Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022 VINÁTTA Í Cleveland Heights í Ohio-ríki Banda- ríkjanna búa tvær vinkonur aðeins steinsnar hvor frá annarri. Píanókenn- arinn Julie Mangino rölti yfir til ís- lenskrar vinkonu sinnar, listakonunnar Hildar Ásgeirsdóttur, sem búið hefur í borg- inni í bráðum fjörutíu ár. Þær hafa þó þekkst enn lengur, eða allt frá árinu 1975, þá tólf og þrettán ára gamlar. Þá bjó fjölskylda Hildar í Cleveland þar sem faðirinn, Ásgeir Jónsson, nam hjartalækningar við spítalann þar í borg. Móðir Hildar, Ragnhildur Benediktsdóttir, sótti tíma í háskóla nokkrum og kynntist þar móður Julie, Rosemarie, og með þeim tókst vinskapur. Fljótlega fóru konurnar tvær að hittast með börnin og það leið ekki á löngu þar til Hildur og Julie voru orðnar perluvinkonur. Við hittumst í eldhúsinu hjá Hildi og yfir kaffibolla eru rifjaðir upp gamlir og góðir tímar; skiptinemaárið, íslenskukennslan og vinskapurinn sem haldist hefur í heil 48 ár. Sorg að kveðja bestu vinkonuna Julie er yngst og eina stúlkan í hópi sjö systkina. Það var því oft líf og fjör á hennar heimili, en á áttunda áratugnum bjó hún í stóru húsi úti í skógi þar sem leiksvæðið var náttúran í kring. „Við fórum stundum í heimsókn til Julie og fórum þá út í skóg að sveifla okkur í vínviði,“ segir Hildur og segir að ári eftir fyrstu kynnin hafi þær byrjað að hittast fyrir alvöru. „Við hittumst oft um helgar og bróðir minn keyrði okkur alltaf, í bíó eða mig heim til ykk- ar, og við gistum hvor hjá annarri til skiptis. Svo vorum við oft að passa litlu íslensku krakkana sem bjuggu í götunni þinni, Hildur,“ segir Julie á fallegri íslensku, en ótrúlegt en satt talar Julie enn nánast lýtalausa íslensku og ekki er að heyra á henni amerískan hreim. „Já, alveg rétt, við vorum barnapíur!“ segir Hildur, sem var búin að steingleyma þessu, en á þessum tíma bjuggu fimm íslenskar lækna- fjölskyldur í einni og sömu götu og því stór hóp- ur íslenskra barna, en af þeim var Hildur elst. Það var svo árið 1977 að fjölskylda Hildar flutti aftur heim til Íslands og voru vinkon- urnar að vonum afar leiðar. „Það var mjög sorglegt fyrir okkur því við vorum bestu vinkonur í heiminum,“ segir Julie og segist strax hafa reynt að hugsa upp leiðir til að geta heimsótt vinkonu sína. „Ég vissi að það voru til skiptinemasamtök sem hétu AFS og spurði mömmu hvort það væri ekki góð hugmynd ef ég myndi fara til Ís- lands í gegnum AFS. Mamma sagði þá: Viltu ekki bara koma og heimsækja okkur?“ segir Julie, en þarna á hún við hina íslensku mömmu sína, Ragnhildi, sem hafi þá svarað að ekki þyrfti nein samtök til þess að hún gæti komið og dvalið hjá þeim. Svið fyrsta kvöldið Það var svo ári seinna, árið 1978, að Julie lét drauminn rætast og flutti til Íslands til vin- konu sinnar, en fjölskyldan var þá nýflutt í ein- býlishús í Garðabæ. „Ég kom fjórða júlí, ég man eftir því. Þá var ég fimmtán, alveg að verða sextán. Um haustið fór ég í Fjölbraut í Garðabæ en Hildur var í Garðaskóla,“ segir Julie og segist hafa verið frá sér numin yfir landi og þjóð. „Mér fannst allt æðislega skemmtilegt og öðruvísi! Þarna var heimur sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Mér fannst ég oft vera stödd í málverki eftir Salvador Dalí; landslagið var svo flott og öðruvísi. Það var allt svo nýtt,“ segir Julie, en þær vinkonurnar deildu litlu herbergi. Ragnhildur hafði skipulagt skemmtilega viku fyrir vinkonurnar strax eftir komu Julie. „Við byrjuðum á því að fara í Kerlingarfjöll. Ég var nýkomin til landsins og við vorum sendar þangað en ég kunni ekkert á skíðum. En það var alveg æðislegt!