Morgunblaðið - 27.07.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
Dýrahald
Collie / Lassie hvolpar til sölu
Collie eru einstaklega geðgóðir og
fjölskylduvænir hundar. Hvolparnir
eru með ættbók HRFI og standast
kröfur HRFI, afhending samkomulag
Uppl. í síma 8935004
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Málarar
MÁLARAR
Tökum að okkur alla
almenna málningarvinnu.
Unnið af fagmönnum með
áratuga reynslu,
sanngjarnir í verði.
Upplýsingar í síma
782 4540 og
loggildurmalari@gmail.com
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine í
Martin Slóvakíu heldur online
inntökupróf í læknisfræði 12. ágúst
n.k. Umsóknarfrestur til 1. ágúst.
www.jfmed.uniba.sk/en
uppl. kaldasel@islandia.is
og 820 1071
University of Veterinary medicine
and Pharmacy.
Dýralæknaskólinn í Košice Slóvakíu
heldur online inntökupróf 18. ágúst
nk. Umsóknarfrestur til 28. júlí.
www.uvlf.sk/en Upplýsingar
kaldasel@islandia.is og 8201071
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Útileikfimi kl. 10.
Félagsráðsfundur kl. 11. Pílukast kl. 13. Dansleikfimi kl. 14:15.
Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir.
Sími: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00.
Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Hádegismatur kl.
11:30-12:30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Söguganga um
hverfið okkar kl. 13:30-14:00. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á
könnunni. Félagsvist frá kl. 13:00.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna
– opin vinnustofa 13:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Spil og kaplar kl.
13:15. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum
áður.
Korpúlfar Borgum Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir
styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Bridge
kl. 12:30. Opið frá kl. 08:00 til 15:00 og heitt á könnunni frá kl. 08:30,
frjáls spilamennska og handavinna.Tilvalið fyrir vina og
vinkvennahópa að hittast. Hittumst í sumarskapi, gleðin býr í
Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Opin handverksstofa
9:00-12:00 - Opin handverksstofa 13:00-16:00 & síðdegiskaffið á
sínum stað frá 14:30-15:30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450.
Öll hjartanlega velkomin til okkar :)
Seltjarnarnes Kaffi í króknum frá kl. 9:00. Boccia í salnum á
Skólabraut kl 10:00. Frjáls stund; handavinna samvera og kaffi kl.
13:00. Á morgun kl. 13:30 er Bingó í salnum á Skólabraut. Spjaldið
kostar 250 kr.
!'$&.'"'"%-#.%//,.
)(+*
Breyting á Aðalskipulagi Kaldrananes-
hrepps 2010-2030 og nýtt deiliskipulag
Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps samþykkti á fundi
sínum þann 12. apríl 2022 sl. að auglýsa tillögur að
breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og nýju
deiliskipulagi í landi Ásmundarnes sem er bújörð við
fjarðarbotn í Bjarnarfirði, milli Hallardalsár og Deildarár
í samræmi við 31.gr. og 41.gr.skipulags laga
nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu á landnotkun þar sem gert
er ráð fyrir frístundabyggð (FS11) og iðnaðarsvæði
(I11) á svæðinu. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir
sjö frístundahúsalóðum á svæði sem er 3,8 ha og
iðnaðarsvæðið sem er 5,3 ha að stærð.
Skipulagstillagan veður til sýnis í húsnæði Verslunar-
félgsins á Drangsnesi og á heimasíðu Kaldrananes-
hrepps, drangsnes.is.
Hver sá sem telur sig eiga hagsmuni að gæta er
þannig gefinn kostur á að kynna sér tillögurnar og
gera athugasemdir við þær. Athugasemdum skal
vinsamlegast skilað til skrifstofu Kaldrananeshrepps
að Holtagötu, 520 Drangsnesi eða á netfangið
skipulag@dalir.is í síðasta lagi fyrir 9. september 2022.
Arwa Alfadhli,
Skipulagsfulltrúi Kaldrananeshrepps.
