Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 20

Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 ✝ Dr. John Brian Dodsworth fæddist 6. mars 1934 í Middleton, úthverfi Manchester. Hann lést í Cambridge 30. mars 2021. Hann sýndi ungur afburða námshæfileika og hlaut fullan styrk til náms við Christ‘s Col- lege í Cambridge, og lauk þar meistaraprófi í norrænu. Hann var við starfsnám í hand- ritafræði á árunum 1961-1963 hjá Jóni Helgasyni við stofnun Árna Magnússonar í Kaup- mannahöfn. Að loknu doktorsprófi í Cam- bridge árið 1970 varð hann um- sjónarmaður norrænu deild- arinnar við háskólabókasafnið í þar, allt til starfsloka 1998. Und- ir hans stjórn óx deildin og dafn- aði sem eitt helsta bókasafn nor- rænna fræða utan Norðurlanda. Kona hans var Guðrún Stein- unn Halldórsdóttir, f. 21.4.1929, d. 1.11.2009. Foreldrar hennar voru Halldór Ragnar Gunn- arsson kaupmaður, f. 26.4. 1896, d. 29.2. 1964, og Steinunn Guð- rún Gunnarsson (fædd af ís- lenskum foreldrum í Kanada og kölluð Solvason), f. 5.9. 1901, d. 7.10. 1989. Guðrún átti þrjá bræður: Rút, f. 15.9. 1925, d. 10.11. 1998, Gunnar Kristin, f. 23.1. 1928, d. 12.7. 1936, og Brynjólf Hermann, f. 7.8. 1930, d. 17.1. 2006. Útför yfir duftkeri hans verð- ur gerð í dag frá Fossvogskap- ellu kl. 11.30. Að athöfn lokinni verður ker- ið jarðsett í leiði eiginkonu hans. Dag einn keypti faðir Brians alfræðibókasafn af farandsala er knúið hafði dyra hjá fjölskyld- unni. Þetta reyndist örlagafeng- ur fyrir hinn gáfaða og forvitna strák, sem las bækurnar upp til agna en heillaðist þó umfram allt annað af kaflanum um vík- ingana. Hann gat ekki hætt að hugsa um þá. Þessi áhugi leiddi síðar til háskólaprófs í norrænu og starfs hjá Jóni Helgasyni í Kaupmannahöfn. Jón kom því til leiðar að Bri- an fékk styrk ríkissjóðs til námsdvalar á Íslandi. Brian lýsti ferðinni hingað sem hálf- gerðri pílagrímsför fyrir sig. Hann sótti þá tíma hjá Halldóri Halldórssyni í nútímaíslensku og urðu það fyrstu raunveru- legu kynni Brians af okkar tungu, máli víkinganna. Hann tók og að sér kennslu í nám- skeiði í ensku við málaskólann Mími, sem strax varð mjög eft- irsótt, enda framburður hans á hinu nýja heimsmáli forkunn- arfagur og vandaður. Á rútu- ferðalagi um suðurland, sumarið þar á eftir, reyndist einn nem- andi hans, Guðrún Steinunn Halldórsdóttir, óvænt vera í hópi samferðamannanna. Þau settust saman og þarna fundu bæði að þeim var ætlað að verða samferða allt lífið á enda. Sam- band þeirra var einkar fagurt og ástríkt. Brian leitaði hér ráða varð- andi efni til doktorsprófs. Var honum bent á að Mágusar saga bragðarefs væri lítt rannsökuð. Sú riddarasaga var til í yfir 70 handritum, og höfðu aðrir veigr- að sér við að takast svo stórt verkefni á hendur. Mágusar saga var vinsælli meðal íslend- inga á miðöldum en þær sögur sem nú eru taldar frægastar, enda full af ærslum, vandræð- um og ævintýrum og hún endar vel. Brian lagði á brattann. Þetta reyndist umtalsvert meira um- fangs en sem nemur einni venjulegri doktorsritgerð. En með seiglunni og mikilli vinnu hafðist það. Fyrr en varði hafði hann varið doktorsritgerð sína, þykka bók, um Mágusar sögu bragðarefs, við Christ‘s College í Cambridge. Mestan hluta starfsævinnar starfaði Brian við háskólabóka- safnið í Cambridge. Við starfslok árið 1998 leitaði hugur hans enn á ný til Mágus- ar sögu bragðarefs. Margt nýtt hafði komið í leitirnar og hann tók á ný upp rannsóknir sínar og bætti enn við verkið af mik- illi atorku. Á heimili þeirra hjóna var alltaf töluð íslenska. Var til þess tekið, hvað hann náði góðum tökum á málinu. Á veggjum voru