Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022
Litirnir eru fjölmargir
og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
HÁGÆÐA
VIÐARVÖRN FRÁ
SLIPPFÉLAGINU
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
S
telpurnar okkar gerðu jafntefli
við Belga í fyrsta leik sínum á
EM á Englandi, 1:1. Berglind
Björg Þorvaldsdóttir skoraði mark-
ið.
Flugfélög og flugvellir í Evrópu og
N-Ameríku glíma við manneklu og
hefur verið mikið um tafir og afbók-
anir ferða af þeim sökum.
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
hefur keypt allt hlutafé sjávarút-
vegsfyrirtækisins Vísis hf. í Grinda-
vík fyrir 20 milljarða króna. Vaxta-
berandi skuldir Vísis hf. nema um 11
milljörðum króna og nema viðskiptin
því samtals um 31 milljarði króna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra eru hvort á sinni skoð-
uninni um kaupin á Vísi. Hún hefur
áhyggjur en hann ekki. Sigurður
Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er
mitt þar á milli.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir utanríkisráðherra segir mik-
ilvægt að gera grein fyrir þeirri
áhættu sem kann að felast í því að
stunda viðskipti við ríki þar sem
réttarríkið á undir högg að sækja.
Aðilum sé þó frjálst að eiga viðskipti
þar sem þeir kjósa en ábyrgðina
bera þeir sjálfir.
Einfættur Ítali, Andrea Devicenzi,
ætlar að hjóla hringinn í kringum
landið á rúmum þremur vikum.
Brögð eru að því að gelt sé á sam-
kynhneigða karlmenn á almanna-
færi sem þykir til marks um að bak-
slag sé komið í réttindabaráttu
hinsegin fólks á Íslandi.
Þess var minnst í vikunni að hálf öld
er síðan Bobby Fischer og Boris
Spasskí settust að taflborðinu í ein-
vígi aldarinnar og ugglaust allra
tíma.
Málmhátíðin Eistnaflug var haldin á
ný eftir tveggja ára hlé. Sem fyrr fór
lítið fyrir fávitum.
Rykið var dustað af silfurpeningi
Filippusar á Bjólu sem mun ekki
hafa verið gömul specia.
3.000 stelpur spiluðu fótbolta á
Símamótinu í Kópavogi.
landinu.
. . .
Óánægja er meðal íbúa í Skorradal
vegna framkvæmda Skógrækt-
arinnar.
Þrjú af hverjum fjórum börnum sem
smitast höfðu af Covid-19 á Íslandi
fyrir haustið 2021 sýndu meðalmikil
einkenni en tæplega fjórðungur
barna var einkennalaus.
Tekist er á um hvort hán Hamlet
megi ekki bara vera ólétt en brjóst
Guðrúnar Köru Ingudóttur fóru
fyrir brjóstið á einhverjum gestum á
sýningu Listaháskóla Íslands.
Barnshafandi kona hefur víst ekki í
annan tíma leikið prinsinn/
prinsessuna í heimssögunni.
Laun á Íslandi hafa hækkað á síðasta
kjarasamningstímabili og eru því há
í alþjóðlegum samanburði, sam-
kvæmt nýrri skýrslu. Á móti kemur
að óvissan fram undan er mikil.
Ökumaður sem slapp ómeiddur úr
banaslysi á Meðallandsvegi er
grunaður um ölvun.
Regína Ásvaldsdóttir hefur verið
ráðin í starf bæjarstjóra í Mos-
fellsbæ.
Mikil þörf er fyrir aukna sjúkra-
flutninga með nýrri gerð sjúkra-
þyrlna og þarf tafarlaust á frum-
kvæði stjórnvalda að halda til að
tryggja það, að mati Sveins Hjalta
Guðmundssonar, þjálfunarflugs-
tjóra hjá Air Atlanta Icelandic.
Fyrrverandi stjórnandi Uber lak
124.000 skjölum í fjölmiðla.
. . .
Skemmtiferðaskip eru dagleg sjón
í Reykjavíkurhöfn um þessar mund-
ir.
Erlendur karlmaður starfaði í heil-
an mánuð hjá hóteli í Reykjanesbæ
án þess að fá nokkuð greitt.
Guðlaugur Þór Þórðarson, um-
hverfis-, orku- og loftslagsráðherra,
hefur skipað starfshóp til að gera til-
lögur til ríkisstjórnarinnar um nýt-
ingu vindorku.