Rað- og smáauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Tilkynningar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
með
morgun-
!$#"nu
✝
Sigurður Ást-
ráðsson fædd-
ist 11. desember
1945 í Reykjavík.
Hann lést á Ási í
Hveragerði 16. júlí
2022.
Foreldrar Sig-
urðar voru Ástráð-
ur Sigursteindórs-
son, skólastjóri f.
1915, d. 2003, og
Ingibjörg H. Jóels-
dóttir, f. 1919, d. 2008. Systkini
hans eru Valgeir, f. 1944, og
Herdís, f. 1953.
Eftirlifandi eiginkona hans
er Guðný Bjarnadóttir, f. 1950.
Einkadóttir þeirra er Ásta
Björk, f. 1976. Hennar eigin-
maður er Willy Blumenstein, f.
1974. Synir þeirra eru Sigurður
Bjarki, f. 2001, og Sólon, f.
2006.
Sigurður var alinn upp í
Laugarneshverfinu, Sigtúni 29.
Hann lauk gagn-
fræðaprófi og prófi
í bílasmíði. Sig-
urður bjó lengst af
á Selfossi en þau
hjónin fluttu þang-
að ásamt dóttur ár-
ið 1978. Starfsvett-
vangur hans var
alla tíð tengdur bíl-
um og flutningum.
Hann var rútu- og
flutningabílstjóri.
Stjórnaði eigin
vöruflutningafyrirtæki um ára-
bil á Selfossi og var síðar
rekstrarstjóri Samskipa þar.
Sigurður var félagslyndur og
vinamargur, starfaði ungur í
KFUM. Í Vatnaskógi lágu eftir
hann mörg handtök sem voru
honum kær. Hann var félagi í
frímúrarareglunni.
Sigurður verður jarðsunginn
frá Selfosskirkju í dag, 27. júlí
2022, klukkan 14.
Elskulegur tengdafaðir minn,
Sigurður Ástráðsson, hefur kvatt
okkur eftir langvinn og erfið veik-
indi.
Ég kynntist Sigga haustið 1996
þegar við Ásta, dóttir hans, byrj-
uðum að vera saman. Ég sá strax
að þarna væri litríkur og skemmti-
legur karakter á ferð þar sem
húmorinn var aldrei langt undan.
Siggi tók mér strax opnum örmum
og náðum við vel saman frá fyrstu
kynnum. Á þessum árum rak hann
Flutningamiðstöð Suðurlands og
vann ég hjá honum tvö sumur á
námsárunum. Þar var oft handa-
gangur í öskjunni og sjaldnast
lognmolla. Siggi var í sínu besta
elementi þegar það var rúmlega
meira en nóg að gera, helst með
tvo síma á lofti, brett upp á ermar
og handarbakið útkrotað. Ef það
voru vandamál þá var ekkert sem
ein Salem og kók í gleri gátu ekki
lagað. Hann var alltaf vakinn og
sofinn yfir vinnunni og skipti þá
engu hvað klukkan sló það var allt-
af hægt að ná í hann.
Siggi elskaði að ferðast. Hér
heima þekkti hann hverja þúfu
með nafni eftir mörg ár í rútu-
bransanum. Á ferðalögum um
landið jós hann af fróðleik sínum
um hina og þessa staði, menn og
málefni svo eftir var tekið. Þegar
kom að ferðalögum erlendis
fannst honum ekkert skemmti-
legra en að taka flug og bíl. Það
þótti ekkert tiltökumál að keyra
hundruð kílómetra með lauslegt
plan í huga og láta svo bara ráðast
hvar gist yrði, það myndi alltaf
reddast. Honum var alls staðar vel
tekið enda opinn og alþýðlegur í
samskiptum. Þessar ferðir voru
honum eftirminnilegastar og oft
rifjaðar upp.
