Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.06.2022, Side 29
AFP/Emma McIntyre Jerry Seinfeld, George Shapiro og Eddie Murphy árið 2017. látist árið 1984, aðeins 35 ára að aldri. Það var í raun merkilegt að Shap- iro skyldi halda tryggð við Kaufman því eflaust hefðu einhverjir gefist upp. Í mörgu sem Kaufman tók sér fyrir hendur var markmiðið ekki að afla sér vinsælda og einhverjir um- boðsmennirnir hefðu því misst áhug- ann. Þvert á móti naut Kaufman þess að hrista upp í fólki og fram- kvæmdi eins konar gjörninga. Shap- iro sagði sjálfur í viðtölum að hann hefði kunnað að meta manneskjuna Andy Kaufman og þess vegna hefði hann haldið samstarfinu áfram en viðurkenndi að á ýmsu hefði gengið. Shapiro sagðist ekki geta verið með skemmtikrafta á sínum snærum ef hann bæri ekki virðingu fyrir þeim sem manneskjum. Samskiptin væru það mikil á milli umboðsmannsins og skemmtikraftsins að það væri nán- ast eins og hjónaband. Kaufman var með ólíkindum uppátækjasamur og sérvitur eins og vel kemur fram í kvikmyndinni Man On The Moon frá árinu 1999 þar sem Jim Carrey leikur Andy Kaufman og Danny DeVito leikur Shapiro. De- Vito þekkti vel til þar sem hann lék með Kaufman í hinum kunnu gamanþáttum Taxi. Shapiro tók þátt í framleiðslu kvikmyndarinnar og gefur hún því ágæta mynd af sam- skiptum hans og Kaufmans. Eitt af því sem Kaufman tók upp á var að takast á við konur úr hópi áhorfenda í fjölbragðaglímu og var atriðið hluti af skemmtunum hans þegar Kaufman tróð upp í háskólum og víðar. Framan af þótti mörgum atriðið skemmtilegt en Kaufman var í sérkennilegum glímufatnaði og lét hanna fyrir sig belti til merkis um að hann væri mesti glímukóngur heimsins. Glímuatriðin fóru að súrna þegar Kaufman færði glímuna inn í sjónvarpssal og gekk fram af áhorf- endum með alls kyns yfirlýsingum um að staður kvenna væri í eldhús- inu og fleira í þeim dúr. Þar var Kaufman í karakter og vildi í raun leika óvinsæla persónu en það skil- aði sér ekki endilega inn í stofu hjá fólki. Shapiro sagði fjölbragðaglím- una hafa verið það erfiðasta í sam- starfinu með Andy Kaufman. Bréfasendingar virkuðu Georg Shapiro gerðist umboðs- maður Jerrys Seinfelds eftir að hafa séð Seinfeld fara með gamanmál á sviði. Shapiro á heiðurinn af því að NBC-sjónvarpsstöðin var tilbúin til að gefa Jerry Seinfeld tækifæri í sjónvarpi. Hann var reyndar orðinn býsna þekktur uppistandari, meðal annars þar sem hann hafði komið fram í þáttum hjá Johnny Carson, David Letterman og þeim kump- ánum öllum. Shapiro sendi þáverandi forstjóra NBC reglulega blaðaúrklippur þeg- ar Seinfeld fékk góða dóma fyrir uppistand. Dag einn sendi hann for- stjóranum bréf með einni úrklipp- unni. Þar skrifaði Shapiro eitthvað á þessa leið: „Þú getur sagt að ég sé klikkaður en ég tel að Jerry Seinfeld muni vera með þátt á NBC áður en langt um líður.“ Í framhaldinu var boðað til fundar með Seinfeld og Shapiro. Úr varð vinsælasti sjón- varpsþátturinn í Bandaríkjunum á tíunda áratugnum og einn sá vinsæl- asti frá upphafi. Þeir sem þekkja sögu Seinfeld- þáttanna vita að þættirnir fóru ekki á flug í vinsældum fyrr en í fjórðu seríunni. Fram að því kom nokkrum sinnum upp óvissa um hvort fram- leiðslu þáttanna yrði hætt. Sér- staklega á fyrstu stigum. NBC var með þættina vinsælu Cheers sem Ís- lendingar þekkja einnig vel. Ástæða þess að Cheers-þættirnir luku göngu sinni árið 1993 var sú að aðal- leikarinn Ted Danson sagðist þurfa að snúa sér að öðru. Varð þetta vatn á myllu Seinfeld-þáttanna því þeir voru þá sýndir á þeim tíma sem Cheers hafði verið sýnt í dagskrá NBC. Línuleg dagskrá lifði þá góðu lífi og hlutir sem þessir skiptu miklu máli. Þá jukust vinsældir Seinfeld- þáttanna til mikilla muna. Skömmu síðar rakst George Shapiro á Ted Danson í veislu. Fyrstu viðbrögð Shapiro voru að faðma Danson að sér sem varð mjög undrandi. Shap- iro gat ekki annað en viðurkennt að faðmlagið væri til komið vegna þess að Danson hefði hætt í Cheers. Þar sem Shapiro og West tóku þátt í framleiðslu Seinfeld-þáttanna þá þurftu þeir ekki að kvíða lífsbar- áttunni á efri árum. 12.6. