Morgunblaðið - 04.07.2022, Side 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Stefán Pálsson sagnfræðingur leiðir sögugöngu í Viðey
annað kvöld kl. 19.15. Þátttaka er gestum að kostn-
aðarlausu en greiða þarf í ferjuna og verður siglt frá
Skarfabakka kl. 19.15 og til baka kl. 21.
Saga Viðeyjar er jafnlöng byggð í land-
inu og mun Stefán ganga með gesti
um gömlu húsin í miðeynni og yfir á
austurendann þar sem einu sinni var
stórskipahöfn landsins. Rætt verður
um dramatíska atburði siða-
skiptatímans, sérkennileg
kraftaverk þar sem bjór kem-
ur við sögu, magnaða mat-
arveislu, sjóskaða, þjóðtrú
og ömurlegan vetur stór-
skálds í eyjunni, eins og
segir í tilkynningu.
Sérkennileg kraftaverk, þjóðtrú og
ömurlegur vetur í sögugöngu
MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í knattspyrnu
um helgina. Keflavík lagði Fram, 3:1, í gærkvöldi og fær-
ist nú nær efri hluta deildarinnar.
Topplið Breiðabliks heimsótti ÍBV til Vestmannaeyja
þar sem niðurstaðan varð markalaust jafntefli, sem er
jafnframt fyrsta jafntefli Blika í deildinni í sumar. »26
Keflavík nálgast efri hlutann en
Breiðablik missteig sig
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Undanfarinn nær áratug hefur Júl-
íus Ágúst Guðmundsson, sölumaður
hjá lagnaversluninni Vatni og veit-
um, varið frítímanum í tréútskurð.
„Ég sker aðallega út ýmsar fígúrur,
álfa, jólasveina og sjómenn,“ segir
hann. „Áður gekk ég á fjöll en tré-
skurðurinn hefur tekið yfir.“
Sumarið 2013 var fjölskyldan í
sumarbústað einu sinni sem oftar.
Júlíus segist hafa rekist á viðarbút,
tekið hann upp og byrjað að skera í
hann. „Eftir að hafa dúllað mér um
stund sá ég að eitthvað kom út úr
þessu og þar með fór boltinn að
rúlla.“
Í kjölfarið fór hann á námskeið
hjá Jóni Adolf Steinólfssyni. „Hann
er mikill meistari og kom mér á
skrið, kenndi mér að beita áhöld-
unum, útskurðarjárnunum og hnífn-
um, og sýndi mér meðal annars
hvernig á að gera auga. Ég hef verið
í sambandi við hann síðan og notið
góðs af.“
Á öll nauðsynleg tæki
Júlíus hefur verið stjórnarmaður í
Félagi áhugamanna um tréskurð,
FÁT, undanfarin sex ár og þar af
varaformaður frá 2017, tók við af
Jóni Adolf. „Hann dró mig inn í
stjórnina 2016. Sagði ekkert mál að
vera í stjórn og engar skuldbind-
ingar. Starfsemin snerist fyrst og
fremst um að koma saman, drekka
kaffi og spjalla um útskurð. Annað
kom á daginn. Þetta hefur verið heil-
mikil vinna, en hún er skemmtileg
eins og útskurðurinn.“
Verk Júlíusar hafa verið á árlegri
vorsýningu félagsins síðan hann
gekk í það. Segist hafa verið blautur
á bak við eyrun til að byrja með en
hann hafi eflst með hverju árinu.
„Ég byrjaði smátt en verkin hafa
stækkað enda er ég kominn með
keðjusög, slípirokk og borfræsara.“
Hann leggur samt áherslu á að út-
skurðurinn sé bara áhugamál.
„Þetta er bara svo gaman að þegar
ég er byrjaður að skera út get ég
varla hætt. Ég ætla kannski að vera
í klukkutíma en hann verður gjarn-
an að þremur eða fjórum tímum.“
Spýta er ekki aðeins spýta þegar
búið er að eiga við hana með viðeig-
andi tréskurðaráhöldum. „Það er
sérstök tilfinning að sjá eitthvað
skapast,“ segir Júlíus. „Þetta er
hálfgerð hugleiðsla, að sjá andlit
myndast er engu líkt. Maður er í eig-
in heimi, einn með stykkinu sínu.
Það er einstakt.“
Júlíus segir mikinn mun vera á því
að skera út litla fígúru eða stóran
jólasvein. „Mér finnst skemmtilegra
að vera með lítinn bút í höndunum,
sitja inni í stofu eða í vinnuherberg-
inu og tálga. Hitt er meira fyrirtæki.
Þá þarf ég að vera úti og helst í góðu
veðri, sem ekki er hægt að ganga að
vísu.“
Viðurinn er misjafnlega erfiður.
„Birkið er langbest, það er minn við-
ur,“ segir Júlíus og bætir við að
hann geti verið 15 til 20 tíma með 20
til 25 sm fígúrur. Að undanförnu hef-
ur hann verið með grenitré að saga
út garðálf með keðjusög og segir að
það hafi gengið hægt. „Viðurinn er
grjótharður og keðjusögin nær varla
í gegnum harðan kvistinn,“ segir
hann. „Ég hef verið nokkra mánuði
með álfinn.“
Af fjöllum í tréútskurð
- Júlíus segir
áhugamálið hálf-
gerða hugleiðslu
Ljósmynd/Þráinn Freyr Clausen
Sköpun Júlíus Ágúst Guðmundsson hefur lengi unnið við garðálfinn.