Siggi var mikill fjölskyldumað-
ur sem var alltaf boðinn og búinn
til að rétta sínum nánustu hjálp-
arhönd og skipti þá engu þótt
keyra þyrfti tugi kílómetra til þess
arna, alltaf var Siggi klár. Ómet-
anleg er öll sú aðstoð sem við höf-
um fengið í gegnum tíðina. Siggi
vann í lottóinu þegar hann kynnt-
ist eiginkonu sinni Guðnýju. Hún
hefur verið honum og okkur fjöl-
skyldunni stoð og stytta í gegnum
lífið.
Afadrengirnir voru í miklu
uppáhaldi hjá Sigga og leið þeim
hvergi betur en í góðu dekri hjá
afa og ömmu á Selfossi. Þær
stundir verða þeim ætíð ógleym-
anlegar. Hið sama má segja um
okkur Ástu sem höfum eytt ófáum
gæðastundum hjá þeim hjónum á
Selfossi.
Sigga verður ætíð minnst fyrir
mikinn dugnað og orkusemi. Hann
var jafnframt einstakt góðmenni
og vildi öllum vel, var með létta
lund og mikill húmoristi. Manni
leið ávallt vel í návist hans. Ég er
afar þakklátur fyrir allar þær
stundir sem við áttum saman og
munu minningar um þær lifa í
hjarta mínu að eilífu.
Hvíldu í friði, elsku Siggi minn.
Willy Blumenstein.
Minn kæri bróðir er látinn.
Sorg og söknuður fylla hugann.
Minningarnar hrannast upp.
Hann hefur átt við erfið veikindi
að stríða. Nú hefur hann fengið
hvíldina. Það var erfitt en yndis-
legt að fá að fylgja honum þessa
leið.
Diddi var alltaf glaður, hress og
húmorinn hans alltaf til staðar.
Við systkinin vorum alin upp á
kristnu heimili og segjum stund-
um að beðið hafi verið fyrir okkur
um leið og við urðum til. Kristin-
dómurinn og bænirnar hafa lifað
með okkur alla tíð. Nú er gott að
kunna að biðja, finna fyrir þakk-
læti og eiga yndislegar minningar.
Ég var átta árum yngri en Diddi
og yfirmáta stolt af bróður mínum.
Í gegnum lífið hef ég hitt fólk
sem þekkti Didda og alstaðar
hrósað honum. Hann átti það skil-
ið.
Alltaf hress, mannblendinn,
hjálpsamur og greiðvikinn. Allir
elskuðu Didda bróður.
Hann elskaði fjölskylduna sína,
elsku Guðnýju, Ástu Björk, Willy,
Sigurð Bjarka og Sólon. Öll hafa
þau elskað hann og staðið með
honum eins og klettur.
Far þú í friði elsku bróðir. Frið-
ur Guðs þig blessi.
Herdís Ástráðsdóttir.
Látinn er góðvinur minn, Sig-
urður Ástráðsson, eftir langdregin
og erfið veikindi. Sigurður var mér
góður vinur gegnum árin, átti allt-
af eitthvað skemmtilegt í poka-
horninu til að segja við mig, þannig
að þegar við kvöddumst, var mér
alltaf léttara í skapi en áður en við
hittumst. Sigurður var góður faðir
og eiginmaður, en kona hans og
dóttir þeirra voru tvær meginstoð-
ir í lífi hans. Hann hafði byggt sér
góðan sumarbústað sem hann
mátti vera stoltur af. Ég minnist
með ánægju heimsókna minna til
hans og hvernig hann sýndi mér
staðinn og handverk sín.
En nú er Sigurður horfinn til
betri heima. Hann skildi veikindin
og þjáningarnar eftir á jörðu hér
og dvelur nú á betri stað. Ég trúi
því að hann líti til okkar hinum
megin frá af sömu góðvild og kær-
leika og honum var svo lagið. Og
okkur sem eftir sitjum má það vera
huggun harmi gegn að hann getur
nú gengið glaðbeittur til allra sinna
verkefna, á sama hátt og hann
gerði hérna megin.
Ég votta eiginkonu hans, dóttur
þeirra og öðrum aðstandendum
innilega samúð mína.
