Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Page 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022
Algeng einkenni B-12 skorts:
• Nálardofi í hand- og fótleggjum
• Erfiðleikar með gang
• Skapsveiflur
• Minnisleysi
Munnúði tryggir hraða og góða upptöku
þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í
gegnum slímhúðina í munninum og beint út í
blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í
munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til a
tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12
vítamíni og til að verja okkur gegn skorti.
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
B12 - MUNNÚÐI SEM VIRKAR
H
vítasunnuhelgin kom björt
og fögur, svo helftin af íbú-
um höfuðborgarsvæðisins
fór úr bænum í blíðuna.
Ekki þó alveg allir, því borgar-
fulltrúar í efstu sætum á listum Sam-
fylkingar, Framsóknar, Pírata og
Viðreisnar kepptust við að hnoða
saman nýjan en samt gamlan meiri-
hluta í borgarstjórn Reykjavíkur.
Það tókst líkt og flestir bjuggust við
og var nýi meirihlutinn kynntur í
Elliðaárdal á 2. degi hvítasunnu. Þar
kom fram að Dagur B. Eggertsson,
oddviti Samfylkingar, yrði áfram
borgarstjóri enn um sinn, en að einu
og hálfu ári liðnu tæki Einar Þor-
steinsson, oddviti Framsóknar, við
borgarstjórakeðjunni.
Einar Þorsteinsson verður í fyllingu
tímans fyrsti borgarstjóri Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, en
flokkurinn hefur til þessa aldrei notið
mikils fylgis í höfuðstaðnum og
flokknum raunar löngum fremur í
nöp við sollinn syðra, svo aðeins í því
felast mikil pólitísk tíðindi.
Samstarfssáttmáli hins nýja meiri-
hluta var kynntur við það tækifæri,
en Dagur sagði að hann rímaði afar
vel við kosningastefnuskrá Samfylk-
ingar. Þar var lítt nýtt og afgangar
verkefnaskrár gamla meirihlutans
kynntir sem verkefni hins nýja.
Framsókn náði þó að þröngva sam-
starfsflokkunum til þess að fallast á
þrjú stefnumál sín, en það var hækk-
un á frístundastyrk upp í 75.000 kr.
og að grunnskólabörn fengju ókeypis
í sund og strætó.
Eftir því var tekið að skömmu eftir
að nýi meirihlutinn var kynntur sagð-
ist Einar Þorsteinsson fremur hafa
kosið að mynda meirihluta til hægri,
en að þess hafi ekki verið kostur.
Ráðahagurinn virðist því fremur
byggður á hagræði en hamingju.
Stjórnmálaspekúlantar fóru þegar að
spekúlera um hvers vegna Dagur
hygðist láta af borgarstjóraembætti
eftir 18 mánuði og hvort hann kynni
að söðla um yfir í landsmálin.
Fleiri tíðinda kann að vera að vænta
um það leyti, en hvíslað er um að
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti
Viðreisnar, hafi augastað á embætti í
borgarkerfinu, sem Dagur láti verða
sitt hinsta verk að dubba hana upp í í
þakklætisskyni.
Á Laugardalsvelli bar það helst til
tíðinda á karlalandsleik Íslands og
Albaníu í fótbolta (1-1) að þar var í
fyrsta sinn seldur bjór. Það endaði
ekki með skelfingu eins og sumir
höfðu varað við.
Öll inniveran í kórónuveirufaraldr-
inum virðist hafa haft þau áhrif að
gríðarleg aukning hefur orðið í
barnsfæðingum. Það bendir til þess
að tilmæli sóttvarnalæknis um fjar-
lægðarmörk hafi ekki alltaf verið virt
sem skyldi.
Karlmaður á þrítugsaldri var hand-
tekinn á laugardagskvöld fyrir að
hafa orðið nágranna sínum að bana
með barsmíðum í húsi við Barðavog.
Lögreglan hafði verið kölluð þangað
tvívegis fyrr um kvöldið.
. . .
Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar
var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur,
en þar gerði hinn nýi meirihluti fimm
tillögur um breytta stjórnskipan í
borginni. Þremur þeirra var frestað
eftir áköf mótmæli minnihlutans,
enda höfðu tillögurnar ekki verið
kynntar fyrr en hálftíma fyrir fund-
inn.
Varnarmálaráðherrar Norðurhóps-
ins svokallaða (Norðurlöndin,
Eystrasaltsríkin, Þýskaland, Hol-
land, Pólland og Bretland) heldu
tveggja daga fund í Reykjavík, þar
sem öryggismál svæðisins voru
rædd, einkum með tilliti til innrás-
arinnar í Úkraínu.
Mannfjöldaspá Hagstofunnar hefur
verið breytt og er nú talið að íbúum
landsins muni fjölga um 19 þúsund
milli 2022 og 2024. Hins vegar hafa
hagfræðingar áhyggjur af því að
ýmsar ytri aðstæður kunni að
hamla hagvexti á síðari hluta þessa
árs, þar ræðir bæði um eftirhreytur
heimsfaraldurs og stríðið í Úkraínu.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, fór í tveggja daga opinbera
heimsókn til Vestfjarða.
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, fv.
bæjarstjóri í Grundarfirði og sveitar-
stjóri á Hellu, lést 71 árs gamall.
. . .
