Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Qupperneq 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022 F reistandi er að nota orðalagið þannig týnist tíminn af þessu tilefni. Bjart- mar segist sjaldan hafa gert mikið úr eigin afmælisdögum en nú stend- ur mikið til, því Bjartmar og Berg- risarnir halda tónleika í Háskólabíói hinn 18. júní. Auk þess sendir Bjartmar frá sér nýtt lag á afmælisdaginn. „Dóttir mín, hún Elma Björk, hefur staðið á bak við þessa tónleika í einu og öllu. Ég vildi ekki hafa svona vesen. Hún er viðskipta- og markaðsfræðingur og horfði bara ákveðið á mig og sagði: „Pabbi, þú ert vörumerki“! Ég fór þá að pæla í hvort ekki væri svolítið til í því hjá henni og ég hlýði,“ segir Bjartmar sposkur en hann bauð blaðamanni heim til sín í kaffi í vik- unni. Þegar þetta er skrifað eru fáir miðar á tónleikana á lausu en lagt er upp með að fara yf- ir ferilinn, ásamt því að flytja ný lög. Spurður um hvort tónlistarunnendur fái ekki fleiri tæki- færi til að sjá Bjartmar og Bergrisana spila, segir hann að svo verði. Til standi að spila á Goslokahátíðinni í Vestmannaeyjum sem dæmi og tónleikar séu fyrirhugaðir í haust. „Við strákarnir í Bergrisunum ákváðum að halda áfram þar sem frá var horfið og búa til tónlist. Við gerðum plötuna Skrítin veröld árið 2010 og hún fékk alveg gífurlega góðar mót- tökur. Við fengum góða dóma og fengum verð- laun á íslensku tónlistarverðlaununum. Okkur fannst bara ekki forsvaranlegt að hætta þessu og ákváðum því að byrja aftur. Við erum búnir að koma út þremur nýjum lögum og fjórða lagið kemur á afmælisdaginn minn, 13. júní. Við er- um að safna í plötu en nútíminn gefur okkur möguleika á því að gefa út eitt lag í einu og það er mjög flott. Ég læt strákana að mestu um spileríið en ég syng og spila á kassagítarinn annað veifið. Birkir Rafn Gíslason og Júlíus Guðmundsson stofnuðu Bergrisana með mér árið 2010. Við höfum verið með bestu hljóðfæra- leikarana með okkur og Arnar Gíslason og Daði Birgisson verða til dæmis með okkur 18. júní. Allt eru þetta súperhljóðfæraleikarar. Ég fór víst ekki í tónlistarnám en að vinna með öllum bestu tónlistarmönnum landsins í áratugi er svo sannarlega háskólanám fyrir mig.“ Ber að fara vel með velgengnina Finnur Bjartmar ennþá fyrir leikgleði, eftir öll þessi ár í tónlistinni? „Já, já. Það hefur aldrei verið skemmtilegra að semja tónlist en núna og ég er með margar hugmyndir sem ég er að vinna úr. Ég hef áttað mig á því á efri árum hve gæfusamur ég hef verið að eiga möguleika á því að mála og semja lög. Ég er þakklátur fyrir það en það ber að fara vel með og passa sig á því að drekkja því ekki í hroka eða sjálfumgleði. Það bitnar á listinni og manni sjálfum,“ segir Bjart- mar, enda er eflaust auðvelt að missa jarðteng- inguna þegar menn njóta velgengni í tónlistar- bransanum. „Við erum nú bara hérna á Íslandi og þekkj- um hvert annað. Þú þarft ekkert að fá þér leyni- númer þótt þú sért beðinn um að vera á sjálfu í Bónus. Það er alveg á hreinu.