Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Page 19
17.7. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Sumarið er að koma í Vín þegar listmálarinn Bergur Nordal tekur á móti blaðamanni. Borgarbúar njóta matar og drykkjar í fagur- grænum görðum eða lesa bók í sólinni. Torgin aftur iðandi af lífi eftir samkomutakmarkanir í faraldrinum. Bergur útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2019. Hann var eina önn skiptinemi við Listaakademíuna í Vín og líkaði skólavistin svo vel að hann sótti um inngöngu í akademíuna. „Ég fór til Vínar af því að Listaakademían hefur sérstöðu sem listaháskóli. Hér fær mað- ur þann tíma sem maður þarf til að búa til handbragð. Ef ég færi til dæmis í meist- aranám í Norður-Evrópu fengi ég ekki þennan mikilvæga tíma til þess að sökkva mér í mál- verkið,“ segir Bergur sem hefur náð góðu valdi á list sinni og mótað sinn eigin mynd- heim. Höfðu listir í hávegum Listaakademían í Vín er við Schillerplatz í miðborginni. Vinnustofur nemenda snúa til norðurs og þar er hátt til lofts. Fulltrúi skól- ans sýndi okkur bygginguna sem er með stórum sölum og inngarði. Á þriðju hæð stóð yfir sýning á verkum nemenda en á sömu hæð var sýning á verkum í eigu akademíunnar. Mátti þar meðal annars sjá verk eftir Hieronymus Bosch og Sandro Botticelli í bland við nútímalist. Miklu var til kostað til byggingar akademí- unnar sem reist var í tíð Frans Jósefs 1. keis- ara á ofanverðri 19. öld. Voru þá meðal annars einnig reist óperuhúsin í Vínarborg og í Búda- pest en hin ráðandi stétt hafði listir þá í háveg- um. Geta boðið upp á það besta Bergur sýnir blaðamanni svo miðborgina og nokkur af helstu listasöfnunum. Athygli vekur að svo mörg góð verk eftir gamla meistara skuli vera til sýnis samtímis á litlum bletti í borginni. Bergur útskýrir þá að söfnin í Vín eigi gríðarlegt magn listaverka og geti því skipst á verkum við listasöfn í Evrópu. Með því fái Vínarbúar reglulega að sjá verk í hæsta gæðaflokki eftir þekkta listamenn. Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur tekið þátt í mörgum sýningum. Listunnendur geta séð tvö stór málverk eftir hann á Hrafnseyri í sumar en sýningin er hluti af sýningaröðinni Umhverfingu á Vestfjörðum. Tvö af verkum Bergs í vinnslu. Verkið hægra megin verður til sýnis á Hrafnseyri í sumar. Tími til að sökkva sér í málverkið Þrátt fyrir að vera ungur að árum hefur Bergur Nordal þegar þróað einkennandi myndheim. Bergur Nordal við tvö af verkum sínum. Morgunblaðið/Baldur Bergur við akademíuna. Hallgrímur Árnason hóf nám í arkitektúr við Listaakademíuna í Vín árið 2014. „Ég elti þáverandi kærustu mína sem var að fara í óperunám og kolféll svo fyrir borginni að ég er hér enn átta árum síðar. Ég hætti eftir eina önn í akademíunni og skipti yfir í Nýja hönnunarháskólann, eða New Design Univers- ity eins og hann heitir á ensku, og lauk þaðan BA-námi í vöruhönnun. Síðastliðin tvö ár hef ég svo stundað nám við myndlistardeild Lista- akademíunnar og verð komandi vetur gestur í bekk Daniels Richter við sömu stofnun,“ segir Hallgrímur en leiðbeinandi hans, Richter, er þekktur listmálari í Evrópu. „Sem myndlistarmaður er ég einhvers kon- ar afsprengi af kórónuveirufaraldrinum en ég byrjaði að mála í rúmlega þriggja mánaða ein- angrun í Þýskalandi og kolféll þá fyrir mál- verkinu og hef ekki hætt að mála síðan,“ segir Hallgrímur og sýnir blaðamanni stór og kraft- mikil abstraktverk í íbúð sinni við Kranzgasse í fimmtánda hverfi Vínar. Þar býr hann ásamt þýskri sambýliskonu sinni sem lýkur innan skamms sérfræðinámi í heimilislækningum. Fyrsta sýningin sem Hallgrímur tók þátt í var listamessan PARALLEL VIENNA árið 2020. Önnur sýningin var samsýning í Wol- kersdorf, í útjaðri Vínar, í vor en þar sýndi hann verk ásamt kennaranum Franz Wiebmer og tveimur öðrum nemendum við akademíuna. Þar áður hafði Hallgrímur tekið þátt í hönn- unarsýningum í Austurríki og nágrannalönd- um og m.a. verið einn fulltrúa Austurríkis á Hönnunarvikunni í Zagreb, ásamt því að hafa sýnt stólahönnun í MAK-safninu í Vín, einu virtasta hönnunarsafni Evrópu. „Nú hef ég lagt hönnun á hilluna og er eingöngu að mála,“ segir Hallgrímur sem hyggst sýna á Íslandi. Hallgrímur Árnason við eitt af verkum sínum. Morgunblaðið/Baldur Aftur í akademíuna Hallgrímur Árnason var á uppleið sem hönnuður í Austurríki þegar myndlistargyðjan knúði dyra í faraldrinum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.