Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Æfingar og leikir í anda raunveru-
legra verkefna voru í aðalhlutverki á
landsmóti unglingadeilda Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar sem
haldið var á Höfn í Hornafirði um
helgina. Alls um
400 manns af öllu
landinu sóttu
mótið, þar af um
300 ungmenni
sem þarna
reyndu sig í leit-
artækni, bjarg-
sigi, fyrstu hjálp,
siglingum og
fleiru. „Hópefli
og samvinna var
áberandi þráður í
þessum æfingum – sem í lokin var
slegið upp í kappleiki og gleði,“ segir
Otti Rafn Sigmarsson, formaður SL,
í samtali við Morgunblaðið. Hann
var með sínu fólki á Hornafirði um
helgina og naut þess vel.
Góð fyrirheit um framtíðina
Björgunarfélag Hornafjarðar og
Slysavarnadeildin Framtíðin sáu um
framkvæmd landsmótsins, sem ung-
lingar 14-18 ára frá alls 22 félögum
sóttu. „Frábær þátttaka á þessu
móti gefur okkur góð fyrirheit um
framtíðina í starfinu. Þar erum við
alltaf að leita að öflugum mannskap
sem þarf þjálfun,“ segir formað-
urinn.
Hálendisvaktin hafin
Otti segir að ýmsir af leiðbein-
endum og umsjónarmönnum sem
voru á unglingamótinu nú séu meðal
þess björgunarsveitafólks sem fari á
næstunni á svonefnda Hálendisvakt
björgunarsveitanna. Þegar séu
fyrstu flokkarnir þar farnir á fjöll og
komnir í Landmannalaugar. Á
næstu dögum verði raðirnar svo
þéttar enn frekar og sveitir sendar
til sumarstarfa í Skaftafelli, í Nýja-
dal á Sprengisandi og í Drekagil við
Öskju. Fjöldi björgunarsveita sendir
mannskap á hálendið og er hver
flokkur þar í eina viku.
Verkefnin á hálendisvakt eru fjöl-
breytt, svo sem að liðsinna göngu-
fólki sem ratað hefur í vandræði, að-
stoða ökumenn og sinna fólki sem
kann að hafa hrasað, fengið skrámur
og slíkt. Þá hafa björgunarsveitirnar
einnig nú ýtt umferðarátaki úr vör,
en undir merkjum þess eru öku-
menn á leið út á land teknir tali, gef-
in ráð og hvatt til aðgæslu.
Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg
Landsmót Tilfæringar á stóru dekki af vinnuvél og sjúkraböruburður voru meðal þeirra verkefna sem ungt fólk úr björgunarsveitunum þurfti að leysa, í því skyni að læra af og fá reynslu.
Æfingarnar í anda raunveruleika
- Unglingar björgunarsveita hittust á
Hornafirði - Hópefli og samvinna
- Öflugur mannskapur fær þjálfun
Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg
Otti Rafn
Sigmarsson
Lífsgleði var í fyrirrúmi á fjölsóttu móti Fálkaskáta á
aldrinum 10-12 ára sem haldið var á Úlfljótsvatni um
helgina. Tæknivinna ýmiskonar, vatnasafarí og ástar-
pungabakstur voru meðal þrauta á mótinu, en það
sóttu um 150 ungir skátar. Fjöldi þátttakenda var ann-
ars tvöföld sú tala, því mótshaldi sem þessu fylgir alltaf
líka stór hópur foringja og foreldra. Stundum mæta
jafnvel heilu fjölskyldurnar, enda eru skátamót æv-
intýri allra kynslóða.
Róverskátar – fólk beggja vegna við tvítugt – ætla
síðan að mætast í Landmannalaugum síðar í sumar
enda allir þjálfaðir í útivist og ögrunum sem henni
fylgja í öræfaferðum. Þá eru ýmsar samkomur skáta í
sumar á Hömrum við Akureyri.
Fálkar fjörugir á Úlfljótsvatni
Ljósmynd/Olga
Skátar Fylking kátra krakka undir fána á fallegu sumarkvöldi í útivistarparadís skáta á Úlfljótsvatni um helgina.
