Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Síða 2
Hver ert þú?
Ég heiti Daniel Pilkington og er með propsgerð í kringum
Pilkington Props en kærastan mín, Björg Einarsdóttir, er
með mér í þessu. Við búum til alls konar props en erum helst
í búningavinnslu og stærri fígúrum. Við gerðum til að mynda
tröllið sem heitir SúVitra sem finna má í Flyover Iceland.
Ertu lærður í þessu?
Ég er með háskólapróf frá listaháskóla í Bournemouth. Ég
lærði tæknibrellur og sérsvið mitt er að búa til karaktera, en
ég er í fullri vinnu hjá fyrirtæki sem heitir Parity Games.
Hvað er nýjasta verkefnið?
Ég er með í samstarfsverkefni með Reykjavíkurborg og
Hringleik, en árið 2019 gerðum við miðgarðsorminn fyrir
skrúðgönguna 17. júní, en svo voru engin hátíðarhöld næstu
tvö árin. Nú fengum við aftur tækifæri með stuttum fyrirvara
og bjuggum til tröll sem fékk nafnið Tufti. Þessi tröllahugmynd
hefur verið að malla í nokkur ár, en pabbi, Brian Pilkington,
teiknar mikið tröll í sínum bókum. Mér finnst gaman að fá að nýta
hans teikningar og blása lífi í þær.
Hvað er þetta stórt tröll?
Það er erfitt að meta fyrst ég er yfirleitt í búningnum en það er að
minnsta kosti þrír metrar á hæð.
Ætlar þú að leiða skrúðgönguna 17. júní?
Já, og tvö tröllabörn en þau leika akróbatar frá Hringleik.
Verða ekki börnin hrædd við þig?
Jú, mér finnst það mjög sennilegt, börnin hafa reynst vera mis-
spennt fyrir tröllinu en sumum finnst þetta geggjað og önnur eru
skíthrædd.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
DANIEL PILKINGTON SITUR
FYRIR SVÖRUM
Blæs lífi
í tröllÁhugafólk um flinka lagahöfunda í íslenskri dægurlagatónlist ætti að fá
töluvert fyrir sinn snúð í Sunnudagsblaðinu þessa vikuna. Í blaðinu er
að finna viðtöl við bæði Valgeir Guðjónsson og Bjartmar Guðlaugsson
sem hafa skilið eftir sig ófáar perlurnar og er ævistarfinu þó ekki lokið.
Eiga þessar kempur ýmislegt sameiginlegt í tónlistinni og eru liprari í texta-
gerð en gengur og gerist í poppinu. Búa yfir góðu valdi á íslenskunni og drjúg-
um orðaforða. Báðir hafa þeir þann eiginleika að geta séð spaugilegar hliðar á
tilverunni og eru gjarnan hnyttnir í tilsvörum þegar fjölmiðlar hafa tekið þá
tali. Ýmislegt er þó ólíkt á þeirra ferli.
Valgeir var lengi í mjög vinsælum
hljómsveitum en Bjartmar gaf lengst
af út sólóplötur.
Í einhverjum heimildarþættinum
sem gerður var um hljómsveitina
Stuðmenn var komið inn á metnað
hljómsveitarmeðlima til að stíga á
svið í fjölbreyttum og skrautlegum
búningum. Sagði Valgeir að hann
hlyti að vera eini ryþmagítarleikari
landsins sem komið hefði fram á tón-
leikum á sundskýlu. Þótt sundlaug-
arnar séu álíka rækilega greyptar í
íslenska þjóðarsál eins og Stuðmenn
þá mátti heyra á Valgeiri að honum
hefði ekki þótt þetta hlutskipti sitt
eftirsóknarvert, en gamalkunnugt glott var reyndar á sínum stað.
Þótt Valgeiri hafi eflaust þótt óþægilegt að leika á gítar á sviði á sundskýlu
þá fölnar slík áskorun hjá þeirri sem hann mátti takast á við á síðasta ári og
hann lýsir í blaðinu. Krabbameinið getur verið lúmskur vágestur og í tilfelli
Valgeirs var hann ekki kvalinn í aðdraganda greiningarinnar.
Valgeir og Bjartmar eru enn að gleðja fólk með tónlistarsköpun sinni og
Bjartmar verður með tónleika af og til næstu mánuðina um leið og hann vinnur
að nýju efni með Bergrisunum. Ég tengdi alltaf ágætlega í uppvextinum við
setninguna frægu „mér er sagt að þegja meðan fréttatíminn er,“ sem heyra má
í lagi Bjartmars: Súrmjólk í hádeginu. Mér skilst að þegar fréttalestri lauk, og
íþróttafréttir tóku við, hafi hinir fullorðnu ætlað að rjúfa þögnina en þá hafi ég
sussað á móti. Teljast verður líklegt að þetta gæti átt sér stoð í raunveruleik-
anum. Fyrir þá sem yngri eru er ekki heiglum hent að skilja hvernig fjölmiðla-
umhverfið var áður en hið háæruverðuga internet kom til sögunnar. Þá skipti
máli að komast í Moggann til að lesa frétt eða heyra og sjá fréttatíma til að ná
því nýjasta. Langur tími gat liðið þar til næsta tækifæri gafst og sussið sem
Bjartmar fangaði var því vel þekkt.
Kempur sem
enn gefa af sér
Pistill
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
’
Þótt Valgeiri hafi ef-
laust þótt óþægilegt
að leika á gítar á sviði á
sundskýlu þá fölnar slík
áskorun hjá þeirri sem
hann mátti takast á við á
síðasta ári og hann lýsir í
blaðinu
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022
Auður Björnsdóttir
Ég ætla að vera heima hjá mér á
Norðurlandinu og njóta sólar þar.
SPURNING
DAGSINS
Hvert
ætlarðu í
sumarfrí?
Aron Sveinn Elínarson
Ég fer til Ítalíu í fimm daga, til
Portofino.
Kolbrún Þóra Björnsdóttir
Ég fer til Tenerife með tvö tíu ára
barnabörn og ætla svo að vera í bú-
staðnum mínum í Borgarfirði.
Guðmundur Logi Hjartarson
Ég ætla á Úlfljótsvatn og til Belgíu.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Kristinn Magnússon
Tufti, tröllið hans Daniels Pilkingtons, mun leiða skrúðgönguna í
Reykjavík 17. júní og síðar mun það skemmta börnum í Hljóm-
skálagarðinum. Daniel tekur einnig þátt í Flipp Festival Hringleiks
sem haldið verður 25.-26. júní. Upplýsingar má finna á hringleikur.is.
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Allar almennar bílaviðgerðir
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is