Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 21

Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 ✝ Hilmar Albert Albersson fæddist 9. janúar 1944. Hann lést á heimili sínu Heið- argerði 16, Akra- nesi, 10. júní 2022. Móðir Hilmars var Ásta Krist- björg Bjarnadótt- ir, f. 12. maí 1922, d. 3. sept. 1991, en faðir hans er óþekktur. Hilmar var elstur systkina sinna sem öll eru honum sam- mæðra. Þá er næstur Hilmari Júlíus Hólm Baldvinsson, f. 7. ágúst 1948, næst Guðlaug Sig- ríður Kristjánsdóttir, f. 20. ágúst 1950, d. 22. feb. 2020, Bjarni Júlíus Kristjánsson, f. 6. apríl 1953, d. 6. júlí 2002, Helgi J. Kristjánsson, f. 10. mars 1954, Michael Allan Co- mer, f. 6. júlí 1956, Elís Krist- jánsson, f. 8. ágúst 1957, d. 3. vinnu annaðhvort við sjó eða önnur störf ólst hann upp hjá hjónunum Ingibjörgu Guðrúnu Erlendsdóttur (alltaf kölluð Imba) og Alberti Guðmunds- syni í Kolbeinsstaðahreppi, á bænum Heggstöðum. Fjöl- skyldan á Heggstöðum átti alltaf fastan sess í hjarta Hilmars. Árið 1967 tekur Hilmar saman við eiginkonu sína Rögnu Steinunni Eyjólfs- dóttur, f. 8. júlí 1936 í Grund- arfirði, en hann vann þá við vegavinnu. Þau eiga saman fimm börn: Albert, f. 28. ágúst 1968, Hjört, f. 2. mars 1970, Ásdísi Lilju, 5. feb. 1974, Sign- ar Kára, f. 12. ágúst 1975, og Hermínu Huld, f. 27. júní 1980. Fyrir átti Ragna þrjá syni, þá Guðjón Ingva Ingi- marsson, f. 10.12. 1960, d. 18.10. 1961, Kristvin Ingva Ingimarsson, f. 4. nóv. 1962, og Leif Dag Ingimarsson, f. 11. jan. 1965, d. 5. maí 1985. Hilmar og Ragna eiga 17 barnabörn og fimm barna- barnabörn. Útför hans fer fram frá Stykkishólmskirkju í dag, 4. júlí 2022, klukkan 14. sept. 2016, og Sig- urður Krist- jánsson, f. 11. feb. 1959. Hilmar fæddist í Borgarnesi en var fyrstu æviárin í Stykkishólmi hjá afa sínum og ömmu, Elísabetu Hildi Gísladóttur og Bjarna Júlíusi Kristjánssyni. Þá fluttist hann til Keflavíkur með móður sinni en var þar aðeins í örfá ár og kom varla þangað aftur fyrr en hann fór á vertíð sem sjómaður sem fullorðinn maður, sem þá var auðvitað bara rétt um tvítugt. Hilmar vann alltaf mikið, alls konar vinnu en oftast var hann sjómaður og án þess að vera mikið fyrir titla hefði hann örugglega titlað sig sem slíkan. Frá átta ára aldri og þar til Hilmar fór að sækja Elsku pabbi. Nú ertu farinn, allt of fljótt og allt of skjótt. Hefði verið til í að faðma þig einu sinni enn, segja að mér þætti vænt um þig, kveðja. En mjúku orðin voru ekki og eru ekki algeng í okkar ætt, meira svona vissa um að vera elskuð af þeim sem næst standa og þannig er það að þú varst vissulega elskaður og verður sárt saknað. Öll símtölin og samveran fara í gagnabankann þar sem minning þín lifir, þar sem væntumþykja fyrir fjölskyld- unni var þér alltaf efst í huga og varstu óþreytandi við að fylgjast með og áhyggjur þínar ef eitthvað bjátaði á sýndu vel hversu góðan mann þú hafðir að geyma. Lífið var þér ekki alltaf auð- velt, hvorki í bernsku né síðar, en styrkur þinn og lífsgleði smituðu alla sem þig þekktu og ekki síst fjölskylduna, það fór ekki fram hjá neinum þegar þú varst nálægt og var alltaf sökn- uður er þú fórst, eins og það myndaðist eitthvert tómarúm og þannig er það núna, stórt tómarúm. En minningin af sterkum pabba halda í höndina á litlum strák sem fann við það styrk og öryggi er það sem ég mun allt- af muna og þótt ég gæti skrifað margar blaðsíður um þig og minn söknuð kveð ég stoltur af að vera sonur þinn í vissu um að þú sért á góðum stað og þangað mun ég koma þegar minn tími hér er liðinn. Þinn sonur, Hjörtur Hilmarsson. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi. Það var mikið högg að fá þær fréttir að þú værir farinn, þetta gerðist með engun fyr- irvara. Það rifjaðist upp þegar við áttum spjall saman og þú hafðir sagt mér að svona mynd- ir þú vilja kveðja, þ.e.a.s heima- fyrir. Það er óhætt að segja að ég hafi alla tíð verið mikill pabbastrákur þótt ég sé rúm- lega fimmtugur. Við höfum gengið í gegnum margt saman, þegar ég var að alast upp hjá þér og eins í seinni tíð. Við bjuggum víða, bæði sveitum og þorpum í gegnum tíðina. Á ég mínar bestu minningar frá þessum tíma en þótti stund- um nóg um þegar ég var að nálgast fullorðinsár. En svona voru þessir tímar, mikið um flutninga vegna atvinnu. Æsku- minningarnar eru margar, m.a. þegar þú fórst með okkur krakkana í veiði á Heggstaði, sem var staður sem var þér allt- af mjög kær. Allir sem þekktu þig vissu að þú varst alltaf eitt- hvað að brasa, það voru bílar og alls konar ævintýri. Þú lifðir og hrærðist í þessu og fékk ég að heyra af þessu öllu saman þar sem samskipti okkar voru alltaf mikil. Þú fylgdist vel með þínum nánustu og það er skrýtið að heyra ekki í þér nánast daglega. Söknuðurinn er mikill og geym- um við minningar um þig í hjarta okkar. Þinn sonur, Albert, Bryndís og börn. Hilmar Albert Albertsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÓLON RÚNAR SIGURÐSSON, fv. bankastjóri, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 6. júlí klukkan 13. Guðrún M. Sólonsdóttir Hannes Heimisson Sigurður M. Sólonsson Arnfríður Hjaltadóttir Árni Valur Sólonsson Svanlaug Ida Þráinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SELMA JÓHANNESDÓTTIR Aðalgötu 5, Reykjanesbæ, lést á Hrafnistu, Reykjanebæ, 22. júní 2022. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 6. júlí klukkan 13. Jóhannes Sigurðsson Indiana Steingrímsdóttir Jón Sigurðsson Karólína Sigurðardóttir Sigurður Kr. Sigurðsson Guðrún Arnarsdóttir Guðmunda Sigurðardóttir Ólafur Þór Gylfason Ólafur Eggertsson barnabörn og barnabarnabörn ✝ Svanhildur Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík 26.12. 1929. Hún lést 24.6. 2022. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Oddgeirsson frá Ofanleiti, Vest- mannaeyjum, f. 24.4. 1892, d. 1.6. 1963, og kona hans Ágústa Þorgerður Högnadóttir frá Vatnsdal, f. 17.8. 1901, d. 7.11. 1948. Systkini Svanhildar voru Erna Sigríður Brown, f. 31.5. 1921, d. 3.2. 2012, Anna Sigurð- ardóttir, f. 12.9. 1922, d.14.2. 2013, Sigurður Sigurðarson, f. 22.7. 1928, d. 16.8. 2020, Helga Sigurðardóttir, f. 5.12. 1932, d. 31.5.1936, Hilmir Sigurðsson, f. 2.6. 1939. Þann 16. maí 1948 giftist Svanhildur Bergi Ólasyni, f. 24.9. 1919, d. 1.8. 2010. Börn Svanhildar og Bergs og eru: 1) Þorgeir, f. 6.8. 1949, d. 10.12. 1967. 2) Bergljót, f. 21.7. 1951. Dóttir Bergljótar og Jóns Gísla- sonar er Vala, f. 14.11. 1983. Maki: Óskar Ingi Guð- jónsson, f. 17.7.1983. Börn þeirra eru Hekla Rán og Jón Breki. 3) Sigurður Hall- dór, f. 16.2. 1955, maki Kristbjörg Gunnlaugsdóttir, f. 16.9. 1952, d. 21.6. 2013. Sonur Krist- bjargar er Atli Heiðar Gunn- laugsson. Núverandi sambýlis- kona: Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir, f. 24.10. 1962. 4) Anna, f. 21.1. 1962. Maki: Dag- bjartur Harðarson, f. 30.12. 1959. Börn þeirra eru Diljá, f. 22.2. 1990, maki Gustav Alex Gústavsson, f. 11.2. 1988. Börn þeirra eru Ívar Alex og Bjartur Freyr. Bergur Einar, f. 23.2. 1997. Unnusti: Ari Sigurpálsson, f. 17.3. 2003. Fyrir átti Dag- bjartur soninn Davíð Þór, f. 13.5. 1986 með Hildi Símonar- dóttur. Útför Svanhildar fór fram í kyrrþey. Elsku Svana systir, nú ert þú farin og ég einn eftir úr systkina- hópnum. Ég mun sakna símtalanna okk- ar sem við áttum í hverri viku og stundum oftar. Aðeins 14 ára gömul varst þú búin að taka mig undir þinn verndarvæng vegna veikinda mömmu okkar en hún þurfti oft að dvelja á Vífilsstöðum vegna þeirra. Þegar þú síðar stofnaðir heimili með Bergi þínum á Egilsstöðum þá tókstu mig til þín, mamma dó stuttu seinna og ég varð áfram hjá ykkur í nokkur ár. Þetta voru góð- ir tímar fyrir mig við nám og leik. Á þessum tíma voru Egilsstaðir lítið þorp og krefjandi fyrir unga stúlku frá Reykjavík að vera með- tekin. Hún þurfti að sanna sig á ýmsa vegu, allt sem hún gerði var undir smásjá og að koma með sjö ára strák vakti allskonar umtal. En hún systir mín stóð þetta allt af sér með sóma og varð góður og gegn Egilsstaðabúi. Elsku Svana, ég man svo vel ástríku faðmlögin þín. Takk fyrir allt. Hilmir. Svanhildur Sigurðardóttir ✝ Auðunn Unn- steinn Jónsson fæddist 1. október 1946 í Litluhlíð í Víðidal í Vestur- Húnavatnssýslu og ólst upp hjá móð- ur sinni Jósefínu Ástríði Þorsteins- dóttur, f. 26.3. 1906, d. 3.10. 1987 og móðurbróður Jakobi Þorsteins- syni, f. 22.8. 1908, d. 14.1. 2002, til 16 ára aldurs. Auðunn lést á Landspít- alanum Hringbraut 19. júní 2022. eru Þórdís Guðný Jónsdóttir, f. 14.10. 1957 og Olgeir Jón Jónsson, f. 5.8. 1951, d. 1.11. 2016. Börn Auðuns frá fyrri sam- böndum eru: Úrsúla Ástríður, f. 20.6. 1969 og Guðbjartur Unnsteinn, f. 18.2. 1971 (sam- mæðra) og Eiríkur Auðunn, f. 21.12. 1971 og Örlygur, f. 5.3. 1974 (sammæðra). Auðunn giftist Rósu Maríu Guðbjörnsdóttur, f. 24.7. 1946, d. 1.9. 2019, þann 5. desember 1981, dóttir þeirra er Þórdís Dögg, f. 15.12. 1976, stjúpdæt- ur Auðuns og dætur Rósu eru: Sigríður Jóakimsdóttir, f. 1.11. 1964 og Jenný Jóakimsdóttir, f. 5.9. 1968. Auðunn starfaði lengst af sem vinnuvéla- og ýtustjóri. Útför Auðuns fór fram frá Fossvogskapellu 28. júní 2022 í kyrrþey. Faðir Auðuns var Jón Ásmunds- son, f. 20.9. 1929, d. 12.2. 2014, pípulagning- armeistari í Kefla- vík. Systkini Auðuns sammæðra eru Fanney Guð- mundsdóttir, f. 17.1. 1933, Jóhann Hermann Sigurðs- son, f. 8.11. 1936, d. 12.4. 2003, Þórir Heiðmar Jóhanns- son, f. 23.12. 1941, d. 9.2. 2010, Laufey Jónsdóttir, f. 21.12. 1944. Systkini samfeðra Elsku pabbi. Þú varst snögg- lega tekinn frá mér, alltof fljótt. Sakna svo innilega spjallsins okkar, bíltúranna og fróðleiks þíns. Alltaf gat ég komið til þín ef mig vantaði ráð, og huggun gafst þú mér þegar mamma kvaddi okkur. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. (Hugrún) Ég elska þig! Þórdís Dögg Auðunsdóttir. Er vorið hlær og fagrar grundir gróa og geislar himins leika’ um hæð og mó, er syngur „dírrindí“ í lofti lóa og ljóssins englar dansa um strönd og sjó. Við komum, elsku afi, til að kveðja með ástarþökk og bænarljóð á vör. Þín æðsta sæla var að gefa og gleðja, og góðir englar voru í þinni för. Ó, hjartans afi, öll þín heitt við söknum því enginn var eins góður á okkar braut. Á angurs nótt og vonar morgni er vöknum þá vakir andi þinn í gleði og þraut og „gleym-mér-ei“ að þínu lága leiði við leggjum hljótt og brosum gegnum tár, sem maísól, er brosir blítt í heiði þú blessar okkar stundir daga og ár. (HP) Saknaðarkveðja, Arnar Ingi, Ellert Andri og Rósa Maren. Auðunn stjúpi okkar er látinn eftir snörp veikindi og farinn í sumarlandið til móður okkar Rósu Maríu sem lést 1. sept- ember 2019. Við erum vissar um að hún hefur tekið vel á móti honum og eflaust með næg verkefni fyrir hann að sinna með sér. Auðunn kom inn í líf okkar nokkru áður en hann og mamma giftu sig 5. desember 1981. Nokkrum árum áður kom Þórdís systir til okkar, dóttir Auðuns og mömmu. Auðunn sýndi okkur alltaf hlýju og varð strax okkar fjölskylda. Hann og mamma voru miklir vinir alla tíð og Auðunn strax hluti af stór- fjölskyldunni. Hann var einn af þeim sem gengu í öll verk og féll vel inn í fjölskylduna, sem maður sem allt gat. Hvort sem það var að gera við vélar og bíla, sjá um gróðurinn eða að smíða. Hann og mamma dvöldu löngum stundum í Svarfhóls- skógi með Adda bróður mömmu sem var þar að smíða sér sum- arbústað, þar voru þeir saman við smíðar á bústaðnum og seinna til að njóta. Auðunn þekkti vel landið sitt og ferðað- ist mikið innanlands, með hon- um fórum við í útilegur og margar voru bílferðirnar. Ekki er langt síðan hann tók okkur í jeppaferð alla leið í Land- mannalaugar þó heilsan væri ekki upp á sitt besta. Það var svo mamma sem tók hann í sína fyrstu utanlandsferð fljótlega eftir að þau giftu sig. Það þurfti bara eina ferð fyrir hann til að fá ferðabakteríuna. Saman fóru þau með Þórdísi í allnokkrar ferðir og keyrðu meðal annars um alla Evrópu og alltaf var endað í sólinni. Mamma og Auð- unn dvöldu svo í nokkur ár á Spáni saman í húsi sem þau höfðu keypt sér þar. Auðunn hafði unun af því að hugsa um garðinn sinn og lagði mikla áherslu á að í kringum húsið þeirra á Selfossi væri vel hugs- að um garðinn og flötina. Hann hafði byggt sér gróðurhús sem hann setti bak við hús og rækt- aði þar plöntur og jarðarber sem hann gaf okkur stoltur að smakka þegar við mættum í heimsókn með börnin og barna- börnin. Það var honum því þungbært þegar heilsan leyfði ekki eins mikla vinnu í garð- inum. Hann fylgdist stoltur með Þórdísi systur þegar hún opnaði nýverið Klukkublóm á Hellu og hjálpaði til við opnunina og reksturinn eins og heilsan leyfði honum. Auðunn tók okkar börn- um strax sem sínum eigin og var aldrei neitt annað en besti afi barnanna okkar, Árna Þórs hennar Sirrýjar og Arnars Inga, Ellerts Andra og Rósu Maren- ar, sem voru börn Jennýjar, og langafabörnin voru synir Árna Þórs, Askur Andri og Ágúst Máni. Þau sakna öll mikið afa síns. Auðunn vildi allt fyrir alla gera ef hann mögulega gat. Fyrir það erum við þakklát, hvort sem það var að færa okk- ur kjöt og fisk í frystikistuna, gera við bílana, skutlast eða bara að gefa góð ráð. Við mun- um sakna fjölskyldustundanna og matarboðanna sem voru allt- af vegleg hjá mömmu og Auðuni sem alltaf bætti við í lok hverr- ar máltíðar: „Ætlið þið ekki að borða meira?“ Við munum halda áfram þar sem frá er horfið og njóta saman með Þórdísi systur sem fjölskylda í anda mömmu og Auðuns. Jenný og Sigríður (Sirrý). Auðunn Unnsteinn Jónsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.