Morgunblaðið - 04.07.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022
E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
30 ÁRA Unnur fæddist í
Reykjavík en fjölskyldan bjó
mikið erlendis þegar hún var
barn. Frá þriggja til tólf ára
aldurs bjó Unnur með for-
eldrum sínum á Spáni, í Belgíu
og í Kaliforníu. Unnur útskrif-
aðist sem leikkona frá The
American Academy of Drama-
tic Arts í New York 2016 og
hlaut á útskriftarathöfninni
verðlaun sem besta leikkona
árgangsins. Hún fór með hlut-
verk Evu í þáttunum Systra-
böndum og söng og talsetti í
Netflix-myndinni, Eurovision
Song Contest: The Story of
Fire Saga. Unnur er einnig
tónlistarkona en lag hennar og
Martyns Zub var í Netflix-
myndinni Velvet Buzzsaw sem
skartaði Jake Gyllenhaal, Toni
Collette og Rene Russo í aðal-
hlutverkum. Unnur býr til
skiptis í New York og á Íslandi
og er heima í fæðingarorlofi
þessa stundina. „Covid setti smá strik í reikninginn hjá mér. Ég varð svo
ólétt í fyrra og fór að sinna öðrum verkefnum fyrir utan leiklistina. Ég vann
sem samfélagsmiðlaráðgjafi, stofnaði fyrirtæki og var kosningastjóri hjá
Vinstri-grænum í síðustu kosningum en er núna bara að dunda mér í orlofinu
og kynnast dóttur minni. Svo fer ég að mjaka mér aftur í prufur með haust-
inu.“ Nýlega keyptu framleiðendur myndarinnar Poker Face með Russel
Crowe í aðalhlutverki lag sem Unnur samdi.
FJÖLSKYLDA Unnusti Unnar er Travis Raab, f. 1986, tónlistarmaður. Þau
eiga dótturina Emmu Sólrúnu, f. 2022. Foreldrar Unnar eru Eggert Bene-
dikt Guðmundsson, f. 1963, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætis-
ráðuneytinu, og Jónína Lýðsdóttir, f. 1969, hjúkrunarfræðingur.
Unnur Eggertsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Nú er kominn tími á tiltekt og gott
að losa sig við gamalt dót sem gerir ekkert
gagn inni í einhverri geymslu og er aldrei
notað. Gefðu þeim hlutum sem þú ekki
notar framhaldslíf á öðru heimili.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú áttar þig svo sannarlega á því
hversu mikla umhyggju aðrir bera fyrir þér
á komandi vikum. Þú hefur á sama hátt
náð tökum á því að elska syndarann, ekki
syndina.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Flotti stíllinn á þér opnar fyrir þér
dyr. Nú færð þú tækifæri til þess að sjá hve
mikill kærleikur er í þínu lífi dags daglega.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Stundum geta hversdagslegar
samræður leitt til annarra og meiri hluta.
Gott væri að gefa sér tíma til íhugunar.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Um þessar mundir gefur þú meira en
þú hefur efni á. Tónlist, áhugaverðar sam-
ræður, skýjamyndanir, draumar.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þótt þú kunnir vel við vini þína þarf
þig ekki endilega að langa til að hitta þá í
dag. Þú hefur ýmislegt að hugsa um.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er erfiðara að finna jafnvægið á
milli ástar og vinnu en að leiðrétta fjár-
lagahallann. Gefðu þér tíma til að njóta feg-
urðar náttúrunnar með þínum nánustu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þetta er góður dagur til að
ræða vandamál sem hafa komið upp í
vinnunni. Fyrirhyggjulaus eyðsla verður þér
bara til bölvunar.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Rómantísk sambönd gætu liðið
fyrir það í dag að einn aðilinn er að reyna
að bæta hinn. Ef þú heldur kynningu í dag,
verður hún alger smellur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Gagnýni frá vini þínum kemur
þér úr jafnvægi og dregur úr sjálfstrausti.
Sá sem ekki skilar sínu fær ekki meira. Um-
bæturnar eru litlar en þýðingarmiklar.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ef þú hefur tíma aflögu skaltu
nota hann til að létta undir með öðrum á
einhvern hátt. Samt skaltu vera við öllu
viðbúinn því ekkert er eins hættulegt og
andvaraleysið.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hættu að bíða eftir því að aðrir geri
hlutina. Seinna getur þú endurgoldið þeim
greiðann í sömu mynt.
S
igrún Þuríður Geirsdóttir
fæddist 3. júlí 1972 á
fæðingarheimilinu í
Reykjavík. Hún ólst upp
í Mosfellssveit, sem síð-
ar breyttist í Mosfellsbæ, gekk þar
í grunnskóla og stundaði fiðlunám
við Tónlistarskóla Mosfellssveitar
hjá Nönnu Jakobsdóttur. „Ég var
lánsöm því móðurafi minn bjó á
heimilinu nánast alla barnæsku
mína og kom ég því aldrei heim að
tómu húsi.“ Sigrún var lítið fyrir
íþróttir á sínum yngri árum og var
einstaklega heimakær, svo mjög að
í eina skiptið sem reynt var að
senda hana, þá átta ára gamla, í
eina viku í sumarbúðir í Hlíð-
ardalsskóla neyddust foreldrar
hennar til að sækja hana eftir ein-
ungis þrjá daga. Sigrún hefur þó
alltaf verið mjög sjálfstæð og 11
ára gömul sótti hún um vinnu með
því að ganga taugaspennt langan
veg að Reykjum, en hún var lengi
búin að fylgjast með krökkunum
sem voru að vinna í kálgörðunum á
bak við æskuheimili hennar í Mos-
fellsbænum. Fékk hún vinnuna og
tók upp rófur allt sumarið.
