Morgunblaðið - 27.07.2022, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2022
_ Elías Rafn Ólafsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, og sam-
herjar hans í Midtjylland eru öruggir
með sæti í riðlakeppni Evrópumótanna
í haust eftir að þeir slógu AEK Larnaca
frá Kýpur út í 2. umferð Meistaradeild-
arinnar í gær. Þeir unnu í víta-
spyrnukeppni eftir að báðir leikir lið-
anna enduðu 1:1. Falli Midtjylland út í 3.
eða 4. umferð fer liðið í riðlakeppni Evr-
ópudeildar. Kýpurbúum mistókst að
skora úr tveimur vítaspyrnum hjá Elíasi
en þeir skutu í slá og stöng.
_ Varnarmaðurinn Adam Örn Arnar-
son er kominn til Leiknis í Reykjavík í
láni frá Breiðabliki, toppliði Bestu deild-
ar karla í fótbolta. Adam, sem er 26 ára
gamall, kom til Breiðabliks frá Tromsö í
Noregi fyrir þetta tímabil en hefur að-
eins komið við sögu í tveimur leikjum í
deildinni á tímabilinu. Honum er ætlað
að styrkja varnarleik Leiknismanna sem
hafa fengið á sig níu mörk í síðustu
tveimur leikjum.
_ Danski knattspyrnumaðurinn Lasse
Petry er kominn til liðs við Vals á ný eft-
ir stutta dvöl hjá FH en hann skipti um
félag í gærkvöld, rétt áður en lokað var
fyrir félagaskiptin á þessu ári. Petry lék
með Val 2019 og 2020, síðan með Köge
í Danmörku en kom til liðs við FH í vor.
_ Valsmenn fengu líka í gærkvöld varn-
armanninn Arnór Inga Kristinsson frá
Leikni í Reykjavík. Hann er 21 árs og
hefur leikið alla fjórtán leiki Leiknis í
Bestu deildinni í ár, sex þeirra sem
varamaður.
_ Oliver Haurits, danski framherjinn
sem hefur leikið með knattspyrnuliði
Stjörnunnar undanfarið ár, gekk í gær
til liðs við HK og samdi við Kópavogs-
félagið til tveggja ára. Haurits, sem er
21 árs gamall, skoraði þrjú mörk í 17
leikjum fyrir Stjörnuna í efstu deild, þar
á meðal sigurmark liðsins gegn Val fyrr
í sumar. Hann á að fylla skarð Stefáns
Inga Sigurðarsonar, markahæsta leik-
manns HK á tímabilinu, sem er á leið í
nám til Bandaríkjanna.
_ Lorena Baumann, knattspyrnukona
frá Sviss sem lék með Þrótti í Reykjavík
á síðasta tímabili, er komin aftur í
Laugardalinn og spilar með Þrótturum
út þetta tímabil. Hún lék með St. Gallen
í Sviss í vetur.
_ Sænski knattspyrnumarkvörðurinn
Eva Nichole Persson er komin til
Breiðabliks en hún var varamarkvörður
hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Piteå.
Hún ver væntanlega mark Blika í næstu
leikjum þar sem Telma Ívarsdóttir
glímir við meiðsli.
_ Madison Wolfbauer, knattspyrnu-
kona frá Bandaríkjunum, er komin til
liðs við ÍBV. Hún er 22 ára framherji og
lék í næstefstu deild Frakklands á síð-
asta tímabili.
_ Kvennalið Aftureldingar í knatt-
spyrnu fékk í gær tvo spænska leik-
menn til liðs við sig og hefur þar með
fengið fjóra erlenda leikmenn í sínar
raðir í þessari viku. Þær Verónica Par-
reno, 22 ára miðjumaður, og Sara
Roca, 27 ára framherji, koma báðar frá
spænska B-deildarliðinu Elche.
_ Daníel Leó Grétarsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, var valinn í úrvals-
lið annarrar umferðar pólsku úrvals-
deildarinnar. Daníel lék mjög vel með
Slask Wroclaw og skoraði sigurmarkið í
2:1 sigri á Pogon Szezecin um síðustu
helgi.
Eitt
ogannað
EM 2022
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Englendingar geta orðið Evrópu-
meistarar kvenna í fótbolta á heima-
velli á sunnudaginn kemur eftir að
enska liðið vann afar sannfærandi
sigur á Svíum, 4:0, í undanúrslitaleik
þjóðanna á troðfullum Bramall Lane-
leikvanginum í Sheffield í gærkvöld.
Beth Mead kom Englandi yfir eftir
rúmlega hálftíma leik og Lucy
Bronze bætti við skallamarki í upp-
hafi síðari hálfleiks.
Varamaðurinn Alessia Russo kom
enska liðinu í 3:0 um miðjan síðari
hálfleik með magnaðri hælspyrnu og
tíu mínútum síðar innsiglaði Fran
Kirby sigurinn.
Beth Mead hefur þar með skorað
sex mörk í keppninni og jafnaði með
því markamet í úrslitakeppni EM en
Inka Grings skoraði sex mörk fyrir
Þýskaland árið 2009.