íslensk málverk og íslensk- ar bækur í bókaskápum. Þau leituðust ætíð við að greiða götu þeirra íslendinga sem á vegi þeirra urðu, og hafa margir not- ið gestrisni þeirra. Kynnin af Guðrúnu, með sitt kærleiksríka og brosmilda viðmót, og Brian, sem var gull af manni og heill í gegn, urðu mönnum minnis- stæð. Á sumrin dvöldust þau jafnan hér á landi, í húsi for- eldra hennar að Sólvallagötu 14 í Reykjavík. Þau hjónin höfðu ráðgert að flytjast til Íslands, en Guðrún andaðist árið 2009, áður en af því gat orðið. Við fráfall hennar var að honum kveðinn þungur harmur. Fáeinum árum síðar slasast hann og hlaut að vistast á umönnunarheimili eftir það. Þá var hann í raun og veru orð- inn meiri Íslendingur en Breti. Blessuð sé minning þessa góða fólks. Björn Einar Árnason. John Brian Dodsworth ✝ Kristín Sig- urjónsdóttir fæddist á Búðarhóli í Austur- Landeyjum 31. des- ember 1934. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands á Selfossi 23. júní 2022. Foreldrar henn- ar voru Margrét Fríða Jósefsdóttir frá Sveðjustöðum í Miðfirði, f. 23.11. 1904, d. 10.10. 1978, og Sigurjón Einarsson frá Krossi, Austur-Landeyjum, f. 7.4. 1894, d. 19.10. 1987. Kristín var fimmta í röðinni af sjö systkinum, hálfbróðir sam- feðra var Aðalsteinn, f. 6.6. 1915, d. 21.1. 1988. Alsystkin eru Einar Birgir, f. 5.5. 1933, Friðrik, f. 1.3. 1934, d. 5.3. 1934, ónefndur, f. 4) Grettir, f. 18.11. 1967. 5) Jón Valur, f. 2.7. 1973, maki Sigríður Sigmarsdóttir, f. 13.6. 1973. Börn þeirra eru Kristín Edda og Einar Örn. 6) Eiríkur Ingvi, f. 20.11. 1980, maki Berglind Ó. Sigvarðs- dóttir, f. 11.12. 1985. Börn þeirra eru Thelma Rós, Arnar Gauti, Anton Ingi og Jón Bjarki. Þegar Kristín lést voru lang- ömmubörnin orðin þrettán. Kristín fæddist á Búðarhóli í Austur-Landeyjum. Hún fluttist til Vestmannaeyja 1952, þá 18 ára að aldri. Hún bjó með for- eldrum sínum á Sólheimum í Vestmannaeyjum en þar kynntist hún manni sínum, Jóni Ein- arssyni. Þau bjuggu í Steinholti í Vestmannaeyjum fram til ársins 1962 en þá um vorið flytja þau að Bakka í Austur-Landeyjum. Á Bakka endurreistu þau hjónin öll húsakynni og ræktuðu upp land. Þau ráku bú á Bakka fram til ársins 2000 þegar börn þeirra tóku við. Kristín var heiðurs- félagi í kvenfélaginu Freyju. Útför hennar fer fram frá Krosskirkju, Austur-Landeyjum í dag, 4. júlí 2022, klukkan 14. 1.3. 1934, d. 4.3. 1934, Eiríkur Ingvi, f. 17.8. 1937, d. 2.10. 1978, og Heiðrún Gréta, f. 23.12. 1941. Kristín giftist Jóni Einarssyni frá Tjörnum, f. 1.3. 1930, d. 10.4. 2016, hinn 16. júlí 1961. Börn þeirra eru: 1) Sigmar, f. 15.4. 1957, maki Hólmfríður K. Helga- dóttir, f. 25.1. 1961. Börn þeirra eru Elísabet Rut, Jón Ægir og Rúnar Helgi. 2) Einar, f. 1.2. 1959, maki Unnur M. Sævars- dóttir, f. 22.6. 1968. Börn þeirra eru Kristrós Dögg og Bjartmann Styrmir. Áður átti Einar tvö börn, Þórunni Björk og Victor Loga. 3) Harpa, f. 21.4. 1962. Barn hennar er Kolbrún María. Elsku amma mín. Ég trúi eig- inlega ekki ennþá að þú sért farin frá okkur. Ég er svo þakklát fyrir vinátt- una okkar, þær stundir sem við áttum saman meðan ég var að naglalakka þig, þegar við kjöftuð- um um allt milli himins og jarðar, bulluðum og hlógum. Ég stríddi þér oft á því að þú værir aftur orð- in unglingur, aldrei heima hjá þér og alltaf á eintómu flakki! Eftir að afi dó fannstu kannski ekki alveg þinn stað og varst mikið að flakka á milli Reykjavíkur til Heiðrúnar þinnar, Bakka og Vestmannaeyja. Ég stríddi þér líka á að þú vildir vera naglalökkuð og fín til að heilla alla karlana í Reykjavík, en síður en svo, þú varst alltaf vopn- uð þínum giftingarhring og tókst