Morgunblaðið - 04.07.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 04.07.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is Verona LáttuÍtalskadrauminnrætast! 19.950 Flug aðra leið frá Flugsæti Landsmót hestamanna hófst með forkeppni í barna- og unglingaflokki í gær. Fisléttir knaparnir stýrðu vígalegum hestunum listilega fyrir framan fjölskipaða dómnefnd. Ás- mundur Einar Daðason barnamála- ráðherra var meðal þeirra sem mættu í brekkuna til þess að fylgjast með. Eftir forkeppni í barnaflokki er Kristín Eir Hauksdóttir efst á hestinum Þyt frá Skáney með ein- kunnina 8,798, sem hefði dugað til efsta sætis í flokki unglinga. Hæstu einkunn í unglingaflokki hlaut Svan- dís Aitken Sævarsdóttir á merinni Fjöður frá Hrísakoti með 8,728. Þá fór fram fordómur á fjögurra og fimm vetra hryssum á kynbóta- vellinum og þar verða sýningar áfram út mótið sem eru fjölsóttar af ræktendum og unnendum íslenska hestsins hvaðanæva úr heiminum. „Mótið hefur gengið mjög vel í dag, fullt af fólki í brekkunni,“ segir Ólafur Þórisson mótsstjóri. Hann kveðst finna fyrir mikilli spennu og stemningu í ungviðinu og nú sé búið að ná mesta skrekknum úr fyrir milliriðilinn. thorab@mbl.is Landsmót hestamanna hófst á Gaddstaðaflötum í gær með glæsilegri setningarathöfn en fjögur ár eru liðin frá síðasta landsmóti Ungviðið reið á vaðið Ljósmynd/ Landsmót hestamanna Ósæmileg hegðun foreldra á íþrótta- mótum barna er ekki ný af nálinni að sögn Hafrúnar Kristjánsdóttur íþróttasálfræðings. „Við breytum því ekki að fólk hagi sér eins og fífl, en ég held samt að félögin gætu unnið meira með að búa til og innleiða gildi í sitt starf.“ Rannsóknir sýna að áhugi og stuðningur foreldra við íþróttaiðkun barna sinna sé til þess fallinn að þau endist lengur í íþróttinni. Í því felist forvarnaráhrif, enda dragi íþrótta- iðkun almennt úr áhættuhegðun. Því væri ekki lausn að foreldrar hættu að mæta á leiki barna sinna. „Við viljum þennan stuðning. Eðlileg hegðun foreldra er að hvetja áfram liðið sitt án þess að einbeita sér að úrslitum og frammistöðu. Þeir eigi frekar að fylgjast með því hvort barnið sýni íþróttamannslega hegð- un og virðingu í samskiptum og hvort liðið sé að ná framförum.“ N1-mótið í knattspyrnu fór fram á Akureyri um helgina, þar sem tvö þúsund krakkar á aldrinum ellefu til tólf ára tóku þátt. Mótið gekk vel fyrir sig en þó fóru á kreik sögur af ósæmilegri hegðun foreldra á leikj- um barna sinna. Þá tók lið á vegum Þróttar þá ákvörðun að mæta ekki í leik um fimmta sætið gegn liði FH. Í kjölfarið birti knattspyrnudeild Þróttar yfirlýsingu þess efnis að yfirþjálfari og þjálfari liðsins hefðu tekið þessa ákvörðun í ljósi þess að hegðun liðs FH hefði borið vott um agaleysi og vanvirðingu. Þar var jafnframt bent á að ábyrgðaraðilar hefðu brugðist þegar „leikar fóru úr böndunum“. Hafrún segir ómögulegt að taka afstöðu til þess hvort ákvörðun Þróttar hafi verið rétt eða ekki, enda hafi hún ekki vitneskju um hvað hafi átt sér stað. „Almenna reglan er auð- vitað að þú mætir til leiks en stund- um vill maður ekki setja börn í að- stæður sem maður metur óæskilegar.“ Þjálfarar, og eftir atvikum for- eldrar, verða að axla þá ábyrgð að veita aðhald og leiðbeina ungum iðk- endum um hvernig hegðun sé æski- leg í fótboltaleik. „Þessi börn eru ell- efu og tólf ára og eru bara að læra. Þau geta misst stjórn á skapi sínu. Þá hvílir mikil ábyrgð á þjálfurun- um. Hegðun barnsins á ekki að bitna á öðrum leikmönnum.