Morgunblaðið - 04.07.2022, Page 27

Morgunblaðið - 04.07.2022, Page 27
HM U20 kvenna Úrslitaleikur: Noregur – Ungverjaland ..................... 31:29 Leikur um 3. sætið: Holland – Svíþjóð ................................. 31:20 Nations Cup U18 karla Þýskaland – Ísland............................... 34:32 E(;R&:=/D Morgunblaðið/Óttar Geirsson Verðlaun Thelma Aðalsteinsdóttir, Hildur M. Guðmundsdóttir, Guðrún E. Min Harðardóttir, Ragnheiður J. Jóhannsdóttir og Valgarð Reinhardsson. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Meistari Thelma Aðalsteinsdóttir gerði sér lítið fyrir og tryggði sér Norð- urlandameistaratitilinn á slá á Norðurlandamótinu í Versölum í gær. NORÐURLANDAMÓTIÐ Ásta Hind Ómarsdóttir astahind@mbl.is Norðurlandamótið í áhaldafim- leikum fór fram í Versölum, íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi, um helgina og gekk fulltrúum íslensku landsliðanna gríðarlega vel. Mótið byrjaði á liðakeppni á laugardag- inn þar sem kvennalandsliðið lenti í 3. sæti og karlalandsliðið í 4. sæti. Á laugardaginn var einnig keppt í fjölþraut. Í fjölþraut eru ein- kunnir á öllum áhöldum lagðar saman og í henni er hægt að vinna sig inn í úrslit á einstökum áhöld- um. Ísland sendi frá sér lið í ung- lingaflokki karla og kvenna og í fullorðinsflokki karla og kvenna. Fulltrúar Íslands í úrslitum voru tíu, þrír í unglingaflokki og sjö í fullorðinsflokki, og uppskáru þau sex verðlaunapeninga og þar á meðal einn Norðurlandameistara. Bara ég og sláin Thelma Aðalsteinsdóttir endaði í 6. sæti í fjölþraut á laugardaginn og vann sig inn í úrslit á slá. Á sunnudaginn gekk svo sláæfing hennar eins og í sögu og endaði hún mótið sem Norðurlandameist- ari í greininni. „Upphitun gekk ekki alveg nógu vel svo ég var ekki að búast við miklu en svo heilsaði ég dóm- urunum og hugsaði að það væri bara ég og sláin og að ég væri bara að sýna dómurunum þá æf- ingu sem ég er búin að æfa svona milljón sinnum,“ sagði Thelma í samtali við Morgunblaðið eftir mótið. Ísland átti annan fulltrúa á verðlaunapalli á slá í kvennaflokki. Guðrún Edda Min Harðardóttir hreppti bronsverðlaun fyrir flotta æfingu sína á slánni. Einungis munaði 0,2 á einkunnum hennar og Thelmu. Hildur hársbreidd frá gullinu Hildur Maja Guðmundsdóttir komst í úrslit á gólfi ásamt Agnesi Suto. Á gólfinu var mjög hörð keppni en Hildur Maja fékk silfur- verðlaun fyrir sínar gólfæfingar og var einungis 0,05 stigum frá hinni sænsku Ölvu Eriksson, sem varð Norðurlandameistari. Agnes Suto hafnaði í 4. sæti og var einungis 0,05 stigum frá bronsverðlaun- unum. Kvennalið Íslands skipuðu þær Agnes Suto, Dagný Björt Ax- elsdóttir, Guðrún Edda Min Harð- ardóttir, Hildur Maja Guðmunds- dóttir, Margrét Lea Kristinsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir. Leiðinlegt að missa gullið Í karlaflokki fékk Valgarð Rein- harðsson tvenn silfurverðlaun fyrir glæsilegar æfingar sínar í stökki og á gólfi. Valgarð varð fyrstur inn í úrslit á gólfi eftir æfingar sínar á laugardaginn. „Það var svolítið leiðinlegt að missa gullið frá sér því ég var fyrstur inn í úrslit en ég tek silfr- inu. Dagurinn í dag var eiginlega bara geggjaður,“ sagði Valgarð í samtali við Morgunblaðið eftir mótið. Valgarð endaði einnig í 5. sæti í hringjum á eftir samlanda sínum Jóni Sigurði Gunnarssyni en hann endaði í 4. sæti. Martin Bjarni Guðmundsson, stóri bróðir Hildar Maju Guðmundsdóttir í kvenna- landsliðinu, komst í úrslit á svifrá og endaði í 6. sæti