Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.07.2022, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.7. 2022
LÍFSSTÍLL
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040
BAÐAÐU ÞIG
Í GÆÐUNUM
A
nthony Karl var þekktur
knattspyrnumaður hér
heima á sínum tíma og varð
bæði Íslands- og bikarmeistari í
íþróttinni. Anthony lagði takkaskóna
á hilluna árið 1998.
Anthony er mörgum eft-
irminnilegur enda sá eini sem skorað
hefur þrennu í bikarúrslitaleik og var
lykilmaður í liði KA sem sigraði
óvænt á Íslandsmótinu árið 1989.
Árin hafa liðið og knattspyrnan er
ekki endilega fyrirferðamikil í lífi
Anthony í dag í þeim skilningi að
hann fór ekki út í þjálfun eða störf
tengd sparkinu. Anthony var við
vinnu sína í Landsbankanum þegar
hann fór að fá símtöl utan úr heimi.
Hann sinnti því ekki í fyrstu enda
þekkjum við flest að fá alls kyns und-
arleg símtöl utan úr heimi frá óheið-
arlegum lukkuriddurum.
Anthony áttaði sig þó smám saman
á því að ítölskum manni var mjög um-
hugað um að komast í samband við
hann. Í ljós kom að sá safnar knatt-
spyrnutreyjum og hafði augastað á
treyju Juventus frá keppn-
istímabilinu 1986-1987. Þá mættust
Valur og Juventus í 1. umferð Evr-
ópukeppni meistaraliða.
„Hann sendi mér skilaboð og út-
skýrði málið. Ég sá strax að þetta var
ekki venjulegt erindi og þarna væri
alvörusafnari á ferðinni. Ég skynjaði
það strax. Við höfum verið í sam-
skiptum í nokkrar vikur og hann
sagðist vera á leið til Íslands í frí með
fjölskyldunni,“ segir Anthony í sam-
tali við Sunnudagsblaðið.
Sá ítalski heitir Nino Spampinato
og á yfirgripsmikið safn af knatt-
spyrnutreyjum ásamt bróður sínum
Angelo. Spurði hann Anthony Karl
hvort hann hefði ekki örugglega spil-
að á móti Juventus og skiptst á treyj-
um við andstæðing. Anthony var ein-
ungis tvítugur en var að vinna sig inn
í sterkt lið Vals og kom inn á í heima-
leiknum á móti Juventus.
Ástríðan leynir sér ekki
Svo vildi til að Anthony hafði fengið
Juventus-treyjur eftir báðar við-
ureignirnar haustið 1986. Aðra hafði
hann gefið Halldóri Einarssyni í
Henson í afmælisgjöf. Sú var úr
leiknum á Laugardalsvelli en svo vel
vildi til að Spampinato hafði meiri
áhuga á treyjunni úr leiknum í Tór-
ínó. Juventus var víst með tvær örlít-
ið mismunandi útgáfur af aðalbúningi
liðsins og bræðurna vantaði treyju
eins og þá sem Juventus klæddist í
fyrri leiknum gegn Val.
Nú var Nino Spampinato kominn í
samband við leikmann úr Val sem átti
slíka treyju og hamraði járnið á með-
an það var heitt. Tók hann smá krók í
fríi sínu á Íslandi og hélt til fundar við
Anthony á heimili hans í Hlíðunum.
Þar fékk hann treyjuna góðu og Ant-
hony sagði Ítalann hafa ljómað eins
og sól í heiði.
„Maður fann alveg ástríðuna.
Hann settist hérna og fékk kaffi en
þegar ég kom fram með treyjuna þá
nötraði hann bara. Þetta er greini-
lega dýrgripur í hans huga og maður
sá það bara á því hvernig hann hand-
fjatlaði treyjuna,“ lýsir Anthony.
Treyjan er númer 14 og blaðamanni
sýnist að Roberto Soldá hafi leikið í
henni í fyrri leik Juventus og Vals í
Tórínó. Var þetta eina tímabil Soldá
hjá Juventus en hann lék einnig með-
al annars með Lazio og Atalanta á
löngum ferli.
Eiga um 700 treyjur
Þegar Morgunblaðið bar að garði í
Hlíðunum var Spampinato enn með
breitt bros á vor. Í ljós kemur að
safnið er geysilega umfangsmikið en
þar eru treyjur frá Juventus fyr-
irferðarmiklar.
„Þetta er okkar ástríða og söfnunin
hófst fyrir átján árum síðan. Frá
barnsaldri hefur knattspyrnan verið
mikið áhugamál hjá okkur og ítalska
knattspyrnan hefur aldrei verið
sterkari heldur en á níunda áratugn-
um þegar við vorum að alast upp. Við
höfum alltaf verið stuðningsmenn Ju-
ventus eins og fleiri í okkar fjöl-
skyldu. Við söfnum alls konar knatt-
spyrnutreyjum en Juventustreyjur
eru þungamiðjan í safninu,“ segir
Nino Spampinato og upp úr krafsinu
kemur að þeir bræður safna einungis
treyjum sem notaðar hafa verið í
leikjum. Ekki er um að ræða treyjur
úr verslunum og þeir sem gefa, eða
selja bræðrunum treyju, votta skrif-
lega að treyjan hafi verið notuð í leik.
