Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Síða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022
H
versu oft heyrir maður að tíska fari í hringi? Ekki einungis það sem snýr
að fatnaði, hárgreiðslu eða hönnun heldur einnig að straumar og stefnur
í alls kyns afþreyingu eins og kvikmyndum og tónlist geti komist aftur í
tísku.
Jaaa, ég ætla nú ekki að fullyrða neitt um þetta þar sem ég hef ekki rannsakað
málið sérstaklega. En því er ekki að neita að sumarið 2022 er Top Gun með Tom
Cruise ein vinsælasta kvikmyndin í kvikmyndahúsum. Lagið Running Up That
Hill með Kate Bush náði efsta sæti á vinsældalistum og Master of Puppets með
Metallica sækir hratt í sig veðrið. Ástr-
alska sápuóperan Neighbours er í loft-
inu og þar er beðið eftir þætti með Ky-
lie Minogue.
Hér heima er Bubbi Morthens að
senda frá sér lag og Stuðmenn tróðu
upp í síðustu viku. Fólk sést víða spíg-
spora í skóm sem Michael Jordan lék
körfubolta í fyrir Chicago Bulls þegar
hann var nýliði í NBA-deildinni árið
1984. Ríkið rekur ennþá fjölmiðla og
Bogi Ágústsson sést á skjánum. Í póli-
tíkinni er rifist um hvort mögulega sé
hægt að treysta öðrum en ríkisstarfs-
mönnum til að selja áfengi í verslunum.
Bankaráðsfólk Blóðbankans telur að strákar sem vilja knúsa aðra stráka séu stór-
hættulegir menn og ótreystandi með öllu.
Ríki á Vesturlöndum eru í köldu stríði eða óbeinu stríði við Rússa og hvalavinir
erlendis hneykslast á því að Íslendingar veiði hvalategund sem ekki er í útrýming-
arhættu.
Allt hljómar þetta nú frekar kunnuglega. Engu líkara en að maður hafi farið um
borð í silfurlitaðan DeLorean en ekki silfurlitaða Toyotu.
Níundi áratugurinn var að mörgu leyti mjög skemmtilegur myndi ég halda. Þá
var ég bara barn og ekki kominn á sokkabandsárin en heyrist það á systkinum
mínum. Líklega væri bara hressandi ef Ultravox myndi senda frá sér slagara eða
Kim Basinger myndi leika í nýrri bíómynd.
Í afþreyingunni og íþróttum var níundi áratugurinn því fínn en síður áhugaverð-
ur í stjórnmálunum hér heima. Ég kæri mig alla vega ekki um að þurfa að þræla í
mig bjórlíki ef stjórnmálamenn skyldu ákveða að vantreysta þeim til að kaupa sér
bjórglas sem veita stjórnmálamönnum umboðið. Þannig var nú staðan á níunda
áratugnum og öll umræða um áfengissölu í dag er keimlík þeirri umræðu sem var
um hvort leyfa ætti bjór á Íslandi eða ekki. Hvort sem fólk trúir því eða ekki.
Lífið um borð
í hringekjunni
Pistill
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
’
Allt hljómar þetta nú
frekar kunnuglega.
Engu líkara en að maður
hafi farið um borð í silf-
urlitaðan DeLorean en
ekki silfurlitaða Toyotu.
Svala Guðrún Þormóðsdóttir
Ég hef fulla trú á því að þær komist
áfram.
SPURNING
DAGSINS
Heldurðu
að íslenska
liðið kom-
ist áfram á
EM kvenna
í knatt-
spyrnu?
Brynjar Már Sigurgeirsson
Já ég held að þær komist áfram.
Sigurveig Árnadóttir
Ég hef fulla trú á þeim. Mér finnst
þær standa sig vel.
Jóhann Ólafsson
Já. Íslensk landslið spila best þegar
allt er undir.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STEINEY SIGURÐARDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ber taugar
til Brahms
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga innlifun.is
Hvað er Velkomin heim?
Velkomin heim er tónleikaröð í Hörpu sem Hallveig
Rúnarsdóttir óperusöngkona sér um. Þar er fólki sem
verið hefur í tónlistarnámi erlendis tekið opnum örm-
um við komuna heim og fólki gefst tækifæri til að
spila sólótónleika. Tónleikaröðin hefur verið á sumrin
á undanförnum árum og hafa margir þá haldið sína
fyrstu tónleika hér heima eftir nám.
Hvernig tónlist verður á boðstólum?
Tónleikarnir verða í tveimur hlutum. Fyrst er einleiks-
hluti þar sem ég spila Bach-svítu í d-moll. Er það eitt af
uppáhaldsverkum mínum og örugglega allra sellóleikara
enda dásamleg svíta. Eftir það kemur annað einleiks-
verk sem er nútímaverk eftir Hafliða Hallgrímsson.
Það er í fimm köflum og heitir Solitaire. Er það fyrri
hluti tónleikanna.
Í síðari hlutanum er Tríó fyrir klarínett, selló og píanó
eftir Brahms. Er það einnig eitt af mínum uppáhalds-
verkum en ég kynntist kærastanum mínum þegar við
spiluðum það verk í námi í Þýskalandi. Verkið á því sér-
stakan stað í hjörtum okkar en hann er frá Nýja-
Sjálandi.
Hvað er framundan?
Ég spila á öðrum tónleikum á þriðjudag áður en ég fer í smá
sumarfrí. Spila þá með vinkonu minni Veru Panitch í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar. Næsta haust verður nóg að gera
með Sinfóníuhljómsveitinni og í nóvember er von á barni. Von-
andi get ég spilað fram eftir hausti en sellóið er ekki hent-
ugasta hljóðfærið þegar bumban stækkar.
Steiney Sigurðardóttir leikur á tónleikum í Hörpu 17. júlí klukkan 16. Tónleik-
arnir tilheyra tónleikaröðinni Velkomin heim sem FÍT, FÍH og Harpa standa að.