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Glærir ruslapoka Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk 1.995 Strákústar mikið úrval Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16 Garðslöngur í miklu úrvali Hrífur Greinaklippur frá 585 Burstar framan á borvél 3 stk. Mikið úrval af garðstömpum Fötur í miklu úrvali frá1.495 Laufhrífur SJÓNVARP Sarah Jessica Parker tjáði sig á dögunum um ástæður þess að Kim Cattrall sé ekki með í nýrri þáttaröð And Just Like That. Þar munu þrjár leikkonur af fjór- um úr þáttunum vinsælu Beðmál í borginni leika saman á ný. Parker var í viðtali í hlaðvarps- þættinum THR’s Awards Chatter og sagði Cattrall ekki hafa haft áhuga á verkefninu. Hún eigi ekki í deilum við Cattrall því um ein- stefnu sé að ræða. Catrall hafi tjáð sig um Parker en ekki öfugt. Á ekki í deilum við Cattrall Leikkonan Sarah Jessica Parker. AFP BÓKSALA Í MAÍ Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Natríumklóríð Jussi Adler-Olsen 2 Allt í blóma Hafsteinn Hafliðason 3 Maðurinn sem dó tvisvar Richard Osman 4 Allt og sumt Þórarinn Eldjárn Gullbringa 5 Hanni granni dansari Gunnar Helgason 6 Gestalistinn Lucy Foley 7 Sumar í strandhúsinu Sarah Morgan 8 Risasyrpa – fjallaklifur Walt Disney 9 Heiðríkja – Shetland 6 Ann Cleeves 10 Reimleikar Ármann Jakobsson 11 Kennarinn sem fuðraði upp Bergrún Íris Sævarsdóttir 12 Liðin tíð Lee Child 13 Bekkurinn minn 4 – hjólahetjan Yrsa Þöll Gylfadóttir 14 Fær í flestan sjó Egill Eðvarðsson og Kristín Jórunn 15 Bíbí í Berlín Bjargey Kristjánsdóttir 16 Spæjarastofa Lalla og Maju: Dýraráðgátan Martin Widmark og Helena Willis 17 Hlaupahringir á Íslandi Ólafur Heiðar Helgason 18 Af djúpum straumi Ferdinand Jónsson 19 Getnaður HeiðaVigdís Sigfúsdóttir 20 Helkuldi Viveca Sten Allar bækur Rithöfundurinn kunni Auður Haralds hefur sent frá sér nýja skáldsögu Hvað er drottinn að drolla? Auður vakti strax athygli með sinni fyrstu skáldsögu Hvunn- dagshetjan árið 1979 og síðar vöktu bækurnar um Elías mikla athygli. Ný skáldsaga frá Auði telst þó til tíðinda því hún hefur einungis sent frá sér tvær bæk- ur á þessari öld. „Um höfundinn er ekkert nýtt að segja. Hún er með tvær hendur, tvo fætur og eitt höfuð, eins og hún hefur alltaf haft og þótti ekki fréttnæmt fram að þessu,“ stendur aftan á bókinni sem fjallar um tímaflakk. Á tíma plágunnar í Englandi á fjórtándu öld lendir Guðbjörg, skrif- stofukona í Reykjavík, á óumbeðnu tímaflakki. Og þar má doka við og velta fyrir sér hverju nútímavitneskja bjargi þegar nútíminn fylgir ekki með. Þrettánda bókin um Stellu Fleiri íslenskar bækur hafa komið út nýlega og enn er vor í spennusagnagerð á Íslandi. Þrjár nýjar spennu- sögur eru á boðstólum í kiljuformi. Morðið í Öskjuhlíð er þrettánda bókin um Stellu Blómkvist. „Árið er 1995 og Stella Blómkvist er ný- útskrifaður lögfræðingur. Þegar þekktur blaðamaður hverfur í tengslum við rannsóknir sínar dregst hún inn í mál sem verður fljótlega að snúinni morðgátu sem teygir anga sína víða um heiminn. Og þegar ung kona þarf að leita réttar síns eftir nauðgun getur Stella ekki annað en hjálpað henni, jafnvel þótt valdamiklir aðilar reyni að stöðva hana,“ segir í kynningu á bókinni. Kafbátaumferð í höfninni Anna Ólafsdóttir Björnsson, fyrrverandi þingmaður, sendi frá sér glæpasögu í fyrra og aðra nú sem heitir Óvissa. Horfinn eiginmaður, kafbátaumferð í Reykjavík- urhöfn að næturþeli og ímyndunarveikur unglingur. Allt eru þetta óvæntar hliðar á nýju máli sem vinirnir Linda Lilja og Gabríel sogast inn í,“ stendur aftan á bókinni. Fyrsta spennusaga Maríu Hvítserkur er fyrsta spennusaga Maríu Siggadóttur. Þar finnst maður nokkur myrtur í heimahúsi og við rannsókn málsins blandast atburðarásin saman við smygl á eiturlyfinu Vermaak, einhverju hættulegasta eiturlyfi sem vitað er um. Hera Hallvarðsdóttir rann- sóknarlögreglukona og félagar hennar, sem annast rannsókn málsins, hafa í mörg horn að líta. KILJUR Ný bók frá Auði Haralds

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.