Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Blaðsíða 15
12.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 vini mína. Fóstbræðralag okkar Þorgeirs er svo gamalt að við munum varla eftir því hvenær blóði var blandað. Að eiga góða vini er það nauðsynlegasta í veröldinni og ég hef sem betur fer aldrei átt óvini. Ef ég ætti óvin þá væri það manneskja sem ég þyrfti að hlaða niður í heil- ann á mér og marinera þar. Mér þykir nú nokk- uð vænt um þetta heilabú sem ég er með og vil ekki menga það með einhverjum óvinum. Ég nenni ekkert að standa í því en auðvitað lendir maður í að kýta, rífast og skammast en óvin- skapur er ekki til í mér.“ Hugðist einbeita sér að myndlist Bjartmar var aldeilis ekki hættur að fóðra tón- listarunnendur á grípandi lögum eftir að hafa sent frá sér Í fylgd með fullorðnum því á næstu plötu var lagið Með vottorð í leikfimi. Á næstu árum kom einnig Engisprettufaraldurinn sem Haraldur átti ekki að hafa áhyggjur af, auk þess sem Bjartmar söng um Járnkarlinn með Eiríki Fjalari og samdi textann við Yatzy hjá Stjórninni, sem þá laugaði sig í vinsældum eftir Bjarmalandsför í Eurovision. Bjartmar var mjög afkastamikill lagahöf- undur á níunda áratugnum, því hann sendi frá sér plötu á hverju ári frá 1984 til 1988. Aftur komu svo plötur frá honum 1991 og 1992. Þá hélt Bjartmar til Danmerkur í myndlistarnám og blaðamaður verður undrandi þegar Bjart- mar lýsir því að þá hafi staðið til að hætta að semja tónlist. „Ég var alveg ákveðinn í því. Úti í Danmörku tók ég einstaka verkefni að mér en var ekkert að spila á tónleikum eða neitt slíkt. Ég hélt að þegar ég færi í myndlistarnámið, yrði ég að sturta hinu niður en það er bara eins og að sturta niður hluta af sjálfum sér og sinni hugs- un. Það er ekki hægt. Fjölbreytnin er mjög góð og ég þakka bara fyrir að hafa fengið þetta í vöggugjöf.“ Sá Ragnar og Ellý á Þjóðhátíð Spurður um hvort honum þyki vænna um ein- hver lög umfram önnur, nefnir Bjartmar sér- staklega tvö lög. „Tvö lög eru huglæg fyrir mér. Annars vegar þegar Ragnar Bjarnason bað mig um að semja fyrir sig lag. Af því þetta var Ragnar Bjarnason og lagið var svona vel flutt, og vel útsett, þá rís það náttúrlega mjög hátt á skalanum hjá mér. En ég nefni einnig minningarljóð sem ég samdi um vin minn, Rúnar Júlíusson, og heitir Negril. Það stendur mér alltaf mjög nærri og ég myndi segja að þessi tvö lög séu ofarlega á listanum. Við þetta mætti bæta lagi sem var á Með vott- orð í leikfimi og heitir Ljóð um þig. Það fjallar um lítið barn sem liggur í vöggunni og virðir fyrir sér öll andlitin sem eru að horfa á það. All- ir vilja eiga svipinn en barnið glottir bara fram- an í heiminn.