Fjögur mörk sem varamaður
Alessia Russo hefur skorað fjögur
mörk þrátt fyrir að hún hafi komið
inn á sem varamaður í öllum leikjum
enska liðsins. Hin hollenska Sarina
Wiegman hefur verið íhaldssöm í
liðsvali sínu og stillt upp sama byrj-
unarliðinu í öllum fimm leikjum
keppninnar, rétt eins og Lars Lager-
bäck og Heimir Hallgrímsson gerðu
með íslenska karlalandsliðið á EM í
Frakklandi fyrir sex árum.
Þetta verður fyrsti úrslitaleikur
Englendinga í þrettán ár, eða frá því
enska liðið tapaði úrslitaleik EM í
Finnlandi gegn Þjóðverjum árið
2009. England tapaði líka fyrir Sví-
þjóð í úrslitaleik fyrsta Evrópumóts-
ins árið 1984 og freistar þess því að
verða Evrópumeistari í fyrsta sinn á
sunnudaginn.
Enska liðið braut ísinn með þess-
ari frammistöðu í gærkvöld en það
hefur tapað í undanúrslitum í síðustu
þremur stórmótum, HM 2015, EM
2017 og HM 2019.
Óhætt er að segja að enska liðið
hafi farið á kostum á þessu Evrópu-
móti þrátt fyrir að það hafi lent í
miklum vandræðum með Spánverja í
átta liða úrslitunum. Markatala liðs-
ins í fimm leikjum í keppninni er
20:1.
Mótherjinn á Wembley á sunnu-
daginn verður annaðhvort Þýskaland
eða Frakkland sem mætast í seinni
undanúrslitaleiknum í Milton Key-
nes í kvöld.
Svíar kaffærðir í Sheffield
- England leikur til úrslita um Evrópumeistaratitilinn gegn Þýskalandi eða
Frakklandi - Markatalan er 20:1 - Beth Mead jafnaði markametið á EM
AFP/Lindsey Parnaby
Sheffield Fran Kirby, Millie Bright og Keira Walsh fagna sætum og stórum sigri á Svíum í Sheffield. Þær eiga nú
fyrir höndum úrslitaleik um Evrópumeistaratitilinn á Wembley á sunnudaginn, gegn Þjóðverjum eða Frökkum.
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving,
sem var einn landsliðsmarkvarða
Íslands á EM á Englandi, hefur ver-
ið lánuð frá Val til ÍBV og verður
þar út þetta tímabil. Hún á þar að
leysa af Guðnýju Geirsdóttur, sem
er úr leik vegna meiðsla.
Auður kannast vel við sig í Eyj-
um en hún var í láni hjá ÍBV undan-
farin tvö tímabil. Þá lék hún fyrri
hluta yfirstandandi tímabils í marki
Aftureldingar í Bestu deildinni, í
láni frá Val. Auður er tvítug og hef-
ur leikið 36 leiki í deildinni með
ÍBV, Aftureldingu og Val.
Auður aftur í
mark ÍBV
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Eyjar Auður Scheving í leik með
ÍBV á síðasta keppnistímabili.
Hildur Björg Kjartansdóttir, lands-
liðskona í körfuknattleik, hefur
samið við belgíska félagið Namur
um að leika með því á næsta tíma-
bili. Hildur er 27 ára framherji og
hefur leikið með Val undanfarin tvö
ár en áður með KR, spænsku lið-
unum Celta Vigo og Leganés og
með Snæfelli framan af ferlinum.
Hún á að baki 334 landsleiki fyrir
Íslands hönd.
Namur, sem er frá samnefndri
borg, hafnaði í þriðja sæti í Belgíu
síðasta vetur og féll út í undan-
úrslitum um meistaratitilinn.
Hildur Björg
samdi í Belgíu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Namur Hildur Björg Kjartansdóttir
fer í eitt af bestu liðum Belgíu.
Baráttan um sæti í Bestu deild kvenna í fót-
bolta er áfram galopin og tvísýn eftir að liðin
í öðru og þriðja sæti, HK og Tindastóll, gerðu
jafntefli í Kórnum í Kópavogi í gærkvöld, 1:1.
Mörkin komu á fyrstu fimmtán mínútum
leiksins en Hugrún Pálsdóttir kom Skagfirð-
ingum yfir og Isabella Eva Aradóttir, fyr-
irliði Kópavogsliðsins, var fljót að jafna met-
in. Amber Michel lék mjög vel í marki
Tindastóls og átti drjúgan þátt í að liðið fór
heim með stig.
Í Grindavík unnu Víkingar sigur, 1:0, með
marki Töru Jónsdóttur, og nálguðust með því
efstu liðin en Víkingskonur komust í fjórða
sætið, þremur stigum á eftir Tindastóli,
þannig að baráttan er galopin.
FH stendur best að vígi þó liðið sé jafnt HK
með 26 stig því Hafnfirðingarnir eiga tvo
leiki til góða og fá Austfirðingana í Fjarða-
byggð/Hetti/Leikni í heimsókn í Kaplakrika
í kvöld. Austanliðið er hinsvegar enn með í
baráttunni í efri hlutanum og er sýnd veiði en
ekki gefin.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kórinn Hannah Jane Cade hjá Tindastóli og Gabriella Coleman hjá HK í viðureign liðanna í Kópavogi.
Skildu jöfn í
toppslagnum