“ Um þessar mundir er Hafrún að taka þátt í tilraunaverkefni með ÍSÍ, UMFÍ og KSÍ, Fimleikasambandi Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Loughborough-háskóla á Englandi, Fimleikadeild Ármanns og knatt- spyrnudeild Fylkis. Verkefnið kall- ast 5C og snýst um að þjálfa fimm þætti í sálrænni og félagslegri færni barna og unglinga í íþróttum. Þessir þættir eru skuldbinding, samskipti, sjálfstraust, sjálfsagi og einbeiting. Innleiðing á verkefninu hófst með félögunum í sumar og hefur heilt yfir gengið vel, að sögn Hafrúnar, þó þjálfarar séu misjafnlega móttæki- legir. Hafrún segir að um sé að ræða langhlaup en ekki spretthlaup. Það skipti máli að þjálfa iðkendur mark- visst í huglægum þáttum frá upp- hafi. „Þú þarft eiginleika eins og samskiptahæfni, sjálfstraust og til- finningastjórnun til þess að verða af- reksíþróttamaður, en þetta hjálpar líka í lífinu almennt.“ Þannig ætti aukin áhersla á hugarfar í íþróttum og framkomu að gagnast öllum iðk- endum, sama hversu langt þeir hyggjast stefna. thorab@mbl.is Mikil ábyrgð hvílir á þjálfurum Skapti Hallgrímsson Úrslit Fjölnir og Þór kepptu í úrslitum B-liða á N1-mótinu á Akureyri. - Foreldrar eigi að fylgjast með framförum og framkomu frekar en úrslitum og frammistöðu - Hegð- un barns eigi ekki að bitna á öðrum leikmönnum - Auka þurfi áherslu á hugarfarsþjálfun frá upphafi Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Stjórn Dómarafélagsins telur að meint leiðrétting á launum 260 op- inberra starfsmanna, þar á meðal dómara, sé ólögmæt. Komst fjársýsla ríkisins nýverið að því að allt frá gildistöku laga nr. 79/ 2019 um laun þjóðkjörinna manna, ráðherra og tiltekinna embættis- manna ríksins hafi laun 260 opin- berra starfsmanna verið ofgreidd. Viðmið við framkvæmdina var launa- vísitala ríkisstarfsmanna en ekki það viðmið sem tilgreint er í lögunum, þ.e. meðaltalsbreyting reglulegra launa ríkisstarfsmanna milli ára. „Það hefur verið ákveðið að fylgja launavísitölu ríkisstarfsmanna en síðan kemur fjársýslan eftir þrjú ár og segir að launavísitalan sé eitthvað annað en hlutfallsleg breyting á með- altali reglulegra launa starfsmanna ríkisins. Okkur finnst alveg óboðlegt að það gefur í sjálfu sér enga skýra mynd að þetta sé annað en meðaltal reglulegra launa. Það hefur enginn útskýrt hvað felst í því hugtaki. Okk- ur finnst óboðlegt að ganga frá skiln- ingi, framkvæma hann og koma svo eftir þrjú ár og ætla sér að breyta því,“ segir Kjartan. „Breytt fyrirvaralaust“ „Við erum fyrst og fremst að kalla eftir skýringu á því hvað breyttist þarna. Þessu er breytt fyrirvara- laust, án þess að við fáum að tjá okk- ur og án þess að við fáum neinn rök- stuðning fyrir því samkvæmt lögum í málinu og síðan tilkynnt opinber- lega beint í kjölfarið,“ segir hann. Ef stjórnvald breyti launum emb- ættismanns sé slíkt stjórnvalds- ákvörðun og vill Kjartan meina að ekki hafi verið farið að stjórnsýslu- lögum í málinu. Stjórn Dómara- félagsins mun á næstu dögum ákveða hvort málið verði rekið fyrir dómstól- um. Fari svo er líklegt að héraðsdóm- arar víki sæti í málinu og settir verði dómarar í málinu; fordæmi er fyrir slíku frá árinu 2006, þegar héraðs- dómari fór í mál við ríkið vegna kjaramála og bar sigur úr býtum. Þá viku allir héraðsdómarar við Héraðs- dóm Reykjavíkur sæti í málinu og skipaði dómsmálaráðuneytið forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík setudómara í málinu auk tveggja pró- fessora við lagadeild Háskóla Ís- lands. „Óboðlegt“ hjá ríkinu að mati Dómarafélagsins - Telja rökstuðning skorta og tilkynningarskyldu ekki virta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.