Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Page 19
Gunnþór og Jónína hella afgangi af messuvíninu á leiði Sveins M. Björnssonar myndlistarmanns venju samkvæmt. Sveinn er sá síðasti sem jarð- settur var í kirkjugarðinum í Krýsuvík en hann var borinn til grafar fyrir aldarfjórðungi. E ndurbyggð Krýsuvíkurkirkja var vígð við hátíð- lega athöfn á hvítasunnudag, hinn 5. júní. Kirkj- an brann til grunna í upphafi árs árið 2010 en Vinir Krýsuvíkurkirkju stóðu fyrir endurbyggingu kirkjunnar. Öll smíði var á vegum Iðnskólans í Hafn- arfirði, síðar Tækniskóla Íslands og jafnframt Þjóð- minjasafns Íslands. Segja má að kirkjan hafi verið end- urreist í annað sinn. Hún mun hafa verið að falli komin um miðja síðustu öld en var endurvígð árið 1964. Kirkj- an var hins vegar tekin fyrst í notkun árið 1857. Í byrjun janúar 2010 var Jónatan Garðarsson með fund á heimili sínu til að ræða tónlistarmálefni. Hann byrjaði á að sýna fundarfólki líkan sem dóttir hans hafði gert af Krýsuvíkurkirkju, um leið og fréttir af bruna kirkjunnar voru til umræðu. Á sama augnabliki hringdi Hrafnkell Marinósson, kennari í bygg- ingagreinum í Iðnskólanum í Hafnarfirði, í Jónatan, sem svaraði með því að spyrja hvort hann mætti hringja í Hrafnkel seinna um daginn þar sem hann væri aðeins upptekinn. Hrafnkell sagði erindið vera stutt og spurði: „Eigum við að byggja saman kirkju?“ Jónatan spurði hvort hann væri með einhverja sérstaka kirkju í huga og Hrafnkell sagði: „Já, Krýsuvíkurkirkju.“ Jón- atan svarað að bragði: „Já við skulum gera það,“ og nokkrum dögum seinna var Vinafélag Krýsuvíkurkirkju stofnað. Séra Kristján Valur Ingólfsson, fyrrverandi vígslu- biskup í Skálholti, vígði kirkjuna og flutti predikun. Séra Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarness- prófastsdæmis, séra Gunnþór Þ. Ingason, sem hafði umsjá með fyrri Krýsuvíkurkirkju, og séra Jónína Ólafsdóttir, sóknarprestur Hafnarfjarðarkirkju, þjón- uðu einnig við vígsluna. Jónína mun leysa Gunnþór af hólmi. Ekki er vítt til veggja í kirkjunni en þar komast um fjörutíu manns fyrir. Boðið var upp á streymi frá at- höfninni og mættust þar gamli tíminn og nútíminn. Gamalt hús endurbyggt með gamla laginu og útsending á netinu fá vígslunni. Bogi Reynisson sá um streymið en ekki var pláss fyrir hann innandyra. Veðurguðirnir voru ekki hliðhollir og hellirigndi meðan á athöfninni stóð. Boga tókst, við erfiðar aðstæður, að halda streym- inu gangandi í rúmar fimmtíu mínútur. Vert er að geta þess að altaristaflan eftir Svein M. Björnsson sem kallast Upprisan slapp frá brunanum. Kemur það til vegna þess að hún var geymd yfir vetrar- mánuðina í Hafnarfjarðarkirkju. Var sett upp í Krýsu- víkurkirkju í vormessu ár hvert og tekin niður á haust- in. Hún er nú komin á sinn stað í endurreistri kirkjunni. Gestir koma til vígsl- unnar í sannkölluðu Krýsuvíkurveðri. Önnur endurreisnin Krýsuvíkurkirkja hefur verið endurreist eftir brunann árið 2010. Var hún vígð á hvítasunnudag en veðurguðirnir voru ekki sérlega hliðhollir. Ljósmyndir: Árni Sæberg Texti: Kristján Jónsson kris@mbl.is Kristján Valur í predikunarstólnum. Á meðal kirkjugesta má sjá Þór Magn- ússon fv. Þjóðminjavörð og Rósu Guð- bjartsdóttur bæjarstjóra í Hafnarfirði. 12.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.