“ segir Julie sem segist hafa brugðið í brún þegar þær settust niður í kvöldmat í Kerlingarfjöllum. „Fyrsta kvöldið voru svið í matinn! Ég man að ég spurði Hildi hvað þetta væri eiginlega, ég hafði aldrei séð annað eins,“ segir hún. „Þarna voru einhverjir strákar sem spurðu hvort þeir mættu borða augun. Ég sagði að það væri alveg sjálfsagt!“ segir hún og skelli- hlær. Hildur segist að vonum hafa verið glöð að fá bestu vinkonuna til sín. „Það var alveg frábært og mikill spenningur í gangi,“ segir Hildur og segir Julie strax hafa dottið inn í sinn vinahóp. Eftir að sumarfríi lauk tók alvaran við og Julie fór í fjölbraut. „Það var fínt í skólanum en ég skildi auðvit- að mjög lítið, enda kunni ég ekkert í íslensku. Svo fór ég líka í píanónám hjá Gísla Magnús- syni í Tónlistarskóla Garðabæjar. Hann var svo flinkur og góður við mig,“ segir Julie og segir félagslífið hafa verið ólíkt því sem hún átti að venjast frá Ameríku. „Svo fórum við auðvitað niður á Hallær- isplan um helgar,“ segir Hildur. „Já, ég fékk að kynnast unglingamenningunni og fannst það skemmtilegra en í Ameríku. Það var kannski meira frelsi á Íslandi,“ segir Julie. Rifust bara yfir þrifum Julie vildi endilega læra íslensku en segir það hafa gengið hálfbrösuglega til að byrja með. „Það var svo í febrúar að ég ákvað að hætta alveg að tala ensku,“ segir Julie og segist hafa ákveðið á föstunni að hún mætti alls ekki tala eitt orð í ensku, en Julie er kaþólsk. „Svo uppi í rúmi á kvöldin kenndi Hildur mér íslensku. Það fór að ganga þegar ég hætti að tala ensku, en ég las líka krakkabækur og Tinnabækur, sem hjálpaði mikið,“ segir hún og fljótlega náði hún afar góðum tökum á málinu. „Hildur var mjög ströng við mig! Ég man þegar ég lærði að segja orðið brjálæði. Það tók mig alla nóttina! Brjá … brjá … brjálæði!“ segir Julie og hlær. „Og orðið smjör,“ skýtur Hildur inn í. „Já, og orðið herbergi. Það var ofsa erfitt.“ „Við vorum öll kvöld að æfa orð, aftur og aft- ur,“ segir Hildur, sem viðurkennir að hún hafi verið strangur kennari. Hildur og Julie segja að sér hafi alltaf komið vel saman, en muna þó eftir einu ágreiningsefni. „Manstu þegar við vorum að þrífa saman?“ spyr Hildur og Julie tekur bakföll af hlátri. Blaðamaður skilur ekkert en fær fljótt að vita að þær hafi verið að þrífa hús í nágrenninu fyr- ir smá aur og ekki hafi þær verið samtaka í því hvernig ætti að þrífa. „Við rifumst aldrei nema þegar við þrifum saman hús! Ég þurfti að hafa allt fullkomið,“ segir Julie og segir aðra þeirra einhvern tím- ann hafa strunsað út í fýlu. „Já, hún vildi þrífa allt með tannbursta!“ segir Hildur. Erfitt að segja orðið brjálæði! „Við tölum alltaf íslensku saman og höfum gert alla tíð. Ég tala aldr- ei ensku við hana,“ segir Hildur og Julie segir það líka alveg bannað. Morgunblaðið/Ásdís Í tæpa hálfa öld hafa þær verið vinkonur, Hildur Ásgeirsdóttir og Julie Mang- ino, en þær kynnstust á ung- lingsárunum og hafa fylgst að síðan. Julie talar reiprennandi íslensku og hefur haldið henni við í öll þessi ár. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Fyrsta kvöldið voru svið í matinn! Ég man að ég spurði Hildi hvað þetta væri eiginlega, ég hafði aldrei séð annað eins. Þarna voru ein- hverjir strákar sem spurðu hvort þeir mættu borða augun.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.