Verið er að ganga frá kaupsamn-
ingi við nýjan kaupanda að varð-
skipunum Ægi og Tý og búist er
við að ljúka ferlinu við lok vik-
unnar. Þetta staðfestir Helena Rós
Sigmarsdóttir, lögfræðingur hjá
Ríkiskaupum. „Það er samt ekkert
í höfn fyrr en blek er komið á
blað,“ segir hún, en fallið var frá
öðru kauptilboði í skipin fyrir mán-
uði.
Höfðu áður gert tilboð
Ríkiskaup auglýstu skipin til sölu
síðasta haust og bárust þá tvö til-
boð í bæði skipin. Hið hærra var
upp á 125 milljónir en hið lægra
upp á 18 milljónir. Ekki varð af
kaupum í samræmi við tilboðið sem
var samþykkt vegna þess að sá
kaupandi hafði sett tiltekna fyr-
irvara sem skipin stóðust ekki og
hann gat ekki
fellt út, að sögn
Helenu. Þeir
kaupendur sem
nú hyggjast festa
kaup á varðskip-
unum tveimur
eru þeir sömu og
gerðu kauptilboð
upprunalega,
sem ekki var
samþykkt þá.
Bæði skipin eru
smíðuð í Danmörku. Varðskipið
Ægir var smíðað í Álaborg 1968 og
Týr var smíðaður í Árósum 1975.
Ægir fór í sína síðustu löggæslu-
og eftirlitsferð um miðin sumarið
2015 og Týr í nóvember í fyrra.
Helena býst við því að Ægir verði
settur í niðurrif eftir kaupin.
thorab@mbl.is
Nýir kaupendur
að Ægi og Tý
- Stefna á að klára kaupin í lok vikunnar
Varðskip Ægir og
Týr í Sundahöfn.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Ungt fólk á framhaldsskólaaldri og
eldri sundiðkendur eru hvað
spenntastir fyrir miðnæturopnun í
Laugardalslaug, að mati Árna
Jónssonar, forstöðumanns Laug-
ardalslaugar. Þar verður opið til
miðnættis á fimmtudögum frá og
með 4. ágúst næstkomandi, fram að
áramótum og lengur ef vel tekst til.
„Ég hef heyrt jákvæðar und-
irtektir. Við erum ótrúlega spennt
yfir því að prófa þetta og vera
ófeimin við að leyfa þessu að þrosk-
ast,“ segir hann. Laugardalslaug
hefur reynslu af miðnæturopn-
unum, til dæmis eftir miðnætur-
hlaup Suzuki, en þá fréttu fram-
haldsskólanemar af opnuninni og
fjölmenntu á staðinn. „Það er auð-
vitað ótrúlega jákvætt að þau séu
að koma og vera í svona heilbrigðu
umhverfi. En við viljum auðvitað
ekki að þau séu að vaka lengi í
haust,“ segir Árni. „Við viljum ekki
hafa neikvæð áhrif á skólagöng-
una.“
Árni hefur átt samtöl um
miðnæturopnunina við fastagesti
laugarinnar. Margir eru fastir í rút-
ínunni og vilja ná sundinu fyrir tíu-
fréttir. „En það er dálítill hópur
sem hefur sýnt þessu töluverðan
áhuga og það eru þessir eldri. Ætli
það sé ekki fólk yfir sextugt. Ekki
þessir allra elstu,“ segir hann.
Yfir vetrartímann byrja sundæf-
ingar klukkan 05:30 á morgnana í
Laugardalslaug. „Þá fer þetta að
verða svolítið langur dagur hjá
okkur, frá hálfsex til tólf. Samt er
góður hópur að vinna hjá okkur.
Flestir sem ég er búinn að ræða
þetta við eru ótrúlega jákvæðir
gagnvart þessu. Þetta er eitthvað
sem hægt er að búa til skemmtilega
stemningu í kringum,“ segir hann.
„Ótrúlega spennt“ fyrir
miðnætursundi í sumar
- Forstöðumaður segir ungt fólk og eldri iðkendur sýna áhuga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Miðnætursund Viðbrögðin hafa
verið jákvæð, að sögn Árna.