Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Blaðsíða 8
VIÐTAL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022
T
ónlistarmaðurinn og Stuðmaðurinn
góðkunni, Valgeir Guðjónsson, og
kona hans Ásta Kristrún Ragn-
arsdóttir, námsráðgjafi og rithöf-
undur, starfrækja menningarhús
fjölskyldunnar, Bakkastofu, á Eyrarbakka.
Þar bjóða þau upp á dagskrá sem er blanda af
tónlist, samveru og sögustundum. Tónlistin og
textar eru öll eftir Valgeir en Ásta er sérfróð
um menningararfinn á 19. öld. Þegar gestir
eru erlendir og enskumælandi flytur Valgeir
aðallega tónlist úr Saga Musica bálki sínum
sem nær lengra aftur, eða til landnáms Íslands
með sterka tilvísun í Íslendingasögur og goða-
fræði. Valgeir segist ungur hafa heillast af
uppruna þjóðar og spændi í sig Íslendingasög-
urnar sem barn. Áhuginn minnkaði ekki með
árunum og árið 1991 sigldi hann með vík-
ingaskipinu Gaiu frá Noregi til Orkneyja sem
var mikið ævintýri.
Blaðamaður hitti fyrir hjónin sem eru í óða
önn að æfa fyrir stórtónleika sína sem haldn-
ir verða á sjálfan þjóðhátíðardaginn í Skál-
holti. Þau gáfu sér þó tíma til að spjalla í lítilli
íbúð í miðbæ Reykjavíkur, þar sem þau eiga
nú afdrep. Yfir kaffibolla og Prins Póló leiða
þau blaðamann í allan sannleikann um fyr-
irhugaða tónleika og af hverju það hafi verið
mikilvægt að láta af þeim verða núna. Val-
geir, sem varð sjötugur í janúar, greindist
með eitlakrabbamein fyrir ári og var í lyfja-
meðferð í sex mánuði. Hann er nú kominn
fyrir vind.
Gat brugðið til beggja vona
„Við höfum tekið á móti þúsundum gesta í
Bakkastofudagskrá. Auðvitað stöðvaðist allt í
Covid en nú erum við að spýta í lófana,“ segir
Valgeir á meðan Ásta nær í kaffið.
„Þú ert fyrsti gesturinn! Við vorum bara að
bera inn húsgögnin í gær,“ segir Ásta og sest
hjá okkur í litlu stofunni og þau segja frá vinnu
sinni og fyrirhuguðum tónleikum.
„Efnið sæki ég í Íslendingasögurnar og
goðafræðina en til að mæta þeim mikla
áhuga, sem er útbreiddur um víkingatímann
og menningu eða ómenningu þessa tímabils,
sem ég alla söngtexta á ensku,“ segir Val-
geir.
„Á tónleikunum þann 17. júní verða flutt
fimmtán lög úr þessum viðamikla bálki.
Þessi lög mynda söguþráð með upphafi og
enda. Á undan hverju lagi er sá hluti sög-
unnar sagður, sem tengist laginu sem á eftir
kemur. Því má segja að um heildstætt verk
sé að ræða. Því gerum við skil í veglegri tón-
leikaskrá, sem jafnframt hefur að geyma
meistaralega vel gerðar teikningar. Ungur
sunnlenskur listamaður, Sindri Mjölnir, sem
er menntaður í kvikmyndagerð í Bandaríkj-
unum, vann söguþráðinn í kringum lögin og
teiknaði myndirnar,“ segir hann en þess má
geta að miða má nálgast bæði á tix.is og eins
við innganginn.
„Bókin er algjört listaverk, bæði myndræn
og söguleg,“ segir Ásta og bætir við:
„Þetta eru hátíðartónleikarnir „Valgeir sjö-
tugur“. Þessir tónleikar eru hugsaðir fyrir Ís-
lendinga og því hef ég gert útdrætti úr sög-
unum á íslensku sem ég flyt og þannig bland-
ast þessi tvö tungumál fallega saman.
Hugmyndin að veglegum Saga Musica-
tónleikum vaknaði þegar Valgeir varð svona
veikur. Við tókum þessa stefnu þegar við gerð-
um okkur grein fyrir að það gat brugðið til
beggja vona.“
Þetta er banvænn sjúkdómur
Valgeir, geturðu sagt mér frá þessum veik-
indum?
„Ég var búinn að vera svolítið skrítinn og
svo fann ég hnúð í náranum í fyrravor. Ég fór í
bæinn og fór fyrst í sneiðmyndatöku og svo
fleiri myndatökur og loks var ég skorinn til að
taka sýni úr náranum til að greina þetta æxli,“
segir Valgeir.
„Þegar í ljós kom að meinið var illkynja var
hann settur í jáeindaskannann og þá kom í ljós
að krabbameinið hefði dreift sér í alla eitla og
inn í merg. Þetta var mjög langt gengið þó
hann hafi fundið lítið til,“ segir Ásta og segir
greiningarferlið allt hafa tekið töluverðan tíma
áður en meðferð hófst.
„Mér var ekki illt en ég var slappur og ég
finn enn að ég er ekki alveg á fullu gasi. Áður
en meðferðin hófst vorum við það lánsöm að
samtal var strax á milli sérfræðinga á Land-
spítalanum og okkar mæta krabbameins-
læknis hér á Suðurlandi,“ segir hann.
„Þetta er banvænn sjúkdómur og okkur var
strax gert það ljóst. Framfarir í krabbameins-
lækningum hafa orðið miklar á undanförnum
árum. Fræðsla um stöðuna og meðferðina sem
binda má vonir við getur skipt sköpum fyrir þá
sem í hluta eiga. Sigurðar Böðvarsson,
krabbameinslæknir, veit hversu þýðing-
armikið það er að sjúklingar og aðstandendur
séu upplýstir og þannig virkir í ferlinu. Hann
tók okkur í læri og fór með okkur í gegnum
eðli eitlakrabbameins og þá lyfjameðferð sem
er í boði. Tveimur meginúrræðum var beitt;
líftæknilyfi sem ræðst beint á krabbameins-
frumurnar en samhliða breiðvirkandi lyfi sem
ræðst á allar frumurnar,“ segir Ásta.
„Staða Valgeirs var sú að hann þurfti á
kröftugri meðferð að halda og fékk því tvöfald-
an skammt af breiðvirkandi lyfjameðferð. Við
bárum mikið traust til læknanna. Við ákváðum
að taka veikindunum með eins jákvæðu hug-
arfari og okkur var unnt og leyfðum okkur
ekki að missa vonina. Við fengum svo þær
Valgeir Guðjónsson og Ásta
Kristrún Ragnarsdóttir eru
samrýnd hjón. Ásta stóð þétt
við bakið á manni sínum í
gegnum erfið veikindi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Það eru nokkrir svanir eftir
Hjónin Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir vinna náið saman við uppsetningu sagnatónleika undir nafninu
Saga Musica. 17. júní rætist gamall draumur þegar haldnir verða stórtónleikar í Skálholti, þar sem öllu verður tjaldað til. Val-
geir vildi ekki bíða lengur en hann stóð á þröskuldi dauðans í fyrravor þegar hann tókst á við illvígt krabbamein.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’
Valgeir var hundslappur. Við
vorum öll hræðilega góð við
hann og við vildum allt gera til
þess að hann næði þessu mark-
miði sínu og að Saga Musica
færi í loftið. Við lögðum mikinn
metnað í að gera þetta vel og
jafnvel að skapa eins konar
minnisvarða um Valgeir.