hann aldrei niður. Þér var alltaf svo umhugað um okkur, börnin þín og barnabörn og síðar barnabarnabörn. Alltaf spurðir þú frétta af mér og mínum en oftar en ekki vissirðu allt þá þegar því þú varst búin að spyrj- ast fyrir áður en ég kom. Ég man þegar þú sást til mín, þegar ég var barn, að borða eintómar ostsneið- ar eða þurrt mjólkurkex, stóð þér alls ekki á sama og vildir gjarnan að ég borðaði nú eitthvað meira. Þú náðir reglulega að gera mig kjaftstopp því snögg varstu í til- svörum með gullkornin þín. Ég man sérstaklega eftir því þegar við Kolla ætluðum út á lífið í Eyj- um og þú varst að forvitnast hvar við ætluðum að gista. Ég spurði þig hvort við mættum ekki kúra hjá þér en þú hélst nú síður. Þá sagði ég að við myndum bara finna okkur einhverja gæja til að gista hjá en þá fussaði sú gamla; „það vill enginn sofa hjá ykkur“ og svo hlógum við eins og vitleysingar. Ég er þakklát fyrir þá fyrir- mynd sem þú ert mér en styrk- urinn og húmorinn þinn er nokk- uð sem ég vona að ég nái að tileinka mér í mínu lífi. Þú varst alltaf hörkutól, fram á síðustu stundu! Takk fyrir að vera vinkona mín. Við kveðjum þig, kæra amma, með kinnar votar af tárum. Á ást þinni enginn vafi, til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi, athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína. Englar hjá guði þig geymi, við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Þín Kristrós Dögg. Í dag kveð ég elsku Stínu mína á Bakka. Frá því ég fór að venja komur mína á Bakka sem barn til Kollu vinkonu tók Stína mér alltaf opn- um örmum frá fyrsta degi og náðum við vel saman og urðum miklar vinkonur. Mér þótti ég eiga annað heimili á Bakka og það var oft sem mamma og pabbi tóku undir það þar sem á tíma var ég oftar þar en heima hjá mér enda kallaði ég oft Stínu, ömmu Stínu. Ég minnist með hlýju og þakk- læti allra samverustunda okkar Stínu á Bakka. Mér var boðið á fjölskylduhittinga, ófáar eru gisti- næturnar, alltaf var mér boðið í mat og hún tók mér alltaf sem einni af sínu fólki. Ég verð henni og fólkinu á Bakka ævinlega þakklát fyrir alla góðmennskuna, vinskap og hlýhug í minn garð í gegnum árin. Stína sat með okkur Kollu dag- ana langa og hlustaði á okkur að tala um allt og ekkert og spila á spil. Þá tók hún oftar en ekki í spilin með okkur og spjallaði. Hún hafði áhuga á öllu sem við vorum að gera eða ræða, hvort sem við héldum að hún skyldi ekki allt hvað við vorum að segja en þá vissi hún meira en við héldum. Ég get ennþá hlegið þegar Heiðrún systir hennar var með okkur, önn- ur heyrði ekki nógu vel en hin sá ekki nógu vel. Í raun var það svip- að með okkur Kollu svo að við vor- um góðar saman, svo eftir fjög- urra tíma kaffi spjall þá var jafnvel upphafleg frásögn löngu gleymd og búin að breytast til muna að það var orðinn stór mis- skilningur, en það kom ekki að sök þar sem við gleymdum öllu jafnóðum. Sumrin þegar við sátum í garðinum að sóla okkar, heim- alningurinn með okkur en þá grínaðist Stína stundum hvor heimalningurinn... þar var átt við mig. Mikið þykir mér vænt um allar samverustundir okkar og spjöllin, kaffið og bestu flatkökurnar sem ég hef smakkað. Má ekki bjóða þér mjólk og flatköku með miklu smjöri? Jú takk. Það þurfti ekki að spyrja að því, ekki stóð á mót- tökunum. Þetta var yndislegur tími og Stína gaf sér alltaf tíma til að tala við mig og spyrja frétta af mínu fólki. Og allar símhringingarnar. Ég talaði alltaf við Stínu í dágóða stund áður en hún færði Kollu símann, ávallt svo þakklát fyrir hverja símhringingu. Það var svo gott að spjalla við hana og heyra hláturinn, veitti mikla gleði. Stína