“ Ekki er annað að heyra á Bjartmari en að hann hafi næga orku til listsköpunar, því hann segist sinna myndlistinni svo gott sem á degi hverjum, auk þess sem lög og textar virðast einnig renna frá honum. Bjartmar skilgreinir sig ekki annað hvort sem tónlistarmann eða myndlistarmann. „Nei, þetta er einn pakki og ég vinn í þessu samhliða. Ég get verið að vinna í málverkinu en ráfa svo um og skrifa eitthvað. Því næst gríp ég kannski í gítarinn. Heimilið er vinnustofa og hefur alltaf verið hjá okkur. Ég ráfa á milli list- greina hérna innanhúss. Það má alveg segja það en þetta truflar ekkert hvort annað,“ segir Bjartmar en eiginkona hans heitir María Hel- ena Haraldsdóttir. „Hún er með mér í þessu öllu. Við byrjuðum saman 1983 og á næsta ári eru því fjörutíu ár síðan. Við gengum í hjónaband tveimur árum seinna. Tveir einstaklingar á svipuðu róli með svipaðar hugmyndir og svipaðar skoðanir á ást- inni, lífinu og öllu. Við höfum alltaf staðið saman í öllum stórum ákvörðunum sem við höfum tek- ið. Hún er tónlistarkona og hefur sungið á plöt- unum mínum.“ Hlýddi á eldra fólk tala gott mál Bjartmar fæddist á Fáskrúðsfirði 13. júní 1952 og bjó þar til 7 ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja en Bjartmar var þó stundum á sumrin á Fáskrúðsfirði sem unglingur. Hann segist engu að síður vera mikið borgarbarn í sér, þótt ræturnar úr sjávarplássinu séu vissu- lega sterkar. Hann býr í Skerjafirðinum og sýn- ir blaðamanni tilkomumikið útsýni af svölunum. Þar sat Bjartmar og fylgdist með eldgosinu í Fagradalsfjalli. Langt er síðan Bjartmar kynntist hverfinu í Skerjafirðinum, því þangað kom hann fyrst 17 ára þegar systir hans bjó þar. Trén og gróður- inn fyrir neðan húsið skyggja aðeins á útsýnið núorðið en vöxtur þeirra sýnir hve langt er síð- an Bjartmar virti fyrst fyrir sér útsýnið. „Þessi tré voru nú ekki svona stór þegar ég kom hing- að fyrst,“ segir hann og bendir á að á mörgum túnum í kring hafi þá verið kýr á beit. Hann hugsar með hlýju til æskuheimilisins austur á fjörðum og segir samband foreldra sinna hafa verið fallegt alla tíð en móðir hans kom þangað frá Færeyjum. „Ég kynntist færeyskri tónlist og ljóðagerð í gegnum móður mína, sem var færeysk. Hún kom til Íslands 17 ára gömul í leit að vinnu árið 1944. Þá voru allir að leita að vinnu í fátæktinni í stríðinu. Hún ætlaði að fara í vist eins og það var kallað. Ætli það hafi ekki verið au pair þess tíma. Hún kom yfir hafið á færeyskri fiskiskútu og pabbi var eitthvað að þvælast niðri á bryggju að hjálpa þeim. Það urðu sextíu ár í mjög far- sælu hjónabandi, enda sáu þau ekki sólina hvort fyrir öðru. Það var yndislegt og engin vandamál á heimilinu,“ segir Bjartmar en hann var athug- ull sem barn og saug í sig ýmislegt úr nánasta umhverfi. Textagerð og ljóð hans eru rómuð og hann segist hafa alist upp í kringum eldra fólk sem talaði gott mál. „Þetta var alþýðufólk sem ég lærði að tala af og það var gaman að hlusta á þetta fólk. Sem barni fannst mér gaman að hlusta á eldra fólk tala. Föðurættin kemur úr Suðursveit og þar gættu menn vel að málfari. Í föðurættinni voru menn því vel máli farnir.“ Rúnar reyndist áhrifavaldur Bjartmar á lengri feril sem lagahöfundur en flytjandi. Hann samdi lög eða texta fyrir aðra tónlistarmenn áður en hann fór að túlka lög sín sjálfur. Flestir landsmenn sem fæddir eru fyrir 1980 kannast við lagið Súrmjólk í hádeginu sem var eitt þessara laga. Ekki ómerkari maður en Rúnar Júlíusson mæltist til þess að Bjartmar færi að flytja lögin sjálfur en Bjartmar hafði ekki litið svo á að það kæmi til álita. Bjartmar var um þrítugt þegar íslenskir tónlistarunn- endur tóku eftir honum fyrir alvöru. Fyrsta lag- ið sem varð frægt í hans flutningi var Hippinn sem margir þekkja betur sem Kótilettukarlinn. „Já það var fyrsta lagið sem vakti athygli í mínum flutningi. Það var í raun bara skipun frá Rúna Júl að ég myndi syngja lagið þar sem ég væri höfundurinn. Í framhaldinu komu fyrstu Sumarliðalögin: Sumarliði á móti og svo þegar hann datt í’ða.