Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Síða 24
Ernest og Frida voru afar spennt að komast í hundagönguna. E
inn fagran laugardags-
morgun í einu af fínni
hverfum Cleveland-borgar í
Ohio fékk blaðamaður að fylgja
vinunum Ernest og Fridu eftir
þegar þau tóku þátt í vikulegri
hópgöngu hunda, sem kallast á
ensku „Pack Walk“.
Ernest og Frida spennt
Ernest og Frida, sem heita eftir
þeim frægu listamönnum Ernest
Hemingway og Fridu Kahlo, eru
bæði af Labradoodle-kyni, sem er
blanda af Labrador og Poodle,
eins og nafnið gefur til kynna.
Hundar þessir eru með afbrigðum
þægir, klárir og skemmtilegir og
gelta varla.
Frida og Ernest virtust vel vita
hvert förinni var heitið þegar lagt
var af stað í bíl, og sátu bæði
spennt í aftursætinu. Þegar komið
var í fallegan garð beið þar fjöldi
hunda af öllum stærðum og gerð-
um, ásamt eigendum þeirra. Alls
mættu þennan dag 65 hundar en
mest hafa þeir verið um 120 tals-
ins.
Læra að mæta öðrum
En hvað er „Pack Walk“?
Það er skipulögð fjöldaganga
hunda, þar sem hundaþjálfari
ræður ferðinni og stjórnar æfing-
um og leikjum hundanna. Tilgang-
urinn er að fá hunda til að venja
sig við að mæta öðrum hundum,
án þess að tryllast, gelta eða ráð-
ast á þá. Hundarnir virtust hafa
bæði gagn og gaman af göngunni,
en oft var numið staðar og farið í
eins konar hundaþrautir sem fólu í
sér til dæmis að mætast, ganga í
halarófu eða setjast stilltir og
bíða. Í leiðinni kynnast eigend-
urnir, spjalla og eiga notalega
stund saman í klukkutíma eða svo.
Hundagöngur eru vinsælar í
Ameríku en þá hittist fjöldi
hunda til að ganga saman og
læra að umgangast hvorn annan.
Morgunblaðið/Ásdís
Ernest fylgist hér með öðrum hundum í göngunni, sallarólegur.
Gengið var fyrst í halarófu í sólinni.
Hundalíf og
hópganga
Víða um Bandaríkin hittast hundaeigendur með
hunda sína til að venja þá hvern við aðra.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.6. 2022
GÆLUDÝR
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL