhól.
Sendum ástvinum öllum okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Gerða, Unnsteinn
og fjölskylda.
sem oft áður sagði Gunnar: „Ekk-
ert mál, afi minn.“ Það er erfitt að
hugsa til þess að þinni jarðvist sé
lokið, fyrsta barnabarnið okkar
og enn svo ungur. Þú hafðir orðið
mikla færni til að rata um frum-
skóg flugfargjalda og uppfylltir
oft drauma þína um ferðalög með
mjög hagkvæmum hætti auk
þess sem þú aðstoðaðir aðra með
það sama. Tölvukunnátta þín var
gagnleg, enda nutum við oft að-
stoðar þinnar við flókin tölvu-
verkefni. Þú notaðir oft gistingar
þeirra sem buðu fram „sófa-
gistingu“ án greiðslu, og hýstir
með sama hætti marga erlenda
gesti.
Við andlát þitt kom í ljós hve
vinmargur þú varst, bæði hér-
lendis og erlendis, enda vel
kynntur í dansinum og þátttöku í
ýmsum félagshreyfingum. Þú
varst barngóður og gafst þér
tíma til að tala við yngri frænd-
systkini þín, sem öll litu upp til
þín og dáðust að hári þínu og
skeggi. Þitt mikla skegg leiddi til
þátttöku þinnar í kvikmyndum,
ekki síst frá víkingatímabilinu.
Það voru fleiri en ég sem höfðu þá
von að þú myndir leggja lið við
starfsemi Komið og dansið þegar
þú værir búinn að skoða heiminn.
Hvíl í friði, Gunnar minn, og ég
veit að þú leggur lið öllum þeim
góðu málum sem á vegi þínum
verða.
Samúðarkveðjur sendum við,
ég og amma þín, sérstaklega til
mömmu þinnar og systkina þinna
sem sakna þín mikið. Þú varst
dáður af þeim og góð fyrirmynd.
Þinn móðurafi,
Gunnar Þorláksson.
Við fengum þá sorgarfrétt frá
Barcelona að bróðursonur minn
Gunnar Þór væri látinn. Andlát
koma manni alltaf á óvart, ekki
síst á ungu fólki. Það eru ekki lið-
in nema rétt þrjú ár síðan bróðir
minn og faðir Gunnars, Einar
Þór, yfirgaf okkur og það sár er
ekki gróið enn.
Það sem kemur fyrst í hugann
þegar hugsað er til Gunnars er að
í kringum hann var alltaf líf og
fjör og alltaf var hann tilbúinn til
að taka þátt í öllum þeim uppá-
komum sem Einsi bróðir fann
upp á. Skipti ekki máli hvort það
var að klæðast þjóðbúningum á
sautjánda júní eða leika jólasvein
til að keyra út jólagjafir.
Það er ógleymanleg minning
þegar Gunnar var um tveggja ára
gamall og víxlaði aðeins langöfum
sínum. Honum var sagt að langafi
væri dáinn og kominn til guðs.
Stuttu síðar kom hinn langafinn í
heimsókn og þá sagði Gunnar
kampakátur: „Afi, ertu kominn
aftur frá guði?“
Annað sem við munum alltaf
eftir er þegar Gunnar bjargaði
heimsókn frændsystkina frá
Þýskalandi. Þau komu í heim-
sókn í Dokkuna talandi bara
þýsku sem amman og afinn
kunnu ekki mikið í. Táningurinn
Gunnar kom þá í heimsókn og
með hjálp menntaskólaþýskunn-
ar gerði hann heimsókn þeirra
ógleymanlega.
Einu vorum við föðurfólkið
hans stolt af og það var hversu
góður dansari Gunnar var, held
ég geti alveg fullyrt að hann var
sá eini í stórfjölskyldunni sem gat
tekið dansspor án þess að traðka
á tám allra í kring eða detta kylli-
flatur í öðru skrefi. Okkur er svo
minnisstætt þegar hann dansaði í
brúðkaupi Jóns og Helenu að við
erum enn að tala um það 20 árum
síðar.
Við föðurfólkið sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur til
Kollu, Kristínar og annarra að-
standanda.
Árni G. Jónsson.
Svo sannarlega má segja að
laglínan „Lífið er glaumur, gleði,
gaman“ úr laginu Þýtur í laufi,
bálið brennur, hafi verið einn-
kunnarorð Gunnars Þórs, elsta
systkinabarns míns, sem naut
lífsins í Barcelona þegar hann féll
frá, langt fyrir aldur fram. Við
áttum það sameiginlegt að þessi
borg náði tökum á okkur. Bæði
náðum við að búa þar, þó að nokk-
ur ár hafi verið á milli búsetu okk-
ar þar.
Þegar ég minnist Gunnars
Þórs, þá sé ég hann fyrir mér
syngjandi, dansandi, að segja
sögur eða bara að spjalla um allt
og ekkert við mig, son minn eða
hvern sem á vegi hans varð. Hann
var alltaf að skipuleggja næsta
ævintýri, hvort heldur sem það
var á Íslandi eða í öðrum heims-
hlutum en ferðalög voru eitt af
því sem hann naut hvað mest. Að
henda sér í sófa hjá þeim sem
bjuggu á svæðinu sem hann fór til
eða taka á móti fólki í sinn sófa,
gerði það að verkum að hann
komst strax inn í lífið á staðnum
og eignaðist vini um allan heim,
enda var hann fljótur að mynda
tengsl við fólk.
