Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022
JARÐGERÐARÍLÁT
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU !
www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is
Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er
hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
við moltugerð.
Um það bil 30-35% af heildarmagni
heimilissorps er lífrænn úrgangur sem
má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar,
moltan, nýtist sem næringarríkur
áburður fyrir garðinn.
Jarðgerðarílátið er hægt að panta í
vefverslun okkar eða í síma 577 5757.
„MÉR SKILST AÐ ÞAÐ SÉ
AÐFANGASKORTUR.“
„GETURÐU ÍMYNDAÐ ÞÉR HVERSU
MARGA ÚLFALDA VIÐ GÆTUM SELT EF
BENSÍNLÍTRINN KOSTAÐI 1200 KR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga einhvern
sem hressir mann við á
erfiðum dögum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GÓÐUR! ÉG VEIT
AÐ ÞETTA ERT ÞÚ,
KÖTTUR
ER ÞAÐ?
ÉG SETTI UPP
DYRABJÖLLU MEÐ
MYNDAVÉL
TÆKNIDRASL
GETURÐU Í ALVÖRU SÉÐ
LÍF MITT Í KÚLUNNI?
JÁ!
HVAÐ ÞÝÐIR ÞETTA? Í NÓTT MUNU UNDARLEGAR
VERUR MEÐ SEKKI Á BAKINU
SÆKJA ÞIG HEIM!
VARÚÐ
seti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
essson, hana síðan riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu fyrir af-
rek á sviði sjósunds, fyrst Íslend-
inga.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar er Jóhann-
es Jónsson, f. 28.8. 1970, sviðsstjóri
hjá Ríkisendurskoðun. Börn þeirra
eru: 1) Benedikt Geir, f. 22.6. 1993,
MSc í gervigreind og máltækni.
Eiginkona hans er Sædís Rán
Sveinsdóttir, f. 8.7. 1993, starfsk.
hjá utanríkisráðuneytinu. Þau eru
búsett í Mosfellsbæ og eiga soninn
Einar Birki, f. 13.10. 2021. 2) Ingi-
björg Bergrós, f. 22.2. 1997, BS í
viðskiptafræði. Maki hennar er
Anton Örn Kristjánsson, 1.5. 1991,
tölvunarfræðingur. Þau eru búsett
í Mosfellsbæ og eiga dótturina
Kötlu Maren, f. 10.4. 2021. 3) Daní-
el Óskar, f. 28.1. 1999, tónlistar-
maður og nemi við Háskólann á
Bifröst, býr í Mosfellsbæ. Maki
hans er Diljá Pétursdóttir f. 15.12.
2001, söngkona og nemi í sjúkra-
þjálfun við Háskóla Íslands.
Systkini Sigrúnar eru: Guðný
Hallgrímsdóttir, f. 8.7. 1964, býr í
Reykjavík, Hulda Guðrún Geirs-
dóttir, f. 10.8. 1966, býr í Mos-
fellsbæ, og Geir Jón Geirsson, f.
6.12. 1978, býr í Mosfellsbæ. For-
eldrar Sigrúnar eru Geir Jón Þor-
steinsson, f. 19.7. 1945, matreiðslu-
meistari, og Emma Ottósdóttir, f.
10.9. 1945, nuddari. Þau búa í Mos-
fellsbæ.
t
Þórunn Pálsdóttir
húsfreyja
Eyjólfur Jónsson
lögreglumaður og sundkappi í Reykjavík
Sigrún
Þuríður
Geirsdóttir
Guðrún Pálsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Bjarni Bjarnason
sjómaður í Reykjavík
Emil Ottó Bjarnason
járnsmiður, búsettur í Gríms-
staðaholti og Mosfellsbæ
Guðný Eyjólfsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Sigrún Emma Ottósdóttir
nuddari í Mosfellsbæ
Eyjólfur Bjarnason
bóndi og formaður í
Skipagerði á Stokkseyri
Þuríður Grímsdóttir
bústýra í Skipagerði á Stokkseyri
Geir Jón Jónsson
kennari, gjaldkeri og bókari í Reykjavík
María Sigurbjörnsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Hulda Svava Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Þorsteinn Þorsteinsson
umsjónarmaður hjá Rannsóknarstofnun
sjávarútvegsins, búsettur í Reykjavík
Þorsteinn Jónsson
járnsmíðameistari í Reykjavík
Guðrún Bjarnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ætt Sigrúnar Þuríðar Geirsdóttur
Geir Jón Þorsteinsson
matreiðslumeistari í Mosfellsbæ
Baldur Hafstað var beðinn um
að gera hringhendu um hug-
renningar sínar og það sem hann
væri helst að fást við þá stundina.
Hann brást við á þessa leið:
Ýti á takka tölvunnar,
timbur lakka í kofa,
guði þakka gjafirnar.
– Gott er á hnakka að sofa.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Rótleysi“:
Við þurfum styrk til að standa
í stormi þess tíðaranda,
sem ríkir hér,
því rótleysið er
rótin að hverjum vanda.
Hjörtur Benediktsson segir frá
því, að dæturnar hafi boðið sér í
9,5 km fjallgöngu:
Burtu við sofum ei sumarnætur
er söngfuglar kvaka í mó.
Gott er að eiga duglegar dætur
sem draga um fjöllin hró.
Hallmundur Kristinsson yrkir
og bætir við þessari athugasemd:
„Taki hver til sín sem vill – ég tek
sjálfur minn hluta!“
Skáldskapargáfuna virðist hann virkja.
Vísur hans oftast ég les.
Það að hann sé næstum alltaf að
yrkja
er nú samt dálítið spes!
Jón Atli Játvarðarson svarar:
Karlinn er alltaf að yrkja
og ekki vill sprænurnar virkja,
vísur les hratt
verður svo patt,
en heykist við hótanir Tyrkja.
Og Dagbjartur Dagbjartsson lét
ekki sitt eftir liggja:
Að yrkja svona er ekkert grín
og ekki veit ég hvað er best.
Sjálfur tek ég mitt til mín.
-Svo mega hinir eiga rest.
Ingólfur Ómar Ármannsson
Skreyta glæður skýjaslóð
skarlatslæðu mynda.
Sól að græði rennur rjóð
roðar hæð og tinda.
Sigríður Ólafsdóttir orti á mið-
vikudag: ·
Eftir rok og regn og hríð
nú reynist komin betri tíð
því sólin dátt á himni hlær
að hitastiginu frá í gær
Sigurbjörn á Fótaskinni kvað
1889:
Gnauðar mér um grátna kinn
gæfumótbyr svalur.
Nú þig kveð ég síðsta sinn
sveit mín Aðaldalur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ýmsar hugrenningar