Þegar grunnskólagöngu lauk
stundaði Sigrún nám við Mennta-
skólann við Hamrahlíð en áfanga-
kerfið átti ekki við hana og hætti
hún námi eftir tvö ár og sótti um í
Iðnskólanum en hana langaði í hár-
greiðslunám. „Ég komst á samning
hjá Brósa, en hann var einn vin-
sælasti hárgreiðslumeistari lands-
ins á þessum tíma. Fljótlega kom í
ljós að ég hafði mikið ofnæmi fyrir
alls kyns hárvörum og varð ég því
að leggja skærin á hilluna.“ Haust-
ið 1997 ákvað Sigrún að sækja um í
Þroskaþjálfaskóla Íslands (sem síð-
ar var sameinaður Kennaraháskól-
anum) og fékk hún inngöngu. Gekk
henni mjög vel í námi með tvö lítil
börn og eitt á leiðinni. Útskrifaðist
hún sem þroskaþjálfi frá Kenn-
araháskólanum árið 2001. Sigrún
útskrifaðist síðan með diplómunám
í fötlunarfræðum árið 2012 og
meistaragráðu í þroskaþjálfafræð-
um frá Háskóla Íslands 2016. Hún
hefur að mestu starfað sem
þroskaþjálfi í grunnskólum en
einnig á sambýlum og þjónustu-
kjörnum.
„Ég kynntist manninum mínum,
Jóhannesi Jónssyni, árið 1988 í
unglingavinnunni á Reykjalundi en
við giftum okkur 1992. Við höfum
alltaf búið í Mosfellsbænum en þó
flutt ansi oft innan bæjarins, eða
alls 14 sinnum. Við fórum mikið í
útilegur með krakkana þegar þau
voru yngri og ferðuðumst mikið um
landið, en ég hef alltaf verið heilluð
af útiveru og náttúru Íslands.
Haustið 2019 keyptum við hjónin
okkur sumarbústað við Apavatn og
er það algjör draumastaður þar
sem við dveljum mikið. Í fyrra varð
ég tvöföld amma en það ár fékk ég
tvö barnabörn, þau Kötlu Maren
og Einar Birki, og er ömmu-
hlutverkið það besta í heimi.“
Árið 2008 tók Sigrún heilsuna í
gegn og byrjaði að stunda sjósund
sem hafði mikil og góð áhrif á
hana. Sjósundið byrjaði sem dýf-
ingar og kæling, eiginlega hálfgerð
sjóböð, en hefur undið hressilega
upp á sig með ýmsu sjósundi, bæði
við Íslandsstrendur sem erlendis.
Hún hefur þrisvar synt boðsund yf-
ir Ermarsundið, fyrst árið 2013
með boðsundssveitinni Sækúnum,
endurtók hún leikinn ári síðar með
sundhópnum Yfirliðinu og 2019
synti hún í þriðja sinn boðsund yfir
Ermarsund með sundhópnum Mar-
glyttunum. Árið 2015 varð hún
fyrsta íslenska konan til að synda
einsömul yfir Ermarsund og jafn-
framt fyrsti Íslendingurinn til að
takast að synda yfir í fyrstu til-
raun. Skráði hún sig því rækilega í
sögubækurnar, en sundið tók hana
22 klst. og 34 mín. Árið 2017 synti
hún síðan Drangeyjarsund og 2019
synti hún fyrst kvenna svokallað
Eyjasund, þ.e. frá Vestmanna-
eyjum til Landeyjasands. „Sundið
synti ég í minningu frænda míns,
Eyjólfs Jónssonar sundkappa, sem
synti það fyrstur manna 60 árum
fyrr.“
Undanfarin ár hefur Sigrún stutt
við fólk sem er að stíga sín fyrstu
skref í sjósundi sem og ráðlagt
reyndari sundmönnum sem vilja
takast á við stærri áskoranir.
Sigrún hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar í tengslum við sjósundið.
Árið 2013 hlaut hún silfurmerki
Sundsambands Íslands sem og sér-
staka viðurkenningu frá Sund-
sambandinu ári síðar. Hún var til-
nefnd sem maður ársins árið 2015
hjá Rás 2, Vísi og Bylgjunni og
valin Mosfellingur ársins það ár.
Hún hlaut og sérstaka viðurkenn-
ingu frá Mosfellsbæ í kjöri á
íþróttamanni Mosfellsbæjar árið
2015 og fékk jafnframt verðlaun og
afrekstitil frá The Channel
Swimming & Piloting Federation
fyrir aðdáunarverðasta sund ársins
2015 (most meritorious swim of the
year). Hún veitti Drangeyjarsund-
sbikarnum frá Íþrótta- og ólympíu-
sambandi Íslands viðtöku árið 2018
og hlaut Eyjasundsbikarinn frá
bæjarstjóra Vestmannaeyja 2019.
Hinn 17. júní árið 2020 sæmdi for-
Sigrún Þuríður Geirsdóttir – 50 ára
Stór fjölskylda Sigrún kynntist eiginmanni sínum, Jóhanni Jónssyni, í ung-
lingavinnunni árið 1988 og giftu þau sig fjórum árum síðar. Hér eru þau
með börnum sínum, mökum þeirra og barnabörnum.
Synt fjórum sinnum
yfir Ermarsundið
Sundgarpur Sigrún hefur skarað
rækilega fram úr í sundi og synti
ein yfir Ermarsundið árið 2015.
Til hamingju með daginn