Staðan á spítölum landsins er enn
þung og kórónuveirusmitum fer
fjölgandi.
Ríki og sveitarfélög hafa undirritað
samkomulag um uppbyggingu rúm-
lega 35 þúsund íbúða næstu tíu árin.
Það snjóar í júlí. Um er að ræða fræ
af hinum fjölséðu alaskaöspum sem
finna má víða um land.
2022 gæti orðið metár í umferðinni
en landinn er á faraldsfæti sem aldr-
ei fyrr, þrátt fyrir svimhátt verð á
eldsneyti.
Björn Bjarki Þorsteinsson hefur
verið ráðinn nýr sveitarstjóri Dala-
byggðar. Hann sótti ekki um starfið.
Jón G. Valgeirsson hefur verið ráð-
inn sveitarstjóri Rangárþings ytra.
Hann sótti um starfið.
Símar eru stranglega bannaðir á
tónleikum Bobs Dylans og verða að
vera í lokuðum pokum. Hljómar
ábyggilega í eyrum sumra eins og
pyntingaraðferð gagnvart stríðs-
föngum.
. . .
Munnkvillar eru algengir á hjúkr-
unarheimilum.
Björn Zoëga, nýskipaður stjórn-
arformaður Landspítalans, segir að
fækka þurfi stjórnlögum á spít-
alanum og einfalda hlutina.
Vínbúðin hefur hert á skilareglum.
Engin lúxussnekkja hefur komið til
Reykjavíkur í sumar.
Mannbjörg varð þegar feðgum á
strandveiðum var bjargað úr bát á
Breiðafirði sem tekinn var að leka.
Erfitt er að fá hótelgistingu á Ís-
landi í sumar.
Mánaðabið er eftir sérgreinalækn-
um.
Lóð sem nýtt hefur verið undir bíla-
stæði seldist á 5,5 milljónir króna.
Fjölskylda Johns Snorra Sigur-
jónssonar biðlar til fjallgöngufólks
að taka ekki myndir af líki hans þar
sem það liggur á fjallinu K2 í Pak-
istan.
Simone Biles, fremstu fimleikakonu
sögunnar, var boðin litabók um borð
í flugvél. Hún afþakkaði enda orðin
25 ára.
. . .
Stelpurnar okkar gerðu aftur 1:1-
jafntefli í öðrum leik sínum á EM á
Englandi, gegn Ítölum. Liðið á enn
möguleika á að komast áfram í átta
liða úrslit mótsins en þarf helst að
vinna ógnarsterkt lið Frakka á
morgun, mánudag, til að láta draum-
inn rætast.
Landeigendur í Hvammsvík hafa
kynnt áform um að bæta við 25 lóð-
um undir heilsárshús. Það ku vera
gert vegna mikillar eftirspurnar.
Bandaríski flugherinn hefur óskað
eftir 94 milljóna bandaríkjadala
framlagi vegna framkvæmda á
Keflavíkurflugvelli.
Guðjón Reynisson var endur-
kjörinn stjórnarformaður Festar.
Honum líst vel á nýkjörna stjórn og
vill sjá frið umhverfis félagið en
gustað hefur um það að undanförnu
eftir að forstjóranum var sagt upp.
Skemmtiferðaskip sigldi inn
Skagafjörð í fyrsta sinn í 45 ár.
Mikið er byggt í Hafnarfirði.
Smiðjan í Vík í Mýrdal var fyrsta
brugghús landsins sem fékk í hend-
urnar leyfi til þess að selja bjór á
framleiðslustað í samræmi við
breytt lög um smásölu áfengis.
Heildartekjur einstaklinga á Íslandi
námu 640 þúsund krónum í fyrra,
samkvæmt skattframtölum, og
hækkuðu því um 49 þúsund krónur á
milli ára.
Karlalið Breiðabliks er komið áfram
í Sambandsdeild Evrópu í knatt-
spyrnu.
Erlendur ferðamaður sofnaði á sal-
erni rútu og missti fyrir vikið af
flugi. Hann ku hafa verið við skál.
Lögregla ræsti manninn sem gekk
sína leið.
Siggi stormur segir að ekki sé öll
von úti fyrir sumarið í ár.
Ekki öll von úti
fyrir sumarið
Stelpurnar okkar hafa gert sitt allra
besta á EM á Englandi til að færa
okkur smá sumar heim í stofu.
Morgunblaðið/Eggert
09.07.-15.07.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is