“ Vegurinn var beinn og breiður fyrir lagahöf- undinn Bjartmar í framhaldinu að því manni virðist. Sumarliði er fullur varð mjög vinsælt. Sumarliði segir hlustendum hátt og snjallt að halda kjafti og í lok árs 1984 var lagið flutt með miklum tilþrifum af Sigurveigu Hjaltested í Áramótaskaupinu. Hvernig lagðist það í ís- lensku þjóðarsálina á fyrri hluta níunda áratug- arins, að vera sagt að halda kjafti í dægurlagi sem var vinsælt hjá börnum og unglingum? „Ég fékk aldrei neinar skammir fyrir það. Það var miklu frekar að ég fengi nett skot á mig fyrir súrmjólkina,“ segir Bjartmar og hlær en bætir við á alvarlegri nótum. „Ég get alveg við- urkennt að sum lög frá mér voru sett til hliðar þegar ríkið sá um allt sem spilað var í útvarpi. Þegar einhverjum ofbauð eitthvað í lögunum. Margir listamenn lentu í því að vera hreinlega bannaðir hjá Ríkisútvarpinu. Siðgæðispostul- arnir vilja nú láta til sín taka og þurfa að hafa eitthvað að gera.“ Bjartmar bendir á að meðganga geti verið löng áður en dægurlag fæðist. Til dæmis geti textinn eða lagið verið samið langt á undan hinu. Hann nefnir sem dæmi að textinn við Súr- mjólk í hádeginu hafi fyrst verið fluttur í leikriti austur á Hvolsvelli þegar Bjartmar var rúm- lega tvítugur. Allt sem lifir er yrkisvert Árið 1987 kom út platan Í fylgd með fullorðnum sem seldist geysilega vel. Þar er að finna lagið Týnda kynslóðin og framhaldið Sunnudags- morgunn. En þar var einnig kunnur slagari Ég er ekki alki. Allt saman drepfyndnir textar að hætti Bjartmars. Í mörgum skemmtilegum lög- um Bjartmars er ort með augum barnsins sem fylgist með fullorðna fólkinu. „Í fylgd með fullorðnum var þemaplata og fjallar um þá veröld sem við bjóðum börnum upp á. Þar var farið í þau mál. Ég lít fyrst og fremst á mig sem höfund, þótt ég syngi lögin sjálfur. Maður þarf að halda vel utan um það að vera höfundur. Ef þú ætlar að vera höfundur, þarftu að bera virðingu fyrir öllu sem lifir. Þú þarft ekki að bera virðingu fyrir skoðunum allra en bera virðingu fyrir lífinu. Ef þú ætlar að af- marka þig einu yrkisefni, eins og einhverri stefnu eða bylgju, þá býrðu í raun til girðingu í kringum þig. Ég hef alltaf haft að leiðarljósi að veröldin bjóði upp á svo margt. Í veröldinni eru foreldrar, afi, amma, langafi, langamma, börn, hundar, kettir og fuglar. Allt sem lifir er yrk- isvert og ég passa mig á að vera ekki með neina girðingu. Ég bjó meira að segja eitt sinn til barnaplötu með Þorgeiri Ástvaldssyni, vini mínum,“ útskýrir Bjartmar en Þorgeir er ein- mitt einn þeirra sem hvöttu Bjartmar áfram snemma á ferlinum, rétt eins og Rúnar Júl. „Á milli okkar Þorgeirs er fóstbræðralag. Við höfum verið vinir alla tíð og erum nánir. Sama átti við um mig og Rúnar Júlíusson. Fóst- bræðralag þýðir trúnaður, skilningur og vinátta út fyrir dauða og gröf. Þannig samband á ég við Pabbi, þú ert vörumerki Listamaðurinn Bjartmar Guðlaugsson verður sjötugur 13. júní þótt einhverjir eigi eflaust erfitt með að sjá fyrir sér að þessi síðhærði töffari frá Fáskrúðsfirði sé kominn á svo virðulegan aldur. Kristján Jónsson kris@mbl.is Létt er yfir Bjartmari Guð- laugssyni á þessum tímamótum og mikið stendur til. Ljósmynd/Úr einkasafni Bjartmar í góðu sambandi við tónleikagesti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.