var mikill húmoristi og gátum við grátið stundum saman af hlátri. Hún var mikil hvatning fyrir bæði mig og Kollu í okkar daglega amstri og ég veit að hún mun vaka yfir henni og Kristbjörgu. Hún var stór hluti af minni æsku og faðmur hennar var ætíð fullur af kærleika. Stína bjó sínum traust og gott heimili, vann allt sitt af hógværð og hjartans lítillæti. Hún var sanntrúuð kona og hjartahrein sem öfundaði engan og kunni ekki að eiga óvini. Mér þykir vænt um hvað Stína var góð við mig alla tíð og tók mér sem einni af sínu eðal fólki. Minningin lifir áfram í hugum okkar og hjörtum og verður henni haldið á lofti með fallegum sögum fyrir komandi kynslóðir. Takk fyrir allt elsku amma Stína. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Vil ég votta börnum hennar, barnabörnum og öllum fjölskyld- um þeirra mína dýpstu samúð. Sigurbjörg Fríða Ólafsdóttir. Kristín Sigurjónsdóttir✝ Jóhann Pét- ursson fæddist á Akureyri 29. ágúst 1969. Hann varð bráðkvaddur 24. júní 2022. Foreldrar hans eru hjónin Pétur Heiðar Sigurðsson, f. 26. nóvember 1942, og Gunnborg Hugrún Gunnars- dóttir, f. 12. ágúst 1948. Systir Jóa er Hólmfríður Björk Pétursdóttir, f. 26. maí 1975, maki Þorvaldur Örn Arn- arson, f. 6. júlí 1974. Maki Jóa er Valrún Helga Magnúsdóttir, f. 28. apríl 1968. Foreldrar hennar voru Magnús Valsteinn Tryggvason, f. 5. febr- úar 1936, d. 15. maí 2020, og Lilja Magnúsdóttir, f. 7. mars 1941, d. 4. september 1988. Börn þeirra eru Heiðar Gauti, f. 2. nóvember 2002, Lilja Katrín, f. 2. nóvember 2002, og Gunnborg Petra, f. 13. október 2004. Jói fæddist og ólst upp á Akureyri. Hann gekk í Lund- arskóla og þaðan lá leiðin í Gagn- fræðaskóla Akureyrar. 16 ára var Jói farinn að vinna á sjó og var sjómaður allt til æviloka. Lengst af starfaði hann fyrir Samherja, nú síðast á skipinu Björgvini EA. Útför Jóhanns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 4. júlí 2022, klukkan 13. Það er þyngra en tárum taki að skrifa þessi orð. Elskulegur bróð- ir, mágur og frændi hefur kvatt okkur alltof snemma og skilur eft- ir stórt skarð í hjarta okkar. Hann Jói var góður maður, með ljúfa lund, hjálpsamur, traustur og skemmtilegur. Hann gat líka verið þrjóskur og stríðinn. Oft fóru stríðnin og þrjóskan sam- an og gat hann þrætt en glott út í annað á sama tíma. Í bernsku náði hann oft að espa systur sína upp. Með aldri og þroska varð stríðnin mildari hjá Jóa og snerist oftar en ekki um fótbolta. Eitt sinn þegar hann var í útlöndum ætlaði hann að hrekkja mág sinn og keypti Liverpool- búning fyrir litla frænda sinn þar sem hann minnti að mágur sinn, faðir hans, væri United-maður. Hann er hins vegar mikill Liver- pool-maður og var hinn ánægðasti með gjöfina. Eins benti hann yngsta frænda sínum reglulega á að rautt og hvítt væri fallegra en gult og blátt. Litli frændi stríddi honum á móti með því að klæða sig í eins margar KA-flíkur og hann gat þegar hann heimsótti Jóa. Jói mætti samt oft að horfa á litla frænda keppa fyrir hönd KA og hvatti hann áfram. Þrátt fyrir nokkur ár í bernsku þar sem hann naut þess að stríða systur sinni þá var alltaf mikill kærleikur þeirra á milli. Ef litlu systur leið illa mætti Jói til að hugga hana og ef Jói var á djamm- inu þá rúntaði litla systir til rúm- lega fjögur um nóttina ef ske kynni að hann vantaði far heim. Nú á full- orðinsárum nutu systkinin þess að hittast yfir kaffibolla og spjalla, fara út að borða saman eða í göngutúr. Það var gott að tala við Jóa og gátu systkinin rætt um allt. Oft ræddu þau um börnin sín og hvað Jói var stoltur af Heiðari, Lilju og Gunnborgu, ljúfmennsku þeirra, þrautseigju og