Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 10

Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 * %)'%#)&" !($+Guðrún Arnardóttir Níundi þáttur ámbl.is DÆTUR ÍSLANDS Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Í níunda þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Guðrúnu Arnar- dóttur, leikmann Rosengård í Sví- þjóð. Guðrún, sem er 26 ára gömul, gekk til liðs við sænska félagið frá Djur- gården í Svíþjóð í júlí á síðasta ári en hún er uppalin hjá BÍ á Ísafirði. Hún lék upp yngri flokkana hjá BÍ til ársins 2010 þegar hún gekk til liðs við Selfoss en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í 1. deildinni í maí 2011, þá 15 ára gömul. Hún var í lykilhlutverki hjá Sel- fyssingum sumarið 2011 þegar liðið tryggði sér sæti í efstu deild en hún gekk svo til liðs við Breiðablik árið 2012 þar sem hún lék í sjö tímabil, frá 2012 til 2018. Hún varð tvívegis Íslandsmeistari með Blikum og þrívegis bikarmeist- ari en alls á hún að baki 98 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 8 mörk. Í desember 2018 skrifaði hún undir eins árs samning við sænska félagið Djurgården þar sem hún lék í tvö og hálft tímabil áður en hún gekk til liðs við Rosengård í júlí 2021 þar sem hún varð Svíþjóðarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð. Þá varð hún bikar- meistari með liðinu á yfirstandandi keppnistímabili. Hlakkar mikið til Guðrún á að baki 19 A-landsleiki fyrir Ísland þar sem hún hefur skor- að eitt mark. Hún lék sinn fyrsta landsleik gegn Japan í mars árið 2015, þá 19 ára gömul. „Ég er ótrúlega spennt fyrir Evr- ópumótinu,“ sagði Guðrún í þætt- inum en hún er á leið á sitt fyrsta stórmót með kvennalandsliðinu. „Ég hef ekki farið á stórmót áður og er tiltölulega ný í landsliðinu líka þannig að ég hlakka mikið til. Þetta er ótrúlega skemmtilegur hópur og stemningin er virkilega góð þannig að það er mjög gaman að vera hluti af landsliðinu í dag. Það ríkir ákveðin eftirvænting fyr- ir mótinu heima á Íslandi og það er almennt held ég bara mikil spenna á meðal fólks fyrir lokamótinu, sem er gaman að sjá. Þessi lokamót eru allt- af að verða stærri og stærri og ég hef fundið fyrir miklum stuðningi heiman frá. Það er mín tilfinning að almenn- ingur sé því alveg jafn spenntur fyrir þessu og við stelpurnar. Það eru bara sterk lið í lokakeppn- inni og það verður alvöru áskorun að reyna að ná í úrslit gegn þessum sterkustu þjóðum en á sama tíma tel ég okkur eiga ágætis möguleika á mótinu,“ sagði Guðrún meðal annars. Almenningur alveg jafn spenntur Morgunblaðið/Hallur Már Rosengård Guðrún gekk til liðs við sænska félagið frá Djurgården í júlí á síðasta ári en hún var Svíþjóðarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð. - Guðrún Arnardóttir er samningsbundin sænska úrvalsdeildarfélaginu og meistaraliði Rosengård - Guðrún er uppalin á Ísafirði en hún er á leið á sitt fyrsta stórmót með íslenska kvennalandsliðinu Morgunblaðið/Hallur Már Völlur Rosengård spilar heimaleiki sína á íþróttavell- inum í Malmö sem tekur rúmlega 3.900 manns í sæti. Morgunblaðið/Hallur Már Malmö Sænska borgin er þriðja stærsta borg Svíþjóðar en hún er á suðvesturstönd landsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.