„Nánast allar treyjurnar höfum við
fengið í gegnum fyrrverandi leik-
menn, fyrrverandi þjálfara eða
starfsfólk í kringum liðin eins og
sjúkraþjálfara. Þessi treyja er frá-
brugðin þeirri treyju sem Juventus
notaði mest vegna þess að í miðjunni
er svört rönd en ekki hvít. Þessi
treyja var einungis notuð fjórum eða
fimm sinnum keppnistímabilið 1986-
1987. Er það ástæða þess að ég leitaði
lengi að treyju sem þessari. Þegar við
fjölskyldan ákváðum að fara til Ís-
lands í frí þá setti ég mig í samband
við herra Anthony en ég tók eftir því
að hann var í leikmannahópi Vals í
báðum leikjunum,“ útskýrir Spamp-
inato sem kemur frá Catania á Sikil-
ey. Hann hefur síðustu árin búið í
Mílanó en bjó í höfuðborginni Róm í
aldarfjórðung. Hann tekur ekki ann-
að í mál en að fá að sýna Anthony
Karli og hans fjölskyldu allt það
helsta í Mílanó ef þau skyldu ein-
hvern tíma vera stödd í túnfætinum
hjá honum.
Í safni þeirra bræðra eru um 700
treyjur. Þar má finna treyju sem
Michael Platini spilaði undanúrslita-
leik Evrópukeppninnar í árið áður
þegar Juventus vann keppnina. Verð-
mætustu treyjuna í safninu telur
Spampinato vera ítalska lands-
liðstreyju sem Claudio Gentile lék í í
úrslitaleiknum gegn V-Þýskalandi á
HM 1982 þegar Ítalía varð heims-
meistari. Einnig eiga þeir treyju sem
markakóngur HM 1982 Paolo Rossi
lék í í keppninni.
Treyjurnar í geymslunni
Anthony Karl hefur aldrei gert mikið
við treyjurnar sem hann eignaðist á
ferlinum. Hann hafði það hins vegar
aldrei í sér að fara með þær í Sorpu.
Fannst ekki rétt að gera það og því
hafa þær verið í poka í geymslunni.
Anthony bendir á að hann hafi flutt
margsinnis á þeim þrjátíu og sex ár-
um sem liðin eru frá því hann spilaði á
móti Juventus en treyjan hafi samt
verið til. Þurfti hann að hugsa sig um
áður en hann lét treyjuna frá sér?
„Það var ekkert sjálfsagt að gefa
hana frá sér. Þegar ég skynjaði áhug-
ann hjá Ítalanum þá hugsaði ég með
mér að það væri kannski betra að
hann fengi þessi treyju frekar en að
hún væri ofan í poka í geymslunni hjá
mér. Það er virkilega gaman að rifja
upp þessa leiki. Þótt treyjan hafi til-
finningalegt gildi fyrir mig þá er ég
einhvern veginn svo glaður í hjart-
anum eftir að hafa hitt hann og séð
ánægjuna í hans augum. Þetta var
sérstakt augnablik og ég hafði gaman
að þessu. Þegar ég fór í pokann þá
kannaði ég hvort ég ætti fleiri treyjur
sem ég væri til í að láta hann hafa. Ég
gaf honum eina Valstreyju og treyju
Tékkóslóvakíu frá landsleik árið
1990. Það ríki er ekki lengur til og
kannski hefur það eitthvert söfn-
unargildi fyrir hann,“ segir Anthony
og kannast við að af og til fái hann
einhvers konar fyrirspurnir sem
tengist knattspyrnuferlinum. Í fyrra
var Anthony Karl til að mynda í
opnuviðtali hjá staðarblaði í Bodö
þegar norsku meistararnir Bodö/
Glimt mætti Val. Anthony var fyrsti
erlendi leikmaður sem lék með Bodö/
Glimt en þar var hann 1994. Þegar
Anthony lítur um öxl þá segir hann
Juventusleikina hafa verið ævintýri
fyrir áhugamennina í Val.
„Svona lagað gerist ekki í dag.
Þarna voru öll liðin í keppninni sam-
an í potti fyrir 1. umferð og við dróg-
umst á móti liðinu sem vann keppnina
árið áður. Þetta var því rosalega stórt
fyrir okkur enda hafði Juventus verið
besta félagslið í heimi. Það gerði okk-
ur svolítið stóra að fara til Tórínó þar
sem allur aðbúnaður var eins og best
gerist. Þar var knattspyrnuáhuginn
miklu meiri en við höfðum nokkurn
tíma kynnst. Þegar við æfðum úti í
Tórínó fyrir leikinn þá voru 500
áhorfendur á æfingunni en við vorum
nokkuð sáttir ef það komu 500 manns
á leiki hjá okkur hér heima. Við vor-
um áhugamenn og áttum auðvitað
ekki möguleika gegn besta liði í
heimi. Það segir sig sjálft en þetta var
mikil upplifun.“
Gimsteinn í
treyjusafnið
Anthony Karl Gregory fékk óvenjulega heimsókn
á dögunum. Ítalskur treyjusafnari sætti færis í
sumarfríinu á Íslandi og nældi í keppnistreyju
sem hann hefur lengi leitað að.
Kristján Jónsson kris@mbl.is
Nino og Ant-
hony Karl með
treyjuna góðu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anthony Karl Gregory sækir að marki Juventus á Laugardalsvellinum.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson