Morgunblaðið - 04.07.2022, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022
Besta deild karla
ÍBV – Breiðablik....................................... 0:0
Keflavík – Fram ....................................... 3:1
Staðan:
Breiðablik 12 10 1 1 35:12 31
Víkingur R. 11 7 1 3 25:16 22
Stjarnan 10 5 4 1 20:13 19
Valur 10 6 1 3 19:14 19
KA 10 5 2 3 15:12 17
KR 12 4 4 4 16:19 16
Keflavík 11 4 2 5 19:20 14
Fram 11 2 4 5 20:29 10
FH 10 2 3 5 15:18 9
ÍA 10 1 5 4 11:21 8
ÍBV 11 0 5 6 9:20 5
Leiknir R. 10 0 4 6 7:17 4
2. deild karla
Víkingur Ó. – KFA ................................... 1:3
Höttur/Huginn – Njarðvík ...................... 1:2
Magni – Haukar........................................ 2:2
Reynir S. – KF.......................................... 1:1
Þróttur R. – Völsungur............................ 2:1
Staðan:
Njarðvík 10 9 1 0 37:8 28
Þróttur R. 10 8 1 1 19:8 25
Ægir 9 7 1 1 16:10 22
Völsungur 10 5 2 3 21:15 17
Haukar 10 4 3 3 13:11 15
KFA 10 3 3 4 17:19 12
ÍR 9 3 2 4 13:15 11
KF 10 2 5 3 18:22 11
Víkingur Ó. 10 2 2 6 15:21 8
Höttur/Huginn 10 1 3 6 10:19 6
Magni 10 1 2 7 7:27 5
Reynir S. 10 1 1 8 10:21 4
3. deild karla
KFG – Kormákur/Hvöt ........................... 1:1
KH – Sindri ............................................... 1:1
Elliði – Dalvík/Reynir .............................. 5:2
Staðan:
Víðir 9 6 1 2 21:10 19
KFG 9 6 1 2 18:11 19
Elliði 9 5 1 3 18:12 16
Sindri 9 4 3 2 17:13 15
Dalvík/Reynir 9 5 0 4 20:17 15
Augnablik 9 4 2 3 14:17 14
Kári 9 4 1 4 14:14 13
Vængir Júpiters 9 3 1 5 14:17 10
Kormákur/Hvöt 9 3 1 5 16:20 10
ÍH 9 3 0 6 22:23 9
KFS 9 3 0 6 13:22 9
KH 9 2 1 6 9:20 7
Lengjudeild kvenna
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir – HK........ 1:4
Staðan:
HK 9 7 0 2 20:9 21
FH 8 6 2 0 24:5 20
Tindastóll 9 6 2 1 14:5 20
Víkingur R. 9 6 1 2 20:10 19
Fjarð/Hött/Leikn.9 4 3 2 18:12 15
Augnablik 9 3 0 6 10:18 9
Grindavík 9 2 2 5 6:17 8
Fylkir 8 2 1 5 6:13 7
Fjölnir 9 1 1 7 6:21 4
Haukar 9 1 0 8 6:20 3
Svíþjóð
Djurgården – Hammarby....................... 1:0
- Jón Guðni Fjóluson hjá Hammarby er
frá keppni vegna meiðsla.
Häcken – Elfsborg................................... 1:1
- Valgeir Lunddal Friðriksson var ekki í
leikmannahópi Häcken.
- Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem
varamaður á 74. mínútu hjá Elfsborg. Há-
kon Rafn Valdimarsson var varamarkvörð-
ur liðsins.
Helsingborg – Kalmar ............................ 1:1
- Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
fyrir Kalmar.
Norrköping – Sirius ................................ 0:1
- Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyr-
ir Norrköping en Jóhannes Kristinn
Bjarnason var ekki í leikmannahópnum.
- Aron Bjarnason lék fyrstu 87 mínúturn-
ar fyrir Sirius.
Varberg – Värnamo ................................ 3:0
- Oskar Tor Sverrisson kom inn á sem
varamaður á 66. mínútu hjá Varberg.
Staðan:
Häcken 12 7 4 1 25:17 25
Djurgården 13 7 3 3 26:10 24
AIK 13 7 3 3 18:15 24
Hammarby 12 6 3 3 21:11 21
Malmö FF 13 6 3 4 14:12 21
Kalmar 12 6 2 4 15:10 20
Elfsborg 12 5 4 3 24:13 19
Mjällby 12 5 4 3 12:10 19
IFK Göteborg 11 5 2 4 13:11 17
Sirius 12 5 2 5 14:19 17
Norrköping 12 4 3 5 15:14 15
Varberg 12 4 2 6 11:19 14
Värnamo 12 3 3 6 11:16 12
Sundsvall 12 3 0 9 13:30 9
Degerfors 11 2 1 8 9:24 7
Helsingborg 13 1 3 9 11:21 6
B-deild:
Öster – Skövde AIK................................. 2:3
- Alex Þór Hauksson lék fyrstu 67 mín-
úturnar fyrir Öster.
