Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Side 15
17.7. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 „Það sem þetta kenndi mér var að maður verður að hafa eitthvað að segja; að öðrum kosti er betur heima setið. Maður bombar ekki bara einhverju út. Að þessari reynslu bjó ég þegar ég gerði Þrot enda er margt viðkvæmt þar og vandmeðfarið.“ Eins og fram hefur komið varð fyrsta hand- ritsútgáfan af Þrot til árið 2014. Þau eru all- mörg síðan. „Ég hef skrifað rosalega margar útgáfur og sagan tekið miklum breytingum – úr miklum hasar yfir í meiri karakterstúdíu. Nafnið lifði þó alltaf enda var ég búinn að lofa sjálfum mér að klára þessa mynd,“ segir Heimir og dregur peysuna upp og sýnir mér húðfúr undir hægri handarkrika: Þrot. „Ég ætla ekki að þekja líkama minn með tattúum en pælingin er að vera með IMDB-lista á síð- unni.“ Fyrir þá sem ekki þekkja er IMDB kvik- myndavefur með öllum helstu upplýsingum um allar mögulegar og ómögulegar kvikmynd- ir gegnum söguna. Skrifin voru sálfræðimeðferð Hann lærði margt á skrifunum. „Handrits- skrif Þrots var ekki bara vinna fyrir mér held- ur sálfræðimeðferð sem tók mig fjögur ár að klára. Ég spegla mig mikið í aðalpersónunum þremur enda hafa þær alla eiginleika sem ég ber sjálfur og með því að kryfja þær náði ég skýrari mynd af sjálfum mér. Samhliða því að klára handritið áttaði ég mig betur á sjálfum mér. Ég lagði ekki upp með að gera þetta svona, það læddist eiginlega bara aftan að mér. Það er því taugatrekkjandi að afhjúpa myndina því þótt hún sé bara enn eitt saka- máladramað á yfirborðinu þá er hún líka inn- sýn í sjálfan mig.“ Sjálfur á hann margt sameiginlegt með að- alpersónunni, Rögnu. „Hún á sér ekki stað í lífinu og festir sig fyrir vikið við bróður sinn sem verður henni fyrirmynd. Þetta systk- inasamband vildi ég skoða. Þótt ég byggi Rögnu mikið á eigin reynslu þá er umhverfið og sagan allt önnur. Ég flýtti mér til dæmis að segja við mömmu eftir að hún sá myndina að mamma Rögnu væri ekki byggð á henni.“ Hann hlær. Hin aðalkvenpersónan, Arna, er meiri upp- reisnarseggur og anarkisti. „Ég dett oft í þann gír sjálfur. Verð stundum þreyttur á regl- unum og íhaldinu,“ segir Heimir hlæjandi. Þriðja persónan, Júlíus, glímir svo við for- dóma. „Það er eitthvað sem við öll þurfum að horfast í augu við.“ Þó eftir hann liggi einhverjar tíu stutt- myndir þá er ferlið mun lengra og strengra við gerð bíómyndar í fullri lengd. Heimir kveðst hafa notið sín fram í fingurgóma á tökustað. „Mér finnst ég vera 100% ég á setti. Þar er ég í elementinu mínu, veit nákvæmlega hvað ég vil og get svarað öllum spurningum sem fyrir mig eru lagðar. En þetta var samt alveg erfitt, ég missti átta kíló á einum mánuði.“ Lærði margt af leikurunum Heimir gæti ekki verið ánægðari með leik- arana í myndinni. „Ég kynntist Báru Lind Þórarinsdóttur í Verzlunarskólanum þegar við settum upp leikritið Kæra Jelena saman. Ég var í nefndinni og hún lék í verkinu. Þegar ég sá frammistöðu hennar þar vissi ég að ég þyrfti að vinna með henni í framtíðinni. Anna Hafþórsdóttir og Bjarni Snæbjörnsson sýna einnig stórleik í myndinni og það var frábært að vinna með þeim. Þau komu með sína reynslu og pælingar inn í ferlið og gerðu per- sónurnar algjörlega að sínum. Svo var auðvit- að æðislegt að vinna með Guðrúnu S. Gísla- dóttur og Pálma Gestssyni. Þau stóðu sig frábærlega og ég lærði helling af því að vinna með þeim. Ég viðurkenni að það var svolítið yfirþyrmandi að vera yfirmaðurinn á staðnum enda flestir með mun meiri reyslu en ég. En það gekk allt vel .“ Þrot var að mestu tekin upp árið 2018 en hvers vegna er hún fyrst að koma fyrir sjónir almennings nú? „Það er vegna þess að ég hef fjármagnað hana að fullu sjálfur. Þegar búið var að taka myndina þurfti ég að vinna í hálft ár til að hafa efni á litgreiningu, aftur í hálft ár til að hafa efni á tónlistinni og þar fram eftir götunum. Ég kláraði að klippa myndina fyrir tveimur árum en eftirvinnslan tekur sinn tíma. Maður sleppir þessu ekki frá sér fyrr en maður er orðinn 100% ánægður.“ Heimir segir að myndin sé nákvæmlega eins og hann vill hafa hana. „Auðvitað hefði verið gott að vera með helmingi meira „bud- get“ en myndin væri samt í grunninn ekkert öðruvísi. Kannski væru aðeins fleiri aukaleik- arar og betri matur á setti.