Björn Matthíasson.
Föðurgarður Sigurðar Ástráðs-
sonar og systkina hans í stórhrein-
legu steinhúsinu númer 29 við Sig-
tún í Reykjavík var sannkallað
menningarheimili. Þar var svart-
gljáandi slagharpa, sem hafði mjög
eindregna návist, eins og stóru
sjónvarpsskjáirnir núna, en auk
þess forláta radíógrammófónn,
hljómplötu- og bókasafn. Ungviðið
sat með raddskrá (partitur) á
hnjánum og hlýddi hugfangið á
snilldarverk gömlu meistaranna.
Áratugum síðar minntist Siggi
þess kíminn, – reyndar var hann í
gamla daga kallaður Diddi – hve
oft „Das Wohltemperierte Klavier“
hefði borið á góma.
Byggingin er tvö gólf og ris, auk
jarðhæðar. Uppi á lofti áttu heima
Sveinn Ólafsson, lágfiðluleikari og
kona hans, Hanna Sigur-
björnsdóttir, ásamt þremur sonum
þeirra. Niðri var íbúð afa og ömmu
Didda, Sigursteindórs Eiríkssonar
frá Löndum á Hvalsnesi, konu
hans, Sigríðar Jónsdóttur frá
Káragerði í Vestur-Landeyjum, og
Bjarna sonar þeirra.
Í austasta húsinu við Sigtún áttu
heima Friðjón, skrifstofustjóri Al-
þingis, og Áslaug kona hans. Þeim,
sem höfðu þá hamingju að kynnast
sonum þeirra, er í barnsminni veg-
legt dúfnahúsið á Steinatúninu,
sem svo hét, þar nærri sem farið er
um hlið íþróttavallarins í Laugar-
dal núna. Manngengt var í það og
veggir búnir hreiðurhólfum; hug-
blærinn í þessu inni er ógleyman-
legur.
Diddi, sem alla ævi var léttur í
lund og hláturmildur, rifjaði það
stundum upp, að í Miðbæjarskóla
hefði einn krakkinn „ekki rekist“,
verið því komið fyrir í Laugarnes-
skóla og orðið að taka sér far með
strætisvagninum neðan úr bæ. En
hann var svo heppinn að vera vísað
til sætis við hliðina á Valgeiri, bróð-
ur Didda. Viðurgerningurinn, sem
hann naut árum saman á heimili
guðfræðingsins Ástráðar skóla-
stjóra og Ingibjargar konu hans –
en þau voru foreldrar bræðranna
og Herdísar, systur þeirra, – verð-
ur aldrei fullþakkaður. Guð launi
og blessi minningu þeirra góðu
hjóna.
Fyrst svo var komið heilsu
Didda, sem raun ber vitni, þökkum
við, í Jesú nafni, að hvíldin er kom-
in, hvíldin heila og holla frá allri
þraut. Í hendur Guði leggjum við
þakkarefnin hans fyrir það sem líf-
ið færði og krafði. Gjafaranum alls
góðs felum við þakklætið til ástvin-
anna fyrir það góða, sem þau
reyndust honum. Megi gagnkvæm-
ar þakkir þeirra fyrir það, sem Guð
gaf þeim, bera yfir skugga tregans
og sveipast skærri birtu þeirra fyr-
irheita, sem við eigum í helgu vori,
þar sem allt er orðið nýtt, og þar
sem Sigurður Ástráðsson er að ei-
lífu heill og sæll og blessaður í nafni
Jesú Krists, sem fyrir hann er dá-
inn og fyrir hann er upprisinn og
geymir hann og gleður að eilífu.
Gunnar Björnsson,
pastor emeritus.
Sigurður
Ástráðsson
Ástkær bróðir minn,
ÓLAFUR ÞÓR FRIÐRIKSSON,
verslunarmaður,
áður til heimilis í Krummahólum 6,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 16. júlí. Útförin fer fram frá
Fossvogskapellu fimmtudaginn 28. júlí klukkan 11.
Páll Friðriksson