dugnaði. Samverustundir í sumarbú- staðnum Liljulundi, útilegur í Vaglaskógi og ferðin til Danmerk- ur lifa sterkt í minningu okkar. Jói naut þess að fara í fjallaferðir á trukknum sínum og fórum við hjónin eitt sinn með honum og Valrúnu í ferð upp á Vatnajökul. Fegurðin og kyrrðin stórkostleg og félagsskapurinn dásamlegur. Einnig fékk litla frænkuskottið oft að fara með þeim í ferðir. Þeim þótti svo sjálfsagt að taka hana með í fjölskylduferðir enda hefur hjarta þeirra og heimili alltaf staðið opið fyrir fjölskyldu og vini. Jói var einstaklega bóngóður, laghentur og frábær kokkur. Það var alveg sama hvort okkur vant- aði aðstoð við matseld, þurftum að geyma búslóð, hjálp við að flytja eða vantaði pössun þá voru hann og Valrún alltaf til í að hjálpa. Eitt sinn vantaði litlu systur pössun fyrir frumburðinn. Jói var í landi og var alveg til í að passa nafna sinn. Nafnarnir áttu góða stund og horfðu á Stubbana í nokkra klukkutíma. Seinna hafði hann orð á að þetta hefði verið leiðinleg- asta sjónvarpsefni sem hann hefði nokkurn tíma séð, en aldrei lét hann litla frænda finna fyrir því. Við syrgjum þig elsku Jói okk- ar en erum afskaplega þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman. Þær minningar lifa í hjarta okkar um ókomin ár. Megi allar góðar vættir gefa okkur öll- um styrk á þessum erfiðu tímum. Hólmfríður Björk, Þorvaldur Örn, Jóhann Bjarki, Helga Jenný og Pétur Örn. Ferjan hefur festar losað. Farþegi er einn um borð. Mér er ljúft — af mætti veikum — mæla nokkur kveðjuorð. Þakkir fyrir hlýjan huga, handtak þétt og gleðibrag, þakkir fyrir þúsund hlátra, þakkir fyrir liðinn dag. (Jón Haraldsson) Þinn vinur, Halldór (Halli). Jóhann Pétursson, sem við kveðjum í dag, var sjómaður af lífi og sál. Hann gerði sjómennsku að ævistarfi sínu, sem háseti og neta- maður á togurum Samherja í um aldarfjórðung. Sjómennska snýst að stórum hluta um liðsheild, þar sem hver og einn sinnir hlutverki sínu af al- úð og samviskusemi. Með slíku hugarfari verður til sterk og sam- hent áhöfn. Jóhann Pétursson var gæddur þessum eiginleikum sem prýða góðan sjómann og var því mikils metinn af sínum skipsfélög- um. Það var hægt að treysta á þau verk sem hann tók að sér. Þegar þessir þættir fara saman myndast gjarnan einlæg vinátta og traust manna í millum. Það var mikil gæfa fyrir Sam- herja að fá Jóhann í áhöfn Þor- steins EA haustið 1996. Síðustu fimm árin var hann háseti og netamaður á Björgvin EA þar sem eiginleikar góðrar sjó- mennsku nutu sín svo eftir var tekið, rétt eins og á öðrum skipum er Jóhann var í áhöfn. Þótt skipa- kostur taki breytingum eru grunnatriði góðrar sjómennsku alltaf þau sömu. Jóhann var hæglátur, lét frekar verkin og kunnáttuna tala. Einmitt þess vegna leitaði Samherji oft til hans vegna ýmissa verkefna á mis- munandi skipum. Listinn yfir þau skip Samherja sem Jóhann var í áhöfn á þessum aldarfjórðungi er nokkuð langur, einfaldlega vegna þess að hans þekkingar var þörf. Fyrir vikið eignaðist hann marga vini, sem nú sakna og syrgja. Það er þungbært að sætta sig við að Jóhann Pétursson, í blóma lífsins, hafi skyndilega verið hrif- inn á brott af okkar jarðvist. Hann hefur siglt sína síðustu sjóferð í þessum heimi og við taka sigling- ar á nýjum slóðum. Um leið og við þökkum Jóhanni Péturssyni fyrir langt og farsælt samstarf, sendum við fyrir hönd Samherja, fjölskyldu hans og vin- um innilegustu samúðarkveðjur. Guð styrki þau í sorg sinni. Minningin um góðan og traust- an samstarfsmann lifir. Kristján Vilhelmsson, Þorsteinn Már Baldvinsson. Jóhann Pétursson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.