“ Hann brosir. Þá segir annar okkar „Bónus?“ Vinnan sem hann getur um er að sjálfsögðu í faginu en Heimir hefur starfað sem klippari undanfarin sex ár. Meðal annars klippt Par- don My Icelandic, uppistand Ara Eldjárns á Netflix og sjónvarpsþættina Steindacon sem sýndir voru á Stöð 2. Um þessar mundir er hann að klippa sjón- varpsþættina Storm, sem Sævar Guðmunds- son og Jóhannes Kr. Kristjánsson eru að gera en þeir fjalla um heimsfaraldur kórónuveir- unnar og eru ekki litlir að umfangi. „Þetta voru 400 tökudagar, sem hlýtur að vera Ís- landsmet, og ég er búinn að vera að klippa í 18 mánuði; koma þessu fyrir í átta þáttum,“ segir Heimir en ekki liggur fyrir hvenær Stormur verður frumsýndur. Honum líkar vel að vinna með Sævari og hefur lært margt af honum. „Við eigum líka ágætlega skap saman, erum báðir mjög róleg- ir að upplagi. Við sitjum oft saman á skrifstof- unni heilu dagana og hvorugur segir neitt fyr- ir en kannski klukkan fjögur. Þá segir annar okkar „Bónus?“ og ekki er sagt meira þann daginn.“ Hann hlær. – Sem nýr maður í faginu, hvað ertu að koma með að borðinu? „Ætli það sé ekki fyrst og fremst rödd þeirra sem eru utanveltu í lífinu og vonandi ferskt sjónarhorn á ákveðnar hefðir í sam- félaginu. Annars ætla ég mér ekki að festast í ákveðnum geira, myndirnir mínar eiga að verða bræðingur tóna. Planið er til dæmis að gera mun léttari mynd næst og svo hrollvekju þar á eftir.“ – Eru þær nú þegar á teikniborðinu? „Já, ég er kominn langt með hanrit að þeim báðum. Það fer eftir skapinu hverju sinni hvor hefur forgang. Ætli gamanmyndin verði ekki á undan. Hún er með rómantísku ívafi, mun heita Fínt og sögusviðið er Akureyri. Það er ákaflega vannýttur staður fyrir kvikmyndir; við eigum bara eitthvert korter í Með allt á hreinu. Ef allt gengur upp verð ég að frum- sýna hana eftir þrjú ár. Þá myndi ég snúa mér að hrollvekjunni sem mun heita Fórn. Ég held mig við fjögurra stafa heitin.“ Wilder í mestu uppáhaldi Quentin Tarantino og Baldvin Z hafa þegar verið nefndir, enda hafa þeir báðir haft djúp- stæð áhrif á Heimi og verið honum hvatning, en þegar hann er spurður um aðra helstu áhrifavalda nefnir hann fyrst goðsögnina Billy Wilder. Hann sé í mestu uppáhaldi. „Ég er líka mjög hrifinn af þýska leikstjóranum Mar- en Ade, sérstaklega myndinni Toni Erdman. Ég veit að þriggja tíma þýsk grínmynd lítur ekkert vel út á pappír en þetta er æðisleg mynd. Ég nefni líka Danann Thomas Vinter- berg. Hann er algjör snillingur. Hér heima hef ég mikið dálæti á Hafsteini Gunnari Sigurðs- syni sem gerði Á annan veg. Sú mynd gaf mér sjálfum kraft og þrek til að halda ótrauður áfram.“ – Stefnirðu á stærri markað í framtíðinni? „Mig langar alveg út og hef horft til Norð- urlandanna í því sambandi. Næstu myndir verða íslenskar, eins og ég hef lýst, en ég er með sögur sem geta gerst hvar sem er í heim- inum. Auðvitað heillar Hollywood, ég væri að skrökva ef ég segði annað. Þar eru tækifærin og að sjálfsögðu dreymir mig um að gera ein- hvern tíma alvörupopp og kók-mynd þar. Kannski verður það bara útgáfan af Þroti sem ég gerði í Versló – hún myndi ábyggilega ganga í Hollywood.“ Hann hlær. Núna þegar nokkrir dagar eru í frumsýn- ingu viðurkennir Heimir að hann sé í senn mjög spenntur og mjög stressaður. „Mér líður eins og að ég sé að bíða eftir einkunn. Flestir fara í háskóla, ég gerði bíómynd. Það var BS- námið mitt. Ég er bæði spenntur að heyra hvað almenningur og gagnrýnendur hafa að segja og vona að fólk verði heiðarlegt. Ég mun ekki taka neinu persónulega. Mér finnst stundum eins og að svona litlar myndir fái ekki alltaf umfjöllun en vona að gagnrýnendur fjalli um Þrot. Það skiptir öllu máli fyrir kvik- myndagerð að fá viðbrögð til að geta lært og orðið betri.“ Svo þarf vitaskuld að senda myndina sem leið liggur vestur yfir Atlantsála. „Heldur bet- ur,“ segir Heimir brosandi. „Ég vona að ég geti sýnt Quentin Tarantino Þrot á næstunni.“ Heimir fer yfir málin með Silju Rós Ragnarsdóttur og Báru Lind Þórarinsdóttur við tökur á Þroti. Heimir og Nicole Goode kvikmynda- tökustjóri ræðast við á tökustað. Pálmi Gestsson og Anna Haf- þórsdóttir fara með hlutverk í myndinni. Bára Lind Þórarinsdóttir og Guðrún S. Gísladóttir í hlutverkum sínum í Þroti.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.