Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022 Þ egar Quentin Tarantino drap niður fæti hér í fásinninu um árið birtist 12 ára gamall drengur óvænt í lobbíinu á hótelinu, sem hann dvaldist á, með 50 blaðsíðna bók eftir sjálfan sig undir hendinni og bað um að fá að hitta kvikmyndaleikstjórann fræga. Þegar honum var tjáð að hann væri ekki við sagðist sá stutti bara ætla að bíða. Það þótti starfs- fólki hótelsins ekki góð hugmynd en lofaði að koma bókinni til skila. Við það var staðið því skömmu síðar barst piltinum tveggja blað- síðna bréf frá Tarantino, þar sem hann var hvattur til dáða með setningum á borð við „sjáumst í bíó“ og „haltu pennanum á blaðinu“. Núna, 15 árum síðar, er téður piltur, Heimir Bjarnason, einmitt að frumsýna sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd, glæpamyndina Þrot. „Það er magnað að Tarantino hafi haft fyrir því að svara mér,“ segir hann brosandi. „Það var mér mikil hvatning.“ Fundum okkar ber saman á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur. Tíkin Ripley fylgir hús- bónda sínum en þar sem hún má ekki koma inn bíður hún bara stillt og prúð úti á svölum meðan við spjöllum. Leikstjórar eru auðvitað réttu týpurnar til að ala upp hunda, hugsa ég með mér. Tíkin heitir fullu nafni Ellen Ripley, eftir „bestu kvikmyndapersónu í heimi“ eins og Heimir orðar það, úr Alien-myndunum. Þau eru greinilega mjög samrýnd og Heimir upplýsir að enginn, fyrir utan hann sjálfan, hafi séð Þrot oftar. „Hún var á öxlinni á mér gegnum allt klippiferlið.“ Strax eftir viðtalið ætla þau að leggja í hann norður í land en Heimir hefur verið að forsýna Þrot á nokkrum stöðum á landsbyggðinni fyrir hina eiginlegu frumsýningu í Reykjavík á mið- vikudaginn. „Það hafa allir heyrt um tónleika- ferðalög og í mínum huga eru kvikmynda- ferðalög alveg eins sjálfsögð. Ég vil sýna verk mín sem víðast,“ segir Heimir og bætir við að viðtökur hafi verið góðar og áhugavert samtal þegar átt sér stað um myndina. Myndin er einnig lögð af stað í víking og hefur verið tekin til sýninga á nokkrum kvik- myndahátíðum erlendis og unnið til verðlauna. Dularfullt andlát Í Þroti er hermt af dularfullu andláti sem skekur lítið samfélag úti á landi. Ung kona deyr, að því er virðist með saknæmum hætti, en í stað þess að fylgjast nákvæmlega með rannsókn málsins þá hittum við mánuði síðar fyrir þrjár ólíkar manneskjur sem allar tengj- ast hinni látnu og takast hver á sinn hátt á við fráfall hennar. „Þetta er ekki „hver-gerði-það- mynd“, heldur „hvers-vegna-var-það-gert“,“ upplýsir Heimir. „Þetta eru í raun þrjár sjálf- stæðar sögur sem á endanum falla saman.“ Myndin var tekin á Hvolsvelli og nágrenni og staðurinn er hvorki óræður né uppdikt- aður, eins og er í tísku, heldur gerist sagan einfaldlega á Hvolsvelli. Ástæðan fyrir því er sú að Heimir þekkir ágætlega til á svæðinu en foreldrar hans eiga hestabúgarð skammt frá Hvolsvelli. „Það er dýrt að gera kvikmynd á sinn eigin reikning og ætli tökustaðirnir séu ekki um 50, sem er frekar mikið, þannig að ég varð að fá vinveitt fólk í lið með mér. Ég lagði leið mína bara í bæinn og vingaðist við sveit- arstjórann og aðra íbúa,“ segir hann hlæjandi. „Maður verður bara að bjarga sér.“ Heimir segir alla hafa tekið sér vel og verið boðna og búna að aðstoða eftir megni, hvort sem það var í heimahúsum, á heilsugæslunni, lögreglustöðinni eða bæjarskrifstofunni sem breytt var um stund í fyrirtæki fyrir píramí- dasvindl. Gjörningur sem Heimir hafði mjög gaman af. Staðaval fór þannig fram að hann gekk um bæinn ásamt kvikmyndatökustjór- anum, Nicole Goode, og mældi út hentuga tökustaði. „Síðan bönkuðum við bara upp á hjá fólki.“ Ísland í sinni tærustu og fallegustu mynd. Heimir frum-frumsýndi Þrot á Hvolsvelli um liðna helgi, ef svo má segja, og segir við- brögðin hafa verið mjög skemmtileg. „Það komu 200 manns á sýninguna sem er frábært í ljósi þess að bæði Landsmót hestamanna og Símamótið voru í gangi. Það heyrðist vel í fólki þegar það sá að ég var að „svindla“; til dæmis ef persóna fór inn í eitt hús en kom út úr öðru. Nokkuð sem áhorfendur annars staðar fatta auðvitað ekki.“ Bjór ef þið spottið Garðabæ Langmest var tekið fyrir austan en þó er í myndinni sena sem tekin var í gamla grunn- skólanum hans Heimis, Laugalækjarskóla í Reykjavík. Þá var ein sena tekin í Garðabæ. „Ef einhver fattar hvaða sena það er þá skal ég kaupa bjór handa viðkomandi,“ segir Heimir sposkur. Alltaf gaman að svona sam- kvæmisleikjum og um að gera fyrir áhorf- endur að taka hann á orðinu. „Annars held ég að ég hafi notað alla tökustaði sem ég þekki; þannig að ég er alveg tómur fyrir næstu mynd.“ Hann hlær. Tökuliðið vakti að vonum óskipta athygli meðan það var fyrir austan en grúppíustemn- ing myndaðist þó bara í kringum einn mann, Pálma Gestsson leikara. „Krakkarnir eltu hann á röndum, bentu á hann og sögðu: Þarna er Spaugstofukarlinn!“ rifjar Heimir upp hlæjandi. Hugmyndin að Þroti kviknaði meðan Heim- ir var á lokaári í Verzlunarskóla Íslands, 2014- 15. Hann setti á laggirnar nefnd í skólanum sem hann kallaði Kínó og hafði að markmiði að gera kvikmynd í fullri lengd undir heitinu Þrot. „Þetta voru mjög metnaðarfull áform og okkur tókst hér um bil að ljúka við myndina. Raunar eiga þessi mynd og myndin sem ég er að frumsýna núna fátt sameiginlegt fyrir utan Morgunblaðið/Árni Sæberg Innsýn í sjálfan mig Þrot, fyrsta kvikmynd Heimis Bjarnasonar í fullri lengd, verður frumsýnd á miðvikudaginn. Myndin hefur verið lengi í vinnslu og tekið miklum breytingum á leiðinni enda er hún öðrum þræði leit Heimis að sjálfum sér. Hann átti undir högg að sækja sem barn og unglingur, féll illa að hópum, en lifði og lærði á lífið gegnum kvikmyndir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Heimir Bjarnason ákvað fimm ára gamall að hann ætlaði að verða kvik- myndagerðarmaður. Allt hans líf hef- ur hverfst um kvikmyndir. 5

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.