Morgunblaðið - 04.07.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 04.07.2022, Síða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti| Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Hvítur, svartur að innan. Stór sóllúga, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, Apple Carplay, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, lane-keeping system, heithúðaður pallur o. fl. o.fl. 3,5 L V6 Ecoboost 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb- ft of torque, 20” álfelgur 2021 Ford F-150 Platinum Litur: Hvítur/ Svartur að innan (nappa leather) Æðislegur fjölskyldubíll, hlaðinn búnaði. 7 manna bíll,Hybrid Bensín, Sjálfskiptur, 360° mynda- vélar, Collision alert system, Harman/Kardon hljómkerfi, Tölvuskjáir í aftursæti VERÐ aðeins 10.390.000 m.vsk 2022 Chrysler Pacifica Hybrid Limited VERÐ frá 18.500.000 m.vsk Litur: Svartur/ svartur að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, sóllúga, heithúðaður pallur, rafmagns opnun og lokun á pallhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. High Country Deluxe pakki. 2022 Chevrolet High Country VERÐ 15.890.000 m.vsk Fulltrúar spænsku stéttarfélaganna SICTPLA og USO boðuðu um helgina áframhaldandi verkfall spænskra flugþjóna lággjaldaflug- félagsins Ryanair. Með verkfallinu vilja starfsmenn flugfélagsins mót- mæla slæmum vinnuskilyrðum en flugþjónarnir eru nýkomnir úr þriggja daga verkfalli sem neyddi flugfélagið til að fella niður tíu flug- ferðir innanlands. Munu flugþjónarnir leggja niður störf dagna 12. til 15., 18. til 21. og 25. til 28. júlí en Ryanair flýgur til tíu flugvalla á Spáni. Í tilkynningu frá Ryanair segir að flugfélagið vænti aðeins lítilsháttar truflana vegna boðaðra verkfalla á Spáni en hins vegar kunni verkföll flugumferðar- stjóra og flugvallarstarfsmanna víða um álfuna að valda meiri röskun á starfsemi félagsins. Nýlega lögðu flugþjónar Ryanair í Belgíu, Portúgal, Frakklandi og Ítal- íu niður störf tímabundið. Þá hyggj- ast flugþjónar easyJet á Spáni fara í níu daga verkfall í júlí til að krefjast hærri launa, en starfsmenn Charles de Gaulle-flugvallar í París lögðu niður störf á föstudag og laugardag og þurfti að fella niður um 10% ferða til og frá vellinum. ai@mbl.is AFP / Pau Barrena Ósátt Starfsmenn Ryanair mótmæla á El Prat-flugvelli. Flugþjónar Ryan- air á leið í verkfall - Ólga innan flug- valla og flugfélaga VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sturlu Þórhallssyni var vandi á höndum þegar kórónuveirufaraldur- inn stöðvaði komur kínverskra ferðamanna til landsins. Sturla, sem á að baki nokkuð langan starfsferil í ferðaþjónustu, stofnaði nýlega hug- búnaðarfyrirtækið Splitti til að hjálpa íslenskum hótelum, afþrey- ingarfyrirtækjum og verslunum að taka við greiðslum í gegn- um kínversku for- ritin Alipay og WeChat og koma vörum sínu og þjónustu á fram- færi á kínversk- um samfélags- miðlum á borð við Sina Weibo og Baidu. Reksturinn hafði farið vel af stað og hljóðuðu spár upp á að árið 2020 myndu allt að 250.000 eyðslu- glaðir kínverskir ferðamenn sækja landið heim. „Við erum komin með góðan við- skiptavinahóp og byrjuð að ná ágæt- is flugi þegar komur kínverskra ferðamanna til Evrópu snarstoppa. Það hægðist mikið á hjá okkur og var ekki annað í boði en að leita að nýjum verkefnum til halda rekstrinum á floti, en vinna samt áfram að þróun kjarnavörunnar enda ljóst að ferða- menn frá Kína og öðrum Asíu- löndum munu koma aftur,“ útskýrir Sturla. „Við fórum að bjóða upp á vefsíðugerð og ýmsar forritunar- lausnir, en sumarið 2020 koma tveir ungir menn með þá hugmynd á borð til mín að opna verslun með notaðan fatnað fyrir börn og fullorðna – nema hvað þá vantaði hugbúnað til að hjálpa við reksturinn.“ Rannsóknarvinna leiddi í ljós að engum forritum var til að dreifa sem bjuggu yfir réttu eiginleikunum og leitaði Sturla til hugbúnðarfyrirtæk- isins Reon til að gera forritið að veruleika. „Reon býr að miklum fjölda forritara með rétta þekkingu og reynslu og eftir tveggja mánaða forritunarvinnu var frumgerð að nýju sölukerfi tilbúin,“ segir hann. Nýi hugbúnaðurinn, sem fengið hefur nafnið SmartGO, fékk heldur betur góðar viðtökur og á aðeins 18 mánuðum hafa vörur fyrir 230 millj- ónir króna verið seldar í gegnum kerfi SmartGO. Hringrásarverslanir sækja á Til að útskýra hvernig SmartGO virkar þarf fyrst að fræða lesendur um viðskiptamódel hringrásar- verslana. Nokkrar þannig verslanir hafa sprottið