Það voru þung spor að fylgja
fjölskyldunni að sækja þig til
Barcelona elsku Gunnar minn. Á
sama tíma var ómetanlegt fyrir
okkur að hitta fjölmarga vini þína
í Barcelona eða „Barcelona
family“ eins og þið kölluðuð ykk-
ur og fá að heyra hvar og hvernig
þau kynntust þér. Algengast var
að samtalið hæfist á því að þú
segðir „Hello my friend“ og áður
en kvöldið var liðið var samtalið
orðið dýpra og vináttuneistinn
tendraður. Flestir minntust
faðmlaganna þinna, sem voru
þétt og föst og stóðu oft í dágóðan
tíma, að syngja með þér, hlusta á
þig syngja, að dansa við þig eða
horfa á þig dansa þar sem þú
lékst á als oddi. Þú kynntir þig oft
og varst þekktur sem Thor the
Icelandic Viking, Gentleman Vik-
ing og Thunder.
Við Guðmundur Ragnar sonur
minn minnumst allra góðu og
skemmtilegu stundanna með þér
í gegnum árin, hvort sem það var
í afmælum, jólaboðum eða á öðr-
um fjölskyldusamverustundum
ásamt gæðastundum í Galta-
lækjarskógi, sumarparadís stór-
fjölskyldunnar.
Það er svo sannarlega hægt að
segja að þú hafir þotið í gegnum
laufin í glaum og gleði með gam-
an og jákvæðni að leiðarljósi. En
nú er bál þitt tendrað á nýjum
stað, hvort heldur þú hefur valið
að ferðast til guðs- eða goða-
heima. Ég veit þú heldur áfram
að syngja og dansa í glaumi, gleði
og hafa gaman af, elsku íslenski
víkingurinn okkar.
Kærleiksknúskveðjufaðmlag,
Lilja og
Guðmundur Ragnar.
Nú er komið að kveðjustund,
elsku Gunnar Þór.
Það var mikil eftirvænting á
mínu heimili þegar von var á þér í
heiminn Gunnar Þór, þú varst
fyrsta barnabarn Kolbrúnar
ömmu þinnar og Gunnars afa og
fyrsta systkinabarnið mitt. Það
var heilmikil ábyrgð fannst mér
að verða móðursystir og kom það
oft í minn hlut að passa þig þegar
þú varst lítill. Ég man að ég pass-
aði þig sumarið þegar þú varst
rétt sex mánaða gamall, ásamt
ömmu þinni, þegar mamma þín
var farin að vinna eftir fæðingar-
orlofið. Ég man hvað ég gekk
stolt um hverfið með þig í litla
græna barnavagninum, enda
fannst mér þú vera fallegasta
barnið í þessum heimi. Þú varst
alveg sérstaklega blíður, góður
og brosmildur, með stór og falleg
blá augu, algjör krúttbomba. Þú
varst svo skýr og klár og fljótur
að læra. Þú varst farinn að lesa
strax á leikskólaaldri og gast les-
ið sumar bækur bæði áfram og
aftur á bak
Þú varst strax mikið náttúru-
barn og alltaf til í að gera eitthvað
skemmtilegt. Þú varst í skátun-
um, æfðir dans o.fl. Þér fannst
gaman að syngja og þegar þú
varst lítill tókst þú þátt í söngva-
keppni barna í Galtalæk. Ég man
ennþá vel hvað þú söngst fallega
og skýrt.
Það er minnisstætt hvað þér
fannst gaman að dansa, alveg frá
því að þú varst lítill strákur í sam-
kvæmisdönsunum og sem ung-
lingur í Komið og dansið, þar sem
þú dansaðir við mömmu þína og
ömmu báðar í einu og vafðir þeim
um fingur þér. Síðan fannstu þinn
eigin danstakt sem var lindy hop
og varst í stórum danshóp, bæði
hér heima og erlendis.
Þér fannst alltaf gaman að
ferðast og nýttir hvert tækifæri
til þess. Það var aðdáunarvert
hvað þú varst opinn fyrir lífinu og
tilverunni og tilbúinn að hleypa
fólki að þér og kynnast því, hvað-
an sem það var úr veröldinni,
enda hafðir þú stóran og þéttan
faðm og umvafðir alla þína vini og
fjölskyldu.
Þú varst alltaf fjölskylduræk-
inn og mættir í öll fjölskylduboð
sem þú komst í og það var alltaf
jafn gaman og skemmtilegt að
spjalla við þig. Yngri frændsystk-
inum þínum fannst þú vera glað-
legur, skemmtilegur og framandi
með þitt síða skegg og þitt vík-
ingalega útlit og fas.
Elsku Gunnar Þór. Takk fyrir
samfylgdina í þessu lífsins ferða-
lagi hér á jörð. Þín verður sárt
saknað.
Elsku Kristín Þóra, Einar,
Kolbrún Þóra, Kristinn Már,
Guðbjörg Heiða og Baldur Heið-
ar. Okkar dýpstu samúðarkveðj-
ur á þessum erfiðu tímum.
María Gunnarsdóttir
og fjölskylda.