þar. Karlalið Íslands skipuðu þeir Arnþór Daði Jónasson, Atli Snær Valgeirsson, Jón Sigurður Gunn- arsson, Jónas Ingi Þórisson, Mart- in Bjarni Guðmundsson, Valgarð Reinhardsson og Valdimar Matt- híasson. Eitt brons í unglingaflokki Í unglingaflokki kvenna hafnaði Ísland í 4. sæti. Landsliðið skipuðu þær Arna Brá Birgisdóttir, Auður Anna Þorbjarnardóttir, Katla María Geirsdóttir, Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Natalía Dóra S. Rún- arsdóttir, Ragnheiður Jenný Jó- hannsdóttir og Sól Lilja Sigurðar- dóttir. Ragnheiður Jenný Jóhanns- dóttir og Natalía Dóra S. Rúnars- dóttir kepptu til úrslita í stökki þar sem Ragnheiður Jenný hreppti bronsverðlaun fyrir sín stökk og Natalía Dóra lenti í 6. sæti. Ragnheiður Jenný komst einnig í úrslit á gólfi og þar endaði hún í 6. sæti. Í unglingaflokki karla lenti ís- lenska liðið einnig í 4. sæti. Lands- liðið skipuðu þeir Ari Freyr Krist- insson, Davíð Goði Jóhannsson, Lúkas Ari Ragnarsson, Sigurður Ari Stefánsson, Sólon Sverrisson og Stefán Máni Kárason. Sigurður Ari Stefánsson komst í úrslit á bæði svifrá og hesti. Hann lenti í 5. sæti í stökki og 6. sæti á svifrá. Thelma Norðurlanda- meistari - Valgarð hlaut tvö silfur og Hildur eitt - Sex verðlaunapeningar til Íslands allra næstu árum en liðinu tókst ekki að tryggja sér Meistaradeildarsæti á síðasta tímabili. Samkvæmt The Times er uppeldisfélag Ronaldos, Sporting frá Lissabon, áhugasamt um að fá hann aftur auk Roma, sem leikur þó ekki í Meistaradeildinni á næsta tímabili. The Athletic segir Napoli einnig áhugasamt. _ Portúgalski knattspyrnumaðurinn Fábio Carvalho er formlega genginn til liðs við enska félagið Liverpool frá Fulham, sem verður nýliði í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Liverpool greiðir 5 milljónir punda fyrir hinn 19 ára gamla sóknartengilið en sá verðmiði gæti hækkað upp í 7,7 milljónir punda með árangurs- tengdum greiðslum. _ Enska knatt- spyrnufélagið Tottenham Hot- spur hefur stað- fest að Grétar Rafn Steinsson, fyrrverandi lands- liðsmaður í knattspyrnu, hafi verið ráðinn í starf hjá félaginu. Eins og skýrt var frá í síðasta mánuði tekur Grétar við starfi frammistöðustjóra hjá Tottenham og vinnur náið með yf- irmanni knattspyrnumála, Fabio Para- tici. Grétar hætti hjá Everton í desem- ber 2021 eftir að hafa starfað þar í þrjú ár og tók í framhaldinu að sér sex mánaða starf hjá Knattspyrnu- sambandi Íslands sem tæknilegur ráð- gjafi. _ Ógnvænlegur árekstur átti sér stað strax í fyrstu beygju breska Formúlu 1- kappakstursins í gær, sem Carlos Sa- inz hjá Ferrari vann að lokum. George Russell hjá Mercedes og Pierre Gasly hjá Williams lentu í árekstri sem varð til þess að bíll Russells lenti á bíl Zhou Guanyu hjá Alfa Romeo, með þeim af- leiðingum að bíll hans rann á hvolfi út fyrir brautina. Ótrúlegt en satt sakaði Zhou þó ekki og þakkaði hann öryggis- grindinni í bíl sínum fyrir. _ Norska handknattleiksstjarnan Sander Sagosen þarf að gangast undir aðra skurðaðgerð á ökkla eftir að að- gerð sem hann gekkst undir í byrj- un júní bar ekki þann árangur sem vonast hafði verið eftir. Sagosen ökklabrotnaði í leik með Kiel gegn Hamburg í þýsku 1. deildinni í byrjun júní. Stuttu síðar gekkst hann undir aðgerð og tilkynnti Kiel að hún hefði gengið vel. Svo var þó ekki og þarf Sa- gosen því að fara undir hnífinn að nýju. Þetta staðfesti Harald Marcussen, sjúkraþjálfari norska karlalandsliðsins, í samtali við TV2 í gær. Aðgerðin verð- ur framkvæmd í dag eða á morgun. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2022 Noregur Odd – Bodö/Glimt ................................... 3:2 - Alfons Sampsted lék allan leikinn fyrir Bodö/Glimt. Kristiansund – Lilleström ...................... 1:3 - Brynjólfur Willumsson kom inn á sem varamaður á 78. mínútu hjá Kristiansund. - Hólmbert Aron Friðjónsson lék allan leikinn og skoraði fyrir Lilleström. HamKam – Molde .................................... 0:0 - Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki með Molde vegna meiðsla. Aalesund – Strömsgodset....................... 1:0 - Ari Leifsson lék allan leikinn fyrir Strömsgodset. Viking – Rosenborg ................................ 1:1 - Patrik Sigurður Gunnarsson varði mark Viking og Samúel Kári Friðjónsson lék fyrri hálfleikinn. Staðan: Lillestrøm 13 9 3 1 27:12 30 Molde 12 8 2 2 22:11 26 Viking 14 6 4 4 25:18 22 Strømsgodset 13 6 2 5 20:21 20 Sarpsborg 12 6 1 5 28:18 19 Bodø/Glimt 12 5 4 3 24:17 19 Aalesund 13 5 4 4 15:17 19 Rosenborg 12 4 6 2 20:15 18 Odd 13 6 0 7 14:19 18 HamKam 12 3 7 2 17:14 16 Tromsø 11 2 7 2 15:18 13 Sandefjord 11 4 1 6 19:23 13 Haugesund 13 3 3 7 20:25 12 Vålerenga 12 3 2 7 12:22 11 Jerv 11 3 1 7 6:19 10 Kristiansund 10 0 1 9 7:22 1 B-deild: KFUM Ósló – Sogndal............................. 3:2 - Jónatan Ingi Jónsson lék allan leikinn fyrir Sogndal og skoraði, Valdimar Þór Ingimundarson lék fyrstu 86 mínúturnar og lagði upp mark og Hörður Ingi Gunn- arsson lék allan leikinn. _ Efstu lið: Brann 29 stig, Stabæk 23, Ran- heim 23, Mjöndalen 22, KFUM Ósló 21, Sogndal 20, Sandnes 19, Start 16. 2. deild kvenna ÍA – Sindri................................................. 2:3 Völsungur – Álftanes ............................... 4:0 Fram – Einherji ....................................... 1:0 Staðan: Fram 6 6 0 0 20:2 18 Grótta 6 4 2 0 27:4 14 ÍR 6 4 2 0 19:6 14 Völsungur 6 4 2 0 17:3 14 Sindri 7 4 0 3 14:20 12 KH 4 2 1 1 14:8 7 Álftanes 7 2 1 5 14:22 7 ÍA 4 2 0 2 12:7 6 ÍH 6 1 1 4 11:27 4 Einherji 5 1 0 4 4:11 3 Hamar 6 0 1 5 7:22 1 KÁ 6 0 0 6 4:31 0 >;(//24)3;( Ástralía Forestville Eagles – South Adelaide 83:91 - Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 21 stig, tók 16 fráköst og gaf tvær stoðsend- ingar á 28 mínútum hjá South Adelaide. Undankeppni HM karla A-riðill: Slóvakía – Lettland .............................. 60:93 Serbía – Belgía....................................... (3:6) - Leiknum var frestað til dagsins í dag vegna rafmagnsleysis í keppnishöllinni. _ Staðan: Lettland 5/1, Belgía 3/2, Serbía 3/2, Slóvakía 0/6. B-riðill: Bretland – Tyrkland ............................ 71:85 _ Lokastaðan: Grikkland 3/1, Tyrkland 2/2, Bretland 1/3. Hvíta-Rússlandi var vísað úr keppni. C-riðill: Svíþjóð – Slóvenía................................. 81:84 Króatía – Finnland ............................... 79:81 _ Lokastaðan: Finnland 5/1, Slóvenía 4/2, Svíþjóð 2/4, Króatía 1/5. D-riðill: Þýskaland – Pólland............................. 93:83 Ísrael – Eistland................................... 96:77 _ Lokastaðan: Þýskaland 5/1, Ísrael 3/3, Eistland 2/4, Pólland 2/4. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Besta deild karla: KA-völlur: KA – Valur .............................. 18 Kaplakriki: FH – Stjarnan .................. 19.15 Breiðholt: Leiknir R. – ÍA ................... 19.15 2. deild karla: ÍR-völlur: ÍR – Ægir ............................ 19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.