upp á Íslandi á undan- förnum árum og má lýsa þeim sem eins konar framþróun á viðskipta- módeli flóamarkaða og hefðbund- inna verslana með notaðan fatnað. Virka hringrásarverslanirnar þannig að verslunareigandinn skaff- ar húsnæði, afgreiðslufólk og inn- réttingar á borð við hillur og fataslár en leigir síðan út rými í versluninni, yfirleitt í mánuð í senn. „Fólk sem vill t.d. selja notaðan fatnað eða aðra muni úr geymslunni pantar þá til- tekið rými í versluninni og borgar umsamda leigu fyrir, auk þess sem verslunin fær skerf af sölutekjunum. Seljandinn kemur með vörurnar sín- ar í upphafi leigutímabilsins og stillir þeim upp, en þarf svo ekki að koma aftur á svæðið fyrr en leigutímanum lýkur og fjarlægir þá þær vörur sem ekki seldust. Starfsfólk verslunar- innar sér um að þjónusta viðskipta- vinina og tekur við greiðslum,“ út- skýrir Sturla. SmartGO einfaldar ferlið til muna og heldur m.a. utan um bókanir á sölurýmum og útprentun strika- merkja fyrir þær vörur sem seljand- inn kemur með. „Seljandinn slær inn upplýsingar um allar þær vörur sem hann hyggst losa sig við og á hvaða verði þær mega seljast en auk þess að prenta út merkimiða með verði og lýsingu á vörunni þá eru upplýsing- arnar færðar inn í vefverslunarkerfi Shopify auk þess að vera tengdar beint við afgreiðslukassahugbúnað frá Reglu. Kerfin tala öll saman og ef flík er t.d. seld í versluninni hverfur hún úr vefverslunarkerfinu,“ segir Sturla en bætir við að enn sé eftir að setja vefverslunarhlið SmartGO í loftið og skrifast það á strangar regl- ur íslenskra færsluhirða: „Þeir hafa ekki enn samþykkt að taka við greiðslum fyrir markaðstorg með notaðar vörur og kemur það m.a. til af því að þar sem alla jafna er aðeins í boði eitt eintak af hverri vöru þarf að koma í veg fyrir að það geti gerst að sama varan sé óvart seld sam- tímis í vefversluninni og í sjálfri búð- inni. Við leysum þennan vanda með því að hafa netverslunina aðeins virka utan afgreiðslutíma búðar- innar og væntum þess að geta byrjað sölu á netinu síðar á þessu ári, en núna vinna fjórir forritarar að þróun nýrrar útgáfu SmartGO.“ Fyrir veskið og plánetuna Vinsældir hringrásarverslana fara vaxandi víða um heim og segir Sturla að verslanirnar höfði bæði til um- hverfisvitundar og hagsýni neyt- enda. Líta margir á kaup á notuðum fatnaði sem mikilvægt skref til að draga úr umhverfisspori fatafram- leiðslu og er sparnaðurinn líka um- talsverður. „Nýverið keypti ég sjálf- ur tvær skyrtur, tvær peysur, tvo jakka, og sitthvað smálegt í hring- rásarverslun og borgaði 30.000 kr. fyrir. Í kjölfarið gerði ég leit á netinu og fann hvað flíkurnar hefðu kostað ef þær hefðu verið keyptar nýjar og fékk það út að ég sparaði mér um 250.000 kr. með því að velja notað í staðinn fyrir nýtt. Er sennilegt að engin af þeim flíkum sem ég keypti hafi verið notuð oftar en fimm sinn- um,“ segir Sturla. Frá opnun hafa um 5.500 einstak- lingar skráð vörur inn í kerfi SmartGO og samtals hafa 404.000 vörur verið stimplaðar inn. Fatnaður er stærsti vöruflokkurinn en kerfið hefur líka verið notað til að selja fylgihluti, alls kyns heimilismuni, húsgögn og útivistarvörur. Sturla segir seljendur mega vel við una og sýna mælingar SmartGO að af þeim vörum sem skráðar eu inn í kerfið seljast um það bil 54%. „Vel- gengni seljenda virðist einkum ráð- ast af því hvernig þeir verðleggja vörurnar og mikilvægt að fólk beri eigin verð saman við það sem tíðkast hjá öðrum.“ Framundan er útrás til Evrópu og hefur SmartGO samið við öflugan hollenskan aðila sem hyggst koma hugbúnaði SmartGO í notkun hjá meira en þrjátíu hringrásarverslun- um í Hollandi og Belgíu á næstu tólf mánuðum. „Það er gríðarlegt rými á Evrópumarkaði fyrir svona verslan- ir og eru horfurnar hjá okkur góðar næsta árið, og útlit fyrir að áður en þetta ár er á enda verði um tvær milljónir vara skráðar í kerfið okk- ar.“ 230 milljónir á fyrstu átján mánuðunum - Hugbúnaður SmartGO mætir þörfum hringrásarverslana Hagsýni Úrvalið skoðað hjá markaði Barnaloppunnar. Hringrásarverslanir hafa slegið í gegn á Íslandi og víðar. Morgunblaðið/Eggert Sturla Þórhallsson 4. júlí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 133.05 Sterlingspund 160.07 Kanadadalur 102.8 Dönsk króna 18.645 Norsk króna 13.381 Sænsk króna 12.868 Svissn. franki 138.33 Japanskt jen 0.9833 SDR 176.79 Evra 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.1858

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.