_ Efstu lið: Brage 24 stig, Halmstad 23,
Utsikten 23, Eskilstuna 21, Skövde 21, Ös-
ter 21, Brommapojkarna 18, Trelleborg 18.
Bandaríkin
B-deild:
LA Galaxy 2 – Oakland Roots ................ 3:1
- Óttar Magnús Karlsson lék allan leikinn
fyrir Oakland Roots.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Energetik-BGU .......... 1:1
- Willum Þór Willumsson lék fyrstu 80
mínúturnar fyrir BATE Borisov.
50$99(/:+0$
ÍBV – BREIÐABLIK 0:0
MM
Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV)
M
Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Guðjón Orri Sigurjónsson (ÍBV)
Anton Ari Einarsson (Breiðabliki)
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Viktor Örn Margeirsson (Bl)
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
– 4.
Áhorfendur: 636.
KEFLAVÍK – FRAM 3:1
1:0 Frans Elvarsson 3.
2:0 Patrik Johannesen 32.
2:1 Guðmundur Magnússon 74.
3:1 Nacho Heras 78.
M
Adam Ægir Pálsson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Nacho Heras (Keflavík)
Patrik Johannesen (Keflavík)
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Guðmundur Magnússon (Fram)
Tiago Fernandes (Fram)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 6.
Áhorfendur: 520.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
BESTA DEILDIN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Keflavík vann góðan 3:1-sigur á
Fram þegar liðin mættust í 11. um-
ferð Bestu deildar karla í knatt-
spyrnu í Keflavík í gærkvöldi.
Frans Elvarsson kom heimamönn-
um í forystu strax á þriðju mínútu
þegar Almarr Ormarsson, sem var
að leika sinn fyrsta leik fyrir Fram í
um níu ár, reyndi að hreinsa frá í
kjölfar hornspyrnu en boltinn fór í
Frans og þaðan í netið.
Eftir rúmlega hálftíma leik unnu
Keflvíkingar boltann á miðsvæðinu,
Frans lék með boltann áfram, lagði
hann til hliðar á Færeyinginn Patrik
Johannesen sem kláraði laglega nið-
ur í hornið rétt innan vítateigs.
Á 74. mínútu minnkaði Guð-
mundur Magnússon muninn fyrir
Fram með laglegu skallamarki eftir
fyrirgjöf Tiago Fernandes, hans tí-
unda mark í deildinni á tímabilinu.
Fjórum mínútum síðar skoraði
Nacho Heras hins vegar þriðja mark
Keflavíkur með föstu skoti upp í nær-
hornið úr miðjum teignum og þar við
sat.
Keflavík er áfram í 7. sæti deild-
arinnar en nú tveimur stigum á eftir
KR og á einnig leik til góða á Vest-
urbæinga. Fram er enn í 8. sæti.
Á laugardag hélt topplið Breiða-
bliks til Vestmannaeyja og heimsótti
þar heimamenn í ÍBV.
Mikil barátta einkenndi fyrri hálf-
leik þar sem bæði lið sóttu sín færi,
þó Breiðablik hafi átt meginþorra
hættulegu færanna. Guðjón Orri Sig-
urjónsson í marki Eyjamanna sá hins
vegar við öllum tilraunum Blika og
staðan því markalaus í leikhléi.
Síðari hálfleikur var keimlíkur
þeim fyrri. Bæði lið áttu sín færi en
markmenn og varnir liðanna gerðu
oftast vel. Undir lokin voru það Blik-
ar sem sóttu af miklum krafti en allt
kom fyrir ekki og markalaust jafn-
tefli þar með niðurstaðan.
Þetta var aðeins annar deildar-
leikur Breiðabliks á tímabilinu þar
sem liðið tapar stigum og fyrsta jafn-
tefli liðsins í deildinni. Blikar halda
toppsætinu og eru nú níu stigum fyr-
ir ofan ríkjandi Íslandsmeistara Vík-
ings úr Reykjavík, sem á leik til góða.
ÍBV hefur ekki enn unnið leik í
Bestu deildinni í sumar og er í 11. og
næstneðsta sæti með fimm stig,
þremur stigum frá öruggu sæti.
Keflavík nálg-
ast efri hluta
deildarinnar
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Mark Leikmenn Keflavíkur fagna fyrsta marki leiksins gegn Fram í gær-
kvöldi, sem Frans Elvarsson skoraði eftir aðeins þriggja mínútna leik.
- Vann góðan sigur á Fram - Fyrsta
jafntefli Breiðabliks kom í Eyjum
Knattspyrnumennirnir Hólmbert
Aron Friðjónsson og Jónatan Ingi
Jónsson voru einu sinni sem oftar á
skotskónum í norska fótboltanum
um helgina.
Hólmbert lék allan leikinn og
skoraði þriðja markið í 3:1-sigri
Lilleström á Kristiansund í úrvals-
deildinni. Hólmbert hefur nú skor-
að átta mörk í 15 leikjum í deild og
bikar á tímabilinu.