“ Hér má skjóta því inn að Júlíus, sem er í Bergrisunum með Bjartmari, er sonur Rúnars Júlíussonar. Einnig eru skemmtilegar teng- ingar á milli Ragga Bjarna og Bjartmars. Ekki einungis í gegnum sameiginlegan vin, Þorgeir Ástvaldsson, heldur söng María Helena með Ragga Bjarna um tíma. „María byrjaði ung í kórastarfi og var í söngskólanum. Hún söng með Ragnari í þrjú ár á Hótel Sögu en var ekki nema 19 ára þá. Þá kynntist ég Ragga Bjarna en ég hafði auð- vitað fyrst heyrt hann syngja í útvarpinu sem krakki. Þegar ég bjó í Eyjum, fór ég í fyrsta skipti á Þjóðhátíð þegar ég var 8 ára. Þá voru Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms á sviðinu að flytja Ég veit þú kemur í kvöld til mín sem þá var Þjóðhátíðarlagið. Það var mikil upplifun og mér fannst svo merkilegt að sjá manninn á bak við röddina sem ég hafði heyrt í útvarpinu. Alla tíð hefur röddin setið í mér sem ein sú fegursta sem ég hef heyrt í söng. Mér var því mikill heið- ur að því að semja lag fyrir hann og ég er fullur lotningar.“ María bjargaði laginu dýrmæta Hér höfum við auðvitað verið að ræða um lagið Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar sem Raggi Bjarna og Lay Low fluttu. Bjartmar segir að María hafi bjargað laginu. „Ég ber nú eiginlega allt undir hana og það var hún sem bjargaði þessu lagi. Við bjuggum þá austur á Eiðum og hún var svæðisfulltrúi Rauða krossins á Austurlandi en við bjuggum þar í tólf ár. Ég var að spila lagið og var fastur í því. Ég notaði enn kassettutæki á þessum tíma og ætlaði að taka yfir og byrja upp á nýtt eins og ég átti til að gera. Ég var að spila grunninn að laginu inn á segulbandið og þá kemur María hlaupandi og segir: „Haltu þessu. Ekki taka yfir þetta.“ Á þessum tíma var ég að skrifa skáld- sögu og hún endaði á ljóðinu Þannig týnist tím- inn. Lagið lá eiginlega inni í ljóðinu. Þegar ljóð- ið er tilbúið er svo auðvelt að fara í lagið. Svona lag verður að hafa fá orð. Ekki sögu, heldur eitthvað sem þú getur raulað með. Í framhald- inu kom þetta af sjálfu sér en þá hafði Raggi beðið mig um lag,“ rifjar Bjartmar upp. Fleirum en Bjartmari þótti vel takast til með þetta fallega lag, því sjónvarpsáhorfendur völdu það óskalag þjóðarinnar í samnefndum þætti hjá Ríkissjónvarpinu árið 2014. Í þætt- inum var lagið flutt af Páli Rósinkranz. „Þetta heppnaðist vel. Ég tala nú ekki um þegar Ragnar kom með Lay Low inn í þetta og Jón Ólafsson útsetti lagið og gerði á frábæran hátt. Þetta rúllaði svo sætt í gegn og ég var al- veg himinlifandi yfir því að vera beðinn um þetta. Hann var svo yndislegur náungi, hann Ragnar. Það var alveg með ólíkindum hvað hann var fallegur og góður maður.“ Gera viðurkenningar sem þessi mikið fyrir Bjartmar? „Ég er þakklátur, stoltur og umfram allt lít- illátur. Mér finnst það vera mannkostir sem við eigum að rækta svolítið betur upp í okkur. Rétt- lætiskenndin er æðst allra dyggða,“ segir Bjartmar Guðlaugsson og lokaorðin verða varla miklu betri, enda er rætt við eitt af okkar snjall- ari skáldum síðustu áratugina. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon ’ Við erum nú bara hérna á Íslandi og þekkjum hvert annað. Þú þarft ekkert að fá þér leyninúmer þótt þú sért beðinn um að vera á sjálfu í Bónus. Það er alveg á hreinu. Viðeigandi að maðurinn sem orti um Sumarliða stilli sér hér upp. Ljósmynd/Úr einkasafni Bjartmar í Eyjum þar sem hann bjó á yngri árum og með óvenju stutt hár á sinn mælikvarða. Ljósmynd/Úr einkasafni Skáldið hugsi á svip. Hér gæti ljóð verið að fæðast. Ljósmynd/Úr einkasafni

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.