Eldhúsdagsumræður fóru fram á
Alþingi, enda styttist í þinglok, og
töluðu tveir þingmenn fyrir hvern
flokk. Ræðurnar voru ekki mjög eft-
irminnilegar nema hvað þingmenn
Framsóknar töluðu fyrir bættri
stöðu landsbyggðarinnar, m.a. með
skattaívilnun til íbúa hennar.
Samtök fyrirtækja í landbúnaði
(SAFL) voru stofnuð, en gert er ráð
fyrir að þau muni starfa innan vé-
banda Samtaka atvinnulífsins (SA)
líkt og ýmis önnur atvinnugreina-
samtök. Þau segja starfsskilyrði ís-
lenskra bænda lakari en í nágranna-
löndum og úr því þurfi að bæta.
Jón Atli Benediktsson háskóla-
rektor lýsti mikilli ánægju með áhrif
lagabreytingar um skattundanþágur
lögaðila í þágu almannaheilla og
sagði þær hafa komið til leiðar mun
fleiri styrkúthlutunum til fræða-
starfs. Hann hvetur stjórnvöld til
þess að hækka hámarkið á fram-
lögum einstaklinga.
Verið er að setja upp vindmyllur og
sólarsellur í Grímsey, en gera á til-
raunir með hvor leiðin hentar betur
til orkuöflunar hjá þessum útverði Ís-
lands í norðri.
Í öðrum innviðafréttum er að Örygg-
isfjarskipti ehf. hyggjast byggja upp
háhraðafarnetsþjónustu fyrir leift-
ursveitir landsins: lögreglu, slökkvi-
lið, hjálparsveitir o.þ.h.
Ívar J. Arndal, hinn leynilegi for-
stjóri ÁTVR, gaf færi á sér 2. vikuna í
röð, að þessu sinni til þess að koma á
framfæri umsögn um frumvarp
dómsmálaráðherra um breytingu á
áfengislögum, sem hann fann allt til
foráttu. Er þó alls óljóst af hverju
ríkisforstjóranum kemur það við
hvað löggjafinn aðhefst.
Undirbúningsnefnd rannsóknar á að-
búnaði og meðferð fullorðins fólks
með fötlun eða geðrænan vanda lagði
til við Katrínu Jakobsdóttur for-
sætisráðherra að hún færi fram skv.
lögum um rannsóknarnefndir, sem
gæfi nefndinni víðtækar heimildir.
Undirbúningsnefndin kvartaði undan
slælegum svörum frá fjölda sveitar-
félaga.
. . .
Lögregla greindi frá því að hún hefði
lagt hald á mikið magn fíkniefna og
hráefna til fíkniefnagerðar, en götu-
virði afurðanna næmi um 1,7 millj-
örðum króna. Þetta var afrakstur
einhverrar umfangsmestu lögreglu-
rannsóknar á skipulagðri brota-
starfsemi hér á landi, en málin eru
tvö og hófst fyrri rannsóknin árið
2020. Alls voru 20 leitir gerðar, tíu
manns handteknir og fimm þeirra
hnepptir í gæsluvarðhald. Einn situr
enn í gæsluvarðhaldi.
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í
Vestmannaeyjum var haldinn og
þrátt fyrir að þar mætist jafnan stál-
in stinn var órofa samstaða um að
athuga betur kosti til að gera jarð-
göng frá Eyjum til þess að rjúfa ein-
angrun Íslands.
Tvö tilfelli apabólusmits greindust
hér á landi, en smitin mátti rekja til
Evrópuferðar fyrir skemmstu. Þór-
ólfur Guðnason sóttvarnalæknir
kom í viðtal og sagði ekki verulega
hættu á faraldri, en varaði lands-
menn þó við kynmökum við
ókunnuga, sem sjálfsagt er góð meg-
inregla.
Bandarískt fyrirtæki tilkynnti að það
myndi hefja starfsemi á Akranesi í
sumar og framleiða þörunga til kol-
efnisbindingar í hafi.
Kurr er vegna skógræktarskandals í
Skorradal, en Skógræktin lét ryðja
veg þvert yfir miðjar hlíðar Draga-
fells á skógræktarsvæði sínu þar án
þess að leita leyfis fyrir framkvæmd-
inni, en mikið lýti þykir að honum.
Skógræktin telur að hún þurfi ekki
að leita neinna leyfa fyrir fram-
kvæmdum innan skipulagðra skóg-
ræktarsvæða.
Kynntur var vegvísir um vistvæna
mannvirkjagerð, en samkvæmt henni
er stefnt að því að minnka kolefnis-
losun í byggingariðnaði um meira en
helming.
Stærsti bílfarmur Íslandssögunnar
kom með færeysku flutningaskipi til
Þorlákshafnar, en um borð voru 545
bílar, þar af 329 Toyotabílar.
Guðmundur Björgvin Helgason
var kjörinn ríkisendurskoðandi.
Halldór Jónatansson, fv. forstjóri
Landsvirkjunar, lést níræður að
aldri.
Nýr og gamall
meirihluti
Fyrsti fundur nýkjörinnar borgarstjórnar veit á gott um friðinn þar næstu ár. Borgarstjóri boðaði bætt samskipti í borg-
arstjórn og lagði fyrirvaralaust fram tillögur um breytta stjórnskipan. Minnihlutinn sagði hann hafa fallið á fyrsta prófinu.
Morgunblaðið/Eggert
5.6.-10.6.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is