Jónatan skoraði annað mark Ís-
lendingaliðs Sogndal í 2:3-tapi fyrir
KFUM Ósló í B-deildinni. Valdimar
Þór Ingimundarson lagði upp hitt
markið. Jónatan hefur skorað fimm
mörk og lagt upp önnur fimm í 14
leikjum í deild og bikar til þessa.
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Öflugur Jónatan Ingi Jónsson skoraði sitt fimmta mark á tímabilinu í gær.
Á skotskónum í Noregi
Ísland dróst í D-riðil með Portú-
gal, Ungverjalandi og Suður-
Kóreu á HM 2023 í handknattleik
karla, sem fer fram í Svíþjóð og
Póllandi í janúar á næsta ári.
Dregið var í átta fjögurra liða
riðla í Katowice í Póllandi á laug-
ardag.
Fyrir dráttinn var Ísland í efsta
styrkleikaflokki, Portúgal í öðr-
um, Ungverjaland í þriðja og Suð-
ur-Kórea í þeim fjórða.
Komist Ísland upp úr D-
riðlinum fer liðið í milliriðil með
liðunum úr C-riðlinum, sem inni-
heldur Svíþjóð, Brasilíu, Afr-
íkuþjóð sem á eftir að koma í ljós
hver er og Úrúgvæ.
Óhætt er að segja að í D-
riðlinum sé að finna góðkunningja
Íslands. Á EM 2022 í janúar síðast-
liðnum var íslenska liðið með
Portúgal og Ungverjalandi í riðli,
á HM 2021 var Ísland með Portú-
gal í riðli, á EM 2020 var liðið
með Ungverjalandi í riðli og mætti
svo Portúgal í milliriðli síðar í
keppninni.
„Það er alveg furðulegt hvernig
þetta raðast. Það má segja að það
sé gott fyrir okkur að þekkja þau
vel en að sama skapi þekkja þau
okkur líka,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson landsliðsþjálfari
meðal annars í samtali við mbl.is á
laugardag. gunnaregill@mbl.is
Kunnuglegir and-
stæðingar á HM 2023
Ljósmynd/Szilvia Micheller
HM Guðmundur Þ. Guðmundsson,
þjálfari íslenska karlalandsliðsins.
_ Enski miðvörðurinn James Tar-
kowski er genginn í raðir enska knatt-
spyrnufélagsins Everton. Hann kemur
á frjálsri sölu frá Burnley, þar sem
hann lék undanfarin sex ár, og skrifaði
undir fjögurra ára samning í Bítlaborg-
inni. Tarkowski er fyrsti leikmaðurinn
sem Everton fær til liðs við sig í sum-
ar. Fleiri félög voru áhugasöm um að
tryggja sér þjónustu Tarkowski, þar á
meðal Aston Villa, en hann ákvað að
velja Everton eftir að hafa rætt við
Frank Lampard knattspyrnustjóra.
_ Isabella Ósk
Sigurðardóttir,
landsliðskona í
körfuknattleik, átti
magnaðan leik er
lið hennar South
Adelaide Panthers
vann 91:83-sigur á
Forestville Eagles í
áströlsku B-
deildinni í Forestville á laugardags-
morgun. Isabella Ósk spilaði rétt tæp-
lega 28 mínútur og skoraði 21 stig, tók
16 fráköst, gaf tvær stoðsendingar og
varði eitt skot.
South Adelaide er eftir sigurinn í efsta
sæti Central-riðilsins með 22 stig eftir
12 leiki.
_ Nottingham Forest, nýliði í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla,
hefur tryggt sér enska markvörðinn
Dean Henderson á láni frá Manchest-
er United. Lánssamningurinn gildir út
næsta tímabil. BBC Sport greinir frá
því að Forest greiði laun Hendersons
að fullu á meðan lánstímanum stend-
ur og að í samningnum sé enginn for-
kaupsréttur. Henderson, sem er 25 ára
gamall, fékk afar lítið að spila með
Man. United á síðasta tímabili og vildi
því ólmur fá tækifæri til þess hjá öðru
liði, enda með sæti í enska landsliðs-
hópnum á HM 2022 í Katar í sigtinu.
Nýliðarnir festu einnig kaup á franska
varnarmanninum Giulian Biancone.
Kemur hann frá Troyes í heimalandinu
og skrifaði undir þriggja ára samning.
_ Portúgalska
stórstjarnan Cris-
tiano Ronaldo,
sóknarmaður
enska knatt-
spyrnufélagsins
Manchester Unit-
ed, hefur óskað
eftir því við stjórn-
armenn félagsins
að það samþykki sanngjörn tilboð sem
kunni að berast í sig svo honum sé
unnt að róa á önnur mið í sumar.
Í umfjöllun The Athletic sagði meðal
annars að hinn 37 ára gamli Ronaldo
vilji ólmur spila áfram í Meistaradeild
Evrópu og berjast um titla á lokaárum
ferils síns. Telji hann ekki nægilega
miklar líkur á því hjá Man. United á
Eitt
ogannað